Vísir - 17.03.1967, Síða 4
Á frumsýningu á fyrri hluta
myndar Sergej Bóndartsjuks eftir
sögunni „Stríð og friður" var
dælt inn í áhorfendasalinn fersku
kældu lofti, meðan verið var að
sýna langa sleðaferð. Var þetta
gert til þess að áhorfendur gætu
betur lifað sig inn í það sem þeir
sáu á tjaldinu.
Elizabet, Englandsdrottning og
Margret, prinsessa, voru lokað-
ar inni í safni í London fyrir
stuttu. Þær voru innilokaðar
nokkum tíma, meðan safnverðir
og lífverðir leituðu þjófs í safn-
inu. Allar útgönguleiðir voru lok-
aðar, þegar þjófabjöllur safnsins
fóru í gang, stuttu eftir að þær
systur voru komnar inn í safnið. 5
mínútum seinna kom í ljós, að
hér hafði verið um gabb að ræöa,
einhver safngesta hafði tekið upp
tólið á viðvörunarsima í þeirri
trú, að þar væri um að ræða
síma fyrir safngesti.
Þéssi énska
fyrirsæta fær
1200 sænskar
krónur á klst.
fyrir vinnu
sína í USA.
En það mun
víst vera
heimsmet í
þeim bransa.
Hún er nefnd
„Twiggy“ og
er hennar oft
getið í sömu
andránni og
menn tala um
„Rækjuna“.
en hennar var
getið 1 blaðinu
ekki ails fyrir
löngu.
Safn gamalla bíla
sett upp í fjósi
á Sjálandi
Kádiljákurinn hans Kristjáns X.
Gamali kranabíll, sem þeir félagar nota til þess að færa hina.
FJÓRIR SJÁLENDINGAR með
bíladellu, tveir tannlæknar, einn
bifvélavirki og einn ráðsmaður,
hafa ákveðið að koma á fót safni
I Sjálandi, — safni fyrir bíla.
Þeir eru nú um þessar mundir
önnum kafnir að koma fyrir bíl-
unum á sveitabæ nálægt Helsingi
í Norður-Sjálandi, en bar ætla
þeir að hafa safnið.
Sjálfir eru þeir ekki fjársterkir,
en þeir eiga stuðning meðlima
klúbbs nokkurs, sem allir eru á-
hugamenn um gamla bíla. Leggja
klúbbfélagamir hönd á plóginn
söfnurunum fjórum til aðstoðar.
Þeir félagarnir byrja með 25
bíla og 15 bifhjól, alít af göml-
um árgerðum. Hafa þeir lagfært
þá alla svo þeir eru sýningar-
hæfir. 100 gömul farartæki eiga
þeir, eða þar um bil, en flest
þeirra þurfa lagfæringar við, sem
eins og er er of dýrt fyrir Sjá-
lendingana fjóra.
Meðal bíla, sem þeir eiga, er
bíll Kristjáns X., Ford T, leigu-
bíll gamall, Rolls Royce frá því
1933, Buick síöan 1924, Stude-
baker 1921 og fleiri mætti telja
upp. Einn þeirra elzti er þýzkur
Cyclonette frá því 1907, þríhjóla.
Auk hugmyndarinnar um stofn
un safns fyrir gamla bíla, hafa
þeir félágar hug á að setja upp
skóla í meðferð gamalla öku-
tækja, og í sögu umferðar fyrri
tíma.
Svona er útlits í einum salnum á sveitabænum. Þetta var áður fjös.
Bréf um bindindismál
„Umbrot mikil eiga nú sér
stað i Hafnarfirði út af áfengis-
málum. Tveír einstaklingar og
áhugamenn um stofnun vínbars
sækja það fast að fá bæjar-
stjórnarmenn til að samþykkja,
að fram fari á vori komanda at-
kvæðagreiðsla meðal bæjarbúa
um opnun áfengisútsölu í Hafn-
arfirði, en lögum samkvæmt
þarf hún að vera fyrlr hendi á
viðkomandi stað til bess að þar
megi st>rfrækja vínbar Þeir,
sem bezt þekkja til, telja, að
bæjarstjórnin muni ekki verða
við ósk bessara manna nema
fram Womi tilmæli um það frá
*/3 hluta kjósenda í bænum. en
þá er lögskylt að láta atkvæða-
greiðsluna fara fram.
Óliklegt er, að svo margir
Hafnfirðingar fáist til að óska
eftir atkvæðagreiðslu og með
þvi lýsa vilja sínum til að breyta
í Firðinum ber í brjósti af til- Þess ber að geta, sem vel er
hugsuninni um hugsanlega opn- gert af hálfu opinberra aðilja,
un vínútsölu í Hafnarfirði, ber — nóg um skammirnar. Hafi
að fagna því góða fordæmi í þeir bæjarstjórnarmenn, sem
UmAu^Göúi
ríkjandi ástandi í Hafnarfirði, en
þar hefir engin áfengisútsala
verið í rúm 30 ár, og Hafnfirð-
ingar komizt vel af án hennar.
Þá óttast fólk, að tilkoma vin-
bars og vínsölu myndi stórauka
drykkjuskap i bænum.
Mitt í þeim kvíða, sem fólk
áfengismálum, sem bæjarstjórn
in í Hafnarfirði hefir nýlega
sýnt með bví að samþykkja á
fundi sínum að verða við áskor-
un frá Landssambandinu gegn
áfengisbölinu um að bærinn
veiti ekki áfengi í samkvæmum
bæjarstió-nar og bæjarstofnana.
stóðu að samþykktinni um af-
nám vínveitinga á vegum bæjar-
ins, þökk fyrir tímabært fram-
lag í baráttunni gegn áfengis-
bölinu og minnkandi áfengis-
neyzlu. Megi sem flestir feta í
þeirra fótspor“.
„Hafnfirðingur“.
Þaö eru Víða miklar áhyggjur
út af bindindismálunum, eins
og m. a. kemur fram í bréfi
„Hafnfirðings“. Ástandiö í á-
fengismálunum er aðallega mjög
slæmt að þvi leyti, aö drykkju-
skapur unglinga og ungs fólks
virðist hafa aukizt svo mjög,
þrátt fyrir viðleitni bindindisfé-
laga til að draga úr áfengis-
neyziu, og ýmsar hömlur af op-
inberri hálfu. Þaö er því eðli-
legt, að í hvert skipti, sem fram
koma tillögur um breytingar á
sölu og meöferð áfengra
drykkja, þá staldri menn við
og íhugi, hvort verið sé að stíga
spor til bóta — eða ineiri ó-
farnaðar.
Þrándur í Götu.