Vísir - 24.10.1967, Page 2
\ 2 ’ V1SIR . Þriðjudagur 24. október 1967.
EINN TAPLEIKUR
í ÁTTA ÁR!
Bjarrti Felixson og Ellert Schram alltaf með
sigurliðum KR i bikarkeppninni
Tveir leikmanna KR hafa ver-
iö með liðinu i öllu 7 skiptin,
sem liðið hefur unnlð bikar-
keppni KSf. Það eru þeir Ellert
Schram og Bjarni Felixson, sem
eru orðnir „gömlu mennimir“ í
liöinu þrátt fyrir að þeir séu
enn á bezta aldri.
Ellert spaugaði, þegar þessi
mynd var tekin í gærkvöldi af
þeim félögum og sagöi: „Þið
verðið að athuga að Bjami hefur
verri feril í keppninni, — hann
tapaði einu sinni f bikarkeppn-
inni“.
Skýringin er sú, að Bjami var
með KR-liðinu, sem keppti á
Akureyri fyrir tveim árum og
tapaöi þar, fyrsta og eina bik-
arleiknum, sem KR hefur tapað
í 8 ár. Þegar þetta gerðist var
Ellert Schram á ieið til landsins
meö flugvél, sem hafði seinkaö
ásamt fleirum liðsmönnum KR-
llðsins, þ. á m. Heimi Guðjóns-
syni.
Á myndinni eru þelr Ellert og
Bjami meö bikarinn og litlu
bikarana, sem félögin fá til
eignar, en í efstu hillu í aðal-
fundarherberginu í KR-heimil-
inu eru þessir fallegu gripir
geymdir meðal hundraða ann-
arra gripa, sem KR hefur á-
skotnazt í gegnum árin.
STADION sýndi sinn
lakasta leik
TVES6JA DÓMARA KCRFIÐ
RCYHT I 7.
□ Öskar Einarsson, formaður
Handknattleiksdómarafélags
Reykjavíkur, tjáði íþróttasíð-
unni í gær, að félagið hefði nú
tilkynnt dómaranefnd HSÍ, að
ekker* væri því til fyrirstöðu af
!iálfu .eykvískra dómara að tek-
ið yrði upp hið nýja tveggja
dómara-kerfi.
í Danmörku hefur þetta
kerfi verið tekið upp í keppni
og þykir reynast vel. Sagði
Óskar að vonir stæðu til að
sænski dómarinn Lennart Lars-
son fengist til að halda fyrir-
lestur fyrir íslenzka dómara
um kerfið, en hann kemur hing-
að og dæmir landsleikinn við
Tékka.
Mun endanleg ákvörðun um
þaö hvort þetta kerfi verði
reynt, vérða tekin á fundi nefnd-
arinnar á næstunni, en nefnd-
ina skipa: Hannes Þ. Sigurðs-
son, formaður Karl Jóhannsson
og Valur Benediktsson.
HKDR hefur og sarrtiö um
hærri greiðslur fyrir störf dóm- I
ara. Fær félagið nú 200 krónur
fyrir leik í meistaraflokki, en
áður var gjaldii^ 135 krónur.
Frá Hallsteinl Hinrikssyni:
Khöfn, 19. okt. ’67.
Þriðja umferð danska handknatt-
leiksins var leikin hér i gaerkvöldi.
Stadion—Stjernen 20—20.
Velur og Ármann
höfðu yfirburði
MK 31—HG 24—.34.
Skovb.—Árhus KFUM 13—15.
AGF—Viby 16—15,
Ajax—Helsingör IF 15—13.
Ég sá leik Stadion og Stjemen
og HG—MK 31. Stadionmenn voru
fremur daufir og var þetta lélegasti
leikur þeirra af þremur sem ég hefi
séð. En þeir eru aðrir nú f deildar-
keppninni. Stadion hefur nú 5 stig
eftir 3 leiki.
HG eru góðir í sókn, en vöm
þeirra er mjög opin. Enda sýnir
markatalan það. Það var þessi lé-
lega vöm þeirra sem felldi þá i
leik þeirra við Dynamo í Berlín.
Og búast menn ekki við að HG
geti unnið með 8 mörkum í næsta
leik hér. — Jörgen Petersen var
langbezti maður í leiknum í gær,
skoraði 14 mörk. HG hefur unnið
alla 3 leikina í keppninni.
Tveir ieikir fóru fram í gær-
kvöldi í Reykjavíkurmótinu f
handknattleik kvenna. Leikimlr
voru báöir yfirburðaleikir.
Valsstúlkumar unnu KR meö
10:3 og sömu markatölu
fengu Ármann og Víkingur. —
Ármannsstúlkurnar sýndu aö
þar eru skyttur f öllum stööum.
Allar skoruðu stúlkumar mark,
og tvær þeirra tvö mörk. Ár-
mannsliölð ætti þvi að vera
mjög hættulegt í baráttunni um
Reykjavíkurtitilinn.
Handknattleiksdeild Þróttar.
ÆFINGATAFLA.
Hálogaland:
Mánudaga: 3 fl kl. 7.40—8.30.
Miðvikudaga: 3. fl. kl. 6.50—7.40.
Miðvikudaga: Meistarar, 1. og 2. fl.
kl. 7.40—8.30.
Laugardalshöll:
T augardaga: Meistarar, 1. og 2. fl.
kl. 5.30—7.10.
Mætið vel og stundvíslega.
Góöir þjálfarar.
Stjómin.