Vísir - 17.03.1967, Síða 3

Vísir - 17.03.1967, Síða 3
VÍSIR. Föstudagur 17. marz 1967 3 Kærasta í hverri höfn „ ... svo á ég kærustu á Kúbu og kannski svo aðra í Höfn, því meir sem ferðunum fjölgar ég forðast að muna bau nöfn...“ Þannig syngjum við um sjó- mennina okkar, sem sumir segja að eigi kærustu í hverri höfn. Það vekur því óneitanlega for- vitni, þegar við fréttum af þvi að nemendur úr ballettskóla Þjóðleikhússins ætli að sýna ballett, sem ber nafnlð „Kær- asta f hverri höfn“, og þessl spuming vaknar áreiðanlega hjá einhverjum: Skyldi ballettmeist arinn, hún Fay Wemer, hugsa sér kærustumar eltthvað svip- aðar og íslenzkir dægurlagahöf- undar? „Kærasta f hverri höfn“ er einn af fjórum ballettum, sem fmmsýndir verða £ Lindarbæ á mlðvlkudag — þeir taka við litla sviðinu af honum Jóni gamla, sem skemmti áhorfend- um þar á 19 sýningum. Er þessi ballett saminn við tónlist eftir Malcolm Amold, en hinir ball- ettamir em „Stúlkan sem græt- ur“ vlð tónllst eftir Paul Hinde- mith. „Silkiborðamir" við tón- list Jacques Ibert og „Pípuhatt- urinn“ við tónlist eftir Don Gill- „Silkiborðarnir.“ es. Fay Werner, sem verið hef- ur ballettmeistari Þjóðleikhúss- Sns sl. 3 ár hefur samið alla dans ana og æft þá, en dansarar eru sjö úr hópi beztu nemenda ball- ettskóla Þjóðleikhússins, en nem endur þar eru nú um 140. Er þetta önnur sjálfstæða bailett- sýningin, sem Fay Wemer stjómar en auk bess hefur hún æft dansa í fjölmörg leikrit og ópemr í Þjóðleikhúsiriu. Til aðstoðar dansfólkinu verða að sjálfsögðu tónlistarmenn og þeir ekkl af verri endanum: Gunnar Egilsson, Simon Hunt, David Ince, Kristján Stephen- sen og Sigurður Markússon. Myndsjáin brá sér niður f Lindarbæ einn daginn fyrir skömmu þegar verið var að æfa dansana, en dansarar eru: Ing- unn Jensdóttir, Ingíbjörg Bjöms dóttir, Guðbjörg Björgvinsdótt- ir, Kristfn Bjarnadóttir, Helga Magnúsdóttir og Einar Þorbergs son. Það er enginn vafl á að þær em að dansa í „Pípn hatturinn.“ Hér er sjómaðurfnn með eina af kærustunum sínum. „Silkiborðamir.“

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.