Vísir - 19.01.1967, Síða 4
4
V1SIR . Fimmtudagur 19. janúar 1967.
Bridgeþáttur VÍSIS
Ritstj. Stefán Guðjohnsen ——
Snyrtivörur hf. efst i
firmakeppninni
í fyrstu umferð í firmakeppni
Bridgesambands íslands urðu
eftirtalin fyrirtæki stigahæst:
1. Snyrtivörur h.f. (Hjalti
Elíasson 131. 2. Heildv: Björg-
vins Schram (Gunnþórunn Er-
lingsd.) 118. 3. Kr. Kristjánsson
h.f. (Báll Bergsson) 117. 4.
Sindri h.f. (Bemharður Guð-
mundsson). 116. 5. Heildv. Agn-
ars Ludvigssonar (Einar Þor-
finnss.) 115. 6. Tígultvisturinn
(Eiríkur Baldvinsson) 114. 7.
tsl. Aðálverktakar (Láms Karls-
son) 114. 8. Skeljungur h.f.
(Guðjón Ó. Kristjánss.) 112. 9.
Guðjón Bemharðssn h.f. (Char-
lotta Steinþórsd.) 111. 10.
Bókav. Snæbjarnar Jónss.
(Símon Slmonarson) 111. 11.
Tíminn (Ásgerður Einarsd.) 110.
12. Endursk. Þorgeirs Sigurðss.
(Zóphonías Péturss.) 110. 13.
Otto A. Michelsen (Ásmundur
Pálsson) 110. 14. Endursk.
Bárðar Sigurðss. (Magnús Bjöms
son) 109. 15. Efnagerðin Valur
(Guðríður Guðmundsd.) 109. 16.
Belgjagerðin h.f. (Egill Kristins-
son) )09.
Að þessu sinni er spilað í
Súlnasalnum á Hótel Sögu og er
næsta umferð í kvöld og
hefst kl. 20. Þátttaka er með
bezta móti en 192 fyrirtæki taka
þátt í keppninni að þessu sinni.
® „Áhorfandinn á að gera sér
í hugarlund að hann sitji og
skoði fræðslumyndir úr fyrstu
Mósesbók“. Þannig segir m. a.
í lofsamlegri gagnrýni um nýút-
komna bók um Surtsev, sem
heitir „Surtsey — en ö stiger
ur havet“ sem var gefin út af
Raben & Sjögren í Stokkhólmi.
Sigurður Þórarinsson skrifaði
þessa bók fyrir sænsku útgef-
endurna og fær hún mjög góða
dóma. Bendir einn gagnrýnand-
inn á að Surtsey, sem fæddist
í nóvember 1963 sé nú orðin
tvöfalt stærri en Monaco, spila-
borgin fræga við Miðjarðarhafið.
9 Flugfélag Islands býöur
ferðaiiienn velkomna enn einu
sinni í hinum litskrúðuga og
fallega bæklingi sinum „Wel-
come to Iceland by Icelandair".
Þetta er í 6. sinn, sem bækling-
urinn kemur út, og hefur aldrei
verið stærri eða fjölbreyttari að
efni, alls 140 síður, þar af 80
I litum. Bæklingurinn fæst hjá
bóksölum og kostar 60 krónur.
Um útgáfuna hefur Anders Ny-
borg í Rungsted, Danmörku, séð
um sem fyrr. Eflanst tekst að
krækja í allmarga ferðamenn út
á þennan fallega bækling.
0 Varðberg, félag ungra á-
hugamanna um vestræna sam-
vinnu, hefur víða félagsdeildir
um landið. Aðalfundur deildanna
voru haldnir I siðasta mánuði.
Formaöur á Akranesi var kjör-
' i s.t í'iv;!' i.
inn Svanur Geirdal, i Keflavík
Kristján Guðlaugsson og á
Siglufirði Kristján Einarsson.
Félagið í Keflavik er nýstofnað
og er níunda Varöbergsfélagið
á landinu.
