Vísir - 24.10.1967, Page 9
Q
VlÚidýrin eru drepin unnvörpum og þau veslast upp, þegar siðmenn ingin rænir þau löndum sinum.
■ptyrir nokkru barst Fram-
kvæmdanefnd HGH hér á
landi fyrsta skýrsla deildar
þeirrar í Landbúnaðarráðuneyti
Malagasy-lýðveldisins á Mada-
gaskar, sem fjallar um Alaotra-
vatnsáætlun HGH. Skýrslan
fjallar um fyrstu 6 mánuði á-
ætlunarinnar, eða tímabilið 1.
des. ’66 til 31. maf ’67. Áætlun-
in nær hins vegar yfir þrjú ár
og á hún að verða framkvæmd
að fullu 30. nóvember 1969.
FAO — Matvæla- og landbún-
aöarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna, sem ráðstafar framlagi ís-
lands hefur á þessum sex mán-
uðum lagt fram 22.700 dollara af
fénu, eða 90%.
£ skýrslunni er rætt um það,
sem þegar hefur verið fram-
kvæmt af Aalaotravatnsáætlun-
inni og það, sem í ráði er að
gera á næstunni. Skal hér getið
nokkurra '.elztu atriðanna:
a. Lagnet. Reiknað var með
að í september 1967 yrðu alls
40 km. lagnetja í notkun við
vatnið, en 44 km. í árslok 1967.
b. Borðbátar. Þegar var byrj-
að á smíöi þriggja borðbáta, en
" þeir eru miklu öruggari sigl-
‘A ingatæki en gömlu eintrjáning-
^ amir, og auk þess mun auðveld-
| ara að gera við þá. 5 fiskimenn
munu sérhæfa sig í smíöi borð-
báta, og er í ráði að smíða 32
aðra á fyrsta ári áætlunarinnar.
c. Reykhús. Byrjað hafði ver-
ið á 8 reykhúsum í 5 þorpum,
og var byggingu þeirra langt
komið. Þetta er sá liður áætl-
unarinnar, sem skýrslan lýsir
langmestri ánægju yfir, og segir
þar að öruggt sé, að þetta muni
takast vel. Umrædd 8 reykhús
eru um helmingur þess, sem tal-
ið er að þurfi að reisa við vatn-
Það er framtíðarinnar að fjalla um, hvemig á að samræma siðmenn inguna hinu villta lífi í Afríku.
Af vettvangi Sameinuðu þjóðanna:
Aðstoðin við firóunarlöndin í Afríku
Fiskveiðarnar i Alaotravatni á Mad agaskar og friðun villidýra álfunnar
ið, samkvæmt áætluninni. —
Þess skal getið, að Malagasar
hafa, þegar um lauk, samþykkt
að taka upp sömu gerð reyk-
húsa og notuð hefur veriö á
Fílabeinsströndinni: létt reyk-
hús og fljótgerð. 1 júní 1966
voru menn þar syðra mjög í
vafa um, hvort þessi gerð
mundi henta eins vel við vatnið
og á Fílabeinsströndinni.
Þetta voru þeir liðir, sem kost
aðir eru með íslenzka fénu: net,
bátar, reykhús og fleiri tæki.
Malagasystjórn skal hins vegar
sjá um viðgerðir húsa og viö-
hald, flutninga innanlands,
vinnulaun ráðinna verkamanna
og annarra starfsmanna, og
auk þess átti stjórnin aö sjá um
og kosta flutning 20.000 vatna-
karfaseiði í vatnið nú í okt.—
nóv., en í ráöi er að hleypa
20—25 þús. seiðum í vatnið á
hverju ári áætlunarinnar. Sam-
kvæmt skýrslunni var framlag
Malagasystjómar á fyrsta ári
áætlunarinnar ákveðið sem 1
milljón malagaskra franka eða
um 4100 dollarar.
Áætlun um framkvæmdir á 2.
og 3. ári Alaotravatnsáætlunar-
innar er og að finna í skýrsl-
unni. Til að geta nokkurra atriða
má nefna, að í lok 2. árs eiga
að vera 55—60 km. lagnetja í
notkun við vatnið; byggja á 38
nýja borðbáta og fjögur ný
reykhús sem tengd verða við
fiskgeymslur. Þung áherzla
verður lögð á að kenna netja-
og bátaviðgeröir, og verður
reynt að sérhæfa hóp fiski-
manna til þessara starfa. Hleypt
verður í vatnið 25.000 vatna-
karfaseiðum. Á 3. ári verður
þessum framkvæmdum og aukn-
ingu haldið áfram, en þess utan
lögð megináherzla á bætta
vinnslu og' fjölbreyttari, traust-
ari markaðsöflun og loks mynd-
un samvinnusamtaka.
XTúsmæðrafræðsla sem haldin
var í Marokkó fyrir fé safn-
að á íslandi þótti takast með
miklum ágætum og hafa borizt
þakkarbréf, þar sem jafnframt
er farið fram á frekari aöstoð.
