Vísir - 13.11.1967, Blaðsíða 8

Vísir - 13.11.1967, Blaðsíða 8
8 V1SIR . Mánudagur 13. nóvember 1967. Laxá — Frh. af bls. 12: vallavatni og Mývatni, og strfði sínu við stórlaxana í Laxá. í bók- inni er að finna kort yfir veiði- staði í Laxá — auk margra holl- ráða um veiðar þar og annars staðar. Höfundur segir einnig frá kynn- um sfnum af náttúru landsins, sem virðist hafa hrifið hann mjög. Bókin er tileinkuð Albert Erlings syni og Göte Borgström, og aftast í henni er að finna nafnaregistur, sem hlýtur að auka gildi hennar nokkuð. Noldcur eintök af bókinni eru til söhi f Bó'kabúð Braga, og eins og áður er sagt, er hún gefin út af Albert Bonniers forlag og verö hennar er 34,50 s. kr. Coferpillar — Frh. af bis. 12: mörgu fólki. Hvaða fjöldi er þetta?“ sagði Courtright við blaðamann Vísis, þegar hann steig út úr vélskóflunni, um leSS og hann litaðist undrandi um og horfði á manngrúann. Hann kvaöst vera fram- kvaamdastjóri þeirrar deiidar Caterpfflar-framleiðendanna, er annaðizt kennshi í meðferð þungavinnuvéla þeirra og hefur aðsetur sitt í Sviss. „Annars er ég á sífelldu ferða lagi til þess að'sýna og kenna. Ég er búinn að ferðast i þeim tilgangi um allan heiminn,, held ég mér sé óhætt að segja. — Afríku, Asíu, Austantjaldsríkin og nú síðast kem ég frá Rúss- landi. Þeir eru að kaupa rúm- lega 30 vélar, tíu stórar, frá Caterpillar, en það er í fyrsta sinn síðan seinni heimsstyrjöld- inni lauk. Ég var að kenna þeim meðferð þessara véla.“ „Það var aö sjá á vinnubrögð unum hjá þér áðan, að þú hafir töluverða reynslu í notkun þeirra.“ „Blessaður vertu! Allt mitt líf hef ég fengist við þungavinnu- vélar og síðustu 11 árin hef ég verið hjá Caterpillar." Verkfall — Framhald af bls. 1. eitthvað af því glingri, sem hingað hefði verið flutt inn teföist eitt- hvað. Hins vegar væri viða að verða fóðurbætislaust og ýmsar matvörur væru væntanlegar til landsins. Miklu alvarlegra væri hins vegar með útflutning atvinnu- veganna. Ef verkfallið héldist eitt- hvað yrði ekki hægt að koma gjaldeyrisvörunum á réttum tíma til kaupenda. Fullvíst er að margir sölusamningar voru gerðir snemma í vor og við það miðaö að vörun- um yrði skilað um þetta leyti. Þessum samningum yröi riftaö ef vörumar kæmu ekki til kaupenda á réttum síma og semja yrði upp á nýtt um sölu á vörunum. Verð- lag á heimsmarkaðnum hefði hins vegar lækkað mikið á þessum tíma og því trúlegt að útflytjendur vrðu að sæta miklu verri kjörum. Þetta kemur sér ákaflega illa fyrir allt atvinnulífið og iandið í heild og var þó nóg komið fyrir, sagði Hjörtur. Ekkert skip Eimskipafélagsins hefur stöðvast ennþá, en fyrstu tvö skipin munu stöðvast seinni hluta vikunnar og síöan eitt af öðm eft- ir því sem þau koma að utan. Eitt skip Hafskips hefur þegar stöðvazt, Rangá, en tvö skip munu stöðvazt eftir viku. Þá verður að- eins eitt skipanna eftir. Sigurður Njálsson framkvæmdastjóri Haf- skips sagði að þetta verkfall kæmi sér mjög illa og tók undir margt af því sem Hjörtur sagði. Hann sagði, að afkoma íslenzku skipafé- laganna væri ekki sllk, aö þau þyldu neinar launahækkanir. Yfir- menn kaupskipaflotans væri eina stétt landsins, sem hefði fengið ein- hverja launahækkun þetta árið. — Á síðastliönum 1—2 árum'hafa a. m. k. 6 kaupskip verið seld úr landi á sama tíma og engin