Vísir - 04.03.1967, Blaðsíða 12

Vísir - 04.03.1967, Blaðsíða 12
12 VIS IR . Laugardagur 4. marz 1967 í Grikklandi, jafnvel rústimar, sem ekki hafa verið endurreistar, eru alltaf hreinlegar og bjartar yfirlit- um. Þama era byggingamar óhrein ar og skuggalegar, og jafnvel garð- amir umhverfis þær í megnustu vanhirðu. Kvikmyndasaga eftir Eric Ambler að ekki mátti úthella konunglegu blóði. Konur, sem gerzt höfðu sek- ar um einhverjar yfirsjónir, voru teknar af lífi á enn annan hátt — þær voru látnar í poka og þung lóð bundin við, og síðan varpað í sundið“. Ungfrú Lipp leit spyrjandi á mig. „Er þetta satt, Arthur?“ „Eins satt og það getur verið“. „Hvernig vitið þér það?“ „Þetta era sögulegar staðreynd- ir, imgfrú Lipp. Það gerðist meira að segja einu sinni, að soldán, sem gerðist leiður á öllum konunum í kvennabúri sínu, lét sökkva þeim öllum þannig í sundið. Skömmu síðar strandaöi skip á sömu slóð- um og kafari var sendur niður til að athuga byrðing þess. Þegar hann sá alla þessa poka standa þarna upprétta á botni og hreyfast til og frá fyrir straumnum, lá við sjálft að hann missti vitið af skelfingu". „Hvaða soldán var þetta?“ Ég mundi það ekki í svipinn, en hélt að mér væri óhætt að gizka á. „Það var Murad annar“. „Nei, Arthur, það var Ibrahim soldán. Þér megið ekki móðgast, en ég held að það sé vissara, að við fáum einn af opinbera leiðsögu- mönnunum, sem hér eru starfandi". „Sem yður þóknast, ungfrú Lipp“. Ég reyndi að láta sem mér þætti það bráösnjöll hugmynd, en ég var reiður. Hefði hann spurt mig, hvort ég væri sögulega fróður um Ser- aglio, mundi ég hafa svarað því neitandi. Hún hafði svikizt að mér, 'og að féll mér ekki. Við gengum inn um hliðið, greidd urn aðgangseyrinn, hún lét mig hafa fyrir því, og eins að ráða enskumælandi leiösögumann til að fylgja henni um svæðið. Hann var að sjálfsögðu hátíðlegur og bæði fróður og nákvæmur í frásögn sinni og sagði henni ótal hluti, sem ég hafði ekki hugmynd um. Hún lét spumingarnar dynja á honum, svo vel hefði mátt halda að hún hefði í hyggju að semja bók um staðinn, og það féll honum að 'sjálfsögðu vel í geð. Hann brosti og varð þá líkur apaketti í framan. Sjálfum finnst mér Seraglio leið- inlegur staður. Fomu byggingarnar ÞÝZKAR ELDHÚSINNRÉTTINGAR úr harðplasti: Format innréttingar bjóða upp á annað hundraS tegundir skópo og litaúr- val. Allir skópar me3 baki og borðplota tér- smiðuS. EldhúsiS fæst með hljóSeínangruS- um stólvaski og raftaekjum af vönduSustu geið. - SendiS eSa komiS meS mól af oldhús- inu óg viS skipuleggjum eldhúsiS somstundis og gorum ySur fast verStilboS. Ótrúlega hag- stætt vcrS. MuniS aS söluskattur er innifalinn í tilboSum fró Hús & Sklp hf. NjótiS hag- stæSra greiSsluskilmóia og (Q, lækkiS byggmgakostnaSinn. • KAFTitE K1 i HÚS&SKIPJif. uvmiim - ■roi aciiE En ungfrú Lipp virtist svo hrifin af staðnum, að vel hefði mátt halda að hún væri að skoða höllina í Ver- sölum. Hún fór um allt, spurði um allt. Ef ég hefði vitað þá, sem ég vissi seinna, mundi mér ekki hafa komið það á óvart, en það var að sjálfsögðu ekki þvi að heilsa, og ég gerðist brátt leiður á að elta þau, hana og leíðsögumanninn. „Arthur", mælti hún allt i einu og sneri sér að mér. „Hvað eram við lengi að aka héðan út á flug- völlinn?