Vísir - 27.12.1967, Blaðsíða 1
á sofandi konu
og henni veittur áverki
Brauzt inn tiB konunnur — BComst
undun ún þess uð verðu séður
Það var kyrrlátt og friðsaelt
um að litast, þegar horft var
yfir fjölbýlishúsin í úthverfun-
um á jólunum. Húsin voru böð-
uö Ijósum i öllum regnbogans
iitum, en inni í stofunum var
jólagleðin í algleymingi. Aftan-
söngur í útvarpinu — úr öllum
eidhúsum angan af hangikjöti,
rjúpúm eða hamborgarhrygg og
rauðvínssósum.
En þegar ró hafði aftur færzt
yfir heimilin, og fólk var gengið
til náða, lýstu Ijósin út í nátt-
myrkrið, því að það er siður
að láta ljósin lóga á jólanótt.
Gott jóluveður
Jólaveðrið var með bezta móti
þessi jól, milt, en nokkuð breyti-
legt. Hér sunnanlands voru yfir-
leitt rauð jól, þó að sums staðar
snjóaði lítils háttar og þiðnaði og
fraus til skiptis. Á Norður- og
Austurlandi voru hins vegar hvít
jól og í nótt var vaxandi norðan-
átt víðast hvar á landinu og skaf-
renningur, alit að 8 vindstig á
Norðurlandi með vægu frosti. í
Reykjavík var eins stigs frost i
morgun.
Spáð er norðanátt í dag um allt
iand og vaxandi frosti, en gert
ráð fyrir að lygni með kvöldinu.
EYSTCINH MTTIR
Olafur Jóhannesson tekur við formennsku i Framsóknarflokknum
Samkomulag hefur náðst um það i Framsóknarflokknum, að
Eysteinn Jónsson láti af formennsku í honum. Mun Ólafur Jó-
hannesson prófessor og þingmaður taka við sæti Eysteins að
sinni. Formannaskiptin munu fara fram innan tíðar.
Eysteinn hefur nú gegnt for- þingflokks Framsóknarflokksins
mennsku Framsóknarflokksins síð-, síðan 1943. Hann hefur átt sæti
an 1962, en hefur verið formaður' á Aiþingi samfieytt í 34 ár, fyrst
sem þingmaður S.-Múlasýslu til
’59, en síðan sem þingmaður Aust-
urlands.
Eysteinn hefur manna lengst set-
ið í stól fjármálaráðherra, 1934—
’39 og 1950- ’58. Viðskiptamála-
ráðherra 1939—’42 og menntamála-
ráðherra 1947—’49.
Brotizt var inn til konu í
nótt, þar sem hún lá í fasta-
svefni með kornabarn í vöggu
sér við hlið, og henni veitt
þungt höfuðhögg með barefli.
Vaknaði konan við, að blóð
ið lak niður eftir andliti henn
ar, og kallaði á hjálp, en ó-
dæðismaðurinn var á bak og.
burt, þegar henni barst hjálp-
in.
Konan var ein heima með
barni sínu, en maður hennar
var aö heiman, og bjuggu þau í
kjallaraíbúð í húsi einu í Blöndu
hlíð. Hafði hún skilið eftir Ijós
i herbergi sínu, þegar hún sofn-
aði og hafði bamið í vöggu við
hliðina á rúmi sínu.
Skyndilega vaknaði hún af
svefni, án þess að gera sér grein
fyrir hvers vegna, og fannst
henni, sem eitthvað rynni niður
eftir andliti sínu. Setti að henni
óhug og í ótta sínum hrópaði
hún á hjálp.
Húsmóðirin á hæðinni fyrir
ofan heyrði neyðaróp hennar og
Frh. á bls. 8.
Handriti
rússneskrar
skóldkonu stolið
og sntyglað
úr landi
Sovétska skáldkonan Sabrajkova
hefur í opnu bréfi ákært franskt
útgáfufyrirtæki fyrir ritstuld. —
Útgáfufyrirtækið hefur gefið út
skáldsögu, þar sem hún gagnrýnir
Staiin og Stalinstjórnina, en hún
heldur því fram að handritinu hafi
verið stolið og smyglaö úr landi
án vitneskju hennar.
Skáldkonan segir í bréfi sínu, að
hún hafi ákveðið að gefa bókina
ekki út og hafi það komið sér
mjög á óvart, að bókin hefði kom-
iö út í Frakklandi, þar sem pólskir
útflytjendur hafi gefið hana út.
