Vísir - 28.09.1967, Blaðsíða 3
V 1 S IR . Fimmtudagur 28
257.
*m£k,rn
BÖRNIN
HEIMSÆKJA
Þgssí litli maður var nú ekki smeykur við kindumar og hér er
hann á hiaupum eftir cinni kind, sem honum leizt sérlega vel á.
Hér eru bömin úti í móanum að drekka eftirmiðdagssopann sinn.
Fátt vekur meiri áhuga og á-
nægju hjá bömum, en að fá að
fa i upp í sveit, sjá skepnur
og klappa heim dálítið og leika
við bær. Fiestir foreldrar reyna
að fara með börn sín út úr bæn
um yfir sumartímann og leyfa
þeim að skoða dýrin og eru *étt
arferðir í miklu uppáhaldi hjá
öllum reykvískum börnum.
Eitt af barnaheimilum bæjar-
ins, Steinahlíð hefur haft það
fyrir venju undanfarin ár að fara
með öll bömin í réttir í nágrenni
bæjarins og leyfa börnunum að
koma inn í réttina og fylgjast
með fénu. Hafa þetta verið ákaf
iega vinsælar ferðir, og hefur
Myndsjáin í dag helgað síðuna
réttarferð barnanna ,sem var í
síðustu viku.
Farið var f Lögbergsrétt að
þessu sinni, en þar er í fyrsta
sinn sem fariö er meö bömin
þangað. Mikið af kindunum sem
þar voru eru heimakindur og
voru þær flestar mjög gæfar.
Alls fóru um 40 börn á aldrin-
um 2—6 ára í þetta ferðalag
auk starfsliðs Steinahliðar.
Þegar börnin komu á stað-
inn var verið að reka féð að
réttinni, og gátu bömin fylgzt
með því er dregið var í dilkana,
og svo þegar féð var aftur rek-
ið út. Voru bömin alls óhrædd
og hlupu innan um féö, klöpp-
uðu því og töluöu við það.
Síðan drukku börnin miðdegis
sopann sinn úti í móanum og
fengu að fara í berjamó skammt
frá réttinni.
Þegar líða tók á daginn var
farið að tygja sig til heimferðar
og héldu bömin til Reykjavíkur
undir kvöldið þreytt og ánægð
eftir viðburðaríkan dag.