Vísir - 18.08.1967, Síða 16
H
Wm
Nýtt frímerki í tilefni 50
ára afmælis Verzlunarráðs
Póst- og símamálastjórnin mun
gefa út nýtt frímerki í tilefni af
50 ára afmæli Verzlunarráðs fs-
lands, en útgáfudagur þess verður
1 september 1967.' Frímerki þetta
er blátt að lit og að verðgildi
kr. 5.00, teiknað af Gísla B. Björns
cyni. Pantanir til afgreiðslu á út-
gáfudegi þurfa að berast ásamt
greiðslu til póstsins fyrir 1. sept-
ember n. k.
SfaruBdur ríkisarfi
kveður í dag
I-Iaraldur krónprins snæddi há-
degisverð í Nausti í dag ásamt for-
seta fslands, hr. Ásgeiri Ásgeirs-
syni, forsætlsráðherra dr. Bjarna
Benediktssyni, ambassadorum Is-
lands og Noregs og fleirum. Klukk-
an 14.15 verður ekið frá Nausti
til Keflavikurflugvallar, eftir að
forsetinn hefur kvatt ríkisarfann.
Verður síðan flogið frá Keflavíkur-
flugvelli með Gullfaxa til Osló kl.
15.20.
María á Miklatúni í gær.
(Ljósm. Vísis JBP)
„Stutta tízkan er ekki úr sögunni"
segir Maria Guðmundsdóttir, sem stödd er hér heima i sumarfrii
María Guðmundsdóttir, sem
undanfarin ár hefur verið í hópi
frægustu fyrirsætna Parísar-
borgar, er stödd hér heima um
þessar mundir í sumarfrii. Und-
anfarin ár hefur María unnið
hvað mest í Þýzkalandi og
Frakklandi en nú hefur hún
flutt til New York, þar sem hún
vinnur sem fyrirsæta hjá
stærstu umboðsskrifstofu fyrir
fyrirsætur í Ameriku, Ford
Model Agency.
Við áttum stutt spjall við
Maríu og sagði hún okkpr að
þetta væri lengsta sumarfrí,
sem hún hefði tekið sér siðan
hún byrjaði í þessu starfi. Verð-
ur hún hér í þrjár vikur að
þessu sinni en hingað til hefur
hún ekki haft nema tveggja
vikna sumarfrí.
„Hver er aðalástæðan til að
þú fluttir til Ameriku og hvern-
ig líkar þér að vinna þar?“
„Ég var satt að segja oröin
dálítið þreytt á að ferðast svona
mikið, eins og ég gerði meöan
ég bjó I París. Ég fæ líka betra
kaup í New York, en ekki get
ég sagt aö ég kunni eins vel við
mig þar og í Evrópu.“
„Hvernig lízt þér á vetrar-
tízkuna?"
„Ég var ekki viöstödd tizku-
sýningarnar í París í sumar, en
mér sýnist stutta tízkan ætla
að vera vinsæl áfram. Ég er
mjög hrifin af síðum kápum ut-
an yfir stuttum kjólum, og gæti
ég bezt trúað aö það ætti eftir
að slá í gegn. Hins vegar finnst
mér ökklasíddin, sem Italir virð-
ast hvaö hrifnastir af núna alveg
hræfSleg."
Framhald á bis. 1-0.
6 tölvur í notkun hér á landi
- Sú 7. væntanleg um næstu áramót. Stofnun
útibús IBM hér á landi eykur skattatekjur
islenzka rikisins
Grímseyingar vilja
fá nýjan djákna
100 ára afmæli Miðgaðarkirkju i
Grimsey á sunnudaginn
Miðgarðakirkja í Grimsey verður
100 ára gömul á sunnudaginn kem-
ur, og mun sr. Benjamin Kristjáns-
son prófastur halda ræðu f kirkj-
unni og sóknarpresturinn, sr. Pétur
Sigurgeirsson á Akureyri messa. —
Miðgarðakirkja er með eldri kirkj-
um á landinu, en byggt var við
hana fyrlr 35 árum.
Við höfðum tal af sóknarformann
inum, Magnúsi Símonarsyni, og
sagði hann okkur a& þeir Grímsey-
ingar hefðu því miður engan djákna
- ina, Einar Einarsson, sem var
djákni í Grímsey um árabil er nú
fluttur til Akureyrar. Sr. Pétur Sig-
urgeirsson hefur messað í Grímsey
fjórum sinnum á ári, en á meðan
Einar var þar, messaði hann oft
á milli þess sem presturinn kom til
eyjarinnar. Sagði Magnús að þeim
Grímseyingum þætti mjög miður
að hafa engan djákna, og að þeir
vonuðust til að fá nýjan djákna,
áður en langt um liði. í Miðgarða-
kirkju er altaristafla, sem Arn-
grímur Gíslason málaði, en hann
málaði altaristöflur í margar kirkj-
ur á landinu. Er altaristaflan máluð
nokkru fyrir aldamótin.
