Vísir - 02.09.1967, Blaðsíða 16

Vísir - 02.09.1967, Blaðsíða 16
éfáá'. Handofnir kjólar úr íslenzkri ull í litasjónvarpinu íslenzk ull og ullarvörur voru kynntar i litasjónvarpi I Kan- ada s.l. þriðjudag. Elín Pálma- dóttir talaði um uliina og sýndi litmyndir og haföi til skýringar gæruprjónaðar peysur og ullar- hymu en stúlkumar, sem starfa í íslenzku sýningardeildinni sýndu handofna módeikjóla frá Parísartízkunni. Segja má að nóg hafi verið að starfa fyrir íslenzka starfs- fólkið í sambandi við blöð, út- varp og sjónvarp, og hefur það t.d. verið í yfir 40 sjónvarps- og útvarpsþáttum og kynnt ísland og íslenzk málcfni. Blöðin í Montreal ræddu ný- lega við Má Elísson, fiskimála- stjóra, Sigurð Magnússon, blaðafulltrúa Loftleiða og Þor- vald Júliusson frá Verzlunarráði ísiands og hai'a þau viötöl og frásagnir birzt í tveim stærstu blöðum borgarinnar, sem gefin eru út á ensku. Róska og rektor Menntaskóians, Einar Magnússon við eina af myndum Rósku. Laugardagur 2. sepjember 1967 Frekarí yfirheyrslur í morðmálinu áður en málflutningur fer fram Mál Þorvalds Ara Arasonar, sak bomingsins í morðmálinu svo- nefnda kom fyrir rétt í annað sinn í Sakadómi Reykjavíkur í gærdag. Stóðu réttarhöldin yfir í tæpa klukkustund. Verjandi ákærða, Gunnar A. Pálsson, hæstaréttarlög- maður, lagði fram þá ósk sína, að nokkur vitnanna yrðu yfirheyrð frekar. áður en málflutningur færi fram. Ekki hefur verið ákveðið, hvenær réttað verður aftur í mál- inu, en það mun verða á næstunni. • ••••••••••••••••• <V ••91 Vinna vii Æfingaskóla Kennaraskólans hafín —■ Vonazt til að eitthvað af h'úsnæðinu verði tekið i notkun annað haust Volkswagen '68 kominn 90 Volkswagenbifreiðir af árgerð inni 1968 komu til iandsins með skipi frá Hamborg á miðvikudaginn og var verið að skipa þeim upp í gær. Allar þess-ar bifreiðir eru þeg ar uppseldar, én gert er ráð fyrir að næsta sending komi til landsins 20 september og er sú sending líka nær því uppseld. Blaðið hafði samband við Heild- verzlunina Heklu í gær og fékk upplýsingar um helztu breytingar á hinum nýja Volkswagen. Bíllinn hefur verið styrktur nokkuð frá þvl sem var, t. d- er stuöarinn með nýju sniði og stéfkari. Bensín lokið hefur verið fært út fyrir farangursgeymsluna og þarf því .ekki að opna hana til að setja bensín á bílinn. Stýrisútbúnaði hef ur verið breytt og gefur stýrið eftir við mikiö högg. Fleiri breytingar : hafa verið gerðar á árgerð 1968, j svo sem nýr útsýnisspegill, ný hand I ■PXm rr nrr P1 ní f n A I Nýlega hófust framkvæmdir við byggingu hins nýja Æfingaskóla Kennaraskóla. íslands. Þegar er langt komið aö ýta fyrir grunni hússins, og á næstunni verður steypt botnpiata byggingarinnar. Steypa botnplötunnar var sérstak- lega boðin út, en áformað er að haida síðan áfram við verkiö þar tii fyrsta álanga er lokið, og er vonazt til að eitthvað húsnæði liinn ar nýju byggingar verði tekið í notkun annað haust, að því er dr. Broddi Jóhannesson, skólastjóri Kennaraskólnns, sagði Vísi í gær. Skólabyggingin sjálf verður byggð í áföngum, og sú vinna, sem nú er hafin er undirbúningsvinna fyrir framkvæmdir við 1. áfangann í 1. áfanganum veröa 10 almenn ar kennslustofur á 1. og 2. hæð, auk almennrar skrifstofu, skrif- stofu skólastjóra, herbergi fyrir yfirkennara og kennarastofa, sem er áætlaö á 1. hæð. Þá verður og í 1. áfanga, kennslusalur, sem jafn framt verður fyrir söng- og hljóð færakennslu myndasýningar, sam- kennsiu fleiri deilda, notkun sjón- varps við æfingakennslu. í kjallara hjálparkennslu ýmiss konar, sál- fræðilegar athuganir á nemendun- u.n, o.fl. 