Vísir - 13.11.1967, Qupperneq 12

Vísir - 13.11.1967, Qupperneq 12
tVT STR Mánudagur 13. nóvember 1967. Lögregluþiónninn lá meðvitundarlaus á þriðju viku Lögregluþjónninn hafnfirzki, sem slasaðist alvarlega fyrir rúmum 3 vikum, þegar hann ók út af Kefla- víkurveginum á leið í slysarann- sókn, er nú kominn til meðvitund- ar á ný, en hann hefur legið með- vitundarlaus á þriðju viku. Hann hafði hlotið mikinn áverka á höfuð og fótbrotnað, en meiðsli hans virð ast eftir atvikum hafast vel við, en engu að síður er hann enn þungt haldinn. Samið verði um aðild að EFTA 161 milljón króna lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóði Á fundi stjómar Alþjóöagjald- eyrissjóðsins 8. nóvember var sam þykkt aö veita Islandi lán að upp- hæö 3.750.000 dollara, eða 161.250. 000 íslenzkar krónur. Lántökuna annast Seðlabanki íslands, sem er fjárhAgslegur aðili að Alþjóöagjald eyrissjóönum fyrir hönd ríkls- stjómar Islands. Lán þetta er veitt samkvæmt reglum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um sérstaka aðstoð þeim þjóðum til handa, er verða fyrir áföllum vegna skyndilegrar og ófyrirsjáan- lækkunar útflutningstekna. Nefnist þessi tegund lána jöfnunarlán (compensatory financing) og eru al- menn skilyrði þeirra, að Alþjóða- gjaldeyrissjóðurinn telji, aö um tímabundna lækkun útflutnings- tekna sé aö ræða, er viökomandi ríki hafi ekki getað komið í veg fýrir. Lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er miðað við lækkun útflutningstekna á tólf mánaða tímabilinu frá októ- berbyrjun 1966 til septemberloka Framh. á 8. síðu. „Lax í Laxó## Lax í Laxá, heitir bók, sem kom út 20. sept s.l. hjá Albert Bonniers forlag í Stokkhólmi. 1 henni lýslr höfundurinn, Gösta Unefáldt, nokk urra vikna reynslu sinni af lax- og silungsveiöum og ferðalögum á ís- landi. Hann segir frá veiðum í Þing- Framh. á 8. síðu. — segja fulltrúar útgerðarmanna Aukafundur L.Í.Ú., sem haldinn var 29. sentember s.l. samþykkti að fela stjórn samtakanna, að taka afstöðu til og gera ályktun um hugsanlega aðild éöa samninga ís- lands viö Fríverzlunarbandalagið og Efnahagsbandalag Evrópu. Skyldi ályktunin verða send áfram til ríkisstjórnarinnar, ef hún yrði samþykkt af a. m. k. 3/4 stjórn- armanna. í framhaldi af samþykkt auka- fundar L.Í.Ú., var eftirfarandi á- lyktun samþykkt á stjórnarfundi L.Í.Ú. hinn 4. þ. m. mfeð 14 atkv. gegn 1. „Þar sem sjávarútvegur íslend- inga á nú í vök að verjast vegna aflabrests og gífurlegs veröfalls af- urðanna og Island er eina ríkið í Vestur-Evrópu, sem ekki hefur enn þá gerzt aðili að, eða hafið við- Framh. á bls. 8 Fjöldi manns hópaöist að til þess aö sjá bandarískan sýnikennara ýta úr hólum og leika listir sinar á þunga- vinnuvélar á gamla golfvellinum í gærdag. Óvedur fyrir austan: Mjölskemman lagðist saman í veðrinu — Vindhraðinn mældist 14 stig i verstu hrinunum á Norðfirði og Seyðisfirði Aðfaranótt sunnudagsins gerði mikið óveður á Austurlandi. Vindhraðinn komst upp í fjórtán stig á fjörðunum í mestu hrinunum. Nokkrar skemmdir urðu á húsum og lauslega hluti tók á loft. Mörg skip leituðu hafna á Austfjörðum á Iaugardagskvöld- ið og um nóttina og sóttist þeim seint á móti veðrinu, sem var af VNV. Ekki er þó vitað að neitt hafi orðið aö hjá skip- unum. Á