Vísir - 19.12.1966, Side 5

Vísir - 19.12.1966, Side 5
VlSIR. Manudagur 19. desember 1966. 5 ■morgun útlönd í morgun utlönd í raorgun útlönd í raorgun dtlönd Ríkisstjórar í fíokki demokrata snúiit gegn Johnson forseta Johnson. Ríkisstjórar demokrata í Banda- ríkjunum, sem til þessa hafa stutt Lyndon B. Johnson forseta meö ráðum og dáð kenna honum um ófarirnar í seinustu kosningum, hafa gert „pólitíska uppreist" gégn honum og eru orðnir fráhverfir að styðja hann til endurkjörs, að minnsta kosti sumir. I fréttum frá Washington segir, að Johnson forseti sé í þann veg- inn að láta til sín taka til þess að kveða niður þessa „pólitísku uppreist" hinna demokratisku rík- isstjóra, sem kenna honum um verulega fylgisrýmun flokksins í þing- og ríkisstjórakosningunum í síðasta mánuði. Það veldur forsetanum greini- lega miklum áhyggjum að til þess- arar ,,uppreistar“ skuli hafa kom- ið og samtímis hefur stefna hans í innanríkismálum sætt gagnrýni, m. a. umbótaáætlanir hans. Er nú svo ráö fyrir gert, að ríkisstjórarnir fari á fund hans nú um jólin og verði fundurinn hald inn annað hvort í Hvíta húsinu eða á búgarði forsetans í Texas. Ákvörðun forsetans um slíkan fund var tilkynnt á þriðja árlega ríkisstjórafundinum, sem haldinn var í White Sulphur Springs í Vest- ur Virginiu nýlega, en forleikur að þeim fundi var tveggja daga formlegur flokksfundur demokrata. Gagnrýnin á Johnson náði há- marki á laugardag, er Warren E. Hearnes ríkisstjóri 1 Missouri sagði, að ef til vill mundi flokkur Demo krata velja sér nýtt forsetaefni 1968. Constellation-flugvél mis- tekst lending og 18 farast Constellation-flugvél mistókst lending í gær nálægt Bogota í Suð- ur-Ameríkuríkinu Columbia. — 18 menn biöu bana og um 20 meidd- ust. Um orsakir flugslyssins er ekki kunnugt, en hér var um leiguflug- vél að ræða og voru í henni um 50 manns — farþegar og áhöfn. Flug- vélin var aö koma frá Miami á Floridaskaga. Feikna vatnavextir / Skotiandi Fólk fhrtt iskyndi úr kjallaraibúðum / Glasgow I burtuVbrtmá skol£lð hefur I burt úr kjaiiarafbúðum, og heilir vega- Ikaflar eru undir vatni. Vatnavextir valda nú stórkost- legum erfiðleikum á Skotlandi, en þar hljóp vöxtur í öll straumvötn eftir tveggja daga úrfelH, sem var meira en dæmi eru til um alllangt árabil. Samgöngur eru víða ýmist í ó- lestri eða hafa lagzt niður á lág- lendi, því að þár er aHt á floti, og sums staðar á ökrum er sagt1 sem flætt hafði inn í, og mátti ekki miklu muna sums staðar, að fólk- í Glasgow varð að flytja um 801 inu yrði bjargaö. Járnbrautaárekstur á Spáni Farbegar brunnu inni / lestarklefunum BókaspjcilB — Framh ols. B magister hefur séð um og hann hefur einnig ritað inngang, rit- gerð um þessi efni. Þetta er ekkert heildarsafn af slíkum kvæðum. Innan tíðar er reikn- aö með aö komi út 2 bækur með þjóðkvæðum öðrum en danskvæðum. Nú svo eru þaö íslenzkir málshættir, sem þeir Óskar Halldórsson, námsstjóri og Bjami Vilhjálmsson skjala- vörður tóku saman. Næst höfum við hugsað okk- ur að kæmi bók um orðtök, sem Halldór Halldórsson pró- fessor mun sjá um. 1 þessum flokki er sem