endumýjun hefur átt sér stað. Mörg skip era nú á sölulista og nokkrum skipum hefur verið lagt, þar sem enginn grundvöllur virtist vera til að gera þau út. íslenzku kaupskipin væra ekki lengur samkeppnisfær á al- þjóða vettvangi, þar sem að kaup áhafnarinnar er bæði mun hærri en gerist hjá öðrum þjóðum og fleiri menn á hverju skipi, en taliö er nauðsynlegt erlendis. Lón — I Frh. af bls. 12: 1967, og er það hæsta jöfnunarlán, sem heimilt er að veita samkvæmt reglum sjóðsins, og samsvarar ein- um fjórða af kvóta íslands hjá Al- þjóðagjaldeyrissjóðnum. Endur- greiðsla lánsins verður háð þróun útflutningstekna næstu árin, en al- mennar reglur Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins segja svo fyrir um, að það skuli greitt að fullu á þremur til fimm árum. Tilgangur þessarar lántöku er að bæta að nokkra upp þann gífurlega missi gjaldeyristekna, sem lækkun útflutningsverðmætisins á þessu ári hefur haft 1 för með sér, en fram til loka september nam lækk- un gjaldeyrisverðmætisins 1009 millj. kr., og rýrnaöi gjaldeyris- staða bankanna á sama tíma um 866 millj. kr. . Illllllllllllllllll 6ÍLAR m Seljum f dag og næstu daga Rambler American ’65 og 66 Chevrolet Impala ’66 má greiðast með skulda- bréfi. Bronco ’66 hagstæð kjör. ^ Rambler Classic ’63, ’64, ’65. Opel Reckord ’64. Taunus 17. M ’63. Volvo Amason ’63 góðir greiðsluskilmálar. ini! Rambler- uUm urnboðið LOFTSSON HF. Hrinabraut 121 10600 lllllllllllllllllll Leiðrétting I viðtali, sem blaöiö hafði við Svein Ingólfsson oddvita á Skaga- strönd, hefur slæðzt slæm villa. Sagt var, að íþróttahús, sem kom- ið hefur til tals að byggja þar nyðra mynda kosta 14 milljónir. Þetta mun ekki alls kostar rétt. Mun vera sö.nnu nær aö húsið kosti um 6 milljónir og biöst blaðið afsökun- ar á þessum talnaruglingi. Frh. af bls. 12: ræður um upptöku í EBE eða EFTA, og þeir sem utan við þessi bandalög standa, sæta stöðugt versnandi viðskiptakjörum, miðað við aöildarríkin að bandalögunum, þá skorar L.Í.Ú. á Alþingi og ríkis- stjóm að semja, svo fljótt sem við verður komið, um aðild að Frí- verzlunarbandalaginu (EFTA) til þess að tryggja að útflutningur íslenzkra sjávarafuröa njóti ekki lakari viðskiptakjara en gilda um sjávarafurðir f viðskiptum þessara landa. Jafnframt fari fram athugun á aðild íslands að Efnahagsbandalagi Evrópu (EBE), þar sem sérhags- munir íslands séu tryggöir.“ fþróttir — Framhald af bls. 3. vel. Hins vegar gerðist það nú að fjórða vítinu var sóað. Sigurður Einarsson var að verki í þetta skiptið. Þegar tvær og hálf mínúta eru eftir af Ieiknum skorar Jandro- kovic 15:15 af línunni og færist nú heldur betur fjör í leikinn. I næstu sókn Framara er þeim dæmt víti, sem Ingólfur fram- kvæmdi vítakastið, — og sannar- lega var heppnin meö Ingólfi og Fram, boltinn lenti í stöng, fór þaðan í hælinn á markveröinum og rétt drattaðist inn fyrir mark- línuna, — en nóg til að bæta við 16. markinu fyrir Fram. Jöfnunar- mark Partizan kom 55 sek. fyrir leikslok, laglegt skot og óvænt fyrir Framvörnina frá Marian Jaksekovic. Framarar reyndu að skora sig- urmarkið, en Júgóslövum tókst með bellibrögðum að halda bolt- anum sem mest úr leik og leið tíminn svo að ekki var skorað, leiknum lauk 16:16. Geta Partizan- menn vel við unað. Fram-liðið var satt að segja