Vísir - 02.09.1967, Blaðsíða 10
w
V í SIR . Laugardagur 2. september 1967.
Ný gerð 'iþróttahúsa úr timbri:
2,5 milljónum kr.
ódýrari en steinhús
— Eitt slikt byggt i Kópavogi — möguleikar
á seriuframleiðslu
Nú um þessar mundir er verið
að ganga frá samningum milli Kópa
vogsbæjar og byggingarfyrirtækis
ins Verktæloii á Akureyri um bygg
ingu nýs íbróttahúss fyrir Kárs-
nesskólann í Kópavogi. Er hér um
að ræða nýja gerð iþróttahúsa, sem
gera má ráð fyrir, aö verði allt að
2,5 milljón krónum ódýrari en hin
venjulegu íþróttahús, sem byggö
hafa verið við skóla. Eru hér borin
saman hús af sömu stærö með sam
bærilegum frágangi. Fullbúið kost
Mývutn —
Framh. at bls. i
og er úrslita að vænta í næstu
viku. — Framkvæmdir viö veginn
hafa legið niðri á hinum umdeilda
kafla og ríður á að ákveöa vegar-
stæðið svo aö vegurinn verði til-
búinn,. þegar Kísilvinnslan tekur
til starfa í haust. Áætlað var að
honum yrði lokið 15. nóvember.
Menntamálaráöherra sagði að hér
væri um algjört prófmál aö ræða
þar sem aldrei heföi reynt á það
fyrr hvort slík friðlýsing náttúru-
vemdaraðila rifti staðfestu skipu-
lagi eöa ekki. — Væntanlega yrði
í framtíðinni höfð hliðsjón af álits-
gerð dómaranna f slíkum deilumál-
um milli sgjplagsaöila og nátt-
úmverndaraðila.
Forsaga þessa máls er sú, að
eftir að félagsmálaráðuneytið hafði
samþykkt tillögu skipulagsnefnd-
ar og hreppsnefndar Mý-
vatnssveitar um vegarstæðið,
fór Náttúruverndarráð þess á leit
við menntamálaráðuneytið að það
stöövaði lagningu vegarins á kafl-
anum frá Reykjahlíðarhóteli að
Grímsstöðum, þar eð ráðið telur
hann valda náttúruspjöllum.
Menntamálaráðuneytið leitaði þá
til þeirra Ármanns Snævarr, há-
skólarektors og dr. jur. Þórðar
Eyjólfssonar, fyrrverandi hæsta-
réttardómara, til að kanna rétt og
skyldur Náttúruverndarráðs og
menntamálaráðuneytisins til íhlut-
unar í þessu máli. Niöurstaða
þeirra varð sú að þessa aöila brysti
heimild til þess að hindra með
valdboði mannvirkjagerð á land-
svæði, sem ekki væri friðlýst.
Að fenginni þessari niðurstöðu
ákvað Náttuverndarráð að friðlýsa
hrauniö næst vatninu og leggja
bann viö vegalagningunni.
Slíkt bann kemur þó ekki til
framkvæmda nema með samþykki
menntamálaráðuneytisins og telur
ráðuneytið nauðsynlegt áður en það
tekur afstöðu til friðlýsingarinnar,
að fá úr því skoriö hvort slík frið-
lýsing rifti samþykktum skipulags-
i’ 'pdrætti eða ekki.
Um þetta mál hefur staðið tals-
verður styr, sem kunnugt er og
er þetta launar gamalt innansveit-
ardeilumál Mývetninga.
Fari svo að friðlýsing Náttúru-
verndarráös nái fram aö ganga er
eins víst að þeir, sem lagt hafa í
.amkvæmdir með tilliti til þess
skipulagsuppdráttar, sem félags-
málaráðuneytið hefur samþykkt,
höfði skaðabótamál á hendur Nátt-
úruvemdarráði, þar eð vegurinn
yrði þá fyrir tilstilli þess lagður
annars staðar.
Nú er það lögmannanna að skera
úr um það hver skuli lúta, skipu-
Iagsyfirvöldin, sem njóta
fulltingis félagsmálaráðuneytisins
eða Náttúruverndarráð, sem skákar
í skjóli menntamálaráðuneytisins.
ar nýja íþróttahúsiö, sem verður
með sal með 18x33 m gólffleti
2 baðklefum og 2 búningsherbergj-
um, milli 9 og 10 milljónir króna.
Þessar upplýsingar fékk blaðið hjá
Ólafi Jenssyni, bæjarverkfræðingi
í Kópavogi.
