Vísir - 12.07.1967, Síða 1
Fyrsta fjölbýlis-
húsið fokhelt í
Fossvogshverfi
Fossvogshverfið nýia er nú
óðum aö rísa upp, enda er
keppzt þar við nótt sem nýtan
dag. Fyrsta fjölbýlishúsið í
hverfinu verður fokhelt í dag,
en unnið var af kappi við að
ganga frá baki hússins í morg-
un. Smiðirnir Bóas Hannibalsson
(t. v.) og Helgi Jósefsson voru
að ganga frá þaki hússins, sem
stendur við Dalaland, í gær, þeg-
ar Magnús Axelsson, Ijósmynd-
ari Vísis átti Ieið um hverfið.
Athygli hefur vakið hversu
byggingu þessa húss hefur mið-
að vel áfram, en það eru aðeins
rúmir tveir mánuðir siðan byrj-
að var á grunninum. Eigendur
hússins ætla að flytja í það fyrir
Framh. á 10. síðu.
57. árg. - Mibwku4ag«r 12. julí 1967. - 156*.tbl.
Mikil ganga í Elliðaánum
400 laxar gegnum teljarann á rúmum sólarhring
Ein mesta ganga, sem komið hefur i árnar
Góð laxveiði i sumar
í fyrrinótt var ein mesta laxa-
ganga, sem komið hefur í Elliöa
ánum, síðan laxateljarinn var
settur upp i ánum. — 400 lax-
ar höfðu gengið upp í gegnum
teljarann á rúmum sólarhring
um hádegi i gær, sém er tæpur
helmingur af þeim fjölda, sem
hefur gengið í gegnum teljarann
í allt sumar. 1064 laxar voru
komnir í gegnum teljarann á há-
degi í gær, en á sama tíma i
fyrra voru um 650 laxar gengn-
ir upp úr .
Mjög líflegt var við árnar i
gær, lax stökkvandi í fossin-
um og mikil sporðaköst á öll-
um grynningum. — 8 laxar
komu á land í gærmorgun, sem
feðgarnir Jakob Hafstein eldri
og yngri fengu, alla á flugu
(Sweep og Junior), en enginn
lax var kominn á land eftir há-
degi, þegar Vísismenn voru við
árnar um fjögurleytið, þó að
útlitið hafi verið gott.
Á hádegi í gær voru komnir
124 laxar á' iand í Elliðaánum,
sem er heldur meira, en á sama
tíma i fyrra, en þá var veiðin
talin ágæt. — Fengsælasti dag-
urinn var si. sunnudag, en þá
veiddust 16 laxar. Stærsti lax-
inn, sem fengizt hefur í sumar,
er 16 punda hrygna, sem Krist-
• ján Sigmundsson dró á maðk,
en langmest hefur verið veitt
á maðk í sumar. Sonur Krist-
jáns Sigmundssonar, Snæbjöm,
fékk þó 8 laxa á flugu einn
morguninn.
Forseti íslands gestur á
EXPO á morgun
Stökkvandi Jax í fossinum í gærdag. (Ljósm. R. Lár.).
Forseti fslands, herra Ásgeir Ás-
geirsson, og fylgdarlið hans verða
opinberir gestir Heimssýningarinn-
ar í Montreal á morgun. Um morg-
uninn verður opinber móttaka, þeg-
ar komið er á „Expo“, þá verður
íslenzka sýningardeildin skoðuð,
forsetinn mun sitja hádegisverðar-
boð aðalframkvæmdastjóra Heims-
sýningarinnar og síðdegis er mót-
taka fyrir forsetann af hálfu ís-
Iendinga.
í fylgdariiði forseta eru utanrík-
isráðherra, Emil Jónsson, Þórhaliur
Ásgeirsson ráðuneytisstjóri, am-
bassador Kanada hér á landi, John
Sigvaldason, og Hallgrímur Fr.
Hallgrímsson, ræðismaður Kanada
á íslandi
Forsetinn og föruneyti hans
héldu héðan aðfaranótt þriðjudags
sýningunni sjálfri í tvo daga eftir
opinbera móttöku á morgun. Mánu-
Framhald á bls. 10.
