Vísir - 13.12.1966, Side 2

Vísir - 13.12.1966, Side 2
Framarar urðu sem kunnugt er Reykjavíkurmeistarar 1 hand- knattleik karla á sunnudaginn og í þvf tilefni birtum viö hér mynd af þessu yfirburðaliöi í reykvískum handknattleik. Framundan er baráttan í 1. deild og Hafnarfjarðarliðin tvö, FH og Haukar eru ein óþekkt Frömurum í vetur. Vitað er að FH ér mjög sterkt, en Haukar eru stóra spumingin með marga nýja menn, eða öllu heldur leik- menn, sem voru fjarverandi í fyrra en eru nú komnir aftur. En frá 1. deildinni verður nánar sagt í blaðinu á morgyn, en hún hefst. á sunnudaginn kemur. Á myndinni eru þessir menn, talið frá vinstri, fremri röð: Guðjón Jónsson, Pétur Böðvars- son, Þorsteinn Bjömsson, Hall- dór Sigurðsson, Tómas Tómas- son og Sigurður Einarsson. — Aftari röð: Sigurbergur Sig- steinsson, Gunnlaugur Hjálm- arsson, Gylfi Jóhannsson, Ing- ólfur Óskarsson, Amar Guð- laugsson, Karl Benediktsson, þjálfari liðsins og- Birgir Lúð- víksson, formaöur handknatt- leiksdeildar Fram. REYKJAVÍKURMEISTARARNIR F.H. gegn úrslitaliSinu í — dregið á laugardagskvöldið í Evrópu- bikarkeppninni í handknattleik FH fékk ungversku meistarana HONVED, úrslitaiiðið gegn Evrópubik- armeisturunum Leipzig í fyrra! Drátturinn í 2. umferð Evrópukeppninn- ar í handknattleik fór fram seint á laugardagskvöldið í V.-Þýzkalandi og var sjónvarpað frá atburðinum. fyrra! hafa veriö f liðinu að undan- fömu era með 95% æfingasókn. Nú eru Ragnar Jónsson og Einar að byrja þjálfun og vonandi verða þeir brátt með okkur. Það mundi vitanlega styrkja okkur enn frekar. En sem sagt, nú þurfa menn að hafa hæfileika og æfa vel, það er ckki nóg að æfa vel, eða bara að hafa hæfi- leikana“. ^ „Við erum auðvitað ekkert yfir okkur lukkúlegir“, sagði Birgir Björnsson, fyrirliði FH-liðsins, í gærkvöldi, nýkominn af 50. æfingu liðsins frá í hau3t, að þessu sinni í Laugardalshöllinni. „Þetta er sterkt lið og ferðin tii Búdapest verður dýr“. Liðin sem mætast í 2. umferð Evrópubikarkeppninnar eru þessi: Gumersbach (V.-Þýzkaland— — Sittardia (Holland), Birgir sagði ennfremur: „Við vitum raunar ákaflega lítið um Honved utan það að þeir léku til úrslita gegn Leipzig og töp- uðu þeim leik, en styrkur liðs- ins er augljóst. Nú þurfum við aö afla okkur allra mögulegra upplýsinga um liðið, áður en við leikum við það. Ungverjarnir eiga kost á fyrri leiknum, en umferðinni verður að vera lok- ið fyrlr 19. febrúar. Annars virðist sem raöað hafi verið þannig að 8 sterkustu liðin haldi áfram í képpninni. Eitt dönsku blaðanna sagði þó að okkar leikur ætti að verða tví- sýnn, við virðumst því vera í talsveröu áliti í Danmörku“. — Hvað um FH-liðið, er það í góðri æfingu? „$g mundi segja að það hafi sjaldan verið í betri æfingu. Þaö er jafnvel erfitt að velja í liðið, breiddin er mikil og þeir sem V. ■ FH-Iiðið er þrgutreynt í kepppi við erli-nd lið. Hér sjást FH-ingar í yfirburðaleik gegn þýzku liði. Q l 'I r r MEXIKO DÝRIR Kostnaður við að reisa mann-' virkin vegna Olympíuleikanna í Mexíkó sumarið 1968 er ráð- , gerður um 4200 milljónir króna, ' en gert er ráö fyrir geysilega miklum ferðamannastraumi til, borgarinnar vegna leikanna. Vegna þessa munu 80% mið-1 anna veröa teknir írá fyrir er- lenda áhorfendur, og sömu sögu ' er að segja af hótelum borgar-1 innar, útlendingar munu sitja, i fyrirrúmi þar. VALUR VANN / 4 FLOKKUM Reykjavíkurmeistarar ‘ hinum ýmsu flokkum í handknattleik urðu þessir: Mfl. karla: Fram, Mfl. kvenna: Valur, 1. fl. kvenna: Valur, 2. fl. kvenna: Valur, 1. fl. karla Valur og KR era jöfn, 2. fl. karla: Valur, 3. fl. karla: Fram. Honved (Ungverjaland) — FH (ÍSLAND), Urheilukerko (Finniand) — Trud (Sovétríkin), Dukla (Tékkóslóvakía). — \ Dudelangen (Luxemburg), Dinamo (Rúmenía) — DOFK (A.-Þýzkaland), Fredensborg (Noregur) — DKS (Pólland), Grasshoppers (Sviss). — DHFK (Leipzig, A.-Þýzkal.).

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.