Vísir - 18.08.1967, Page 2
••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••«
Handknattleiksmót Islands:
FH OG FRAM LHKA TIL
ÚRSLITA í KVÖLD
• Úrslitin í handknattleiks-
• móti íslands, utanhúss, fara
2 fram í kvöld á mölinni við
2 LÆKJARSKÖLANN í Hafnar
• firði. Að venju mætast þar
FH og Fram í karlaflokki, og
Valur-Fram í kvennaflokki.
Kvennaleikurinn hefst kl.
20, en kl. 20.30 hefst karla-
leikurinn, en á eftir verða
verðlaun afhent í Sjálfstæðis-
húsinu í Hafnarfirði, á dans- 2
leik, sem eiginkonur hand- 2
knattleiksmanna FH halda. *
Axel Einarsson, varaformað- •
ur HSÍ mun afhenda verð- *
launin. 2
Sigurður Sigurðsson, umsjón-
armaður íþróttaþátta sjónvarps-
ins, að vinna við filmur, ásamt
Karli Jeppesen, sem stjómar
útsendingum.
••••••••••••••••••••••••••
Unglingameisfara-
mót í sundi á
ísafirði
Á síðasta þingi Sundsambands
íslands var samþykkt aö Unglinga-
meistaramót islands 1967 í sundi
skuli fara fram á ísafirði og hefir
iþróttabandalagi ísfirðinga verið
falin framkvæmd mótsins. Stjóm
Í.B.Í. hefir nú ákveöið að mótið
skuli haldið dagana 9. og 10. sept.
n.k. Þátttöku ber að tilkynna til
íþróttabandalags ísfirðinga, póst-
hólf 90, ísafiröi, og skulu þátttöku-
tilkynningar hafa borizt eigi síðar
en 31. ágúst n. k.
Keppnisgreinar:
Fyrri dagur:
100 m skriðsund drengja, 100 m
bringusund stúlkna, 50 m baksund
sveina, 50 m flugsund telpna, 100
m bringusund drengja, 100 m
baksund stúlkna, 50 m flugsund
sveina, 50 m skriðsund telpna,
4x50 m fjórsund drengja, 4x50
m bringusund telpna.
Seinni dagur:
100 m skriðsund stúlkna, 100 m
baksund drengja, 50 m skriðsund
sveina, 50 m bringusund telpna,
50 m flugsund stúlkna, 50 m
bringusund sveina, 50 m baksund
telpna, 50 m flugsund drengja,
4x50 m fjórsúnd stúlkna, 4x50
m skriösund sveina.
„GULLOLDir
EKKILIÐIN HJÁ?
Að visu sigrubu ungu mennirnir 5:0 en
4:3 hefbu verið réttlátari úrslit
Unglingalið Reykjavíkur vann of
stóran sigur í gærkvöldi yfir
„gullaldarliðinu" frá Akraftesi, sem
þó sýndi að þessi gullöld er langt
frá því að vera liðin. Er ekki ólík-
legt að ef þessir „gömlu“ menn
æfðu reglulega 3svar í viku, mundu
1. deildarliöin eignast harðsnúinn
andstæðing.
Sigur Reykjavíkur í gær var ó-
eðlilega stór, — allt heppnaðist
hjá ungu piltunum, ekkert hjá
Akumesingum, sem hefðu átt skilið
að skora 3 mörk að minnsta kosti.
Það var greinilegt að Akraness- '
liðið á vinsældum að fagna. í gær-
kvöldi var lítið lakari aðsókn en að
leiknum viö Breta, allir vildu sjá
aftur þetta góða Akranesslið og
fólk varð ekki fyrir vonbrigðum,
^ því liðið lék oft mjög skemmtilega
og af tilþrifum.
1 hálfleik var staöan 2:0, bæði
mörkin skoruð á sömu mínútunni,
en í seinni hálfleik bættust 3 viö
í viðbót.
Þessi mynd er tekin af Jiirgen May, en hann var nýlega á for-
síðum flestra heimsblaðanna, þegar hann flýði frá Austur-Þýzka-
Iandi til Vestur-Þýzkalands. May féll í ónáð hjá valdhöfum eystra
af pólitiskum ástæðum og notfærði hann sér fyrsta tækifærí til
að flýja. — Myndin sýnir hann slíta snúruna á undan keppinaut
sínum í 800 metra hlaupi.
• r
i s/onvarpinu
Laugardagscftirmiðdagurinn iþróttadagur í sjónvarpinu hér
verður innan skamms mikill eins og víöast hvar annars staö-
ar. Þetta fengum við uppgefiö,
þegar viö hringdum í gærdag í
Sigurö Sigurðsson, íþróttafrétta
mann sjónvarpsins.
Sigurður sagði að 2. septem-
ber hæfist útsending á 2ja tíma
íþróttadagskrá. í þessum
útsendingum verður lögð tals-
verö áherzla á enska knatt-
spyrnu, sem löngum hefur verið
vinsæl hér á landi, og í íþrótta-
þættinum verður oftast 50 mín.
þáttur með úrvalsköflum eins
leiks ensku knattspyrnimnar
heigina áður, valdir af Billy
Wright. Nefnast þættir þessir
Star Soccer og eru sýndir hjá
BBC og eru eins konar fram-
hald á hinum vinsælu þáttum
Game of the week, sem áður
voru sýndir.
Auk þessa efnis verður sýnt
ýmisiegt, sem ofarlega er á
baugi í það og það skiptið. Eins
og kunnugt er á að skipta yfir
í 6 daga sjónvarp 1. september
n. k. Sigurður kvað ekki ólík-
legt að þegar mikið væri að
gerast í knattspymu mundi
íþróttaþátturinn geta staðið
lengur en 2 tíma, því í áætlun
er að hafa íþróttatímann frá 17
—19, en hlé frá 19—20 að
dagskrá kvöldsins hefst. Mun
íþróttaþátturinn þvf standa
lengur. ef með þarf.
»« 9 » o r c o