Vísir - 21.10.1966, Síða 15
VlSIR. Föstudagur 21. október 1966.
15
I WAS RETURNING TO
THE CABIN WHEN AN AMA7ING
SIGHT CAUGHTMV EYE/... >
Passamyndir
Teknar í dag — Tilbúnar á morgun.
Sér tímar eftir samkomulagi.
Ljósmyndastofa Péturs Thomsens
Ingólfsstræti 4. Sími 10297, eftir kl.
7 sími 24410.
hafði átt. — Eiginlega ætti ég ekki
að orða þetta svona, sagði hann. —
Ég veit að enginn getur skipaö sess
inn hennar. En ég fann að ég elsk-
aði hana og'ég vildi giftast henni.
Og ég komst að raun um, að hún
elskaði mig líka. Við urðum að
vinda bráðan bug að þessu, því að
ég var að fara heim. Þfiö kom aldrei
til tals aö hún yrði eftir og kæmi
hingað síðar. Svona var þetta nú,
Jenny.
Þetta var eiginlega ekkert ó-
venjulegt, fannst Jenny. Það var
algengt að fólk giftist eftir fárra
vikna kynni. Hana langaði til að
spyrja hann ýmissa spurninga, en
var hrædd við svörin. Hve fljótt
ætlaðist hann til að hún færi frá
High Trees? Hún hafði gert sér
ljóst, að hún gæti ekki oröið þarna
lengi eftir að hann kæmi heim,
nema hann bæði hana um að gift-
ast sér. En úr því að svona var
korpið, var réttast að hún færi sem
fyrst. Hjún sárkveið fyrir að eiga
að sjá afi Michael og Claire, en fann
jafnframt, að hún mundi ekki geta
haldizt þama við eftir að Fran
væri orðin húsfreyja á heimilinu.
Hún sagði einbeitt: — Ég verð
að ráða ráðum mínum sem fyrst.
Ég hef leigt öðrum íbúöina mína
í London með ölium húsgögnum, en
-leigjandinn-hefur aðeins mánaðar
uppsagnarfrest.
Hann horfði á hana, miður ánægð
ur. — Ekki þarftu að fiýta þér héð
an þó ég sé giftur.
— Þú kærir þig varia um að
hafa mig hérpa lengur, Chris? Og
ég er viss um, að Fran mundi ekki
líka aö hafa mig héma. :
Chris svaraði með ákefð: — Þú
mátt aö minnsta kosti ekki flýta
þér héðan, og ég veit að Fran
mundi þykja vænt um aö hafa þig
hérna um stund. Ég hef sagt henni
frá þér og hún hlakkar mikið til
að sjá þig. v
Hann færði stólinn sinn enn
nær henni og tók ura hendurnar á
henni: — Hlustaðu nú á mig — ég
veit hvað ég er að segja, þegar
að'ég segi þér að Fran langi til aö
þú verðir kyrr. En hitt væri annað
mál, ef þér leiddist héma — og
það væri engin furða, jafn bundin
og þú hefur verið undanfarið ár.
En ef þér leiöist ekki hérna,
Jenny ...
— Mér mundi aldrei leiðast
hérna, Chris, sagði Jenny — Þú
veizt að mér þykir vænt um High
Trees, en ...
—Þú gerir okkur báöum mikinn
greiða, ef þú verður kyrr, sagði
Chris. — Fran er alveg ókunnug
enskri hússtjórn. Hún er vön að
hafa mikið þjónalið í kringum sig
og ef eitthvað bjátaði á með ein-
hvern þeirra, var nóg af nýju fólki
að bióða sig fram 1 staðinn. En ég
hef. áhyggjur af hvernig henni og
frú Mayfield muni koma saman.
Þú veizt að frú Mayfield getur ver
ið dálítið erfið stundum. Líklega
hefur hún hom í síðu Fran frá
fyrstu stundu.
Þaö munaði minnstu að Jenny
segði, aö sennilega mundi veröa
eitthvað líkt um hana.
— Ég hef óljóst hugboð um að
fvrstu vikurnar geti orðið erfiðar,
hélt Chris áfram. — Hér kemur
allt Fran ókunnuglega fyrir sjónir.
