Vísir - 16.09.1967, Síða 9
V í SIR . Laugardagur L6. september 1967.
Þróttmikið starf í hálfa öld
Verzlunarráð Islands fimmt'iu ára á morgun
Á morgun, sunnudag
eru liðin nákvæmlega
fimmtíu ár frá stofnun
Verzlunarráðs íslands.
Það var 17. september,
sem fulltrúafundur verzl
unarstéttarinnar, hald-
inn í KFUM húsinu við
Amtmannsstíg í Reykja-
vík, gekk frá stofnun
Verzlunarráðs fslands.
Engum blandast nú hug
ur um, að þann dag var
stigið merkilegt spor
fram á við á sviðum
verzlunarmála á íslandi,
enda hefur það sannazt
á hálfrar aldar ferli
Verzlunarráðsins. Hér á
eftir verður getið nokk-
urra atriða, varðandi
Verzlunarráðið og sagt í
stuttu máli frá því helzta
sem mótað hefur sögu
og starf Verzlunarráðs-
ins á fimmtíu ára ferli
þess. Er hér aðallega
stuðzt við ágæta grein,
sem Vilhjálmur Þ. Gísla-
son útvarpsstjóri skrifar
í afmælisrit, sem Verzl-
unarráðið hefur gefið út
á þessum merkilegu
tímamótum.
Eins og fyrr getur var þaö
hinn 17. september 1917, sem
fulltrúar verzlunarstéttarinnar
komu saman til stofnfundar
Verzlunarráðsins. Árið 1914
hafði verið stofnað Kaup-
mannaráð Reykjavíkur eða ís-
lands og annaöist það undir-
búning stofnfundarins 1917. Þó
var svo, að hugmyndina að stofn
un allsherjar landssamtaka
verzlunarstéttarinnar er að
rekja lengra aftur í timann en
1914, því að á fundi í Kaup-
mannafélaginu árið 1906 hafði
Benedikt S. Þórarinsson, hreyft
þessu máli. Á fundinum 1917
hafði Jes Zimsen framsögu um
stofnun Verzlunarráðs Islands
og skýrði frumvarp að lögum
fyrir það. Á fundinúm var ein-
róma samþykkt tillaga um að
stofna „fulltrúanefnd fyrir
verzlun, iðnað og siglingar, er
nefndist Verzlunarráð Islands".
Alls eru stofnendur taldir
156, á sjálfum stofnfundinum
voru mættir 56, en á fundinum
lögð fram umboð fyrir 21 annan.
Enn bættust fleiri aðilar við
fram til áramóta 1918, en um
þau áramót voru aðilar aö
Verzlunarráði íslands orðnir
186, en þar af voru 4 kaupfélög.
Á stofnfundinum var kjörin
fyrsta stjórn Verzlunarráðsins,
o^ áttu f þeirri stjóm sæti:
Jes Zimsen, Garðar Gíslason,
Jón Brynjólfsson, Ólafur John-
son, Carl Proppé, Jensen-Bjerg,
og Olgeir Friðgeirsson. I vara-
stjóm vom kjömir Þórður
Bjamason og Ludvig Kaaber.
Allir voru þessir menn í fylk-
ingarbrjósti islenzkrar kaup-
sýslumannastéttar á þessum
árum og settu mikinn svip á
þjóðlíf íslendinga í þá daga.
Úr þessum hópi var Garðar
Gíslason kjörinn fyrsti for-
maður Verzlunarráðsins, en eft-
irtaldir hafa gegnt formanns-
störfum Verzlunarráðsins: Garð-
ar Gíslason (1917—1921 og
1922—1934), Ölafur Johnson
(1921), Hai .mur Benediktsson
(1934—1942) og sfðasta aldar-
fjórðunginn hafa Eggert Krist-
jánsson, Gunnar Guðjónsson
Þorvaldur Guðmundsson. Magn-
ús J. Brynjólfsson og Kristján
G. Gíslason verið formenn. Nú-
verandi formaður er Kristján
G. Gíslason, en Kristján er son-
ur Garðars fyrsta formanns
ráðsins.