sagt ætlunm að gefa út bækur um ýmis konar fróðleik og efni, sem lifað hefur meira og minna á vörum fólksins, varöveitzt með þjóðinni þannig án þess að menn vissu um höfunda. Safn af þjóðsögum kemur líklega í þessum flokki og uppsláttarrit með fleygum oröum, höfðum eftir merkum mönnum. Þessar bækur krefjast mikillar undir- búningsvinnu og við viljum líka reyna að vanda þær eftir mætti, svo að þær verða ó- hjákvæmilega nokkuð dýrar. Upplag getur heldur aldrei orð- ið mjög mikið af slíkum bókum Þær verða aldrei metsölubæk- ur, heldur seljast svona jafnt og þétt. Ég álít að slíkar bæk- ur eigi erindi inn á hvert heim ili, sem ann íslenzkri menn- ingu og viil kynna sér hana. Sýnishorn íslenzkra bóka — og erlendra — 1 þessum flokki höfum við hugsaö okkur að gefa út ýmiss konar fróðleik og efni, ið og óbundið mál, sem talið er að hafi bókmenntalegt gildi og séu í vissum skilningi undir stöðuverk í íslenzkum bók- menntum. — Ég vil taka þaö fram til þess að fyrirbyggja misskilning aö þetta á ekki að vera neitt úrval. En það er ekki vansalaust, eins og nú háttar til að einstök verk, göm- ul sem ung, sem tvímælalaust má segja að eigi erindi til fólks, skuli ekki vera til á al- mennum bókamarkaði og mörg ekki verið gefin út nema í heildarsöfnum. Úr þessu viljum við bæta að einhverju leyti, svo að ungt fólk og aðrir, sem ekki hafa átt kost á þessum bókum geti eignazt þær án þess að þurfa að kaupa heil söfn. ^ 1 gær varð mikill árekstur ná- lægt Zaragossa á Spáni, milli hrað- íþróttir — Framhald af bls. 3. Fyrstu bækumar flokki eru: Kristrún í Hamravík eftir Guðmund G. Hagalín og Líf og dauði eftir Sigurð Nordal sem komu út nú í haust. — Á næsta ári koma út í þessum flokki: Sögur úr Skarðsbók Píslarsaga séra Jóns Þumals Magnússonar. Gömul Tyrkja- ránssaga 'á að koma í þessum flokki, kvæði Bjama Thoraren- sen og svo bækur eftir yngri höfunda frá síðari tímum, þann ig að þetta ætti með tíman- um að geta orðið allgott sýn- ishom af bókmenntum íslend- inga frá fyrri og síðari tímum. Einnig hefur komið til tals að hefja útgáfu erlendra bóka í sama flokki, gætu ef til vill komið á næsta ári. Valsliðiö virðist geta glansaö í leikjum sem þessum, þegar mót- staðan t. lítil sem engin. Þaö virð- ist eins og liðið falli saman, ef eitthvaö blæs á móti, þó lagast þetta vonandi þegar líður á, enda hefur liðið marga góöa liðsmenn, sem ættu aö geta skapað mjög sterka heild. Hermann Gunnarsson var sá leikmaðurinn, sem bar af öðrum í leiknum i gær, en efnileg- ur leikmaöur er á feröinni þar sem Bjami Jónsson er. Finnbogi mark- vörður átti og ágætan leik. í Ár- mannsliðinu fer að verða fátt um „fína drætti". Hafa óhöpp hent tvo af sterkustu liðsmönnum, en sá þriðji er erlendis við nám. Þaö er þessum Hörður Kristinsson, sem er ytra, en Ámi Samúelsson er frá vegna meiösla, og nú síðast slasaöist Hreinn, aðalskytta liðsins, þegar hann rann til á hálku og verður frá næstu leiki. Ungur leikmaður, Ást- þór Ragnarsson vakti athygli, en á margt ólært, gerði margt vel, en margar skyssur í sókn og vörn. Ástþór er mjög hávaxinn og góð skytta. Grímur