“ Ég varð svo undrandi, aö ég hlýt að hafa orðið eins og fábjáni á svipinn. „Flugvöllinn?" át ég eftir. Það vottaði fyrir óþolinmæði í rödd hennar. „Já, Arthur, flugvöll- inn, þar sem flugvélamar lenda, skiljið þér? Hvað eram við lengi að aka þangað?" „Fjörutíu mínútur", svaraði leið- sögumaðurinn, sem enginn hafði spurt. „Fjörutíu og fimm mínútur, mundi ég segja, ungfrú", mælti ég og lét sem ég heyrði ekki orð leið- sögumannsins. Hún leit á úrið sitt. „Vélin kem- ur klukkan fjögur. Heyrið þér mig, Arthur, nú fáið þér yður eitthvað I svanginn og svo hittumst við úti hjá bílnum að klukkustundu lið- inni“, sagði hún. „Sem yður þóknast ungfrú. Eig- ið þér von á einhverjum með flug- vélinni?" „Já, ef yöur stendur á sama“. Hún varð stutt í spuna: þótti þetta auðheyrilega óþörf forvitni. „Ég átti einungis við það, ung- frú, að ef ég vissi með hvaða flug- véí géstsins væri von, þá °gæti Jég hringt út á flugvöll og spurzt fyrir um lendineartfmann". „Það eetið bér einmitt gert, Art- hur. Það er flunvél frá Air France, sem kemur frá Genf Ekki datt mér öott.a í hug, Arthur". Og nú var hún ekkert nema blíðan og sólskinið. Svona lætur þeim. og allar eru þær eins. Það var veitingastaður skammt frá bláa bænahúsinu, og þegar ég hafði beðið þar um mat, hringdi ée til Tufans majórs. Hann hlustaði á skýrslu mína, athugasemdalaust. „Gott“, sagði hann, þegar ég hafði lokið máli mínu. „Ég sé svo um að vegabréf farþeganna frá Genf verði athuguð sérstaklega". Þá fór ég að segja honum frá tilgátu minni um eiturlyfin. Að vopnin kynnu aö eiga að fara til tyrknesks ópíumsala. En þá fór hann óðara að taka fram í fyrir mér. „Hafið þér komizt að einhverju nýju, sefn rennir stoðum undir þá tilgátu?" „Nei, en þær staöreyndir, sem þegar eru fyrir hendi, gera það“, svaraði ég. „Það getur hvaða heimskingi sem er, byggt alls konar ályktanir og tilgátur á þeim staðreyndum. Ég hef einungis áhuga á þeim upplýs- ingum, sem okkur vantar. Það er yðar, að útvega þær ...“ „Samt sem áður ...“ „Þér sóið tímanum. Þér gefið skýrslu í síma, eða með öðru móti, og munið tímann, þegar þér eigið að hlusta eftir tilkynningum frá okkur. Sé ekki um neitt fleira að ræða, þarf ég að snúa mér að öðra“. Þessi heragaða hugsun, enn einu sinni. Það gerði engan mun, hvort heldur harin hafði rétt eða rangt fyrir sér... og það kom seinna á daginn, að hann hafði bæði rétt og rangt fyrir sér. Það var þessi hroki hans, sem ég gat á engan hátt þolað. Ég gerði mér matinn að góöu, þótt mér geðjaðist hann alls ekki, og hélt síðan aftur þangað, sem bíll inn stóð. Ég var líka sárgramur sjálfum mér. Og það var þessi gremja, sem ó- beinlínis varð til þess að ég hagaði mér eins og heimskingi. Mér fannst sem það þyldi enga bið, að ég kæmist að raun um hvort hand- sprengjumar og vopnabirgðirnar væra enn faldar í bilnum eða ekki. Ef svo væri ekki, vora nokkur lfk- indi til að ágizkun