Hinn 17. september 1942 hélt
V rzlunarráðið upp á 25 ára
afmæli sitt með veglegu afmæl-
ishófi að Hótel Borg. Ræðu-
menn þar vom forystumenn
kaupsýslustéttarinnar svo og
helztu ráðamenn þjóöarinnar.
Eðlilega hafa störf ráðsins
aukizt að mun hin síðari ár, jafn
framt þvi sem viðfangsefnin hafa
aukizt mjög að fjölbreytni.
-Verzlunarráðið hefur mjög látið
sig skipta ýmis mál, bæöi varð-
andi verzlunina hér innanlands,
sem og verzlunina við útlönd.
Fulltrúar Verzlunarráðsins hafa
verið tilkvaddir f opinberar
nefndir, jafnframt því sem
Verzlunarráðið hefur látið fara
frá sér álit um ýmis mál á við-
skiptasviðinu.
Síðustu árin hefur mikill hluti
starfs ráðsins verið á sviði
tollamála og þá um leið varð-
andi tengsl íslands við erlend
viðskiptabandalög.
Vísir óskar Verzlunarráði
velfamaðar á merkum tímamót-
um. Því er nú þakkað árangurs-
rikt og gott starf á sviði við-
skiptamála. Lýkur þessu grein-
arkomi á niðurlagsorðum úr á-
varpi dr. Bjama Benediktsson-
ar forsætisráóherra, sem hann
ritar f afmælishefti Verzlunar-
ráðsins:
„Þeirrar skoðunar veröur oft
vart, að á verzlun sé ekkl unnt
aö hagnast nema hafa ranglega
fé af viðskiptamönnunum. En
hagkvæm verzlun er einmitt i
þvf fólgin að bæta hag beggja,
kaupanda og seljanda, með ár-
vekni, fyrirhyggju og hug-
kv:emnl. Bezta tryggingln fyrlr
ar það taklst, er, að samkeppni
eigi sér staö og frjálsræðl fái að
njóta sfn. "'Ju frelsi verður
hins vegar að setja nokkrar
skorður, það helzt ekki til lengd
ar, nema þeir, sem gildi þess
skilja, hafj samvinnu sín á milli
a. m. k. þvf til eflingar og auk-
ins skilnings almennings á gildi
þess. Þegar af þessum sökum
hefur Verzlunarráð islands
miklu verkefni að gegna, ekki
einungis fyrir sjálfa verzlunar
stéttina, heldur fyrir alþjóð.
Á undanförnum fimmtíu árum
hefur Verzlunarráðið miklu
góðu til vegar komið, enda hafa
margir ágætir menn átt þar
sæti. Breyttir tímar krefjast
breyttra starfshátta. Þessa hef-
ur Verzlunarráðið gætt, en
hlutverk bess er sízt þýðingar
minna nú en fyrr. Þess vegna
er rik ástæða tll að þakka þvf á
hálfrar aldar afmælinu unnin
störf og óska því allra heill?
héðan í frá.“
\
„Til allrar hamingju voru
þeir í vitlausum lit!"
Stefán Guðjohnsen, fréttaritari Visis, skrifar
frá Evrópumótinu / Dublin
t1vrópumótig í bridge er að þessu
sinni haldið í höfuðborg Ir-
lands, Dublin. Dublin á langa sögu
að baki, sem hægt er að rekja fast
að tvö þúsund ár aftur í tímann.
Átta hundruð þúsund íbúar byggja
borgina, en þaö fyrsta sem maður
tekur eftir við þessa stórborg, er
hvað erfitt er að klófesta leigubíl.
Það virðist sem aðenis 900 bílum
sé ætlað að þjóna þessum fjölda.
