Vísir - 02.11.1967, Blaðsíða 3
VÍSIR.F5
•'<nir 2. nóvember 1967.
3
Það gegndi furðu, hvernig eldur læsti sig í Iðnaöarbankahúsiö á
sínum tíma, nýtt steinhús. Eldurinn bókstaflega sogaðist inn um
gluggana á vesturgafli og teygöi arma sína um gjörvallt húsið.
Þannig var umhorfs á skrifstofu Iðnaðarbankans eftir brunann —
brunnar vélar, borð og stólar.
þessu ári hafi kviknað einhverj-
ir fjárfrekustu brunar, sem sög-
ur fara af á islandi. Hins vegar
hefur enginn mannskaði orðiö í
neinum þessara stórbruna, þó
að nærri hafi legiö, einkum nú,
þar sem eina íbúa hússins var
bjargað niður i brunastiga úr
risinu.
Þegar frá eru taldir þessir
stórbrunar hefur þetta ár hins
vegar veriö rólegt ár fyrir
slökkviliðiö í Reykjavík. Þaö
var kallað út í 329. skipti á ár-
inu í fyrrinótt og eru þaö miklu
færri útköli en í fyrra, en þá
var liðið kallað út 486 sinnum
alls. — 1965 var hins vegar met
ár í sögu slökkviliðsins, hvað
annríki snertir, en bá voru út-
köll 534.
Ekki er vitað hvað verður um
þetta gamla timburhús við Að-
alstræti 9. Á þessum stað voru
eitt sinn einhver virðulegustu
hús í Reykjavik, forstjórahús
Innréttinganna. Þau voru rifin
laust eftir aldamót og þetta hús
var síðan reist á gnmni þeirra.
Þar verzlaöl lengi þýzkur kaup-
maður, Braun að nafni og muna
gamlir Reykvfkingar þá tlð. —
Þama hafa mörg fyrirtæki ver-
ið til liúsa, verzlanir, skrifstof-
ur, heildsölur, hárgreiðslustofur
og Gildaskállnn, sem eitt sinn
var meö fínustu kaffihúsum í
bænum.
Þriðii stórbruninn á árinu
Bruninn f Borgarskálum — sennilega fjárfrekasti bruni, sem kviknaö
hefur á íslandi.
■i tmmmnmmmmmmtmmmrmmmmmmtemmmmmmmmmB—I
Fólk kom til þess að virða fyrir sér spjöllin á húsinu í Aðalstræti 9 í morgun. Sumir húsráðenda
fréttu ekki af brunanum fyrr en þeir komu til vinnu sinnar þá um morguninn.
Eldurinn var mjög magnaður um tíma. En
húsinu á þrjá vegu með slökkvitækin. Auk þess
og var'mikill þrýstingur á því.
að hægt var að komast að
'ar nóg vatn að hafa úr vatnshönum í grenndinni
Reykjavík hefur ekki farið
varhluta af eldsvoðum þetta
árið. Bruninn í Aðalstræti 9 er
þriðji stórbruninn á árinu. —
Mönnum er í fersku minni brun
inn I vöruskemmum Eimskipa-
félagsins f ágúst í sumar og enn-
fremur Iðnaðarbankabruninn þ.
10. marz, en þá brunnu einnig
þrjú timburhús suður af banka-
húsinu og litlu munaði að eldur-
inn læsti sig í Iðnskólann gamla
og Iðnó.
í þessum brunum hefur orðið
meiri fjárskaði en menn muna.
Tjónið í Iðnaðarbankabrunanum
nam tugum milljóna. Bankahús-
ið sjálft var metið á 28 milljón-
ir, þar við bætast innanstökks-
munir og svo timburhúsin þrjú
og allt sera í þeim var. Brun-
inn í Borgarskálum verður lík-
lega seint metinn til fjár, en
gizkað var á að tjónið næmi
hundruðum milljóna.
Húseignin að Aðalstræti 9
mun hafa verið metin á sex
milljónir króna, en tjónið hefur
orðið miklu meira. Ýmsar verð-
mætar vörur og áhöld voru í
húsinu hjá fyrirtækjunum, sem
þar höfðu aðsetur sitt.
Það má bví fullvrða. að á