Vísir - 21.10.1966, Síða 2
V1SIR. Fostudagur 21. október 1966.
Stjómarmenn Þróttar á félagssvæöinu í gærdag.
Hafizt handa við Þróttar-
svæðið við Sæviðarsund
flutt var að svæöinu og hefur
Óskar Pétursson annazt þaö
verk af miklum krafti meö
mörgum sjálfboðaliðum sem
hafa gefið sig fram. Verða þama
búningsherbergi og böð og fund-
arbergi, en hitaveita mun koma
í húsið fljótlega.
„Vonumst til að geta leikið fyrsta leikinn á
malarvelli þar næsta vor", segja rorystu-
menn Þróttar
1 gærmorgun hóf ein af jarð-
ýtum Bjargs h.f. aö bylta jarð-
veginum á auða svæðinu milli
Sæviöarsunds og fyrirhugaðrar
strandgötu viö Eliiðaársund, þar
sem f framtiðinni veröur ein
mesta umferðaræö borgarinnar.
Þama er Knattspymufélagið
Þróttur að skjóta öngum sínum,
þama mun félagiö fá stórt verk
efni, ekki aðeins við milljóna-
framkvæmdir i vallarmannvirkj
um, heldur það verkefni aö laöa
æsku þessa mikla borgarhluta
til sin í íþróttastarfið.
I hádeginu í gær hittum við
aö máli forystumenn félagsins,
sem höfðu notað matarhléið til
að virða fyrir sér verk jarðýt-
unnar þennan fallega haust-
morgun. „Við vonumst ein-
dregiö til að hægt verði að leika
fyrsta leikinn á malarvelli hér
næsta vor“, sögðu þeir Þróttar-
menn. Verður þegar hafizt
handa við að aka möl í völlinn,
þegar ýtan hefur lokið sftiu
hlutverki.
Guðjón Sverrir Sigurðsson,
formaöur Þróttar kvað ætlun-
ina að á svæðinu verði malar-
völlur, tveir grasvellir og hand-
knattleiksvöllur, en að auki mun
síðar rísa félagsheimili, en til
bráðabirgða er verið að vinna
að innréttingu á gömlu húsi, sem
• íþróttahöllin í Laugardal er
enn ekki tilbúin til afnota fyrir
æfingar og leikfimikennslu skól-
anna. Verður húsið væntanlega
tekiö í notkun í næstu viku og
veröur þá tilkynnt nánar, hvenær
full starfræksla hefst.
Sæmdir riddara-
krossi Danne-
brog-orðunnar
Frederik IX. Danakonungur hef-
ur sæmt dr. Friðrik Einarsson,
yfirlækni, riddarakrossi Danne-
brogorðunnar 1 stigs, og dr. Þóri
Kr. Þórðarson, prófessor, riddara-
krossi Dannebrogorðunnar. Menn
ingarmálaráðherra Dana, Hans
Solvhoj afhenti heiðursmerkin 15:
þ. m.
KAPLASKJOLSVEGUR
\
Til sölu 4ra herbergja íbúð á 4. hæð við Kaplaskjóls-
veg. Ibúðin, sem er um 3ja ára gömul, er í góðu
ástandi, með suðursvölum og fögru útsýni. íbúöinni
fylgir óinnréttað ris, jafnstórt fleti íbúðarinnar sjálfr-
ar. Getur verið laus fljótlega. — Hagstætt verð.
100 þús. áhorfendur í USA
r /
Urvalsflokkur fimleikamanna Ollerup-lýðhdskólans
kemur hér við og sýnir í Laugardalshöllinni
Von er góðra gesta eftir helgina. Er það úrvalsflokkur fimleikamanna frá 011-
erup lýðháskólanum í Danmörku, sem verið hefur á ferðalagi í Bandaríkjunum í
tvo og hálfan mán. en hefur viðdvöl hér. Fyrsta sýning verður kl. 20.30 á miðviku-
dagskvöldið í íþróttahöllinni í Laugardal.
