Vísir - 17.08.1967, Blaðsíða 2
Hvað gerír „GULLALDARUDIB /
kvöld gegn ungu mönnunum:
?
Liston byrjor
affur í hnefaleik
★ SONNY LISTON, fyrrum
heimsmeistari í hnefaleik, hefur
nú í hyggju að hefja aftur keppni
um áramótin. Fyrsta keppnin
verður í Boston.
„Stóri björninn“, eins og
hann var oft kallaður, hefur aftur
í kvöld leika á Laugardalsvell-
inum úrvalslið Akrahess frá 1955
og úrvalslið Reykjavíkur. Leikur-
inn hefst kl. 20.00.
í vor stóð til að fram færi bæja-
keppni milli Reykjavíkur og Akra-
ness, en vegna þess hve seint vor-
aði og mikil þrengsli sköpuðust á
völlunum í Reykjavík, féll hún
niður. Nú hefur orðið að ráði, aö
fram fari í kvöld bæjakeppni
milli þessara aðila með nýju sniöi.
Knattspyrnuráð Akraness teflir
fram Akranesliðinu, sem gerði
garðinn frægan milli 1950 og 1960,
en Knattspyrnuráð Reykjavíkur
teflir fram úrvalsliöi undir 20 ára
aldri, en þaö er svo til sama liðið
og lék í Norðurlandamótinu í
Noregi 1966.
Lið Reykjavíkur verður þannig:
Magnús Guðmundsson (KR),
Halldór Björnsson (KR),
Magnús Þorvaldsson (Vík.),
Sigurbergur Sigsteinsson (Fram), |
Sigurður Pétursson (Þróttur), |
Samúel Erlingsson (Valur), <S>
Björgvin Björgvinsson (Fram),
Alexander Jóhanness. (Valur),
Smári Jónsson (Valur),
Ásgeir Eliasson (Fram),
Ólafur Þorsteinsson (Vík.).
Varamenn:
Hörður Helgason (Fram), Amar
Guðlaugsson (Fram)), Jón Karls-
son (Viking), Sigmundur Sigurðs-
Keflvíkingarnir í sjónvarpi
í keppnisför í Þýzkalandi
□ Keflavíkurliðið í knattspyrnu fer utan í keppnisferð n k. sunnudag til Þýzkalands. Eins og
menn rekur ef til vill minni til, kom hingað í fyrra lið frá Sportclub 07 frá Bad Neuenahr, sem
er borg í nágrenni Kölnar, og lék það 3 leiki hér.
Keflavík mun í kvöld leika síð-
asta leik sinn fyrir þessa keppnis-
för gegn Fram og fer sá leikur
fram á grasvellinum í Keflavík og
hefst kl. 20.
í Þýzkalandi verða leiknir þrír
leikir, sá fyrsti viö gestgjafana
mánudaginn 28. ágúst, annar gegn
F. C. Raigh í Andernach og sá síð-
asti þann 31. ágúst við Byfang í
Essen.
Sjónvarpaö verður frá fyrsta
leiknum og virðist því áhugi vera
fyrir hendi, enda er hér um sterk
áhugamannalið að ræða. Keflvíking
arnir sem fara utan eru alls 18, þar
af 14 leikmenn, 3 far.arstjórar og
þjálfarinn, Ríkharður Jónsson. Mun
hópurinn fyrst dvelja í Kaup-
mannahöfn og sjá þar landsleikinn
milli íslands og Danmerkur á
Idrædtsparken.
FLUGDAGUR HALDINN
Á LA UGARDA GINN
Flugmálafélag íslands gengst
fyrir umfangsmildlli flugsýn-
ingu á Reykjavíkurflugvelli á
laugardaginn, ef veður leyfir. —
Verður þar meöal annars sýnt
hópflug 30 flugvéla. Fallhlífar-
stökk verður sýnt yfir vellinum,
bæði úr lægri hæöum og eins
úr 10—12 þúsund feta hæð. Mun
Eiríkur Kristinsson stökkva, en
hann hcfur að undanfömu dval-
izt við nám í Bandarikjunum og
öölazt þar kennararéttindi i fall-
hlifarstökki. — Á laugardaglnn
mun hann sýna alls kyns kúnst-
ir í loftinu, áður en hann opnar
fallhlifina.
