Vísir - 12.07.1967, Side 2
V í S IR . Miðvikudagur 12. júlí 1967.
Frábært íslandsmet ÞORSTFINS í
800metra hlaupi
— Hljóp i gærkvöldi á timanum 1.50,1 min. —
Erl. Valdimarsson 2.-3. i kúluvarpi, með 15.22
Þorsteinn Þorsteinsson setti í gærkvöldi nýtt og
glæsilegt íslenzkt met í 800 m hlaupi á þriggja landa
keppni Noregs, Svíþjóðar og Finnlands, sem hófst í
gær. Þorsteinn sigraði í hlaupinu með miklum yfir-
burðum, og hljóp á tímanum 1.50.1 mín., sem er 1/10
úr sekúndu betri tími en fyrra met hans, sem hann
setti í landskeppninni við íra fyrir nokkrum dögum.
Þessi árangur Þorsteins er frábær og skipar honum
hiklaust á bekk með betri hlaupurum Norðurlanda og
þótt víðar væri leitað.
! þarna væri um heimsfræga hlaup-
ara að ræða, eins og t.d. Matus-
chewsky, frá A.-Þýzkalandi, sem
varð að láta sér nægja tímann
1.52,5 mín. og Jungwirth frá Tékkó-
slóvakíu hinn frægi hlaupari hljóp
á tímanum 1.52,0 mín. Og síðast
en ekki sízt: fjórir fyrstu menn í
þessum riðlum keppa til úrslita
á Bislett í kvöld og keppa þá um
sæti í Evrópuliðinu, sem mæta á
úrvalsliöi Bandaríkjanna í lands-
keppni í sumar. Þetta undirstrikar
rækilega, hversu geysilega efni-
legur og nú þegar frábær hlaupari
Þorsteinn ér, en hann er aðeins 19
ára gamall.
Hinir tveir íslendingarnir, sem
kepptu í gærkveldi stóðu sig einnig
ágætlega. Erlendur Valdimarsson
kastaði kúlunni 15,22 m og varö
númer 2—3, en sigurvegarinn kast-
aði 15,85 m. Arnar Guðmundsson
kastaði kúiunni 15,03 m og varð
fimmti, aðeins 4 cm. á eftir fjóröa
manni.
Úrslitin í hlaupinu urðu annars:
1. Þorsteinn Þorsteinsson, ísl.,
1.50,1 min.
2. Ake Olson, Sviþjóð, 1.51,2 m.
3. Pekka Lasala, Finnlandi
1.51.8 mín.
4. Áge Galgrud, Noregi, 1.52,7
mín.
Reynismeim unnu
Færeyingunu, 2:1
— og þar með bikarinn til eignar
Færeysku knattspyrnumennimir Leiknum lauk með sigri Sandgerð-
léku sinn fyrsta leik hér á landi inganna, sem skoruðu 2 mörk, en
á mánudagskvöld. Leikið var viö Færeyingarnir 1
^ . , ... | , Leikur þessi var hinn siðasti í
goöum tima og Þorstemn, þótt ^estgjafana.^Reyni ^andgerM. bikarkeppnii sem háð hefur verið
!•••••••••••• •• þessara tveggja 1:*~ ”—
Til gamans má geta þess, að i
gærkveldi fór fram mikiö og fjöl-
mennt alþjóðlegt frjálsíþróttamót
á Bislett í Oslo, og var þar m. a.
keppt í 800 m hlaupi í tveimur
riðlum. Hvorugur sigurvegaranna
í þessum riðlum náði líkt því eins
Þorsteinn Þorsteinsson,
1.50,1 í 800 m.
íslendingarnir, sem eru fjórir,
taka þátt í keppninni sem gestir.
