Vísir - 13.12.1966, Page 5
V í SIR . Þriðjudagur 13. desember 1966.
útlönd í morguri
útlönd í Ifcörgun
útlönd
SKULDBINDANDIAÐGERÐIR
PORTUGAL OG SUÐUR-AFRÍKU
— Ol'iubann gegn Rhodes'iu rætt 'i kvöld
AUsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti í gœr ályktun, sem
felur í sér beiðni til Öryggisráðs
þecs efnis, að bað fyrírskipi aö-
i'" irríkjunum að slíta stjórnmála-
t igsl við Portúgal og að lagt skuli
úl á braut efnahagslegra aðgerða
go.;n landínu.
I ályktuninni er svo að orði kom-
izt, að með Afríkustefnu sinni hafi
Portúgal gerzt brotlegt við allt
mannkyn.
Ályktuninni greiddu 70 þjóðir at-
kvæði. en 35 á móti og 22 sátu hjá.
Að tillögunni stóöu fulltrúar Af-
ríku — og Asíulanda, en hún var
borin fram af dagskrárnefnd.
Fulltrúar vestrænna landa sátu
hjá eöa greiddu ekki atkvæðí.
RHODESÍA ENN FUNDUR í
KVÖLD í' ÖRYGGISRÁÐI
Enn er framhaldsfundur í kvöld
de
Boumedienne,
fjallar bóðskapur hans til
Gaulle um Vietnam?
um Rhodesíumálið og er þá búizt
við, að Afríkuþjóðimar hafi tilbún-
ar breytingartillögur sínar við til-
lögur brezku stjórnarinnar um
skuldbindandi refsiaðgerðir og að
þær muni fjallá um olíubann. Vit-
að er þó, að sumar Afríkuþjóðir
vilja að beitt veröi hervaldi til.þess
að knýja stjórn Ians Smiths til
uppgjafar.
Arthur Goldberg aðalfulltrúi
Bandaríkjanna hjá Sameinuöu
þjóðunum studdi í gær tillögumar
og hét fullum stuðningi Bandaríkj-
anna við framkvæmd þeirra. Og
hann kvað Bandaríkjastjóm mundu
vinna að því, að tilganginum yröi
náð, því að friðinum stafaði hætta
af Rhodesíu.
BINDANDI REFSIAÐGERÐIR
GEGN SUÐUR-AFRÍKU
I
Stjórnmálanefnd Allsherjarþings-
ins samþykkti í gær ályktun, þar
sem hvatt er til skuldbindandi refsi
aðgerða gegn Suður-Afríku þvi að
þær væm ,,eina ráðið til þess að
fá Suður-Afríku til þess að hverfa
frá apartheid — eöa aðskilnaöar-
stefnunni".
Siglir sömu leið til baka
á „Gipsy Mouth IV. “
Þessi mynd var tekin úr lofti af Gipsy Moth IV, litlu skonnortunni hans Francis Chichesters, sem
sigldi einn síns liðs frá Plymouth, Englandi, til Sidney, Ástralíu. Myndin var tekin úr lofti úti fyrlr
Wonthaggi í Victoria-rfld, Ástralfu. — Francis g amli ætlar að sigla skonnortunni neim til Englands
aftur. (Sbr. frétt í gær í blaöinu).
Bouteflika rœðir Vietnam-
styrjöldina við de Gaulle
Bouteflika utanríkisráðherra Al-
sír fer í dag til Parísar með boð-
skap frá Boumedienne forsætisráð-
herra til de Gaulle forseta og segja
stjómmálamenn í Alsír, að „boð-
skapurinn sé trúlega mikilvægur“.
Það er vitaö, að Bouteflika mun
ekki aðeins ræöa skuldaskipt;
Fimmtán metra jólatré á
Ráðhústorgi fauk um koll
Frakklands og Alsirs, heldur og
styrjöldina I Vietnam og hefir þetta
komið af stað nýjum orðrómi, að
verið sé að gera tilraun til að ná
samkomulagi um friðarfund um Vi-
etnam. Averill Harriman var ný-
'ega í Algeirsborg og ræddi við
3outeflika um Vietnam — og þá
voru bæði stjörnmálalegir og við-
skiptalegir fulltrúar Vietcong og
frá Noröur-Vietnam í Alsír. Kom
upp orðrómur um, að Bouteflika
myndi ræða við þá eftir að hann
ræddi við Harriman, og fengu nú
fréttir um friðarumleitanir byr und
ir vængi, en allt var borið til baka.
★ Skæruliðar Vietcong náðu fyrir
helgina á sitt vald 200 óvopnuðum
nýliðum stjórnarhersins, þar sem
þeir voru saman komnir í æfinga-
stöð til þjálfunar.
★ Samkvæmt nýbirtum skýrslum
jókst íbúatala Bretlands í fyrra um
54.000 og er nú 54.450.000.
