Vísir - 19.01.1967, Page 2

Vísir - 19.01.1967, Page 2
I Gunnlaugur Hjálmarsson skrifar hér um ýmsa af kunningjum sinum úr handknattleiknum — þeim leikmÖnnum, sem nú berjast um heimsmeistaratitilinn i handknattleik í •*. - - ' Danir á „aftökupalli" gegn Russum, Rúmenar og Tékkar í erfiBum leik í kvöld verður leikið í undanúrslitum HM í Svíþjóð. Danir og Rússar leika saman og heimsmeistaralið Rúmena og Tékkar. Það má búast við spennandi viðureignum, ekki sízt milli Tékka og Rúmena. íslendingar hafa haft við- skipti við allar þessar þjóðir í handknattleik, — og ekki farið mjög flatt á þessum viðskiptum, tapað að vísu og unnið á víxl, aðallega unnið félagsleiki, en tapað landsleikjunum við Rússa og Dani, en gert jafntefli við Tékka á HM tapað fyrir þeim einnig á HM og unnið Rúména, — það var 1958 á HM, — en landsleikjum heima töpuðum við. Tékknesk félagslið þekkjum við mörg frá leikjum hér heima og þekkjum hinn þróaða handknattleik þeirra. Einn þeirra leikmanna, sem hefur mætt flestum þessum þjóðum, — og flestum stjörnum HM í Svíþjóð er Gunnlaugur Hjálmarsson og hefur hann nú ritað gr ein fyrir Vísi um HM í Svíþjóð og fer hún hér á eftir. AWrei fór það svo að Danir kæmust ekki í undanúrslitin. Gefur þetta eflaust hiinni „hóg- væru“ blaðamannastétt Dana tækifæri til að gorta enn af verö leikum manna sinina, enda þótt einskær heppni hafi leitt þá svo langt í keppninni, sbr. lelkinn við Frakka og rauinar líka leik- inn í fyrrakvöld við Júgóslava. Rúmenar, heimsmelstaramir í handknattleik, hafa átt i erfið- leikum til þessa og hefur ekki tekizt aö sannfæra um neina yf- irburði. Tékkar hafa uninið sína leiki stórt, siðast Svía, gestgjaf ana í þessari miklu keppni. Rússar, hálfgert „spútniklið“ í handknattleik, hafa komiö mest á óvart og ekki aö vita hvað þeir gera. Viö skulum nú ræða litil- lega um komandi leiki og-reyna að spá um gang þeirra, að því leyti, sem hægt er að spá um íþróttir, sem oftast er heldur erf itt. Danir leinda í „rússneska birn- inum“ Möguleikar Norðurlandanna á heimsmeistaratitli eða verð- launum hafa sjaldan verið eins litlir og nú. Norðmenn hafa þeg ar verið „jarðsettir“, Syíar „kistulagðir" og ég mundi segja að Danir væru á áftökupallin- um, því leikur þeirra gegn Tékk um getur vart unnizt nema fyrir hreint kraftaverk. Lánið hefur löngum loðað viö Dani og fróð legt verður að sjá hvemig þeim gengur í keppninni. Lið Rússa virðist mjög sterkt í þessari keppni og senni lega blasir úrslitaleikurinn við þeim. Sennilega þarf rússneski bjöminn ekki einu sinni að fara úr hýðinu til að sigra í þessum leik f kvöld við Dani, — Klim ow og félagar hans munu sjá um að Rússar sigri. Sumir benda þó eflaust á að FÉLAGSLÍF Framhaldsaðalfundur Knatt- 1 spymudeildar Víkings verður haldinn í félagshe' V ” mið- 1 vikodaginn 25. ja ‘1.00. Rússar hafi tapaö fyrir Rúm- enum. Nú eru hins vegar há- værar raddir uppi um það að Rússar hafi viljandi tapað. Og nú kann einhver að spyrja, hvers vegna. Já, tilgangurinn með þessu er talinn sá að Rúss- ar vildu sleppa gegn Ungverjum, því fýrir þeim hafa þeir tvívegis tapaö á þessu ári og virtust Rússar hræddir um að tapa í þriðja skiptið fyr- ir þeim nú, en álitu V-Þjóð- verja auðveldari bráð, sem og varð. Þetta er að vísu aðeins órökstudd kenning, en einkenni legt var það að Rússar skyldu hafa yfir 13:11 gegn rúmensku heimsmeisturunum og aðeins 5 mínútur til leiksloka, — þá er af vellinum og Rúmenár skora 4 mörk undir lokin og sigra 15:13. En sem sagt, — Rússar ættu að verða annað liðanna í úr- slitunum. HVAÐ GERA TÉKKAR NÚ? Vitaö mál er að leikur Rúm- ena og Tékka í kvöid veröur sá leikurinn, sem mesta athygli vekur. Síðan 1961 eru Tékkar þeir einu, sem sigrað hafa Rúm- ena á HM, en það var í riðla- keppninni 1964. Þessi sömu liö mættust 1 úrslitaleiknum og tókst Rúmenum þá aö sigra. Hafa Tékkar verið í úrslitum HM í þrjú skipti, en aldrei tek- izt að sigra, og er ekki vafi á að þeim þykir tími til kominn að láta til skarar skríða. Aðalvopn Tékka hafa löngum verið góðir markverðir og skyndiupphlaup, en nú hefur þeim bætzt stórkostlegur skot- maður, Bruno. Tékkar ættu með svipuðum leik og fyrri leikjum keppninnar að vérða nokkuð seigur biti fyrir heimsmeistar- ana. Rúmenar koma fram á sjánar sviðið með alla sina beztu menn. Mosek, oft kallaður „Pele hand- knattleiksins", hefur að vísu ekki sýnt þá leikni, sem vitað er að hann á í pokahorninu og markverðirnir Redl og Renu hafa brugðizt. Gruia, sá snjalli leik- maður, hefur líka reynzt hald- lftill, ef maður hefur verið settur honum til höfuðs í leikjum, sókn in orðið bitlftil. Þá má reikna með að ekki leggist allt á eitt að ýta undir Rúmena í kvöld, eins og gegn Rússum, „gestrisni" mót herja, og dómara, sem var eng- inn annar en Knud Knudsen, þekktur hér heima. Engu að síður má vænta þess að Rúmenar fari að sýna víg- | tennumar og sanna að þeir séu heimsmeistarar, — og hafi full- _ an hug á að verða það áfram. 1 Hvort það tekst eða ekki, fær | maður að vita í kvöld, en ef- H laust verður sú raun erfið Rúm- i enum. Af framansögðu má ljóst I verða, að ekki er auðvelt að spá 1 um úrslit leikjanna, ekki sízt um leik Rúmena og Tékka, þ. e., | hvort Rúmenar sigra „eins og | af gömlum vana“ eða hvort t Danir sigla enn í gegn og haldi uppi flaggi Norðurlandahand- K knattleiksins í úrslitum keppn- fe innar í Vesterás. við að leika Klimow tekinn /

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.