Gróður er mjög mikill í úthverf-
unum, sem kemur ekki á óvart,
miðað við þá vökvun, sem hann
hefur fengið síðan viö komum hing-
að.
izt við því að þeir vinni mótið með
yfirburöum. Fyrri hálfleikur var
heldur lélegur og höfðu Italir 15
stig yfir í hálfleik, 44—29. I seinni
hálfleik komum við Eggert inn fyr-
ir Hall og Þóri og voru andstæð-
ingar okkar hinn frægi Belladonna
og makker hans Mondolfo. Heldur
voru þeim mislagöar hendur og ó-
þarft slemmujageri gaf kærkomna
13 punkta. Spilið var þannig
Mondolfo
Stefán
♦ 7
VD-10-6-5
En við skulum snúa okkur að
spilunum. Fyrsti leikur okkar var
við gestgj., íra, og var hann heldur
linur á báða bóga. Ég fékk samt
margar skemmtilegar hendur og
þar á meðal þessa: S: Á-K-D-G-9-6
H: D T: Á-K L: Á-K-D-10. Ég hef
séð fást lán í banka út á verri spil
en þetta. Eins og hver annar sveita-
maður opnaði ég á fjórum gröndum
og makker svaraði með fimm lauf-
um og þá sagði ég sex spaða. Makk-
er átti: S: 10-7-3 H: G-6-5-3 T: D-9-8
Mandolfo
4 Á-G-9
8-6-5
4 K-7-3
♦ 10-4-3
4 9
4 K-2
4 G-8-7-6-3-2
Belladonna
4 K-D-4
4 Á-G-9
8-2
4 Á-D-8
4 K-D
Eggert
4 10-3-2
V 4
4 G-9-7-6-5
4 Á-10-5-4
L: 9-8-5. Auðvitað fóru íramir líka
í slemmuna, en eftir vísindalegri
Ieiðum. Staðan í hálfleik var Eue
de Cologne fyrir íra eða 47—11.
í seinni hálfleik komu Hallur og
Þórir inn fyrir okkur Eggert. Það
gekk aðeins betur og endaði leik-
unnn 56—48 fyrir íra eða 5 vinn-
ingsstig gegn 3.
Næsti leikur var við heimsmeist-
arana, Itali. Þeir eru taldir vera
með mjög sterkt lið og jafnvel bú-
Sagnir heimsmeistaranna voru
þannig, við Eggert sögðum aldrei
neitt:
Austur Vestur
1 H 1 S
2 G 4 G
5 H 6 H
Til allrar hamingju voru þeir í
i vitlausum lit, þv[ sex spaða má
alltaf vinna. Að vísu er hægt að
vinna spilið með því að svfna hjarta
nfu, en spilari sem Belladonna kfk-
ir ekki á. Einn niður og 100 til okk-
ar. 1 lokaða salnum fóra Sfmon og
Þorgeir f fjóra spaða og unnu sex.
Leikurinn endaði 76—78 fyrir þá,
eða 3—5r
Þriðji leikurinn var við Svía og
við héldum uppteknum hætti og
spiluöum vel undir styrkleika. Mik-1
ill vindur var einnig með Svfunum
og unnu þeir leikinn stórt, 108—60.
Hálfleiksstaðan var 54—31 fyrir þá.
Við Eggert spiluðum fyrri hálfleik
meö Símoni og Þorgeir en í seinni
hálfleik komu Þórir og Hallur inn
fyrir okkur.
í fjórðu umferð kom að því. And-
stæðingar okkar voru hinir herskáu
ísraelsmenn. Við Eggert og Hallur
og Þórir spiluðum allan leikinn og
var hann mjög vel spilaður. Heppn-
in fylgdi okkur einnig, eins og sést
á þessu spili, allir utan hættu:
Katz
4 9-8-6-2
4 K-D-G-10-8-2
4 G-2
4 G
Stefán
4 7
4 7-5-4-3
4 Á-K-9
8-7
4 Á-6-4
Sagnir gengu þannig:
Eggert
K-D-G
ekkert
D-6-5-3
K-9-8-7
5-4
Rand
4 Á-10-5-4-1
4 Á-9-6
4 10-4
4 D-10-3
Norður Austur Suður Vestur
P 1 T 1 S 2 L
3 S P P 3 G
P P D 4 T
P 5 T P P
5 H D P 6 T
P P P
Suður spilaöi út spaóaás og ég
var fljótur að rúlla heim tólf slög-
um. Hálfleiksstaðan var 32—10, en
leikurinn endaði 105—46.