® Svissnesk stjómvöld hafa
boðið styrk til Islendings til há-
skólánáms þar í landi háskóla-
árið 1967—1968. Er ætlast til
að umsækjendur hafi lokiö
kandidatsprófi eða séu langt
komnir í háskólanámi sfnu.
Nemur styrkurinn 550—600
frönkum á mánuði fvrir stúd-
enta, en 700 fyrir kandídata.
Bókastyrkur fylgir og kennslu-
gjöld eru greidd fyrir styrkþega.
Næg þekking í frönsku eða
þýzku er áskilin, enda fer
kennsla fram á öðm hvoru
þeirra mála, Umsóknir eiga að
berast Menntamálaráðuneytinu
fyrir 10. febr. og er hægt að fá
umsóknareyðublöð þar.
® Siðan frá áramótum hefur
umferðarlögreglan tekið 58 bif-
reiðir úr umferð vegna van-
rækslu á skoðun og vangold-
inna skatta.
Jólakortin enn að berast
Margir hafa furðað sig á því, að
vera að fá jólakortin ennþá og
finnst það að vonum fullseint. Enn
fremur hefur annars konar póstur
verið seint á ferðinni og vegna
þess hringdum við í bréfberadeild
pósthússins og spurðum hverju
þessi seinagangur sætti. Þar feng-
um við þær upplýsingar að sá póst-
ur sem héfði verið borinn út, nú
Pósthúsið i Reykjavík
Afgreiðslan Pósthússtræti 5 ei
opin alla virka daga kl. 9—18
sunnudaga kl. 10—11.
Otibúið Langholtsvegl 82: Opið
kl. 10—17 alla virka daga nema
laugardaga kl 10—12.
Otibúið Laugaveg) 176: Opið
kl. 10—17 alla virka daga nema
laugardaga kl 10—12.
Bögglapóststofan Hafnarhvoli:
Afgreiðsla virka daga kl. 9—17
eftir helgina, hefði komið með sið-
ustu skipum frá Englandi, Banda-
ríkjunum og Kanadá, en hins veg-
ar minna frá Norðurlöndunum.
Bretar sendu allan sinn jólapóst
með skipum og einnig væri mikið
um að Kanadabúar og Bandarfkja-
menn gerðu það sama. Ennfremur
væri almennur póstur sendur með
skipum frá flestum þessara landa,
ef gjaldið færi yfir vissa upphæð.
Fleiri þúsundir jólakorta heföu
komið fyrir síðustu helgi og hefði
verið unnið að - sundurgreiningu
þeirra fram á kvöld á fimmtudag og
föstudag, til þess aö koma þeim
í borgina og út á landið sem fyrst.
Lokið hefði verið við að koma pósti
1 hólfin í gæ'r.
Þegar við spuröum hvort von
væri á meiri jólapósti, var þvl til
svarað, að venjan væri sú að jóla-
kort væru að berast frá þvl fyrst
I desember og allt fram I miðjan
febrúar. Enn ætti eftir að berast
póstur úr vestur og austurheimi.
Jólapóstur væri yfirleitt sendur á
svo ódýru gjaldi að hann færi með
skipunum, fólk hugsaði sem svo,
Tveir isl. einþátt-
ungar hjá Grimu
Ég er afi minn og Lifsneisti
heita næstu verkefni leikfélaj*sins
Grímu. einþáttungar, sem frum-
sýndir verða í Tjamarbæ á iaug-
ardag. — Þættimir eru eftir tvo
unga Ieikritahöfunda, Magnús Jóns
scin og Birgi Engilberts. Gríma varð
fyrst til að kynna Magnús sem
leikskáld með flutningi Frjáls fram
taks Steinars Jóhannssonar i ver-
öldinni fyrir tveimur árum, em Þjóð
leikhúsið sýndi einþáttung eftir
Birgi í Lindarbæ í fyrra.
Blaöamönnum var boðið að vera
við æfingu á Ég er afi minn I gær.