mín væri rétt. Ég gat þá ályktaö sem svo, að vopn in hefðu verið afhent þeim, sem taldi sig hafa þörf fyrir þau. Enn voru tuttugu mínútur þang- að til ég mátti búast við því að ungfrú Lipp kæmi út aö hliðinu. Ég ók þó bílnum spölkorn frá og á bak viö tré, ef svo skyldi fara, aö hún kæmi áður en hún hafði gert ráð fyrir. Því næst dró ég kross-skrúfjárnið upp úr farangri minum og tók að fást við skrúfum- ar I hurðarklagðpingunni næst við ekilssætiö. Ég hafði ekki neinar áhyggjur af því, að einhver kynni að sjá til mln. Ég var einungis að fram- kvæma skipun Tufans majórs, og þurfti ekki að óttast að náungamir I Ópelnum færa neitt aö skipta sér af því. Færi einhver Ieigubilstjór- inn að hnýsast I þetta, gat ég allt- af sagt sem svo, að læsingin væri I ólagi. Allt var undir því komið, að mér ynnist tími til að gera mín- ar athuganir, þar til ég varð að fara hægt og gætilega að, svo ekki sæi nein merki eftir. Ég losaði fyrst um allar skrúf- umar, og skrúfaði þær síðan úr, eina og eina I einu. Þegar ég átti einungis tvær skrúfur eftir, gerð- ist hræðilegur atburður. Mér varð sem snöggvast litið upp, og sá þá hvar ungfrú Lipp var að kveðja leiðsögumanninn I hliðinu. Það leyndi sér ekki, að hún hafði séð bílinn, því að hún horfði beint I áttina til mín. Það var um tvö hundruð metra spölur að hlið- inu, og huröin, sem ég hafði verið að glíma við, var fjær henni, en mér var Ijóst að ég haföi ekki tíma til að ganga frá skrúfunum aftur. WlTH THE AÞVANTAGE OF SliRPRISE, TARZAN AND THE WAZIRIS UPSET THE 6ALANCE OF POWER IN THEIR FAVOR. FEAR FILLS THE UNBELIEVING EYES OF ARONA...THE PLEAS OF HIS MEN FALL ON _ PEAFEARS... _______ lihiM « r^>. ..w.. rm «7 umí S,—. .-•» ■. Þar sem Waziritnenn Tarzans koma óvin unum á óvart, tekst þeim fljótf að ná yfir- hQndmni. En Krona fyllist ótta. Hróp manna hans á hjálp hafa engin áhrif á hann. 50». Auk þess var bíllinn ekki þar, sem hann hafði staðið. Ég átti því ekki nema um eitt að velja — stinga bæði lausu skrúfunum og skrúfjám inu I vasa minn, ræsa bílinn og aka af stað til móts við hana. — Treysta því að skrúfumar tvær héldu klæðningunni fastri, þegar ég færi út til að opna afturdyrnar. Að einu leyti hafði ég heppnina með mér. Leiðsögumaðurinn tók undir sig stökk til þess að geta auðsýnt ungfrúnni þá hæversku að opna fyrir henni afturdymar, svo ég þurfti ekki að hreyfa mig eða hurðina. Og afsökunina hafði ég á vörunum um leið og ungfrúin sett- ist inn I bílinn. „Mér þykir þetta leitt, ungfrú, en ég hélt kannski að þér kæmuð við I kirkju heilagrar írenu, og færði bíl- inn því til að stytta yður leið“. Þetta bar sinn tilætlaðan árang- ur, því að hún gat ekki svarað mér og leiðsögumanninum samtlmis, en hann kom mér enn til aðstoðar, og FljóV hreinsun Nýjar vélar Nýr hreinsilögur. sem reynist frábærlega vel fyrir allan svampfóðraðan fatnað, svo sem kápur, kióla, jakka og allan bamafatnað. Efnalaugin LINDIN, Skúlagötu 51. fTJ==*BflAA£IBAH ImÍLÚtJlgP RAODARARSTfG 31 SfMI 220?' SNYRTISTOFA Sími 13645 SPARIfi TÍMA

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.