Forsaga þessa máls er sú, að
Iþróttanefnd rfkisins skipaði nefnd
sem rannsakaði meö hverjum hætti
væri unnt að byggja íþróttahús,
sem væru ekki eins kostnaðarsöm
og þau íþróttahús, sem fyrir hendi
eru. Segja má, að þetta íþróttahús
við Kársnesskólann sé afleiðing af
þessari ahugun. Súlur og bitar í
húsinu eru erlendis frá og úr tré
Allir veggir veröa og úr tré, og
sérstaklega eldvarðir á klæðningu.
Hefur eldvarnaeftirlit ríkisins fyrir
sitt leyti samþykkt byggingu slíkra
húsa og bíður þá bvgging þessi
endanlegs samþykkis ráþuneytis,
sem gert er ráð fyrir, að fáist.
Ólafur Jensson sagðist gera ráð
fyrir, aö unnt vrði að taka húsið
í notkun um mánaðamótin marz-
apríl n.k.
Enginn vafi er á því, að hér er um
stórmerkilegt mál aö ræða, og ef
til vill verða íþróttahús okkar ís-
lendinga byggð þannig í framtíð-
inni, þar sem sparnaður er mikill
Vitað er um, að mörg sveitarfélög
vantar nauðsynlega íþróttahús og
sagðist Ólafur vita að ef til vill
réðust fleiri sveitarfélög á Reykja
nesskaganum í að reisa þessa teg-
und íþróttahúsa. Er einnig mögu-
leiki á aö framleiða þessi hús í ser-
íum, þar sem unnt er að framleiða
þau í einingum.
H-dagur —
Framhala a1 sföu 1
ar í gær var almennt hlynnt
breytingunni. Þeir, sem á móti
voru voru yfirleitt tilheyrandi
eldri kynslóðinni, enda vitað
mál að breytingin verður henni
hvað erfiðust. Ný skoðanakönn
un sýnir ag 85% Svía eru með
breytingunni, — en 1955 voru
85% Á MÓTI breytingu.
Málmeyjarbúar burfa varla að
óttast neitt, enda verður viðbún
aðurinn fyrstu dagana geysimik
ili. Alls verða 9200 sjálfboðaliö-
ar starfandi þegar breytingin á
sér stað og fjölgað hefur verið
úr 50 i götulögreglunni í 239, en
58 hermenn verða og til aðstoð-
ar.
Mikið starf hefur og verið að
taka á móti þeim ótrúlega f jölda
ferðamanna, sem kemur til að
fylgjast með breytingunni. Með-
al þeirra sem koma til Málmeyj-
ar voru 32 rússneskir blaða-
menn og embættismenn, en gest
ir koma frá ótrúlegustu þjóðum.
Margir íslendingar fylgjast með
og eru sumir þeirra í Málmey.
Málmey er 3. stærsta borg
Svíþjóðar og hefur 250 þúsund
íbúa. Hún verður fyrsta borgin,
þar sem bílar munu hefja hægri
akstur, í öðrum borgum verður
umferð leyfð síðar en í Málmey,
enda er borgin talin bezt undir
breytinguna búin.
Algjört umferðarbann verður
í nótt frá kl. 1—6. Þá verða
varla nokkur farartæki á götun
um, aöeins lögreglubílar, og
slökkvi- og sjúkrabílar sem þess
þurfa.
Kl. 5 verður H-umferðarregl-
an í gildi í Svlþjóð. Árrisullr
Málmeyjarbúar, þ.e. þeir, sem
verða á fótum kl. 6 verða að
hafa í huga, þegar þeir setjast í
bíla sína, að H-reglan gildir. Það
veröur aðeins f Málmey og sveit
unum, sem byrja má aö aka kl.
6. 1 Stokkhólmi mega almennir
ökumenn hefja akstur kl. 15 um
daginn.
Skipulag —
Framhald at bls 9
og hins opinbera, svo og ýmiss
konar stofnanir. Þessi hluti mið
bæjarins sést víða að og er
einkum ætlaður skrifstofum og
stofnunum, sem eiga viðskipti
við almenning. Stofnanir, sem
eiga minni skipti við almenning
geta fengið land á svæðinu vest
an Kringlumýrarbrautar, þar
sem stofnunum er sérstaklega
ætlaður staöur.
Hægfara þróun.