Leikstjóri er Brynja Benediktsdótt-
ir, sem nú er formaður Grímu. Leik
endur eru sjö talsins: Jóhanna
Norðfjörð, Jón Júlíusson (foreldr-
amir), Björg Davíðsdóttir, Sigurð-
ur Karlsson (systkinin). Sálfræð-
inginn leikur Arnar Jónsson, bama
vemdarkonu Oktavía Stefánsdóttir
og Lilla Kjartan Ragnarsson. Leik-
urinn snertir eins og af hlutverka-
skránni má ráða ýmis uppeldisleg
og þjóðfélagsleg vandamál — á
nokkuð sérstakan hátt (ameríkani-
seruð ádeila).
Lífsneisti er hins vegar samtal
gamallar konu við leikbrúðu, kan-
ínu. Erlingur Gíslason setur leik-
inn á sviö, en þær Bríet Héðins-
dóttir og Nína Sveinsdóttir fara
með hlutverkin.
Sigurjón Jóhannsson hefur geft
leikmyndir aö báðum þáttunum og
er það frumraun hans á því sviði.
Tilraunaleikhúsið Gríma hefur nú
starfaö I 5 ár og hefur þegar sýnt
verk fimm ungra íslenzkra höfunda
og auk þess kynnt ýmsa oddhvassa
penna, erlenda, svo sem Arrabal,
J. Genet og Max Frisch. — Félagið
hefur I vetur skipulagt æfingatlma
fyrir félaga sína, I ballett, skylm-
ingum og látbragðsleik.
að jólakort væri jólakort, liti á
það sem kveðju, en ekki áríðandi
póst og vildi því ógjama greiða
mikið fyrir sendingu á honum.
Hvað annan póst snerti, os seina-
gang á honum, var því til svarað
að þar væri einnig um skipapóst
að ræða og óhjákvæmilegt að hann
væri seinna á ferðinni'en flugpóst-
ur.
** VERKFÆRI
VIRAX Umbo3iS
SIGHVATUR EINARSSON & CO
SÍMI24133 SKIPHOLT 15
T
Minningarsjpður um forseta-
frú Dóru Þórhallsdóttur
Hinn 23. febrúar 1965 stofnuðu
Forseti íslands herra Ásgeir Ás-
geirsson, böm hans og tcngdaböm,
minningarsjóð um forsetafrú Dóm
Þórhallsdóttur, og hafa þau nú lagt
fram allt stofnfé sjóðsins kr.
300.000.00.
Tilgangur sjóðsins skal vera að
reisa Minningarkirkju á fæöingar-
stað Jóns Sigurðssonar á Rafnseyri
við AmarfjörC.
Auk stofnfjárins hafa sjóðnum
þegar borizt nokkrar minningar-
gjafir.
Sjóðurinn er í vörzlu biskups-
embættisins, og er gjöfum til hans
veitt viðtaka i skrifstofu biskups
að Klapparstig 27. (
Jámvöru-
sýning í
i! London
Mesta Alþjóðajámvörusýning-
in til þessa verður haldin 30.
jan. til 3. febrúar í stóra salnum
I Olympa-sýningarhöllinni í
London. Á slíka sýningu I fyrra
komu 30.000 gestir frá 68 lönd-
um. Hið opinbera nafn sýning-
arinnar er „13th International
Hardwarse Trade Fair“.
Sjálfstæðiskvennaféiagið Hvöt
Þar verður spilað Bingó og margir á
gætis vinningar, þar á meððal vetrarferð
með m.s. GULLFOSSI til Kaupmanna-
hafnar. — Gisting á Hótel Búðum fyrir
2 í 2 sólarhringa og margt gott matar-
kyns, t.d. súr hvalur, hangikjöt o.m.fl.,
sem er of langt upp að telja.
heldur fund fimmtudaginn 19. janú
ar í
Sjálfstæðishúsinu ki. 8.30
X
■ úMM
12 umferðir verða spilaðar og kaffihlé eftir 6.
umferðina. — Ókeypis aðgangur. —
Stjómin.