ekki upp á sitt allra bezta f gær, þó leikurinn hafi alls ekki verið sem verstur hjá liöinu. Vörnin stóð sig allvel, en hefur þó verið betri, en Þorsteinn í markinu stðð sig hins vegar afburða vel. Beztu menn Fram voru auk hans þeir Guðjón Jónsson, Sigurður Einarsson og Sigurbergur Sigsteinsson. Gunn- Iaugur átti ágætan leik og Pétur Böðvarsson sýndi rétta baráttu- andann og er sívaxandi leikmaður. Partizan sýndi sannarlega ekki eins góðan leik og viö mátti búast. Langbeztur leikmanna liðsins var markvörðurinn Jandrokovic, sem var mestallan tímann í markinu. Vörn liðsins er mjög sterk, enda hávaxnir menn í liöinu og ekki beint mjúkhentir, enda var óspart dæmt á júgóslavneska liðið. Pri- banic er góður leikmaöur og eins Ivan Djuranec, aðrir leikmenn nokkuð jafnir. Liðið lék mjög kerfisbundið, — stundum einum um of að flestum fannst. Þannig glataði liöið tækifærum, sem buð- ust. bara vegna þess að þau „pöss uðu ekki inn í kerfið", að þvf er virtist. Norski dómarinn var mjög góð- ur, en hann hefur dæmt hér áöur, leik Pólverja og íslendinga í HM, og fékk þá mjög góða dóma manna fyrir hlut sinn f leiknum. — jbp — Ástkær eiginmaður minn, INGIMAR JÓNSSON forstjóri Ægissíðu 72 lézt að Heilsuverndarstöðinni laugardaginn 11. þ. m. Jarðarförin auglýst síðar. Elín Jóelsdóttir. Söluskatfur Dráttarvextir falla á söluskatt fyrir 3. ársfjórðung 1967 svo og nýálagðar hækkanir á söluskatti eldri tímabila, hafi gjöld þessi ekki verið greidd í síðasta lagi 15. þ. m. Dráttarvextirnir eru 1%% fyrir hvern byrjaöan mán- uð frá gjalddaga, sem var 15. okt. s.l. Eru því lægstu vextir 3% og verða innheimtir frá og með 16. þ. m. Hinn 16. þ. m. hefst án frekari fyrirvara stöðvun at- vinnurekstrar þeirra, sem eigi hafa þá skilað gjöld- unum. « ’ 1 Reykjavík, 10. nóv. 1967, TOLÉSTJÓRASKRIFSTOFAN, Arnarhvoli Húsnæði óskast nú þegar fyrir léttan iðnað, 1-2 herbergi um 20 ferm., lofthæð minnst 2.55 m. Handlaug verður að vera fyrir hendi. Góð umgengni. Upplýsingar frá kl. 4-8 eftir hádegi í dag f síma 81013. 77/ leigu nokkur risherbergi í stóru steinhúsi. Á sama stað er til leigu gott geymsluherbergi. Uppl. á Njálsgötu 49 milli kl. 8 og 10 e. h. pappírsskurðarhnífur til sölu. Uppl. í síma 23102. TILKYNNINGAR Óháði söfnuðurinn. Kvenfélag og bræðrafélag safn aðarins. Munið félagsvistina í kvöld 14. nóv. kl. 8.30. Góð verð- laun. Allt safnaðarfólk velkomið. Bræðrafélag Langholtssóknar. Fundur í safnaðarheimilinu þriðjudag 14. nóvember kl. 8.30. Ólafur Oddur Jónsson stud. theol. flytur erindi um um alkirkjuhreyf inguna og margt fleira. idiUHL’l Veðrið Norðaustan kaldi og síðan stinn- ingskaldi, hvass um 1 Þykknar upp hætt viö lítils háttar með kvöldinu, bjart á morgun. SÍMASKRÁIN Slökkvistöðin 11100 11100 51100 Lögregluv.st. 11166 41200 50131 Siúkrabifreið 11100 11100 5133F Bilanasimar D N&H Rafmagnsv Rvk. 18222 18230 Hitaveita Rvk. 11520 15359 Vatnsveita Rvk. 13134 35122 Leiðrétting 1 tilkynningu frá séra Garðari Svavarssyni í Dagbókinni í dag á aö standa Laugarnessókn, en ekki Langholtssókn. Eru hlutað- eigendur beðnir velvirðingar á þessu. BELLA Vinkona mín gleymdi bikini baðfötunum sínum heima þegar hún fór til Mallorca. Er ekki allt í lagi að senda þau í litlu flug- umslagi.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.