Eins og sagt var frá í Vísi í
gær hefur amerfska stórfyrirtæk
ið IBM sett á stofn útibú sitt
hér á landi, en áður hafði Ottó
A. Michelsen gegnt umboðsstörf
um fyrirtækisins hér á landi.
í tilefni af hinu breytta formi
fyrirtækisins boðað! Otto A.
Michelsen blaðamenn á sinn
fund í gær og skýrði þeim frá
ýmislegu varðandi fyrirtækið.
M. a. kom fram, að ör vöxtur
er í notkun fullkominna skrif-
stofuvéla og rafreikna á ýmsum
sviðum hér á landi. Fimmta tölv
an (rafreiknlrinn) af svokölluð-
um þriðja ættlið er væntanleg
um næstu áramót, og eru þá
samtals 7 tölvur hér á landi í
notku'n, en sú fyrsta kom hing-
að til lands árið 1963.
Ottó sagði, að hiö breytta
form fvrirtækisins myndi einnig
leiða til aukinna skatttekna ís-
lenzka ríkisins, því aö hér eftir
mun leiga fyrir afnot tölva,
sem IBM leigir íslenzkum aö-
ilum verða greidd útibúinu, og
það því telja þessar leigutekjur
fram til skatts. Hingaö til hefur
leiga þessi verið greidd til IBM
í Bandaríkjunum. Leiga þeirra
tölva, sem eru i notkun hér á
landi er kr. 90.600—180;000 pr.
mán.
Ottó sagði, aö svo mflsiffl
kostnaður væri að hei5a skipw-
lagða notkun fulfkomnustu skrtf
stofuvéla og rafreikna, að orð-
ið hefði að skipta um rekstrar-
form fyrirtækisins, til að það
væri unnt. Væri sú aðalorsökin
að stofnun útibúsins hér á landi,
en eins og sagt var frá í Vlsi í
gær, hefur Ottó um langt skeið
verið einasti umboðsmaður IBM
í heiminum, alls staðar annars
staðar hefur IBM sett á stofn
útibú, þar sem fyrirtækið rek-
ur þjónustustarfsemi sína. IBM
er viðurkennt um allan heim
sem eitt fremsta fyrirtæki sinn
ar tegundar í hehninum í dag
og rekur starfsemi sína í 104
þjóðlöndum.
^V\AAAAAAAAAAAAAA/W\AA/WWVWV>"
Loftleiðir kaupa fimmtu
RR 400 vél sína,
— fáist nauðsynleg leyfi islenzkra yfirvalda.
— Kaupverð um 103 milljónir islenzkra króna.
— Vélin verður ekki lengd
Loftleiðir lögðu í gær inn um-
sókn til viðskiptamálaráðuney tis
ins um að mega nota eigin gjald-
eyristekjur til kaupa á flugvél
af gerðinni RR 400, en félagið
á fyrir fjórar slíkar vélar. Þess-
ar upplýsingar fékk Vísir í morg
un hjá Kristjáni Guðlaugssyni,
stjórnarformanni Loftleiða. —
Sagði Kristján, að flugvél þessi
tæki 160 farþega, kaupverð um
2,3 milljónir dollara eða um 103
milljónir íslenzkra króna. Flug-
vél þessi, sem er ekki alveg ný,
er keypt til að létta á beim vél-
um, sem fyrir eru, að þvi er
Kristján sagði.
Loftleiöir munu kaupa vélina
hjá bandaríska flugfélaginu „Fly
ing Tiger“, fáist nauðsynleg
leyfi íslenzkra yfirvalda. Eins
og fyrr segir tekur þessi vél um
160 farþega, en hmar fjórar fhig
vélar Loftleiða af þessari teg-
und hafa allar verið lengdar og
taka því 189 farþega. Kristján
Guðlaugsson sagði, að þessi vél
yrði ekki lengd. Einn varamót-
or fylgir vélinni, verði af kaup-
unum, en slíkir mótorar eru
mjög dýrir, kosta um 250—300
þúsund dollara eða um 11—13
milljónir ísl. króna. Við þessi
kaup myndu Loftleiöir spara
mikið í varahlutakaupum, sagði
hann.
Kristján sagði, að Loftleiðir
hefðu haft DC-6 B vélar sínar á
sölulista á almennum markaði,
en engin tilboð, sem lítandi væri
á, hefðu borizt £ þær, enda hefðu
þær fallið nokkuð í verði.