Vísir - 16.12.1966, Síða 1
VISIR
56. árg. — Föstudagur 16. desember 1966. — 289. tbl.
ÍSLENZKA SJONVARPIÐ
YFIR JÓL 00 NÝÁR
Margir hafa beðið í ofvæni
eftir dagskrá islenzka sjónvarps
ins yfk hátíðisdagana, sem
framundan eru. Hér á eftir birt-
ist dagskráin í heild en gera
verður ráð fyrir bví að e.t.v.
verði breytingar á síðustu
stundu.
Fjérhagsáætlumn samþykkt ettir
16 tíma umræður kl. 9 í morgun
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar fyrir 1967 var
samþykkt eftir seinni umræðu í borgarstjórn
snemma í morgun, eins og borgarstjórinn Geir Hall
grímsson hafði lagt hana fram á borgarstjórnar-
fundi 1. des. sl. — Einnig voru samþykktar nokkrar
breytingartillögur borgarráðs við fjárhagsáætlun-
ina.j— Borgarstjórnarfundurinn hófst kl. 5 eftir há-
degi í gær, en lauk um kl. 9 í morgun. Er þetta
lengsti borgarstjórnarfundur, sem haldinn hefur
verið, að undanskildum fundi fyrir tveimur árum,
þegar fjárhagsáætlunin var til seinni umræðu. —
Þá stóð fundurinn til kl. 10.30 morguninn eftir að
hann hófst.
Framh á bls 5
Sjónvarpið sendir ekki út
dagskrá á föstudaginn í næstu
viku eins og venjulega, heldur
hefur hátíðadagskrá sína á að-
fangadagskvöld. Einnig verður
dagskrá á jóladag og miðviku-
daginn þann 28. des. og verður
sú dagskrr með venjulegu
sniði. Á gamlárskvöld veröur
svo aftur sérstök hátíöadagskrá
Sjónvarpið yfir jól og nýár
verður þannig:
Aðfangadagur. Kl. 22.00 Guðs
þjónusta í sjónvarpssal. Biskup-
inn yfir íslandi, herra Sigur-
bjöm Einarsson. Kl. 23.30 1. og
2. kantata Jólaoratoríu J.S.
Bach, leikið í kirkjunni í Bim-
au við Constancevatn. Flutt af
Bachkór Freiburgar og einleik-
urum hans. Einsöngvarar:
Magda Höffgen, Peter Pears,
Dietrich Fisher Dieskau, Agn-
es Giebel og Georg Jelden. Kl.
24.00 Dagskrárlok. Þulur er
Edda Stefánsson.
Framh. á bls. 5
Rastaðist framúr bif-
reið við árekstur
21 árekstur vard / gær, — flestir vegna hálkunnar
Árekstrar urðu 21 i boryinni í
gær, en 14 þeirra urðu eftir að ís-
ing myndaðist skyndiiega á götun-
um eftir hádegi í gær. — Bifreiðar-
stjórum gekk erfiðlega að átta sig
á hálkunni, sem varð mjög mikil.
I'rjú slys urðu vegna hálkunnar
Tæplega níræð kona rann til á götu
og hlaut slæma byltu. Hún var
flutt á Slysavarðstofuna. — Rúm-
lega áttræður maður, sem var
að forða sér undan bifreið á Öskju-
hlíð, rann til og féll með þeim af-
leiðingu.n að hann handleggsbrotn
aði.
Mjög harður árekstur varð á
Laugarásvegi á 11. tímanum 1 gær-
kvöldi. Kastaðist annar ökumaður
bifreiðanna, kona, úr sæti og fram
úr bifreiðinni og fékk við það mik-
ið höfuðhögg. — Hún var flutt á
slysavarðstofuna, en þaðan á Landa
kotsspítalann.
v '<'*■ v' pa^asssMpaa^.
