Vísir - 14.10.1966, Page 16

Vísir - 14.10.1966, Page 16
VISIR Fösiudagur 14. október 1966. Flokksráðsfundur Flokksráösmenn Sjálfstæðis- flokksins eru roinntir á fulitrúa- ráðsfundmn, sem hefst f dag kl. 2 e.h. í Sjálfstæðislriisimi. MARGYFIRL YSTSTEFNA USA AÐ KOMA Á FRIÐI í VIET Tvær umsóknir um prófessorsemb- ætti í lögum Tveir sóttu um prófessorsemb- ættið í lögum við Háskóla íslands, en umsóknarfresturinn rann út 10. október. Það eru þeir Lúðvík Ing- varsson, fyrrum sýslumaður £ S- Múlasýslu og Þór Vilhjálmsson borgardómari í Keykjavík. — Unnið er nú að margs konar endurbótum i landinu, segir mr. Holmes, fyrrv. sendi- herra USA, sem er hér i stuttri heimsókn „Það hefur alltaf verið yfir- lýst stefna Bandaríkjastjómar að koma á vopnahléi i Viet Nam. Stjóm Bandarikjanna hef- ur notað hvert tækifæri, sem boðizt hefur til að koma þess- ari stefnu sinni á framfæri við gagnaðilann í styrjöldinni, en til þessa meö litlum árangri". Þetta voru orð mr. Julius C. Holmes, fyrrverandi sendiherra Banda- rikjanna víða um heim, m. a. í London. Fréttamaöur Vísis spjallaði stutta stund við mr, Holmes í gærkvöldi. Hann mun á laugardaginn halda fyrirlestur á vegum Stúdentafélags Reykja- víkur í Sigtúni, og mun fyrir- lestur hans fjalla að mestu leyti um það, sem er að gerast í Suð- austur Asíu. Mr. Holmes sagði einnig í gær kvöldi: „Það eru vopnaátökin í Viet Nam, sem alltaf er gert mest úr í frásögnum blaða. Minni áherzla er lögð á aðra starfsemi Bandaríkjastjórnar í landinu. Bandaríkjastjóm hefur í samráði við stjóm Suður-Viet Nam verið að koma á ýmsum endurbótum í landinu. Byggö hafa veriö sjúkraskýli, skólastof ur og fleiri álíka stofnanir. Þess má geta sem dæmi að á sl. ári hafa verið byggðar í Suður-Viet Nam allt að 10.000 skólastofur, þannig, að Bandaríkjastjóm hef- ur látið f té efni til bygginganna, en fbúar Suður-Viet Nam hafa síðan annazt byggingafram- kvæmdir. Stundum hefur að Framh. á bls. 6. Rússar brugóust loforði um afgreiðslu á betra benzíni Oliufélögin hafa ekki fengið leyfi til að inn vestrænt benzin með hærri oktantólu, þrátt fyrir eindregin tilmæli Vilhfálmur Jónsson, for- stjóri Olíufélagsins h.f., skýrði Vísi frá því í gær, að olíufélögin gætu ekki fengið benzín frá Sovét- ríkjunum með hærri okt- antölu en nú er og þau gætu heldur ekki fengið heimild til að flytja inn frá vestrænum löndum benzín með hærri oktantölu. Þetta kom fram í viðtali, sem Vísir átti í gær viö Vilhjálm út af ummælum Arinbjamar Kolbeins- sonar læknis, og formanns Félags íslenzkra bifreiðaeigenda, þar sem hann lét i ljós megna óánægju af hálfu FÍB út af því, aö einungis fæst innflutt benzín með oktantöl- unni 87, þegar vélar flestra bíla, sem nú eru fíuttir inn, þurfa oktan- töluna 94 eða enn hærri. Vilhjálmur sagði: „Það hefur ekki staðið á olíufélögunum að flytja inn betra benzín. Þau hafa ár eftir ár óskað eftir því við Rússa, að þeir afgreiddu hingað benzín með hærri oktantölu. Rússar hafa hins vegar ekki taliö sig geta afgreitt betra benzín en nú er flutt hingaö. Þegar olíusamningur var gerður fyr ir yfirstandandi ár, lofuöu Rússar að afgreiða árið 1967 benzín með hærri oktantölu. Eftir ítrekaöar fyr- irspumir olfufélaganna kom svo bréf frá Sovétrfkjunum 20. septem- ber, þar