I fimmtu umferð spiluðum við
við frönsku milljónamæringana frá
Líbanon. Eins og oft áöur reynd-
umst við auðveld fórnardýr fyrir
þá. Slemmurnar sem þeir tóku á
okkur voru heldur skuggalegar, en
allt stóð á borðinu. Hálfleiksstað-
an var 17—46 en leikurinn endaði
35—66 fyrir þá, eða 1—7. Við Egg-
ert spiluðum fyrri hálfleik en Hall-
ur og Þórir seinni.
Leikurinn við Englendingana var
nokkuð góður. Honum lyktaði með
jafntefli, en sanngjarnari úrslit
hefðu orðið 5—3 til okkar. Hér er
spil frá leiknum:
N-s á hættu, vestur gefur.
Stefán
4 A-9-8-6
4 A-D-G-3
4 A-9-6
4 D-3
Swimer ■Gold atein
4 D-5-4-3 N 4 G-10
4 8-6 1/ A 4 10-4-2
4 G-10 V A 4 K-8-5-3
4 A-G-10 S 4 K-9-5-2
7-6
Eggert
4 K-7-2
4 K-9-7-5
4 D-7-4-2
4 8-4
Sagnir opna salnum gengu
þannig:
Vestur Norður Austur Suöur
P 1G P 2L
D 2H 2S 4H
4S D 5L p
P D Allir pass.
Við hirtum okkar fimm slagi og
fengum 500. I lokaða salnum sögðu
Tarlo og Rodrigue 1H—2H og unnu
fjögur eftir smámistök í vörninm
Erfitt er að vinna fjögur hjörtu á
spilin og var þetta dýrt spil fyrir
þá. 1 hálfleik var staðan 44—43 fyr
ir okkur og í seinni hálfleik grædd
um við annan punkt svo leikurinn
endaði 78—76 eða 4—4. Við Egg-
ert og Símon og Þorgeir spiluðum
allan leikinn.
Þegar við hittum Spánverjana
vora þeir í efsta sætinu og spiluöu
undir mikilli pressu. Leikurinn var
vel spilaður af beggja hálfu og
staðan i hálfleik var 19—23 fyrir
þá. I hálfleik komu Símon og Þor-
geir inn fyrir okkur Eggert og sig
ur okkar 68—37 eða 7—1 var verð
skuldaður,
Þjóðverjar hafa yfirleitt verið
auðveld bráð fyrir okkur, en aó
þessu sinni spiluðu þeir mjög góð
an bridge. Hálfleiksstaðan 28—27
okkur í hag gat ef til vill verið
aöeins meiri en lokastaðan 5—3 eða
63—55 fyrir Þjóðverjana var ef ti)
vill ekki ósanngjöm.
1 nfundu og tiundu umferð komu
tveir stórsigrar gegn Tékkóslóvakíu
og Portúgal. Spilamennska okkar
er nú orðin mjög jöfn og góð, og
kemur það fljótt í ljós á vinninga-
töflunni. Við höfum hækkað úr 17
sæti upp f níunda í sex urnferðum
og mótið er nú rúrolega hálfnaö.
Staðan að tíu umferðum loknum
er nú þessi í opna flokknutn:
1. Frakkland 59 stig
2. Ítalía 59 —
3. Svíþjóð 56 —
4. England 55 —
5. Belgía 50 —
6. Sviss 48 —
7. Noregur 47 —
8. Holland 46 —
9. ísland 45 —
10. írland 42 —
Stefán Guðjohnsen
Dublin, 10.9. ’67.
V