1 kjallara undir kennslu- stofunum, sem áður segir frá veröa handavinnustofur fyrir pilta og stúlkur, föndurstofa og enn fremur vinnustofa fyrir kennaranema. Alls verður húsnæði það, sem hér hef- ur verið lýst, tæplega 8700 rúm- metrar aö stærð. Stúdentahing með nýju sniði undir samkomusal verða herb. fyrir Stúdentaþing verður haldiö í dag og á morgun í hátíöasal Há- skólans. Hefst þingiö báða dagana kl. 2 e. h. Menntamálaráöherra, dr. Gylfi Þ. Gíslason og háskólarektor, próf. Ármann Snævarr munu flytja ávörp við þingsetningu í dag, en aö því loknu munu þingstörf hefj- a.'.t. Þing þetta sitja fulitrúar frá j Stúdentaráði Háskóla I’slands og Sambandi íslenzkra stúdenta er- lendis. Á þinginu verður rætt um hagsmunamál og stöðu stúdenta í þjóðfélaginu, um menntamál og á- lyktanir gerðar. Þá verður og lögð fyrir þingið reglugerð fyrir samstarfsnefndir Stúdentaráðs og Samband ísl. stúd-; enta erlendis Stúdentaþing þetta er hið fyrsta sinnar tegundar, sem haldið er með þátttöku íslenzkra stúdenta hér á Islandi og erlendis. Aukið samstarf hinna tveggja stúdentasamtaka hefur veriö á dag- skrá undanfarið og gert ráð fyrir, að þetta stúdentaþing leiði af sér samstarf á ákveönum grundvelli. Hefur þingiö verið undirbúið af sérstakri samstarfsnefnd, sem skip- uð er fulltrúum Stúdentaráös og r .íbands íslenzkra stúdenta er- lendis. : Dóms yfir-brezka« togaraskip- • stjóranum að : vænta á dag I 2 Yfirheyrslur í máli skipstjór-J • ans á brezka togaranum Bom- • Jbadire, GY-30, sem tekinn var ^ • að meintum ólöglegum veiðum • ^ út af Dýrafirði í gærmorgun, • Jhófust kl. 8 í gærkveldi hjá: • embætti bæjarfógetans á Isa- J ^ firöi. Búizt var við í gærkveldi, • aö dómur í málinu félli í dag. J Skipstjórinn á togaranum heitir • Wallace Wilson, fæddur í Hull. i Það var varðsklpið Albert semj tók togarann kl. 5.30 í gær-* morgun. Skipherra á Albert er^ Helgi Hallvarðsson, og mun J þetta vera fyrsti togarinn sem« varðskip undir stjóm Helga tek-J ur að meintum ólöglegum veið- • um innan íslenzkrar landhelgi.: Frauðplastið Frauðplast það sem um var talað í frétt Vísis, af einangrun hitalagna Hitaveitu Reykjavikur, er af svk. polystyrengerð EN EKKI polyure- than frauðplast, sem Hitaveita Reykjavíkur hefur notaö með góö- um árangri siðan haustið 1965 og framleitt hefur veriö af fyrirtækinu Berki h-f- Nýstárleg málverkasýn- ing í Menntaskólanum Róska nefnist png myndlistar kona, sem í dag opnar sýningu á málverkum, teikningum o. fl. í nýbyggingu Menntaskólans og stendur SUM fyrir sýningunni. Róska er 26 ára gömul og er þetta hennar fyrsta sjálfstæöa sýning hérlendis, en erlendis hefur hún tekið þátt í fjölda samsýninga og s.l. vetur hélt hún einkasýningu á teikningum í Róm. SUM var stofnað í júní 1965 og telur nú 8 meðlimi, þar af þrjár stúlkur. Róska gekk í fé- lagið 1967 og er hún nú í sýningarnefnd þess. Blaöamaö- ur Vísis hafði tal af Rósku og sagði hún að samtals væru 55 myndir á sýningunni, allar mál- aðar undanfarin 3 ár. Kvaðst Róska hafa verið hér í Handíða og myndlistarskólanum eitt ár við nám. Þaöan hélt hún til Parísar og síðan til Róm, þar sem hún stundaði nám í Aca- demia Di Belle Arti um fjögurra ára skeið. Um SUM sagði Róska að það væri mikill misskilningur að það væri dregið af Félagi ís- lenzkra myndlistarmanna, og bætti framkvæmdastjórinn Sig- urjón Jóhannsson því við að þeir sem óskuðu skýringar á nafninu gætu lagt það út á Iat- ínu, en á þeirri tungu þýðir sum „ég er“. Volkswagen, árgerð 1968 á hafnarbakkanum í Reykjavík

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.