Þota Flugfélags Islands verð-
ur ef tll vill tll sýnis á þessari
sýnlngu og fleiri farþegavélar.
Ennfremur verða þar sýndar
hervélar og svlfnökkvinn átti að
vera þar til sýnis, en hann verð-
ur i reynsluferðum miili Vest-
mannaeyja og lands, svo að ekki
verður af því.
Auk þessa veröur sýnt svif-
flug yfir flugvellinum og Elíes-
er Jónsson mun sýna listflug á
tékknesku listflugvélinni, sem
hingað var keypt i fyrra. Model-
flug er einn þáttur sýningarinn-
ar, og verða fjarstýrö model lát-
in fijúga fyrir áhorfendur.
Að sýningu lokinni vcrður
fólki boðið í hringflug, ef það
óskaf.
Flugmálafélagið gengst fyrir
siíkum sýningum öðru hvoru,
helzt annað hvert ár, og kallar
fiugdag. Næsti flugdagur verður
1969, en þá stendur mikið til,
vegna 50 ára afmælis flugsins
á íslandi.
<§> Laugardalsvöllur
í kvöld kl. 20 leika í
Reykjavík — Akranes
á Laugardalsvelli.
Gömlu meistararair gegn unglingaúrvali.
Aðgangur: Stúka kr. 60,—, stæði kr. 40,—,
börn kr. 20.
MÓTANEFND.
fengið hnefaleikaleyfi sitt, segir í
son (KR), Ólafur Viðar Thorsteins- fréttum frá Massachusetts í gær-
son (Þróttur). kvöldi.
Verður það
aftur þannig?
★ Það er heldur dauflegt
um að litast í knattspyrnunni
þesisa dagana, 1. deildin í
„sumarfríi“ að sögn forráða-
manna, 2. dcildinni lokið, utan
það að úrslitaleikurinn i öörum
riðlinum og keppninni í hcild
eru eftir, og bikariiöin flcst til-
búin til að hefja 3. umferð.
Landsleikurinn við Dani
er auðvitað efst á baugi og
búizt við að landsliðsncfnd
kunngeri val sitt innan skamms,
því leikurinn er á miðvikudag-
inn í Kaupmannahöfn.
★ Enn sem fyrr „spekúlera"
menn og skeggræða 1. deildina,
sem eins og oft áður er mjög
spcnnandi. í fyrra voru enda-
lokin eins og siá má á mynd-
inni, — þeir Óli B. Jónsson,
þjálfari Vals og Ámi Njálsson
með islandsbikarinn. Verður það
enn þannig í ár? Keppnin í 1.
deild hefst aftur 28. ágúst
verða KR-ingar að vinna Fram
eða gera jafntefli til að vera ör-
uggir um áframhaldandi sæti i
deildinni (nema hún verði
stækkuð á KSÍ-þinginu í haust).
Stigatap mundi líka þýða að
Fram væri úr sögunni í keppn-
inni um islandsbikarinn, a.m.k.
yrðu líkurnar sáralitlar 'ef bæði
stigin færu.
★ Akureyringar standa vel
að vígi með heimaleik við KR
3. september, en síöasti leikur-
inn verður milli Vals og Kefla-
\dkur, — má búast við að sá
teikur veröi skemmtilcgur, þó
Kcflvíkingar eigi enga mögu-
leika. Þá er rétt aö mlnnast
leiks \kraness við Fram 9.
sept. • Laugardal. Sá leikur
gæti, ef vel tækist til, fært
Akranesi 6. stigið i keppninni
og aukaleik við KR um falllð!
Allt getur gerzt í knattspyrnu