Hún hefur til dæmis aldrei um-
gengizt börn. Systir hennar í Lon- j
don er eldri en hún, og hún hef-
ur vanizt miklu dekri. Hún hefur
átt heima í Vestur-Indíum alla sína
ævi, og aldrei haft neitt fyrir
stafni. Ég hef dálitlar áhyggjur af
hvemig henni muni líka þetta ró-
lega tilbreytingarlausa líf í ensku
þorpi. Ef það kemur á daginn að
henni leiðist hérna, hef ég lofaö
henni að selja High Trees og flytja
til London.
Jenny rak (upp undrunaróp. Hún
mundi vel að Chris hafði marg
sinnis sagt, að aldrei skyldi hann
eiga heima í London. Hún hugsaði
til barnanna, sérstaklega Claire,
sem þurfti gott loft og fallegan
garð að leika sér í. Og ósjálfrátt
datt henni í hug: — Hvað hefur
hún til síns ágætis þessi Fran, að
Chris skuli hafa orðið svona ást-
fanginn af henni?
— Ég er viss um, að þér mundi
leiðast í London, Chris. Og sem
betur fer er ég viss um, að þetta
vandamál ber aldrei að höndum.
Hún Fran þín / hlýtur að kunna
við sig héma.
Hún horfði á hann og þótti vænt
um að nú hafði hún náð fullu valdi
á sjálfri sér. Þegar hún væri orð-
in ein myndi þyrma yfir hanæ Allt
það sem hún hafði misst, einstæð-
ingstilveran sem hjónaband Chris
hafði í för með sér. — Mér finnst
hún hafa verið mjög heppin, sagði
hún. — Ég hlakka til að segja
henni þaö þegar hún kemur á morg
un.
Orðsending
Nú geta þeir bíleigendur, sem aka
á hálfslitnum eða slitnum sumar-
dekkjum látið breyta þeim í snjó-
munstruð-dekk á aðeins 20 mín. og
kostar aðeins frá kr. 100 (pr. dekk)
Verið hagsýn og verið á undan
snjónum. Við skoðum ykkar dekk
aö kostnaðarlausu.
Opið virka daga kl. 8-12.CD og
14 - 20, laugardaga frá kl. 8 -
12.30 og 14 -18, og sunnudaga
eftir pöntun 1 sima 14760.
MUNSTUR OG
HJÓLBARÐAR
Nú færðu þér aftur í glasið og viö
skálum fyrir þessu. Og meðan
hann var að blanda í glasið sagði
hann:
— Ég var svo hræddur viö að
segja þér þetta, þó ég viti ekki
hvers vegna. Ég var hræddur um
að þér mislíkaöi þaö.
— Hvers vegna hefði mér átt að
mislíka það, Chris?
Þér þótti svo vænt um Sally.
Og ég þarf ekki að minna þig á
hve vænt mér þótti 'um hana. En
... nú hikaði hann aftur — Segðu
mér að þú skiljir þetta, góða Segðu
að þú finnir að, Sally hefði ekki
verið á móti þessu.
— Hún mundi áreiðanlega ekki
vera það. Hún mundi hafa óskað
þess. Ég skal segja þér nokkuð,
Chris, sagöi Jenny og horfði í aug
un á honum um leið og hann rétti
henni glasiö. — Nóttina áður en
hún dó, sagði hún, að ef hún dæi
þá vonaöi hún að þú giftist aftur
Hún vildi ekki að þú yrðir einstæö-
ingur á lífsleiðinni. Og hún ósk-
aði að Michael og Claire ...
Hún gat ekki haldið áfram. Tár-
in blinduðu hana og hún leitaði að
klút í vasa sínum og aftur og aftur
heyrði hún rödd Sally segja, að
hún vonaði að Chris giftist henni
. — Jenny. Og í staöinn ...
— Hvað gengur að þér?
Chris færði sig að henni og
studdi hendinni á öxlina á henni.
Hann þrýsti henni að sér, eins og
bróðir góðri systur.
Hún harkaði af sér, strauk burt
tárin og brosti til hans.
— Ekkert. Gleymdu ekki skál-
inni, sem við'ætluðum að drekka.
Þau lyftu glösunum og hún
sagði: Ég óska þér hjartanlega til
hamingju, Chris.
— Þakka þér fyrir sagði hann.
Hann færði stólinn .sinn nær Jenny
— Fran kemur á morgun — á sama
tíma og ég kom.