Valdimarsson er og góður leikmaður og mjög vaxandi. Mörk Vals skoruðu: Hermann Gunnarsson 12, Sigurður Guðjóns- son 4, Gunnsteinn Skúlason 3, Bergur Guðnason 3, Bjami Jónsson 3, Jón Ágústsson 3, Stefán Sand- hrit 2, Jón Karlsson 1. Fyrir Ár- mann skoraði Ástþór Ragnarsson 7, Ragnar 4, Olfert Grímur og Hans 2 liver og Jakob 1. Dómarinn, Magnús Pétursson, dæmdi vel. lestar og vöruflutningalestar, og biðu 30 menn bana — ef til vill fleiri — en margir meiddust, sum- ir lífshættulega. Eldur læstist um farþegavagnana sem fremstir voru og brunnu marg- ir farþega inni. Svarta þoka var. Rætt við Guðjón - Framhald af bls. 9. — Er nú ekki orðinn tregari afli fyrir vestan .n var á þeim árum, sem þú stundaðir þar sjó? — Nei, það hefur verið ágætis afli, síðast nú í sumar. Ég veit um eldri mann, sem fiskaði emr: á færi fyrir um 80 þús. kr. Hann reri á smáfleytu og sjálfsagt al- drei neina hafróðra, því að hann hefur veriö heilsulaus um tíma. XTvemig lízt þér svo á lífiö í dag? Er betra að lifa af fjár- afla sínum nú en þegar þú varst ungur? — Sé miðað við sömu lífshætti eða kröfur er það ólíkt betra nú en þá. Hafi menn stööuga vinnu f dag er hægt aö safna fé. Ég hef alltaf unniö hér heima þá vinnu, sem til hefur fallið, aldrei verið neins staðar á föstu kaupi og ég á alveg nóg fyrir mig. — En ert þú þá ekki sérlega sparsamur? — Jú, ég býst við að segja megi það. Ég hef aldrei keypt neitt nema það, sem ég hef tal- iö mig nauðsynlega þurfa. Hér hef ég innréttað handa mér skó- smíöaverkstæði og fengið 1 það vélamar, rokkinn, randsaumavél og skurðarhníf, en það er bara sáralítið að gera við að skóa. Ég kvarta þó ekki yfir neinu. Mér Iíður vel. Allir, sem ég hef kynnzt hér I nágrenninu, em mér mjög' góðir og vilja allt fyrir mig gera. — Hefur þú aldrei komið vest ur síðan þú fluttir þaðan? — Jú; tvívegis. 1 annað skipt- ið fór ég og dittaði að bát, sem Sturía Jónsson átti. 1 hitt skipt ið var mér boöið í 30 ára af- mæli verkálýðsf. Súgfirðinga en ég var fyrsti formaður þess. — Þú smíðar ennþá? — Það er nú oröin ígripavinna eins og flest hjá mér. Ég er nú orðinn 75 ára og ekki til stór- ræða, en iðjulaus uni ég ekki meðan ég má öðm við koma. Jú, það er smáfleyta í smíðum héma úti í skúmum. Þ.M. Tveir karlmenn óska eftir herbergi jan. og febrúar, helzt sem næst Sjómannaskólanum. Góðri umgengni heitið. Tilboð merkt „Tveir karlmenn“ send- ist augl.d. Vísis sem fyrst. --------- ------------------------- Húsmæður athugið Tek að mér húshjálp til 5. janúar n.k. Notið einstakt tækifæri. Uppl. í síma 50038. Laus lögregluþjónsstaða Staða eins lögregluþjóns í Miðneshreppi í Gullbringusýslu er laus til umsóknar. Byrjunarlaun samkv. 13. launafl. opinberra starfsmanna auk 33% álags á nætur- og helgi- dagavinnu. Upplýsingar um starfið gefur undirritaður og skulu umsóknir, sem ritaðar séu á þar til gerð eyðublöð, sem fást á lögreglustöðinni í Hafn- arfirði, hafa borizt honum fyrir 1. jan. 1967. Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu, 13. desember 1966. Einar Ingimundarson.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.