Vísir - 21.10.1966, Síða 3
VttSTK. rosthaagur zi. oki.—r 1. ...
Snemma morguns fara bænd-
ur við Þingvallavatn eftir net-
unum, sem þeir hafa lagt deg-
inum áður fyrir murtuna, lítinn
gljáfagran fisk, sem veiöist í
vatninu aðeins skamman tíma
á haustin. Aðalveiöitíminn er
frá lokum september fram í
október. Murtan er ekki talin til
silungstegundar fremur til síld
arinpar og sker hryggjaliða-
fjöldi þar um. Murtan er stygg-
ur fiskur, veiðist helzt í
myrkri og á haustin gengur
hún á grynningamar við vatnið
en heldur sig að ööru jöfnu
niðri í djúpinu.
Um tuttugu ára skeið hefur
þessi litli fiskur verið verð-
mæt útflutningsvara þótt hljótt
hafi verið um það. Þykir hún, eft
ir að hafa verið tilreidd í verk-
smiðjunni vera lostætur for-
réttur í Bandaríkjunum, og er
eftirsótt af tryggum viöskipta-
vinum, aðallega í Bandaríkjun-
um. Hér á landi þekkist hún
varla sem slík.
Nýlega var tekin í notkun í
Niðursuðuverksmiðjunni Ora,
sem sér um framleiðsluna,
murtuvél fundin upp af Bald-
Komiö var viö á Kaldárhöfða, þar sem Óskar bóndi hjálpar viö að setja kassana á bílinn.
5 ÞÚS. KÍLÓMETRAR AÐ BAKI
EFTIR MURTUVEIÐITÍMANN
vini Jónssyni, en hún leysir 12
—16 stúlkur af hólmi, sem áð-
ur unnu við hreinsunina á murt-
unni.
Daglega fer bíll fra verksmiðj-
unni til Þingvallavatns á veiði-
tímanum og kemur við á hverj-
um bæ og safnar veiðinni, sem
hefur fengizt í netin yfir nótt-
ina. Murtuveiðin er arðvænleg,
þegar vel veiðist, þótt hún hafi
brugöizt í þetta sinn, aöeins
veiddust 30 tonn á móti 60 í
fyrra.
Kenna bændur um að fullt
tungl hafi veriö veiðitímann og
bjart um nætur.
Kristján Thompson ekur bíln-
um frá Ora og safnar saman
veiðinni. Fyrsta ferðin í ár var
farin eftir aö veiöin hófst, þann
20. sept., en sú síðasta s.l. þriöju
dag. Á þeim 25 dögum, sem
veiðin hefur verið sótt, hafa
5000 km. verið lagðir að baki
til þess að ná í murtuna og
koma henni til verksmiðjunnar.
Myndirnar í Myndsjánni eru
að þessu sinni úr síðustu feré-
inni, þegar murtunni var safnaö.
Höfðust þá upp 500 kíló af þeim
fjórum bæjum, sem enn lögðu
net út, en yfirleitt er murtu-
veiðin stunduð frá 10—11 bæj-
um um háveiðitímann.
i v
Netin tekin upp í síöasta sHm á haustinu i Hagavík.
.............................................:...............................................................................................................................
Kristján Thompson hefur ekiö 5000 kílómetra á 25 dögum eftir
murtunni. Hér raðar hann álkössum með veiöinni í á bílpallinn, ;
staddur á Miöfelli viö Þingvalilavatn. Komiö við í Vatnskoti og veiöin hirt meö aöstoð bónda.