Borgarstjórn K.hafnar gest-
ir Reykjavíkur 14.-19. ágúst
Dagana fjórtánda til nítjánda
ágúst munu borgarstjómarfull-
trúar 800 ára „afmælisbamsins“
við Eyrarsund dveljast hér á
landi I boði borgarstjómar
Reykjavikur. í hópnum verða
7—10 borgarstjórnarfulltrúar
Kaupmannahafnar og bar á með
al forseti borgarstjómar, Henry
Stemkvist.
Geir Hallgrímsson sagði í sím
tali, sem Vísir átti við hann út
af heimsókninni í morgun, að
þetta væri endurgjald fyrir heim
sókn borgarfulltrúa Reykjavik-
ur til Hafnar í fyrra. — Borgar-
stjóri sagði, að naumast heföi
verig búizt við því, að borgar-
fulltrúarnir gætu komið þessari
heimsókn hingað við í sumar,
þar eð svo mikið er um að vera
vegna 800 ára afmælisins, en
allt þar fyrir væru þeir nú vænt
anlegir.
Hér munu gestirnir skoða
borgarstofnanir og fara eitthvað
um landið. Þeir koma hingað að
kvöldi hins 14. og fara aftur að
morgni 19. ágúst.
og komu til Montreal i gærmorgun.
Farið var með járnbrautarlest til
Ottawa í gær, þar sem landstjóri
Kanada, Roland Michener, tók á
móti forseta, er hann og föruneyti
komu í heimsókn i kanadíska þing-
ið í Ottawa. Forsætisráðherra Kan-
ada, Lester Pearson, var einnig í
fyigd með forseta, þegar hann skoð
aði kanadíska þinghúsið og sagði
við það tækifæri, að ekkert land
utan I’slands hefði sent eins mik-
inn hluta íbúa sinna tii Kanada og
ræddi m. a. um þann andlega arf,
sem Kanadabúar og Islendingar
ættu sameiginlegan. Um kvöldið
var setið kvöldverðarboð, sem land
stjóri Kanada hélt forsetanum til
heiðurs. 1 dag dvelst forsetinn í
Ottawa, situr hádegisverðarboð, |
sem Pearson forsætisráðherra held-
ur til heiðurs honum og kvöld-
verðarboð, sem borgarstjórinn í
Montreal gengst fyrir.
Forsetinn mun dveijast á heims-
Sjóorrusta
úti fyrir
Sinai-skaga
í frétt frá Tel Aviv í morgun
segir, að opinber talsmaður hafi
staðfest, að sökkt hafi verið
tveimur tundurskeytabátum úti
fyrir Sinai-skaga í gærkvöldi.
Annar tundurskeytabátanna
hóf skothríð á italskt skip 25
km. fyrir norðan Rumana, en
þar voru ísraelskur tundurspillir
og 2 tundurskeytabátar í eftir-
litsferð. Öörum egypzka -tund-
urskeytabátnum var sökkt með
tundurskeyti, en skotiö á hinn
þar til kviknaöi í honum og sökk
hann úti fyrir Eilath.
Frétt frá Beirut í morgun
Framh. á 10. síðu.
21.6 millj. króna tilboð
i raunvisindadeild MA
í gær voru opnuð tilboð í ný-
byggingu Menntaskólans á Akur
eyri, en hún á að þjóna raun-
vísindadeild skólans, og veröa
tvær hæðir og kiallari, eða 6500
rúmmetrar að stærð.
Tilboðin voru opnuð að við-
stöddum skólameistara, bygg-
ingarnefnd og fulltrúum bjóð-
enda.
Fjögur tilboð bárust og voru
frá eftirtöldum aðilum: Haga
h.f. 24 millj. 970 þúsund. Dofra
h.f. 23 millj. 600 þúsund. Slipp-
stöðinni h.f. 23 millj. 500 þús-
und og loks var sameiginlegt
tilboð frá Smára h.f. og Aðal-
geiri og Viðari 21 milli. 645 þús-
und.
Ekki hefur ennþá verið á-
kveðið hvaða tilboöi skuli tekið.