Mjög þykir sennilegt, að nokk
ur tími líði, unz verulegur skrið
ur kemst á verzlunarhverfi miö
bæjarins, sem ætlazt er til, að
verði nær Miklubraut. Meiri
háttar sérverzlanir verða eflaust
enn um hríð til húsa við hinar
gömlu verzlunargötur í Miöbæn
um og Austurbænum, en stór-
verzlanir og meiriháttar fjöl-
verzlanir, sem selja vörur til
daglegra þarfa, þar sem séö er
fyrir nægum bifreiöastæðum
handa viðskiptamönnum, munu
ef til vill rísa upp innan til-
tölulega skamms tíma. Þær
verzlanir munu njóta góös af
mikilli byggð, sem þegar er ris-
in f næsta nágrenni. Ekki er
ósennilegt, að fyrst muni rísa
þar verzlanir, er selja vörur,
sem eru þess eðlis, að kaupandi
fer í sérstakan leiðangur til aö
skoða þær einar t.d. bifreiðir
og húsgögn.
Erfitt er að segja fyrir,
hvenær hægt muni að tala um
skemmtanalíf í miðbænum nýja
Eölilegt virðist, að kvikmynda-
húsum og veitingastöðum sé
ætlaður staður nálægt helztu
verzlunargötunum. Þar á einnig
að koma fyrir einu hóteli eða
fleirum og borgarleikhúsi á
áberandi stað.
Skrifstofur og
verzlanir.
Af þeirri starfsemi sem nú hef
ur verið nefnd, má vafalaust
telja, að skrifstofur bæði opin-
berar skrifstofur og skrifstofur
einkafyrirtækja veröi fyrirferðar
mestar á skipulagstímabilinu. —
Gert hefur verið ráð fyrir, aö
húsnæði skrifstofa, sem kalla
mætti miðbæjarsæknar, muni
aukast í Reykjavík um 130.
000 - 230,000 fermetra til ársins
1983. Talið hefur verið, að af
þessu skrifstofuhúsnæði mætti
koma fyrir 60.000—90.000 fer-
metrum f Miöbænum og Austur
bænum, en í hverfinu við Suð-
urlandsbraut mætti samkvæmt
samþykktum áætlunum koma
fyrir 70,000—140,000 fermetrum
til viðbótar því, sem fyrir er,
þó er gert ráð fyrir, að til
sliks komi ekki nema að nokkru
leyti. Ef þeir möguleikar, sem til
byggingar eru við Suðurlands-
braut, veröa nýttir að fullu,
þarf ekki að gera ráð fyrir
skrifstofuhúsnæði í nýja mið-
bænum á skipulagstímabilinu,
ef markvisst er spomaö gegn
því, að við Suðurlandsbraut
rísi skrifstofubyggingar, sem
ekki er nauðsynlegt, að þar séu
má gera ráð fyrir, aö skrifstofu
húsnæði í nýja miðbænum verði
50.000—100.000 fermetrar.
Áætlaö er að húsnæði mið-
bæjarsækinna verzlana á höfuð
borgarsvæðinu muni aukast
alls um 30.000—65.000 fermetra
og verði þar af 25.000—45.000
fermetrar við hinar gamalkunnu
verzlunargötur í Miðbænum og
Austurbænum. Ætla mætti, að
gólfrými verzlana í nýja mið-
bænum yröi árið 1983 einhvers
staðar milli 10.000—50.000 fer
metrar.
2-300 þúsund fermetra
gólfflötur í nýja
Miðbænum.
Miðbæjarsvæðiö nýja er að jj
flatarmáli um 60 hektarar, sá
hluti hverfisins, sem er noröan
Bústaðavegar og tekinn verður
fyrst í notkun, en um 40 hekt
arar. Þetta þýðir, að þótt nýt-
ingarhlutfallinu yrði haldið niðri
fyrst í notkun, er um 40 hekt-
í 0,5 (hlutfall gólfflasarmáls og
landflatarmáls), mundi í fyrsta
áfanga uppbyggingarinnar unnt
að koma fyrir 200.000 fermetr-
um húsnæðis, væri nýtingarhlut
fallið 0,75, mætti koma fyrir
300,000 fermetrum. Þetta hvetur
til aöhalds, þegar ákveðin er |
stærð lóða sem ráðstafað verður
Miðbæjarsvæðið má vel halda
áfram að byggjast, eftir aö
skipulagstímabilinu er lokiö. Á
miðbæjarsvæöinu má heldur
ekki vera of langt bil á milli
húsa. Ráðlegt mun að byrja
með einnar hæðar sambygging-
um og hafa möguleika til að
byggja ofan á eina hæö eða
fleiri. Að öllum jafnaði er vafa
laust ráðlegt að hafa yfirleytt
Iágbyggð og ákveða við lóðaút-
hlutun einhvers konar bygging-
arskyldu.
