Vísir - 17.08.1967, Side 9

Vísir - 17.08.1967, Side 9
V í S IR . Fimmtudagur 17. ágúst 1967. Það gerist allt miklu hraðar íslendingum hefur mjög ágerzt útþráin í seinni tíð. Utanferðir þeirra hafa þrefaldazt á tíu árum, eða svo, og lætur nú nærri að sjötti hver íslendingur hleypi heimdraganum árlega og sigli utan. Jafnframt keppum við að því að beina hingað erlendum ferðamannastraumi. — Þessum gagn- kvæma straumi utan og til ííslands fleygir áfram með síauknum hraða. Þungi hans er að sjálfsögðu mestur yfir sumarið. Og einmitt núna um hábjarg- ræðistíma íslenzkra ferðamála, erum við allt í einu orðnir virkir þátttakendur í ævintýri þotualdar- innar og þeysum á hljóðfráum farkostum yfir lönd og álfur. — Boeing-þota Flugféíagsins þykir ein- hver fullkomnasta flugvél, sem nú er gerð í heimin- um. Hún styttir flugtímann til meginlandsins um nærri helming frá því sem hann er á gömlu DC-6 B- vélunum, og táknar raunar byltingu í flugmálum okkar. — Hún er nú búin að fara 70 ferðir til út- landa frá því húij-hóf millilandaflugið 1. júlí, eða nærri tvær ferðir á dag. "l/isir heimsótti nýlega einn T flugstjórann á hinni nýju Þotu Flugfélagsins, Skúla Magn- ússon, og spjallaöi við hann um flugmennskuna og þennan nýja farkost. Skúli er einn af fimm þotu- flugmönnum Flugfélagsins, en þeir voru allir þjálfaðir sérstak- lega til þess að stýra Boeing 727 hjá verksmiðjunum í Se- attle í Bandaríkjunum. Mikið stökk frá Katalínu til Boeing 727. — Það er alltaf mikil til- breyting fyrir flugmenn að læra á nýjar vélar, segir Skúli, og þessi vél er að mínu áliti sú bezta, sem völ er á um þessar mundir. Það þykir öllum flug- stjórum, sem fljúga Boeing 727 vænt um hana. Tilkoma þess- arar vélar er tvímælalaust mesta stökkbreyting, sem orð- ið hefur á flugflota Flugfélags- ins. Skúli hefur raunar gengið í gegnum tuttugu ár, af þrjátíu ára þróun Flugfélagsins, allt frá Katalínuflugbátnum til þotunn- ar. Hann byrjaði sem aðstoðar- flugmaður á Katalínunni og DC 3 eftir flugnám í Englandi 1948. — Það fóru flestir utan til þess að læra flug á þeim árum, enda ekki kominn reglulegur flugskóli héma þá. Ég fór til Englands í ágúst ’46 og kom svo heim eftir nítján mánuði og byrjaði að starfa hjá Flugfélag- inu. Fyrstiá Katalínunni og DC 3 sem aöstoðarmaður ög raunar á fleiri vélum á þessum árum. Svo kom Gullfaxi ’52. — Sein- ustu árin var ég mest á Vicount inum og DC 6b. — Þaö var aö sjálfsögðu mik- iö stökk fyrir okkur flugmenn- ina að taka viö Vicountinum. Þetta eru mjög skemmtilegar vélar að fljúga. Mótorinn er óskaplega sterkur og sennilega með þeim beztu, sem byggðir hafa veriö. — En þykir hann ekki vera orðinn úreltur núna? — Hann er aðallega úreltur fyrir hvað hann er lítill. Tókum þetta eins og skemmtilegan leik. — Þaö var einstaklega gott að vinna meö starfsfólki Boe- ingverksmiðjanna í Seattle, virtist ríkja svo góður starfs- andi meðal þess. Fólkiö virtist svo einstaklega ánægt og lífs- glatt. Kennaramir sem við feng- um tóku okkur gjarna meö glensi. Þetta auðveldaði okkur mjög námið, maður tók þetta eins og skemmtilegan leik. Nám ið var tvískipt, annars vegar bóklegt og verklegt nám á jörðu niðri og hins vegar flugæfingar í lofti. — Og hver er svo helzti mun urinn á því að fljúga þotu og skrúfuvélum? — Það er fyrst og fremst hraöinn. Það gerist allt miklu hraðar. Við erum miklu bundn- ari við stjómina f þotunni, kom um naumast út úr stjórnklefan- um á leiðinni yfir hafið. Við fljúgum miklu hærra á þotunni, oftast í 28 til 35 þúsund feta hæð, í stað 12—14 þúsund feta hæð á skrúfuvélunum. Og hún er svona 20 mínútur að ná þess ari hæð við hagstæð skilyrði. Nú, öll tæki em miklu full- komnari, fullkomnari siglinga- tæki, radarinn nær til svæðis, sem er 180 mílur í radíus í stað 150 mílna á þeim gömlu. Þessir eldri sakna þess ekki... — Nú er ekkert stoppað er- lendis á milli ferða, eins og þegar mest var að gera, eilífur þeytingur. Nú fljúgum við þrjár ferðir á viku fram og til baka og eigum