Norðfirði stórskemmdist 2500 tonna mjölskemma hjá Síldarvinnslunni í veðurofsan- um. Lagðist skemman bókstaf- lega saman undan veðrinu, en mun þó ekki með öllu ónýt. Mestur varð vindhraðinn milli klukkan 1 og 4 um nótt- ina. Þá varð að hætta söltun á plönunum, því að vindurinn næddi um söltunarhúsin og ekki var hægt að hemja nokk- urn hlut úti við. Mældist þá vindhraðinn fjórtán stig bæði i Neskaupsstað og á Seyðisfiröi, þegar hrinurnar voru mestar. Fréttaritari Vísis á Seyöis- firði segir svo frá að rokið hafi gengið á með 'ógurlegum kvið- um, en hægði svo heldur á milli. Margt lauslegt fór á stjá í rok- ina, en ekki urðu neinir veru- legir skaðar af veðrinu á Seyð- isfirði, þó fuku nokkrar jám- plötur úr húsinu, sem nýlega hefur veriö byggt yfír söltunar- stöð Valtýs Þorsteinssonar, tunnur fuku i sjó og fleira slikt. Undir morguninn tók að hægja og I gær var komið sæmi legasta veður. Bátamir létu úr höfn, en ekki var komið veiði- veöur á miðunum fyrr en í morgun, en þá voru skipin byrj- uð að kasta. Göngin voru þarna nýopnuð fyrir almenna umferö. Jeppi og stór flutningabíll eru að koma út Siglufj.megin. Strákar? — Strókar? Ófært var til Siglufjarðar i gær og á laugardag Strákagöngin, hin mikla samgöngubót fyrir Siglfiröinga, sem opnuð voru meö pomp og pragt nú fyrir helgina, komu að litlum notum í gær og á laugar- , dag, því aö leiöin til Siglufjarö- ar var lokuð vegna snjóþygnsla i skriöunum, sem eru vestan- vert frá kaupstaðnum. Þó tókst að ryðja leiðina fyr- ir rútubíl, svo að Siglfiröingar eru enn einu sinni komnir í samband við umheiminn. Hið sérkennilega orö Stráka- göng hefur vakið nokkra athygli og fróðir menn telja, að hér sé um að ræöa enn eitt dæmiö um úrkynjun íslenzkra tungu. Sumir telja, aö hin strýtumynduðu fjöll þarna í noröri hafi áður — Strýtur? fyrr borið nafniö „Strókar" eða jafnvel „Strýtur" og hafi það orð síðan tekið breytingum til hinnar núverandi myndar, Strákar. En hvað sem öllum nafngift- um líöur virðist þarna vera um hina mestu samgöngubót að ræða og líftaug fyrir Siglfirð- inga, og ber því að fagna þess- ari framför í vegamálum. Courtright til heila hauga og sýndi auk þess notkun vél skóflu, Caterpillar-umboðið hér heima beitti sér fyrir komu hans hingað, að beiöni Örygg- iseftirlits ríkisins og Dagsbrún- ar, sem nú eru að hefia nám- skeið í notkun þungavinnuvéla. Ætlunin er, að Courtright haldi fyrirlestra á námskeiðinu um öryggi í meðferð jarðýtna o. fl. „Ekki átti ég von á svona Framh. á bls. 8 sýndi i gær á námskeiði á gamla golfvellinum Um 300 manns þyrptust að gamla golfvellinum í gærdag og horfðu á bandarískan sýnikennara leika listir sínar á Caterpillar-þungavinnuvéiar, jarðýtur og gröfur, en kennar- inn er hingað kominn á vegum Öryggiseftirlits ríkisins og Dagsbrúnar, til þess að kenna stjórnendum þungavinnuvéla öryggi í meðferö slíkra véla. Þaö voru ekki aðeins jarðýtu- stjórar og slíkir, sem komu til þess að horfa á leikni Banda- ríkjamannsins, Joe Courtright, heldur einnig þeir, sem leiö áttu framhjá, og sáu sér þama færi á ókeypis skemmtun. Með D 6 C, 17 tonna jarðýtu, með hreyf- anlegu blaði og D 8 H, 38 tonna jarðýtu, með U-blaöi, færði KENNDI RÚSSUM Á CATERPILLAR

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.