— Hvers vegna kom hún ekki
með þér f dag?
— Af því að hún á svstur í Lond-
on, sem hún hefur ekki séð lengi,
en hefur nýlega gengið .undir alvar
legan holskurð. Og þagar Fran
stakk upp á að hún yrði í London
í nótt og heimsækti hana, far.nst
mér það vel til falliö. Þá gat ég
líka sagt þér fréttina í næði.
Jenný hló. — Þakka þér fyrir
nærgætnina. -
— Já, ég var að segja þér, að
ég hefði kviðið fyrir þessu, Jenny.
— Hvers vegna? Ekki þurftirðu
að spyrja mig um leyfi til að gift-
ast aftur.
— Ég veit það, góða mín. En mér
fannst aö þetta mundi koma dálítið
flatt upp á þig. Að þér mundi
finnast, að ég hefði getað sagt þér
það fyrr. En rhér finnst sannast að
segja, aö það hefði veriö dálítið
erfitt að gera þér .grein fyrir
þessu í sfmskeyti, og ástarsaga okk
ar Fran hefur eiginlega verið líkust
hvirfilvindi...
Hún tæmdi glasið og þótti vænt
um aö innihaldið var sterkt. Hún
reyndi að láta sér finnast að þetta
væri ókunnugur ungur maður, sem
sat þarna og var að segja henni
frá giftingu sinni.
— Segöu mér nánar frá þessij,
Chris.
Hann lét ekki standa á því. Hann
var enn ókunni ungi maðurinn, ekki
sá Chris, sem hún hafði verið svo
innilega ástfangln af og sem hún
þangaö til fyrir fáum mínútum
hafði vonað að eignast fyrir mann.
Meðan hann var að segja frá, sá
hún f anda Fran, háa, granna og
dökkhærða — og ótrúlega fallega.
Hún sá þau hittast í kokkteilboði.
Hún sá þau borða miðdegisverð
saman daginn eftir. Enginn efi
hafði verið til í sál hans, sagöi
hann, undireins frá fyrstu stundu,
um að þetta væri konan, sem ætti
að skipa auða sessinn, sem Sally
Bergstaðastræti 15
(gengið inn frá Spítalastfg)
-formaf
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp
á annaS hundraS tcgundir skópa og Iitaúr-
val. Allir skópar mcð baki.og borðplata sér-
smíðuð’. Eldhúsið fæst með hljóðcinangruð-
um stólvaski og raftxkjum af vönduðustu
gcrð'. - Sendið eða komið með mól af eldhús-
inu og við skjpuleggjum cldhúsið samstundis
og gerum yður fast verðtilboð. Ótrúlcga hag-
stætt verð. Munið að söluskattur cr innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra greiðsluskilmóla og
lækkið byggingakostnaðinn. jLÍÍÍi^ftæ ki
HÚS&SKIPhf.
METZELER
hjólbatðamir eru sterkir og
mjúkir, enda vestur-þýzk gæða-
vara.
Hjólbarða- og benzlnsalan
við Vitatorg. Sími 23900
Barðinn h.t.
Ármúla 7. Simi 30501
A -_nna Aerzlunarfélagið h.f.
Skipholti 15 Sfmi 10199
'INTHEHARBOR.
WAS A SH/P..,
ON THE BEACH
A BOAT...
HIOST WONPEA-
FOL OFAU-A
GROUP OF
WH/TE MEN
MOV/NG ABOl/T..
MVsF/RST
/MPULSE
NAS 70 RUSH
FORWAPÞ AND
GPEET THEM...
' THEN A
STRANGE
th/ng
HAPPENEP...
AN ARGUMENT
ENSUED -
A SHOTRANG
OUT-AND
A B/G MAN
FELL FACE
OOWM ON
THE SHORE/
Joi«
CsiA wö
Ég var á heimleið til kofans þegar furðu-
lega sjón bar fyrir augu mín.
I höfninni var skip, á ströndinni bátur ...
og það bezta af öllu: hópur hvítra manna,
sem var á gangi. Fyrsta viðbragð mitt var
að geysast fram og heilsa þeim.
Þá skeði einkennilegur hlutur. Deilur upp-
hófust, skot kvaö við og stór maður féll á
grúfu á strandina.
/