í reglugerð þeirri um skipu-
lagsáætlanir, sem nú er unnið að
er gert ráð fyrir, að reglur um
bifreiðastæði (1 bifreiðastæði á
25 fermetra gólfflatarrými)
gildi alls staðar nema þar sem
sérstaklega er heimilaö, aö frá
þeim verði vikiö, og er þá átt
við Miðbæinn og Austurbæinn.
Nauðsynlegt er, að þeim sé alger
lega framfylgt f nýja miðbæn-
um, en þar merkir aö heildar-
flatarmál bifreiðastæða á að
vera jafnmikið og það gólfflat-
arrými, sem byggt er. Óheppi-
legt væri aö hafa bifreiðastæðin
í sömu hæð og verzlunargöt-
ur, torg og 1. hæö húsa. Þar
kemur ýmislegt til, má fyrst
nefna það, að slíkt mundi skeröa
byggingarmöguleika á svæöinu
einnig mundi miðbæjarsvæðið
verða heldur óskemmtilegt á-
sýndum, ef það yrði umlugt
víðáttumiklum bifreiðastæðum
eins og gerist I sumum banda-
rískum fjölverzlunarhverfum,
þá má og nefna, aö við slíka
tilhögun yrði öþarflega löng leið
úr bifreiðunum í verzlanir, og
enn fleira mætti telja. Hyggi-
legt mundi þegar í byrjun að
koma fyrir bifreiðastæðum og
aðkomu að húsum neðanjarðar
undir öllum miðbænum.
Ekkert áhlaupaverk.
Af þessum lauslegu leiðbein-
ingum má sjá, að skipulagning
bvggöar í hinum nýja miðbæ er
ekkert áhlaupaverk. Áætlan-
irnar verða • að vera hvort
tveggja í senn, traustar og
þó sveigjanl. Ekki er unnt að
semja heildaráætlun fyrir upp-
bygginguna, sem taka mun
mörg ár. Hins vegar er gert ráð
fyrir því, að á næstunni verði
gengið frá áætlunum um fyrstu
áfangana.
BLÚÐBANKINN
Blóðbankinn tekur á móti blóð-
ajöfum 1 dag kl 2—4.
—-'VIHKW
BELLA
Afgreiöslumaöurinn hélt bara
að hann gæti selt okkur alla
búðina, bara af því að hann var
svo ægilega sætur.
MESSUR
Háteigskirkja.
Messa kl. 2.
Séra Jón Þorvarðsson.
Grensásprestakall.
Guðsþjónusta í Réttarholtsskóla
kl. 2.
Séra Ólafur Skúlason.
Bústaðaprestakall.
Messa f Breiðagerðisskóla kl.
10.30. Séra Erlendur Sigmundsson
Sóknarprestur.
Kópavogskirkja.
Messa kl. 2.
Séra Gunnar Árnason.
Dómkirkjan.
Messa kl. 11.
Séra Grímur Grímsson.
Neskirkja.
Messa kl. 11.
Séra Jón Thorarensen.
EHiheimilið Grund.
Guðsþjónusta með altarisgöngu
kl. 2 e.h.
Séra Magnús Guðmundsson
sjúkrahúsprestur messar. Heimilis
presturinn.
Hafnarfjarðarkirkja.
Messa kl. 10.30
Séra Garðar Þorsteinsson.
Fríkirkjan.
Messa kl. 11.
Séra Þorsteinn Björnsson.
Ásprestakall,
Messa í Dómkirkjunni kl. Fl.
Séra Grímur Grímsson.
Laugameskirkja
Messa kl. 11.
Séra Garöar Svavarsson.
Hallgrímskirkja.
Messa kl. 11.
Séra Lárus Halldórsson.
Vegaþjónusta FIB
Vegaþjónusta Félags íslenzkra bif
reiðaeigenda helgina 2.-3. sept-
ember 1967.
FÍB—1 ÖJfus, Grímsnes, Skeið.
FfB—2 Þingveíiir, Laugarvatn.
FÍB—3 Akurevri, Vaglaskógnr,
Mývatn.
FÍB—4 Hvalfjörður, Borgarijörð-
ur.
FÍB—7 Reykjavík og nágrenni.
FÍB—9 Borgarfjörður.
Gufunes-radfó — Sími 22384 —
veitir beiðnum um aðstoð viðtöku