Vísir - 26.10.1966, Blaðsíða 2

Vísir - 26.10.1966, Blaðsíða 2
V1 S I R . Miðvikudagur 26. október 1966. 8000 mílna ferð Ofíerup-manna! 60. sýningin i glæsilegustu /jbróttah'óll, sem flokkurinn hefur séð i þessu sýningarferðalagi — Nei, viö erum ekki þreyttir, hrópuðu hinir frísku fimleikamenn Ollerup skólans í einum kór í gærkvöldi, þegar blaðamaður Vísis spurði þeirrar „fávísu“ spurn- ingar, hvort þeir væru ekki orðnir þreyttir að loknum 59 sýningum á hinum erfiðu leikfimi- æfingum í Bandarikjun- um. Valdemar Hansten, Norðmað- ur einn af stjórnendum hópsins i Bandaríkjaförinni, tók við stjóm hópsins fyrir nokkrum dögum, þegar aðalstjómandinn Arne Mortensen varð að fljúga heim vegna anna heima fyrir í skólanum. Hann sagði: — Vitanlega væri það ekki ó- eölilegt að þreyta væri farin að sækja á piltana eftir 59 æfing- ar á 2 mánuðum með stanz- lausum ferðalögum í áætlunar- bílum, — en þeir em í stór- kostlega góðri æfingu og það gerir gæfumuninn, við emm því vel undir sýninguna í Laugar- dalshöllinni ykkar búnir. — Hafið þið skoðað höllina? — Já, við höfum skoðað höll- ina, segir Hansten, og piltamir bæta við, „og hún er stórkost- leg, fallegri og betri fyrir sýn- ingu okkar en nokkur þeirra halla, sem við sáum í Banda- ríkjunum. Þar em hallirnar byggðar fyrir knattleiki ein- göngu, en hér er virkilega hægt að sýna fimleika. í ferðalög sem þetta fer úr- valsflokkur Ollerup-lýðháskól- ans öðm hvoru og þá em kvadd ir til úrvalsnemendur hans. Kostnaðinn greiða þátttakendur sjálfir að nokkru leyti, en flokk- urinn fær allgóð fjárframlög frá dönskum aðilum, fararkostnað í löndunum og uppihald og að auki hluta af innkomnum að- gangseyri. Flokkurinn hefur nú að baki sér um 8000 mílna ferðalag og síðustu hundmð mflna ferða- lagsins verða á föstudaginn með íslenzkri flugvél til Hafnar og þaðan til Ollerup á Jótlandi. Yfir 105 þúsund manns hafa séð sýningar flokksins í Bandaríkjun um og eflaust fær flokkurinn mörg þúsund áhorfendur í kvöld f Laugardal, en sýning hefst kl. 20.15, en á morgun er sýning fyrir skólanemendur borgarinn- ar á sama tíma. Æfingar hjó frjálsíþrótta- mönnum Æfingar eru hafnar hjá Frjáls- íþróttadeild I.R. og er æfingataflan þannig fyrir veturinn 1966: I.R. hús Mánud. kl. 20:40 til 22:30 Karlar. Miðvd. kl. 19:00 til 20:40 Allir karla flokkar Föstud. kl. 19:00 til 19:50 Stúlkur Föstud. kl. 19:50 til 21:30 Karlar Laugardalshöll Laugard. kl. 15:50 til 17:30 Konur og karlar. Allir flokkar. Þjálfari verður hinn kunni Jó- hannes Sæmundsson. . *-■ 'v*«»*, <S> ...an- ji.ií. iipSÍFll!piii;SaitM _ _ töSpBte.....BSIftt.: iife amém Hópsýning fimleikamanna í Ollemp Akureyrmgar á heimavelli í 2. fíefíd / vetur • Tveim nýjum stjómarmönnum var bætt f stjórn Handknattleiks- sambands Islands, en ársþing HSl var haldiö um síðustu helgi í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Verða stjómarmeðlimir í framtíð- inni þvf 7 talsins. • Þeir Axel Einarsson og Jón Ásgeirsson vom kjörnir í stjórnina, en Axei hefur í fjölmörg ár verið starfandi hjá HSÍ, en baðst undan endurkjöri f fyrra. Á þessum myndum má sjá nokkuð af hinum fjölbreyttu mannvirkj- um skólans í Ollerup. Þama hafa fórnfúsar hendur unnið verkið í sjálfboðavinnu, ekki aðeins á árum fyrr heldur einnig í seinni tíð. Er aðstaðan þarna einhver sú bezta á Norðurl. til allra íþróttaiðkana. Formaður HSÍ var einróma endur kjörinn Ásbjörn Sigúrjónsson og með honum auk hinna tveggja nýju manna þeir Axel Sigurðsson, Rúnar Bjarnason, Valgeir Ársælsson og Bjöm Ólafsson. Mörg mál voru tekin fyrir á þing- inu og nokkrar lagabreytingar sam- þykktar. Þá kom það fram að Akur- eyringar hafa fullan hug á að keppa í 2. deild í vetur á hefmavelli, en það mundi verða nýmæli hér, því allir leikir hafa til þessa farið fram í Reykjavík í 1. og 2. deild. Eins og skýrt var frá í blaðinu fyrir skömmu eru Akureyringar nú langt komnir með að reisa mikla íþróttaskemmu, sem verður bráða- birgða„höll“ fyrir innifþróttir á Ak- ureyri, en ráðagerðir um byggingu Æskulýðsvika KFUM og K, Amtmannstig 2 B Á samkomunni í kvöld kl. 8.30 tala Benedikt Arnkelsson, cand. theol., Ásta Jónsdóttir og Narfi Hjörleifsson, ^ínsöngur. Mikill al- mennur ' ’~'kið samkomur æskulý*' ' llir velkomnir glæsilegrar íþróttahallar þegar á í 2. deild er leikin tvöföld um- ferð og mundu Akureyringar því fá helming leikja sinna á heimavelli, sem vitaskuld er mikið hagræði. Skurðgrafa. — Tek að mér að grafa fyrir undirstöðum o. fl. Uppl- f sfma 34475.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.