Vísir - 07.01.1967, Blaðsíða 3
HÚSAVÍK
— ört vaxandi bœr
V í S I R . Laugárdagur 7. janúar 1967. 3
Við Skjálfandaflóa stendur
bær, — „iúsavík, — sem er
einna örast vaxandi byggð á
Norðurlandi íbúar bæjarféiags-
ins teljast um 1900 en fyrir þeim
er yngsti bæjarstjóri á landinu
Félagsheimili, sem er í byggingu. Eftir er að stækka það, bæta við þ að kvikmyndasal og hótelinu, sem starfa mun í tengslum viö fé-
lagsheimilið.
Bjöm Friöfinnsson, sem nýlega
tók við störfum.
í bæ sem Húsavík eru margar
framkvæmdir á döfinni, sem
allar beina athyglinni að því að
Húsavík er miðstöð Suður-Þing-
eyjarsýslu bæði í menningar-
legu tilliti og framkvæmdalegu.
Framkvæmdirnar sýna svo að
ekki veröur um villzt að hér er
um að ræða athafnabæ, með at-
orkusömu fólki, sem sér mæta-
vel þá möguleika sem tæknin
gefur mannlífinu á þessarí öid
og nauðsyn þess að menntun og
menningarlif þróist samfara
henni.
Uppistaða hvers bæjarfélags,
rekstur þess og viðgangur eru
undir athafnalífinu komnir hvort
það er blómlegt eða í hrörnun.
Nú Iifa á iðnaði um 35% bæj-
arbúa og má telja vaxandi iönaö
þar í bæ ekki sízt eina ástæð-
una fyrir þvi að íbúum Húsa-
víkur fjölgar með hverju árinu
— en fyrir utan hina eðlilegu
þróun hafa flutzt þangað á und-
anförnum árum ýmsir, sem hafa
hugsað sér að gera Húsavík aö
varanlegum aöseturstaö sínum.
1 Myndsjánni í dag tökum
við fyrir helztu framkvæmdir,
sem nú er unnið að á Húsavík.
Við höfnina blasir við upp-
fyliingin, sem ætluð er undir
vöruskemmur Kísiliðjunnar h.f.,
3.5 milljóna framkvæmdagerö.
Á þessu ári verður annarri vöru-
skemmunni komið upp en þessar
framkvæmdir opna ýmsa mögu-
leika fyrir Húsavíkurkaupstaö.
Á Húsavík hefur á undanföm
um árum verið unnið að sjúkra-
húsbyggingu, sem nú er risin af
grunni og er tiibúin undir tré-
verk. Áætlað er aö taka tvær
Franíhald á bls. 2.
Uppfylling í Húsavíkurhöfn undlr vöruskemmur Kísiliðjunnar h.f. Þegar er buið að vmna þarna fynr
2.S milljónir króna.
Endurbyggður Norðurlandsborinn er nú notaöur í leit aö heitu
vatni skammt vestan við nýja sjúkrahúslð.
Undi.-búningur undir varanlega gatnagerð er haf inn. Á myndinni sést þegar verið er að setja vatns-
lögn í aöalgötuna.
:~sú
n 3«