Eins og mörgum mun kunnugt var lýðháskólinn í Ollerup stofnaður af hinum
fræga íþróttafrömuði Niels Bukh og var hann skólastjóri frá stofnun árið 1920
til dauðadags 1950, en síðan hefur Arne Mortensen verið skólastjóri og hefur
haldið áfram að feta í fótspor fyrirrennara síns, m.a. með ferðalögum með hina
góðu fimleikaflokka skólans víða um heim.
EINBYLISHUS OSKAST
Höfum kaupanda að einbýlishúsi á góðum stað i
Reykjavík. í íbúðinni þurfa að vera a. m. k. þrjú
svefnherbergi og skrifstofa eða bókaherbergi og
góðar stofur. Mikil útborgun. — Skipti á góðri Ibúö-
arhæð, 130 ferm., í Vesturbænum koma til greina.
Úrvalshóþur skólans, sem n.k.
þriðjudag 25. okt. kemur hingað til
Reykjavíkur frá New York, er
skipaður 14 karlmönnum og' stjóm-
endur hópsins eru skólastjórinn
Arne Mortenssen og leikfimikenn-
arinn Valdemar Hansteen.
Þeim til aðstoðar er kona Valde-
mar Hansteen’s, sem er af norsk-
um ættum og hefur fyrir nokkrum
árum dvalizt hér á íslandi. Allir
leikfimimennirnir eru vinnandi viö
einhver störf í sveitum. Þeir hafa
nú í tvo og hálfan mánuð verið
bnrtu frá störfum sinum og hafa
þess vegna sleppt launum ,og
meira að segja hafa þeir oröið að
bqrga nokkurt þátttökugjald til
þess að taka þátt í þeirri för um
Bandaríkin, sem nú er bráðum á
enda. Allir eru þessir leikfimi-
menn svokallaðir leiðbeinendur og
hafa lokiö námskeiði við íþrótta-
lýðskólann i Ollerup, sem miðar að
því að þeir geti sagt til í félögum
i leikfimi og allt þetta er miðaö
við ólaunuð störf, sem sé áhuga-
mennska.
Álitið er að flokkurinn hafi nú
þegar í för sinni til Bandaríkjanna
sýnt leikfimi fyrir 100.000 áhorf-
endur við háskóla, gagnfræðaskóla
og við ýmis tækifæri, t.d. sýning-
ar. Nefna má sem dæmi, að í St.
Louis í Bandaríkjunum fór fram
skandinavisk vika um það leyti,
sem flokkurinn ferðaðist þar um
og dvöldu þeir i þessari viku í fjóra
daga og sýndu fjórum sinnum á
dag. I Stanford í Connecticut
voru þéir miðpunkturinn í danskri
viku. Nefna má að til þessarar
dönsku viku voru boðnir utanríkis-
ráðherra Danmerkur og yfirborgar-
stjóri Kaupmannahafnar. Á þessari
dönsku viku sýndi flokkurinn við
mikinn fögnuð. I Washington D.C.
sýndi hann fyrir íþróttaráð forseta
Bandaríkjanna (Presidents council
for Physical fitness).
Heimsóknin hingað til Islands
er lokaþáttur hinnar löngu ferðar
hins danska leikfimiflokks og
Framh. á bls. 6.
ENNFREMUR:
2ja herb. ibúðir við Framnesveg, nýstandsettar.
2ja herb. rúmgóð kjallaraíbúð við Mávahlíð.
4ra herb. risíbúð við Túngötu, nýstandsett.
4ra herb. íbúðarhæð við Holtsgötu.
Parhús við Skólagerði í Kópavogi.
Fokheld einbýlishús í Garðahrepþi.
FASTEIGNA
SKRIFSTOFAN i
BJARNI BEINTEINSSON HDL JÓNATAN SVEINSSON LÖGFR FTR.
AUSTURSTRÆTI 17 (HÚS SILLA UG VALDA) SlMI 17466
/