sem sagt var, að ekki mundi verða hægt að flytja hingað benzín meö hærri oktantölu á ár- inu 1967. — Olíufélögin hafa einnig ósk- Framh. á bls. 6. Vopnahlé í „eggjastríði // Deilumál nokkurt á Akranesi virðist nú aö fullu útkljáð, en það er deila við bændur á Inn nesinu vegna eggjatöku bæjar- búa í Akrafjalli, en það hefur raunar verið árviss deila, því þegar bæjarbúar hafa farið til eggjatöku í fjallinu hefur eldur inn blossað upp. En nú fór svo vænlega að rykfallið afsalsbréf frá 1928 kom í leitimar og sannar að Bjöm Lárusson bóndi á Ósi i Ytri Akraneshreppi seldj Akra- nesbæ land í fjallinu fyrir 5000 krónur og er það í svonefndum Berjadal og nánar kveður á um stærð landsins í bréfinu. Eldri menn á Skaganum vissu um kaup þessi, en sönnunar- gagnið vantaði þar til nú að það kom í leitirnar. Eggjastríði Akumesinga og bænda við Akra fjall ætti því að vera lokið. Indíánasýningu aö Ijúka. Undanfarnar vikur hefur staðið yfir í ameríska bókasafninu í Bændahöllinni sýning á munum Indíána og hefur margt manna skoð að sýninguna, m. a. margir bekkir bamaskólanna í fylgd með kenn- urum sfnum. Nú hefur verið ákveöið að sýn- ingunni Ijúki 19. október, og mun hún þá flutt til ísafjarðar og sett upp í gagnfræðaskólanum þar. Jufius C. Ilolmes. Oðlingur dreginn til Vestmannaeyja Um 4 leytið í gær tókst varðskip I inn af strandstaðnum á Mýrdals- inu Albert og Lóðsinum frá Vest- sandi. Báturinn virðist ekki vera mannaeyjum aö ná v. b. Öðlingi á skemmdur aö ráði og var dreginn flot, en það var fjórða tilraunin til Vestmannaeyja í gær, en þar sem gerð var til þess aö losa bát-1 veröur ástand hans athugað nánar. Ólafsf jörður, Hrísey og Kópa- sker í sjólfvlrkt símasam- band fyrir mitt næsta ór Landssíminn vinnur nú að því aö koma upp sjálfvirku símasam- bandj á Ólafsfirði, Hrísey og Kópa skeri og er reiknað með því að það verði komið á fyrir mitt næsta ár. Ver.ða þar með allir kaupstaðir NÝI HITAVEITUGEYMIRINN Myndin sýnir hina nýju hitavatnsgeyma í Öskjuhlíö. Fyrri geymirinn v erður tekinn í notkun uni ntiðjan næsta mánuð, eins og kom frain í frétt i blaðinu í gær. Þegar er byrjað að reisa síðari keyminn, sem veröur jafnstór hinum fyrri. Er sá, sem skemmra 'er á veg kominn, nær á mynd- inni. Lengst til vinstri ;ná greina gömlu hitavcitugeymana á Öskjuhlíð inni. og kauptún á austanveröu Noröur landi komin í sjálfvirkt sfmasam- band, en sveitimar eru eftir. Á Ólafsfiröi er verið að ljúfca byggingu stöðvarhúss og búið að leggja streng fyrir Ólafsfjaröar- múla frá Dalvík og er verið að tengja strengmn saman. Eru vélar til stöðvarinnar komnar tfl lands- ins. í Hrísey á að fara að byggja stöðvarhús og búið aö leggja strenginn. Á Kópaskeri er verið að endurbæta húsnæði stöðvarinnar en hún mun nota sömu talrásir og sjálf.virka stöðin á Raufarhöfn. í þessu sambandi er von á nýjum fjölsíma til Raufarhafnar til þess að fjölga rásum. Umdærriisstjóri Landssímans fyrir norðan er Marí- us Helgason á Akureyri. ELDUR í REYKHÚSI í gær brauzt út eldur í reyk- húsi, sem KRON hefur að Braut/ arholti 28. Kom slökkviliðið á stað inn og gekk greiðlega að slökkva eldinn. Skemmdir urðu óverulegar, en nokkurt magn af bjúgum, sem þar voru geymd, brann.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.