57 morð voru framin á Bretlandi
í fyrra, eða 13 fleiri en árið áður.
Fæðingum óskilgetinna bama
fjölgaði um 3000 á árinu (1966) og
komust upp í 73.000.
★ Hafnarverkamenn í Kotka á
Finnlandi eru í verkfalli.
★ Vietcong-hermenn sem teknir
voru til fanga í Suður-Vietnam,
segja, að sovézkir togarar á Kyrra-
hafi geri aðvart um flugferðir B-52
sprengjuflugvéla frá Guam, svo aö
Vietcong viti ávallt fyrirfram hve-
nær þessar sprengjuflugvélar em á
leiðinni til árása. í þessum árásar-
ferðum er flogiö 4000 km. leið.
★ Vestur-þýzka stjórnin hefur
hækkað nokkuð toll á benzíni og
nokkrum víntegundum. Samkomu-
lag hefur ekki náðst um hækkun
á tóbaki.
<
★ Deán Rusk utanríkisráðherra
Bandaríkjanna er kominn til Sai-
gon á Asíuferðalagi sínu. Hann seg-
ist ekki hafa orðið þess var I neinu
að Norður-Vietnam óski eftir að
framlengja jólavopnahléið og
greiða þanhig fyrir samkomulags-
umleitunum um frið. — í Saigon
ræðir Dean Rusk við Nguyen van
Thieu forseta, Nguyen Cao Ky for-
sætisráðherra, og Tran Vac So ut-
anríkisráðherrá.
Talsvert tjón varð af hvassviðri
í suðurhluta Danmerkur, að því er
hermt er f NTB-frétt í morgmi —
og 15 metra hátt jólatré, sem kom-
ið hafði verið fyrir á Ráðhústorg-
inu f Khöfn fauk um koll.
Mjög hvasst var á ströndunum við
Eystrasait, en líklega hvassast á
Borgundarhólmi.
Árekstur varð milli 9000 lesta
skipsins Silverland og Ibes, finnsks
siúps, 3000 lesta, við innsiglinguna
til Frederikshamn.
ELDUR I SKIPI VIÐ
STRENDUR SVÍÞJÓÐAR
Eldur kom skyndilega upp í skipi
við austurströnd Svíþjóðar og sendi
skipstjóri út neyðarkall og kvað
áhöfnina veröa að fara í bátana,
því að skipið væri aö sökkva. —
Áhöfninni — 22 mönnum — var
bjargaö. — Skipið var grískt, 3000
lestir, og hét Finlandia.
ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR
úr harðplasti: Format innréttingar bjóSa upp
á annaS hundrað tegundir skópa og litaúr-
val. Allir skópar mcð baki og borðplata sér-
smíðuð. Eldhúsið fæst með hljóðcinangruð-
um stólvaski og raftækjum af vönduðustu
gerð. - Sendið eða komið með mól af cldhús-
inu og við skipuleggjúm eldhúsið samstundis
og gerum yður fast vcrðtilboð. Ótrúlcga hag-
stætt vcrð. Munið að söluskattur er innifalinn
í tilboðum fró Hús & Skip hf. Njótið hag-
stæðra grciðsluskilmóla og __ „
lækkið byggingakostnaðinn. ka F TÆ Kl
HÚS & SKIP hf.
LAUGAVCGI 11 • S f MI J15|S
in (
-J I
Deild 7
— eftir Valery Tarsis
í þessari bók segir Tarsis frá
dvöl sinni á geðveikrahæli 1 Rúss-
landi, en þar var hann lokaður
inni, eftir aö hafa smyglað einu
af ritum sínum til Englands, hvar
bókin kom út 1962 með nafninu
„The Bluebottle“. Þá hafði Tarsis
ekki fengið útgefna bók eftir sig í
20 ár, en áður haföi hann fengizt
talsvert við þýðingar og smásagna
gerð auk þess sem hann var send-
ur sem stríðsfréttaritari til víg-
vallanna í heimsstyrjöldinni.
Deild 7 smyglaði hann einnig til
Englands — skömmu eftir að hann
slapp út af geðveikrarstofnuninni,
þar sem hann segir að sovét-
stjómin grafi lifandi þá menn, sem
vændir em um litla auðsveipni við
stefnu hennar og hugmyndakerfi.
Bókin kom út i Englandi í fyrra
og skömmu síðar skaut Tarsis
sjálfum upp í Englandi. — Sfðan
er ferill hans flestum kunnur af
fréttum. Hann hefur hvarvetna
valdið talsverðu fjaðrafoki — all-
ir muna komu hans til íslands, til
dæmis. — Tarsis hefur mjög beint
spjótum sfnum í garð Sovétstjóm-
arinnar.
Siaurlaugur Brynleifsson kenn-
ari þýddi bókina.