Eins og kunnugt er ákvaö
framkvæmdanefnd HGH að
verja 100,800$ til fiskiræktar í
Nígeríu. En skömmu síðar
brauzt út borgarastyrjöld í land
inu. Fullvissa hefur fengizt fyr-
ir því að peningar þeir sem send
ir höfðu verið eru vaxtaðir á
banka í Róm og verða ekki
hreyföir þaðan fyrr en kyrrö
verður komin á í landinu.
Á síðastliðnu vori var einnig
ákveðiö aö styðja verkefni til
eflingar fiskveiðum í Ruanda-
Burundi. Nýlega hefur borizt
uppkast aö samningi milli FAO
og HGH, sem gengið verður frá
næstu daga.
Ciðmenningin heldur hröðum
skrefum innreið sína í Af-
ríku og þar er á vegum Sam-
einuðu þjóðanna unnið mikið
starf til hjálpar þróunarlöndun-
um svokölluðu. — Eitt þeirra
grundvallarvandamála, sem þar
er við að glíma er samræming
hins siðmenntaða og hins villta
heims.
Margar dýrategundir í álfunni
eru nánast útdauöar vegna
gengdarlausrar ofveiöi seinustu
árin. Villihjörturinn varö fómar-
dýr frelsisstríðsins í Alsír og
hefur síðan verið veiddur svo
mikið aö hann finnst varla leng-
ur. Villidýranefnd, sem stofnuð
hefur verið í Eþíópíu komst of
seint á laggirnar til þess að
bjarga „Walia“-geitinni, „Som-
alia“asnanum og „Sv/aynes“-
hirtinum. — Þannig mætti vist
lengi telja.
Dýrin eru hrakin á flótta með
því að kveikja eld í þurru gras-
lendi og skógum, síðan eru þau
skotin umvörpum. Þar eru ef til
vill á ferðinni minjagripasafn-
arar, éða þá verið er aö fram-
kvæma fjöldadráp til fæðuöfl-
unar, líkt og þekkist við grinda-
dráp í Færeyjum, eða fíladráp
að fornum sið í Eyjum.
Ráðstefna villidýrasérfræð-
inga, sem boöuð var af FAO
og haldin í Fort Lamy syðst í
Sahara samþykkti áætlun um
friðun vissra svæða í álfunni til
varðveizlu og aukningar dýra-
Iífinu. Fundurinn leggur til að
stofnsettir verði þjóðgarðar og
svæði friðuð í öðru formi. Skrá
verði gerð um svæði, sem þurfa
algjöra vernd. Umsjón veröi
höfð meö minjagripaverzlun.
Hins vegar verði gefið leyfi til
ferðalaga um svæöin svo og
ræhtunar, vísindarannsókna og
takmarkaðrar veiöi, þar sem hún
er á annað borð leyfð. — 1 sum-
um tilfellum er áætlað að flytja
þurfi heil þ p, úr þýðingarmikl-
um þjóðgörðum.
Samþykkt þessa fundar hefur
verið lögð fyrir öll aðildarríki
FAO f Afríku til samþykktar.
Framkvæmd slíkrar áætlunar
krefst mikillar þekkingar á lífi
dýranna og landinu, sem þau
lifa á. Þess vegna, hafa verið
stofnsettir skólar sem fjalla
sérstaklega um þessi efni. Einn
slíkur, „College Wildlife Mana-
gement", er starfandi í Tan-
zaníu og verið er aö stofnsetja
annan í Cameroun til að þjóna
frönsku nýlendunum í Mið- og
vesturhluta Afríku. FAO styrkir
þessa skóla, en stúdentarnir úr
þeim munu veröa garð- og veiöi-
veröir í framtíöinni og það er
á þeim og sönnum skilningi
Afríkuríkjanna sem vonin um
varðveizlu þessa stórfenglega
arfs Afríku er byggð.
V í S I R . Þriðjudagur 24. október 1967.
yj Aðalumræðuefnið á deg'
Sameinuðu þjóðanna að
þessu sinni er vandamál þró-
unarlandanna og aðstoðin
við þau. „Herferð gegn
hungri“ hefur í samráði við
Félag Sameinuðu þjóðanna
hér á landi tekið að sér kynn-
ingarstarfsemi í skólum og
fjölmiðlunartækjum í dag.
Kynning þessi á hungur-
vandamálinu er sú fyrsta,
sem HGH efnir til í skólum
landsins. Bæklingar hafa ver-
ið gefnir út fyrir skólana og
ræðumenn munu halda erindi
í framhaldsskólunum í tilefni
dagsins og kynna umræðu-
efnið.
ísland hefur sam kunnugt
er gerzt virkur þátttakandi
í baráttunni við hungrið.
„Herferð gegn hungri“ safn-
aði fé hér á landi og lagði
fram 26.000 $ og lagði fram
tll nýsköpunar fiskveiða við
Alaotravatn á eynni Mada-
gaskar austur við Afríku-
strendur.