svo frí, getum stund- að okkar sport og lifaö þægi- lega. — Margir stunda golf. Við losum svona 100 holur þess ir meðalskussar, en þeir eru sumir æði slungnir. Annars stunda ég mikið siglingar í frí- stundunum Ég á smá seglbát, sem ég er að leika mér á hérna Skúli Magnússon flugstjóri Spjallað vib Skúla Magnússon flugstjóra hjá Flugfélaginu um þotuflug og Boeing 727 sem búin er að fara 70 ferðir fram og til baka yfir Atlantshafið siðan I. júli gert er á gömlu vélunum. Sakn- ar áhöfnin þess ekki? Fer ekki mesti ævintýrablærinn af flug- inu, þegar ekki er lengur hægt að lyfta sér upp í erlendum borgum? — Ég held að flugmennirnir sakni þess ekki neitt. Sjarminn er fyrir löngu farinn af þessu hjá þessum elztu að minnsta kosti, þó að mönnum þyki út af fyrir sig alltaf jafn gaman að fljúga. — Maður var sára- lítið heima hjá sér áður fyrr, úti á Sundum eða á Skerjafirö- inum, þaö er góð tilbreyting í því... — Nei, ég vildi ekki hverfa til þess sem var. Hins vegar skil ég flugfreyjurnar vel, að þær langi til þess að stoppa úti, lyfta sér svolítið upp, verzla og þess háttar. Þær eru fæstar í þessu starfi nema fáein ár og kaupið er ekki það hátt hjá þeim, að þetta verði eftirsóknar- vert, ef ekki er staldrað neitt við úti. BOEING-þotan á Reykjavíkurflugvelli. (Ljósm. Jóh. Borgfjörð) Þeir fljúga til sextugs. __ Fer þessi hraði ekki illa með menn? Veröa þotuflug- menn ekki aö hætta að fljúga á bezta aldri yfirleitt? — Þeir fljúga fram yfir sex- tugt sumir. Menn eru ekki tekn ir í þetta nema þeir séu heilsu- hraustir. Flugmenn verða aö hafa góða sjón og sterkt hjarta. Þetta er mikil áreynsla fyrir hjartað. Heyrnin vill gefa sig meö árunum. Flugstjórarnir tapa venjulega heyrn að ein- hverju leyti á öðru eyranu með árunum, vegna þess að þeir hafa heymartólin alveg yfir ööru eyr anu, en svona hálfvegis yfir hinu, til þess aö heyra í að- stoöarflugstjóranum og hávað- inn deyfir smátt og smátt heyrn ina á þvf eyra. Annars er enginn hávaöi i þessari vél, hún er það vel ein- angruð. Við heyrum bara vina- legt suð. Farþegum líkar þetta mjög vel. — Hver er skýringin á þvi hvaö hún þarf stutta braut til þess að lenda á? — Það er sérstakur útbúnað- ur á vængjunum. Það yrði sennilega of flókið mál að fara að útskýra það, en það kost- aöi Boeing milljónir dollara að finna beztu lausnina til þess að stytta lendinguna. Það var efnt til samkeppni til þess að leysa þetta og verkfræðingarnir unnu að þessu í sjö ár. Fyrir bragðið er hægt að stoppa hana á 500 metrum viö góð skilyröi. Við æfðum okkur úti á því að lenda henni á rúmlega 600 metrum, svo að okkur ætti ekki að verða skotaskuld úr því að lenda henni á Reykjavíkurflugvelli. Þeir eru að setja þennan út- búnað á DC 9 og fleiri gerðir flugvéla, sem þurftu langar flugbrautir — of langar. Óánægðir með útlegðina í Keflavík. — Eru flugmennirnir almennt óánægðir meö að þurfa að lenda þotunni í Keflavík? — Við erum mjög óánægöir með þetta, satt að segja. Ég sé ekkert því til fyrirstöðu að fljúga vélinni á völlinn hérna. — En hávaðinn? — Hún var prófuð í Berlín með sérstökum tækjum, sem mæla hávaðann og hann er minni í þessari vél en til dæmis í DC 6 b og í Vicount vélunum. — Helduröu að fólk sé hrætt við að fljúga með þotunni — svona fyrsta kastiö? — Nei, það held ég ekki. Ég held að fólki þyki yfirleitt þægi legt að fljúga með vélinni. — Þetta er mikill munur á öllum aðbúnaði farþeganna frá gömlu vélunum. Sætanýtingin hefur verið ágæt hjá okkur, eftir því sem ég hef komizt næst núna upp á síðkastið. — Hins vegar eru það alltaf einhverjir, sem setja það fyrir sig að þurfa að sitja í rútu suöur á Keflavíkur- flugvöll í hálftíma, þegar þeir geta komizt með vél sem fer beint af Reykjavíkurflugvelli. Sem sagt óánægðir með útlegð- ina á Keflavíkurflugvelli. — Annars get ég ekki hugsað mér betra líf, segir Skúli, skemmtilegt, nægar frístundir og góð laun. Ég held að maður geti ekki óskaö sér betra.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.