Vísir - 28.09.1967, Blaðsíða 7

Vísir - 28.09.1967, Blaðsíða 7
V í SIR . Fimmtudagur 28. september 1967. lönd í morgun dtlönd Þakkað frumkvæöi Norður- landa varðandi Grikkland Sean MacBride, fyrrverandi ut- anríkisráðherra írlands, nú formað- ur AMNESTY INTERNATIONAL, sagði í gær, að fagna bæri, að Norðurlöndin tóku sér frum- kvæði í hendur til þess að þjóðim- ar beiti sér fyrir, að mannréttindi verði virt í Grikklandi. MacBride lauk og lofsorði á Norð urlandaþingmennina, sem gerðu sér ferð á hendur til Grikklands til þess að tala máli pólitískra fanga. MacBride kvað Amnesty Inter- national hafa sent ermdreka til Aþenu, og vonaðist til, að geta sett þar á laggimar skrifstofu. Hann þakkaði líka baráttu Norð- urlanda í þágu mannréttinda í Af- ríku og víðar. Hann kvað þúsundir manna viða um heim í fangelsi sam- vizku sinnar vegna — menn, sem hefðu veriö fangelsaðir vegna stjórn mála- og trúarskoðana. Amnesty International reyndi að vinna i þágu slíkra fanga á friöartímum eins og Rauði krossinn hefði hjálparstarf með höndum í þágu stríðsfanga á ófriðartímum. Rio Grande enn vaxandi Unnið fyrir gýg á flóðasvæðinu í fréttum frá Harlingen í Texas segir, að svo horfi, að mikið af því björgunarstarfi, sem innt hefur ver- ið af höndum á flóðasvæðinu með miklum tilkostnaði og vinnufram- lagi, reynist allt fyrir gýg. Ekkert lát er á vatnavöxtunum og Ríó Grande enn vaxandi. Bráðabirgðahleðslum úr sandpok- um og öðru hefur vatnsflaumurinn sópað með sér, og eins og horfir er ekki útlit fyrir annað en að flytja verði burt alla fbúa Harling- en, um 40.000 talsins, og hefur her- inn þyrlur reiðubúnar og armað sem þarf til flutninganna. Stórir hlutar bæjarins eru þegar eyðilagöir og 10.000 verið fluttir burt. I engum öörum Bæ í Texas hefur orðið eins mikið tjón. Það, sem menn nú ótt- ast mest, er, að geta ekki varið sig gegn miklum sæg af slöngum og skorkvikindum, og mikill kvíði rík- ir vegna hættunnar á taugaveiki- faraldri. Hafin er fjöldabólusetning gegn taugaveikií en erfitt um fram- kvæmd hennar. í dag er von á Johnson forseta til flóðasvæðanna. Talaði yfir nær tómum bekkjum Þegar utanríkisráðherra Suður-Afríku flutti ræðu sína á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna nú I vikunni gengu fuiltrúar svörtu Afríkuríkjanna út einn af öðrum, eins og orðin er venja þeirra þegar fulltrúar S.-A. taka þar til máls. Alls gengu úr fundarsal meðan á ræðunni stóð fulltrúar 63 þjóða. Utanríkisráðherrann, Hilgard Muller, lét þetta ekki á sig fá, og hvatti þjóðimár til þess að virða aðskilnaðarlögin i Suður-Afríku. Abba Eban gerir grein íriðaráœtlun Hún byggist á samstarfi Israeís, Jórdaniu t og Libanon Á fundi Evrópuráðs hefur Abba I milli ísraels og Arabaríkja, byggöa Eben lagt fram áætlun urh *nð! á þeim grunni, að ísrael, Jórdanía og Líbanon taki uþp með sér efna- hagslegt samstarf, án nokkurra stiómmáíalegra skuldbindinga. Geröi Eban grein fyrir áætlun- i—ni í ræðu, sem hanniflutti í gær. M. a. lagði hann til.að samein- aðir verði hafnarbæirnir pilat (ísra- elskur) og Akaba (jórdanskur), en FLÓÐIN í TEXAS Myndin er frá flugvellinum í Brownsville í Texas, en þar var fyrir skemmstu allt á floti eftir úrkomur og vatnavex'ti, sem komu f kjölfar hvirfilvindsins Beulah í Rio Grande-dalnum endilöngum er allt enn á floti. Munu þetta vera mestu flóð í manna minnum, — og áreiðanlega miklu meira tjón af þeim hlotizt en nokkrum öðmm i þessu sambandsríki. Flóðin í Mexíkó Fréttir í gær hermdu að a.m.k. ein milljón manna í Mexíkó væru heimilislausir af völdum vatnavaxta. Verst er ástandið í nyrztu héruðum landsins. — I nokkrum hverfum höfuðborgar- innar — Mexíkó City — er allt á floti. Vatnavextir eru í strand- héruðunum bæði við Mexíkóflóa og viö Kyrrahaf. Samgöngur hafa rofnað á þjóðveginum milli Mexíkó-borgar og Acapulco. — Tjón á mannvirkjum er gífur- legt. Hemaðariega stjómin gríska svarar Evrópuráði Hernaðarlega stjómin gríska segir ályktun Evrópuráðs-afleið- ingar misskilnings eða „í versta falli rangtúlkun að yfirlögðu ráði“. — í aövöruninni var hem- aöarlega stjómin vöruð alvar- lega við að halda áfram á braut skerðingar mannréttinda — og var ekki farið dult með, að Gfikklandi kynni ella að veröa vikið úr samtökunum. báðir bæirnir eru fyrir botni Akaba flóa. Stjórn þeirra og starfræksla '-:al vera sameiginleg. Sínaískagi skal afvopnaður og fram fara skal „svæðabundin" og alþjóðleg laiK- flóttamannavanda- málsins. Eban hafnaði iausn vandamála Austurlanda nær á grunni stór- veldaábyrgðar. Loks hélt harin því fram, að þessi lönd yröu að leysa vandamál sín sjálf án utanaðkomandi íhlutunar. Um .60 rnenn féllu í skothríð við Suez í NTB-frétt frá Ismaila segir, aö 50 m,enn a. m. k. hafi beðið bana í gær í skotbardögum Egypta og ísra els og 80—90 særzt, flestir í Is- maila, þar sem 36 létu lífið og 85 særðust. ísraelsmenn segja, aö 14 menn hafi verið drepnir á Sinai- skaga, þar af 8 Egyptar. í Fíladelfíu í Bandaríkjunum hef- ur komizt upp samsæri til að drepa 1000—1500 lögreglumenn á eitri, ef til kynþáttaóeirða kæmi. Jens Otto Krag forsætisráðherra Danmerkur segir, að æskilegt sé að Russell-dómstóllinn starfi { Dan mö.rku, og þeir, sem komi þeirra erinda að koma fram sem vitni fyr- ir honum, fái ekki vegabréfsáritanir til Danmerkur. Skóverzlunin Framnes- vegi 2 Drengjaskór og lelpnaskór í skólann Góöir vinnuskór karlmanna. Gaberdine kuldaskórnir meö rennilás margeftirspurðu komnir aftur o. m. fl. — Póstsendum. SKÖVERZLUNIN FRAMNESVEGI 2 Auglýsiö í VISl iÍÁiaMv KLl:T£í3Ít íísœrv! ctprsssssbt I l

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.