Vísir - 02.09.1967, Blaðsíða 3

Vísir - 02.09.1967, Blaðsíða 3
Vf'ST'R. Laugardagur 2, seotcmbcr I967. 3 VAKIÐ „Gætið yðar vakið og biðjið, því aö þér vitiö ekki hvenær tím- inn er kominn.“ Mark. 13, 33. Guðspjallið hrópar til vor alvar- lega áminningu: Vakið. Einhver kann að yppta öxlum og segja: Ég hef heyrt þetta áður. Er ekki ástæöulaust að vera ámálga þetta sí og æ. Er ekki ástand kirkju og kristni á Islandi í sæmilegu lagi. Vér erum sjálfstæð þjóð og allt virðist ganga vel. Er nokkur á- stæða til að vera sérstaklega á verði? En ef hugarium er örlítið lengur beint að þessu orði, vakið, þá sjá- um vér, að það er ekki með öllu óþarft. Oft er erfiðara að gæta þess, sem fengið er, en afla þess. Vér erum frjáls þjóð í dag, en oft skiptast veður í lofti á skammri stund. Því er oss nauö syn að vaka trúfast yfir þjóð- frelsi voru. Þar má enginn láta augnablikshagnaö eöa smámuna- lega flokkadrætti trufla sig á verðinum. Nú er velmegun á Is- landi, en vér vitum, að þaö er skammgóð saðning að liggja á meltunni. Ef vér ekki af vakandi áhuga styðjum að þeirri uppbygg ingu, sem nú er í voru landi, þá er hætt við að eitthvað þrengi aö. Hvernig er svo ástatt með kirkju og kristni? Flest kirkju- hús eru fátæk af veraldarauði, en þó búin nauðsynlegasta búnaði til guðsþjónustuhalds. En hin eig- inlega kirkja, söfnuðurnir eru þeir auðugir hið innra? Eru þeir íklæddir krafti trúarinnar og ein- ingu andans? Þar um getum við ekki dæmt. Vér getum þar hvorki mælt né vegið. Að vísu höfum við rökstutt hugboð um, að trúar- styrkur einstaklinga sé misjafn. Kristshugarfarið ekki alls staðar jafn mikið. Sums staðar jafnvel niðurlæst sem sjaldhafnarflík. Þó bjarmi af trúareldi einstaklinga sé sums staðar bjartur og lýsi um- hverfið, þá virðist víða líkt og í stórborg að næturþeli á s’tríðs- tímum. Því sjáum vér, við örlitla athug un, að áminning Krists um að •Jt " '.vri. : SAUÐLAUKSDALUR. — Þar er nú prestslaust og brauð- inu þjónað frá Patreksfirði. Hugvekja Presturinn á Patreksfirði, sr. Tómas Guömundsson, skrifar hugvekju kirkjusíðunnar að þessu sinni. Patreksfjöröur er kirkjusögu- legt nafn — kenndur við hinn helga Patrek, biskup i Suður- eyjum. Með honum hafði verið f fóstri Örlygur Hrappsson Bjamaríonar bunu. Hann fýstist að fara til íslands og baö, að biskup sæi til meö honum. Lét biskup hann hafa meö sér kirkjuvið og járnklukku og plcnáríum ( ) og mold vígða, er hann skyldi leggja undir hornstafina. Biskup bað hann þar land nema, er hann srei fjöll tvö af hafi, og byggja undir syðra fjallinu, og skyldi dalur í hvoru tveggja fjallinu. Þeir Örlygur létu í haf og fengu útivist harða og vissu eigi hvar þeir fóru. Þá hét Örlygur á biskup til landtöku sér, að hann skyMi af hans nafnl gefa örnefni, •• sem hann tæki land. Þ. .jku þar sem heitir Örlygshöfn, en fjöröinn inn frá kölluðu þeir Patreksfjörö. & Aöeins tveir prestar eru nú í Baröastrandarsýslu. Það eru sex prestaköil með alls 14 sókn- um. Sumar eru þær aö vísu mjög mannfáar (Selárdalur), ein kirkjulaus (Rauðisandur), en hér er þó ærið verksviö og örð- ugt yfirferðar, eins og allir vita, sem þekkja til landslags og vegalengda vestur þar. Sr. Tómas Guðmundsson er Borgfiröingur að ætt, f. að Upp- sölum í Norðurárdal árið 1926, stúdem á Akureyri 1950, kand. theol. 