Frábær enskur goifkennari
ieiðbeinir hér
— Talinn hafa bezta
sem sést
„swmg
1 á golfvöllum Englands
• Hingaö til lands kom í gær leiöbeina íslenzkum golfáhuga-
2 þekktur enskur golfkennari, A1 mönnum á næstunni. Norris
• Norris að nafni og mun hann þessi er einn þekktasti golf-
Hér reiðir mr. Norris til höggs. Ilann er talinn hafa fallegasta „swing“
sem sést ð golfvölium í Engiandi. Lengstu skot hans eru allt aö 300 m.
kennari Englands og er íslenzk-
um goifmönnum því mikill
fengur í komu hans hingað til
lands. Mr. Norris er hér á veg-
um Golfklúbbs Ness.
Iþróttafréttaritara Vísis gafst
í gær kostur á að sjá þennan
frábæra kennara Ieik tvær hol-
ur á goifvellinum á Seltjarnar-
nesi og í einu orði sagt lék
hann frábærlega vel, og skaut
(drive) lang lengst allra þeirra,
sem þarna léku með honum,
sem margir eru þekktir kylfing-
ar hér á landi. Lengst skýtur
hann um 300 m i einu skoti!
Mr. Norris er talinn hafa eitt
það fallegasta „swing“. sem
sést á golfvelli í Englandi í dag,
og er þá mikið sagt og meðmæli
hans góð, því að Englendingar
eiga marga frábæra golfmenn.
Norris hefur undanfarin ár ver-
ið aðstoðarkennari hins heims-
fræga enska golfkennara Mr.
Allan Daiiy, og hefur hlotið hjá
honum sérstaka þjálfun og
reynslu. Mr. Norris er kennari
við „Berkshire Golf Club“ í
Englandi, en hefur í hyggju að
hætta kennslu einhver næstu ár
og leggja fyrir sig að keppa í
atvinnumannakeppnum og ætti
hann að vera vel frambærilegur
þar!
Mr. Norris verður við kennslu
alla næstu daga þarna á golf-
vellinum á Seltjarnarnesi og
geta m'enn látið skrá sig þar til
kennslu, en hún er að sjálf-
sögðu öllum heimil. Þá er og í
ráði, að Norris fari í kennslu-
ferðir til Golfklúbbs Suðurnesja
og eins til Golfklúbbsins Keilir,
sem nýlega var stofnaður í
Hafnarfirði. Geta þeir, sem á
þessum svæðum eru og vilja
nýta sér hæfileika þessa frábæra
kennara til frekari árangurs í
golffþróttinni, skráð sig til
kennslu hjá viðkomandi klúbb-
um. Er þess að vænta að ís-
lenzkir kylfingar láti ekki þetta
einstæða tækifæri sér úr hendi
sleppa.
milli þessara tveggja liða undan-
farin ár, en fyrir leikinn voru liðin
jöfn að stigum, en Færeyingamir
með örlitlu betra markahlutfall.
Bikarkeppninni lauk þvi með sigri
Reynismanna, þar sem þeir unnu
þennan leik.
Reynir náði tveggja marka for-
skoti, og leikmenn liðsins voru
betri aðilinn framan af leiknum, en
síðari hlutann sóttu Færeyingar á-
kaft, og tókst að skora einu sinni,
sem ekki nægði, eins og fyrr segir.
Mörk Sandgerðinga skoruðu þeir
John Hill og Hörður Jóhannsson,
en mark Færeyinga skoraði Jakub
Möller.
Pólland vann
ísland, 7:1
íslenzka unglingalandsliðið í
knattspyrnu tapaði enn á Norð-
urlandamótinu, sem nú stendur
yfir í Finnlandi. í gærkveldi |
léku íslenzku piltamir við Pól-
verja og töpuðu leiknum 7—1,
en í hálfleik var staðan 4—0.
Pólverjarnir höfðu algera yfir-
burði, eins og markatalan gefur
til kynna. Islenzka liðið er þar
meö úr keppninni, því að það
tapaði báðum sínum leikjum.
1 þeim leik i hinum riðlinum,
sem einnig var leikinn f gær-
kveldi unnu Danir Norðmenn
meö 2 mörkum gegn 1, ert i
hálfleik var staðan 1—0, Dön-
um í vil.
Oft hér „púttar“ hann. Báðar myndimar eru teknar á golfveliinum á
Seitjamamesi í gær. (Ljósm. Vísis, af.)
k'.