Verð ú íbúðum Byggingarfélags verkamanna?
2-4 herb. íbúiir á 500-1100þús.
Blaðið í dag
Vegna jólahátiðar-
innar er Visir
aðeins 12 siður
i dag
l
í skýrslu stjórnar Byggingar-
félags verkamanna kemur meðal
Biksteinsvinnsla i
Loðmundarfirði:
Framleiða þyrfti
50 þús. tonn ú úri
í haust var á vegum iðnaðarmála-
ráðuneytisins tekið sýnishorn af
„perlíti“ eða perlustelni í Loðmund
arfirði, og var þar á feröinni Þor-
leifur Einarsson jarðfræðingur, en
þessar rannsóknir standa i sam-
bandi við væntanlega kísilgúrfram-
leiðslu við Mývatn.
Blaðiö hafði í morgun samband
við Pétur Pétursson forstjóra, en
hann hefur fylgzt með rann-
sóknunum. Hann tjáði blaðinu, að
í nóvembermáuði í haust hefðu
fimm mismunandi sýnishorn verið
send utan til Johns-Manville-fyrir-
tækisins í Kalíforníufylki í Banda-
ríkjunum. Þetta fyrirtæki hep'"
Frh. á
annars fram verð á íbúðum
þeim, sem félagið hefur látið
reisa við Bólstaðahlíð í Reykja-
vík, samtals 64 íbúðir á fimm
árum.
I fyrri áfanga þessara fjölbýl-
ishúsa var verð íbúðanna sem
hér segir: Tveggja herbergja í-
búð 502 þúsund, þriggja herb.
íbúð 605 þúsund og fjögurra
herbergja íbúð 845 þúsund. Er
það miklu Iægra verð en tíðkazt
hefur á íbúðum á fasteignamark
aðnum undanfarin ár.
| Hins vegar er verð á seinni á-
i fanga þessara bygginga miklum
■nun hærra, en þaö eru þær íbúðir,
sem flutt var 'í í sumar. Þar er
■ kostnaðarverð íbúðanna eftir því
sem næst verður komizt þetta:
I Tveggia herbergja 660 þúsund,
1 þriggja herbergja 790 þúsund og
1 fjögurra herbergja 1100 þúsund.
íbúðirnar eru afhentar eigendum á
kostnaðarveröi.
Þetta verð er ekki fjarri því sem
/ísir sló upp sem eðlilegum bygg-
ingarkostnaði íbúða í vor, en hins
vegar öllu lægra verð en tíðkazt
hefur á fasteignamarkaðinum, þar
sem tveggja herbergja íbúöir í
blokk hafa farið á 900 þúsund —
eða allt að því. En hins vegar hef-
ur íbúðaverð farið stórlækkandi síð
an í vor, eins og komiö hefur fram
í fréttum.
Byggingafélag verkamanna veit-
ir félögum sínum 450 þúsund króna
Ián að meðaltali á íbúð og er það
veitt til 42 ára. I sumar sem ieið
byrjaði byggingafélagið smíði
tveggja fjölbýlishúsa í Fossvogi, en
þar hefur félagið lóðaleyfi fyrir 72
íbúðir og loforð um lán fyrir þær
hjá Byggingasjóði verkamanna.
í félaginu eru nú 1200 félags-
menn og hafa rúmlega 450 fengið
fbúðir.
í stjórn félagsins eru: Tómas
Vigfússon, formáður (stjómskipaö-
ur), Ingólfur Kristjánsson, Alfreð
Guðmundsson, Jóhann Eiriksson og
Sigurður Kristjánsson, sem jafn-.
framt er skrifstofustjóri félagsins.
Leit undirbúin að
dreng á jóladagskvöld
Auglýst var eftir 7 ára gömlum
dreng í útvarpinu að kvöldi jóla-
dags. Drengurinn hafði horfið frá
húsi við Álfhólsveg f Kópavogi, og
var talið að hann hafi veriö á leið
heim til sín viö Fellsmúla. Hafði
ekkert spurzt til hans frá kl. 8
um kvöldiö, en kl. 23.48 var til-
kynnt um hvarf hans f útvarplnu,
en hjálparsveitir skáta voru tilbún-
ar að fara til leitar, ef með þyrfti.
12 minútum siðar, eða á slaglnu
12 á miðnætti, kom drengurinn
fram, — hann hafði verið i húsi
einu í Kópavoginum og líklega
gleymt sér við jólaleiki.