1955. Síöan í ársbyrjun 1956 hefur hann verið prestur á Patreksfirði. — Kona hans er Anna Ólöf Sveinbjarnardóttir úr Reykjavík. tarsp? , O G Sr. Tómas Guömundsson. vaka, er ekki aðeins þörf, heldur knýjandi hróp til allra á öllum tímum. Öll hans orð eru brenn andi hróp til mannanna, töluð af einlægum kærleika og um- hyggjusemi fyrir velferö vorri. Kristur mælti ekki ónytjuorö út i bláinn. Os: er óhætt að taka orð hans alvarlega, og meir en það: Oss er það nauðsynlegt aö taka þau alvarlega. Hann boðar oss þann æðsta fögnuð, sem mögulegt er að veita mannlegri veru. Eilíft líf hjá Guði föður. En það er ekki skilyrðislaust. Vér verðum að gæta að því. Vér eigum það ekki eins og skartgrip í bankahólfi, sem hægt er að grípa til, þegar oss sýnist. Nei, vér verðum að þroska sál vora og kynna oss þá leið, sem vér verðum að ganga svo vér öðlumst hiö eilífa líf, tem oss er heitiö. Kristur kenndi oss og vísaði þann trúar- og kær leiksveg, sem liggur til lífsins. Oss er nauðsyn að spyrja til veg ar og Nýja testamentið er bezti og eini vegvisirinn. En það er ekki nóg að lesa það einu sinni á ævinni og kannski varla það og hugsa svo ekki um það meir. Það nægir engum að eta sig saddan einu sinni og sleppa svo líkam- legri næringu það sem eftir er ævinnar. Trúarlíf vort þarf sína næringu. Vér verðum að kynna oss og til- einka það sem Jesús kennir í orði sínu í bæninni verðum vér að hafa samband við skapara vorn. Og vér verðum að fá stuöning meðbræðra vorra í kristilegu sam félagi og líferni og veita öðrum stuðning á sama hátt. Vér verðum að lesa, hlusta, hugsa, vaka og biðja. Vér erum andlegar verur og því verðum vér að sinna meiru en líkamlegum þörfum. „Hvar sem tveir eða þrír eru samankomnir í mínu nafni, þar er ég mitt á meðal þeirra“, segir Jesús. Hann leggur megináherzlu á samfélagiö. Mönnum varð frá fyrstu tíð Ijóst, hvílíkur styrk ur er af samfélaginu. Því hófst snemma sá veigamikli þáttur, aö byggja kirkjuhús, svo söfnuðurnir gætu komið saman og átt sameiginlegar guðræknis- stundir. Aukið þekkingu sína og treyst böndin bæði innbyröis og við Guð. Komið þangað, til að heyra hvað þú Guð faðir skapari minn, þú Drottinn Jesú frelsari minn, þú heilagi andi huggari minn, vilt við mig tala í þínu orði“ eins og stendur í hinni gömlu kirkjubæn. Hver söfnuöur skilur og metur gildi þess, að eiga fagra kirkju. Að vísu sjást þess oft -raunaleg merki, að söfnuðurnir eru ekki nógu vel vakandi, hvorki fyrir útliti og ástandi kirkna sinna né notagildi. Stundum heyrast raddir sem þessar: Ég hef ekkert í kirkjuna að sækja, þess vegna kem ég ekki i kirkju. En mér er spurn: Hvers vegna koma ekki þeir, sem slíkt segja, þeir hugsuðir og andans speking ar í kirkjurnar til að prédika og kenna. Enginn á að setja ljós sitt undir mæliker. En þaö er önnur saga. Kirkjuhúsin hafa gegnt og gegna sínu hlutverki. í gleði og sorg leitar fólk f helgi kirkjunn- ar. Þar hafa fleiri fengið hug- svölun og styrk, en vér vitum. Guð einn les þær bænir er kirkju gestur biður í hljóði. Og þrátt fyr- ir öll veraldarumsvif nútímans, þá er kirkjulegt starf í vexti i voru landi. Kirkjan á marga vökumenn, bæði leika og lærða. En vér meg um ekki staldra við og segja: Þetta er harla gott. Hver ein- staklingur verður að taka kall Krists til sín, vaka, biðja og starfa. Starfa fyrir kirkju og kristni, land sitt