Sigþór Sigþórsson í hinni nýju verzlun sinni, Árbæjarkjöri, í morgun.
rsta nýja verzlunin í
*
Arbœjarhverfi opnar
Mikill munur oð fá hana, segja húsmæbur
Árbæjarkjör, fyrsta verzlunin í
nýju verzlunarhúsi við Rofabæ
opnaði í morgun. Er mikil bót að
þessari nýju matvöruverzlun því
að til þessa hafa íbúar vestur-
hluta .Árbæjarhverfis orðið að
sækja vörur um langan veg, annað
hvort í Seláskúðina gömluð innar
í hverfinu eðu til Reýkjavíkur, en
íbúum Árbæjarhverfis fjöigar nú
mjög hratt, því að dagiega flytja
fjölskyldur í nýjar íbúðir í hverf-
inu.
Eigandi Árbæjarkjörs er Sigþór
Sigþórsson, sem starfað hefur um
langt skeið í Kiddabúð. Hefur hann
byggt verzlunarhúsið ásamt Jóni
Víglundssyni bakara, sem opna
mun þar bakarf og auk þess verða
í húsinu kjötbúð, fiskbúð og mjólk-
urbúð. I verzlunarhúsi, sem byggt
j verður áfast þessu koma væntan- ■
j lega sérverzlanir. j
; Árbæjarkjör er í vesturhluta Ár-
! bæjarhverfis og ér áformað að!
i reisa stórt verzlunarhús í miðju
hverfinu og annað austast.
Er Vísir leit inn í verzlunina í
morgun voru þar fyrir húsmæður
að verzla og kváðu þær mjög mik-
inn hag að hafa fengið þessa nýju
verzlun.
— Þetta I er afskaplega mikill
munur, sagði ein þeirra, þvl að
ég er hér í Hraunbænum, rétt hjá. i
Áður þurfti ég að fara alla leið inn j
í Selásbúð, einu verzlunina í hverf-
inu, en það er löng leið. En um
leið' og ég fagna þessari nýju verzl-
un þá vildi ég þakka Selásbúðinni
þá góðu þjónustu sem hún hefur
getað veitt miðað við allar að-
stæður.
-S>
Mwai
W W,v.!>»3$§§W^fewv.!,‘s.-. ,■■■•. v ■ J'' i.'- ^5 %
Ýmsir voru siðbúnir með jólapóstinn í gærkvöldi og komu honum ekki
fyrr en í morgun. Þessa mynd tók ljósm. Vísis á pósthúsinu Lauga-
vegi 178 einni mínútu eftir að opnað var i morgun.
DAGAR
TIL JÓLA j
120 manns íiera íít póst í Reykjavík
Jóiapósturinn, sem kom i gær borinn út fyrir jól
t gær voru síðustu forvöð að
skila jólapósti sem fara á til út-
landa (nema Norðurlanda) og í
borgina og var gifurieg ös á Póst-
húsinu f Reykjavík, sem aðeins var
opið til kl. 19.30 í stað 24 vegna
yfirvinnubannsins. Ýmsir hafa þó
verið siðbúnir því að rétt áður en
pósthúsið á Laugavegi 176 opnaöi
í morgun kl. 10 var komin biöröð
þar úti fyrir.
Á pósthúsinu er nú keppzt við
að afgreiða sem mest af póstinum
og sagði póstmeistari í morgun að
pósturinn sem kom inn í gær yrði
borinn út fyrir jól, en alveg óvíst
um þann póst sem kemur hér eftir.
Tollpóstur sem borizt hefur verður
afgreiddur eftir þvf sem starfs-
kraftar leyfa og eru engar iíkur
fyrir því að hægt verði að afgreiða
fvrir jól, það sem nú liggur fyrir.
120 manns mun verða við út-
burð á jólapósti I Reykjavik, sem
hefst 20. desember og sagði póst-
meistari að fjöldi fólks væri á bið-
iista með að fá að bera út póst.