og þjóð. Frækorn Þó að speki þín mig dylji þess, sem ekki komið er, þó ég ekki ávallt skilji allar lífsins gátur hér, eitt er bezt: Þinn vísdómsvilji veitir það sem hentast er. '’Ólína Andrésd.) Laun syndarinnar er dauði, en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Jesú Kristi Drottni vorum. (Rómverjabréfið). Verði sólskin í sál og hiö síglaða fjör gjöri samband við göfginnar þrótt. Hreint og milt skal þitt mál líkt og marksækin ör ávallt miða til gagns fyrir drótt. Fr. Fr. Ef maðurinn óskar þess, á hann framundan gullöld friðar og fram- fara. Hann ræður öllu að kalla. Hann á aðeins eftir að vinna sig- ur á sínum síðasta og skæðasta fjandmanni — sjálfum sér. Winston Churchill. En markmið kenningarinnar er kærleikur af hreinu hjarta, góðri samvizku og hræsnislausri trú. 1. Tím. 1. 5. Skömmu eftir aö Jón alþm. á Sleöbrjót fluttist vestur um haf, skrifaði hann heim: Þegar ég var heima á íslandi var ég nokkuð æstur fríkirkjumaður. Vildi frí- kirkju á íslandi. Sú skoðun mín hefur breytzt við að standa hér augliti til auglitis við fríkirkjuna. Mér eru trúmál — eins og þú veizt — meira en pólitík, fé eða frami, mér er trúin meira en skáldskapur jafnvel, og því þoli ég ekki, að orð mín í þeim efnum séu aflöguð eða lítilsvirt. (Bréf Matth. Joch til Þ. Bj.) Minning — kynning 1. Þess. 1, 2—3. Mikið eru ólík kynni okkar af samferðamönnunum. Sumum vilj- um við helzt gleyma strax, þurrka þá út úr huga okkar, svo að þeim bregði þar aldrei fyrir. — Aðrir hverfa þaðan sjálfkrafa og fyrir- hafnarlaust, gufa upp og eru ekki framar til frekar en þeir hefðu aldrei fæðzt. Svo er þaö þriðji hópurinn. Þeir eru foringjar í fylkingu hinna ljósu daga, verðir hinna glöðu stunda, þeir varpa birtu á veg- inn, verma hjörtun, göfga sálina, styrkja trúna, efla bjartsýnina, gefa vonunum vængi. Fyrir þessa menn eigum viö að þakka, þakka GUÐI fyrir að hafa kynnzt þeim eins og Páll oostuli þakkaði Guði fyrir kynni sín af Þessaloníkumönnum. Og takið eftir fyrir hvað hann þakk- ar þeim: 1) Fyrir verk þeirra í trúpni. 2) Fyrir °rfiði þeirra í kærleik- anum. 3) Fyrir stööuglyndi þeirra i voninni. Fyrir hvað veröur okkur þakk að? Það fer eftir því hvert rúm við skipum í hugum og hjörtum sam- feröamannanna, hvernig við kom- um fram við þá, hvernig við not- um krafta okkar í þágu samfélags ins. Til þess að starfið blessist, verði öðrum til blessunar, þurf- um við að starfa í trú á Guð og hið góða í tilverunni, það pósi- tíva í manneskjunni. Og til þess að við höfum erindi sem erfiði þurfum við að vinna í kærleika, fóma, láta eitthvað af mörkum, vitandi það að sælla er að gefa en þiggja. Og í þriðja lagi þurfum við að sýna stöðuglyndi í voninni — þ.e.a.s. tapa ekki trúnni á sig- ur hins góða í mannlífinu, trúnni á guðsneistann í manninum, enda þótt oft sé hann falinn undir öskuhrúgum synda, afglapa og yfirsjóna. Ef þannig er starfað, þá getum \>ð sýnt stöðuglyndi í voninni á sigur hins góða — sanna — fagra. Þá fagna vitrir menn... Hvort mun ei hjartans innsta eðli þrá að æðri máttur sálir fólksins veki, svo börnum jarðar. birtist lögmál há og boðorð þau, sem lífið fegurst á, unz bergir öld af brunnum allrar speki? Þá leysir framtíð frelsi vort úr böndum. Þá fagna vitrir menn í öllum löndum. D. St.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.