Vísir - 27.12.1967, Blaðsíða 4

Vísir - 27.12.1967, Blaðsíða 4
! leiki, nema þá uppstilltur raun- veruleiki, Mennirnir átta eru á gröfunni að elta unga stúlku. Þvi- lík martröð! Þvilíkir hugarórar eins manns, sem er allt í senn rithöfundur kvikmyndahandritsins, leikstjóri, leikari og framleiöandi þessarar kvikmyndar, sem nefnist „Gullna pillan“. Þessi maður er Horst Manfred Adloff, sem hlaut á sín um tíma góðan orðstír i kvik- 8 menn í gröfu að eltast og verður hún frumsýnd í miðj- um janúar n. k, I henni tekur hann til meðferðar hina mjög svo umtöluðu „pillu“, þessa einu pillu, sem síðustu árin hefur ver ið á allra vörum. Þessi getnaðar- vöm nútímans var honum til- efni nýrrar kvikmyndar, þar sem hann reynir að sýna kosti hennar og galla. Hann hefur tekið það til bragðs að gera það með dæmtrm — við unga stúlku Þetta er atriði úr kvikmynd .— draumsýn ungrar stúlku — enda gat það tæpast verið raunveru- myndaheiminum fyrir myndina „As“. Þetta er þriðja mynd Adloffs dæmigerðum dæmum úr lifandi lífi. Handritið að kvikmyndmni byggði hann upp á viðtölum við konur — giftar og ógiftar, ung- ar og gamlar með alls konar skap geröir. Skapharðar vændiskonur ur, sem fátt er orðið heilagt, jafnt sem bljúga og trúaða frú. Miöpunkturinn er þó þrjár ungar stúlkur, ógiftar, sem eiga við að stríða alvöruna, sem „fylgir öllu gamni". Ein þeirra er Elke. Næg bílastæði Flugeldar og blys í fjölbreyttu úrvali Uwgovegi 178 Sfmi 38000 Yztu blöðin voru látin halda sér, svo síður upplýstist um inni- hald bókanna, en þegar tollþjón- amir hristu bækurnar komst allt upp. Nokkrum dögum seinna hafði lögreglan handtekið Englending nokkum, sem áður hafði verið viðriðinn eiturlyfjasmygl, og fannst hjá honum eldri sending af Kóraninum. Adloff notar mikið drauma og draumsýnir til þess að lýsa hugs- un stúlknanna. Þegar Elke, sem er of feimin til þess aö fara til læknis og fá sér hjá honum „pillur“ tekst að útvega sér þær með ólöglegum hætti, fyllist hún kvíða. Kvíða um, að hún sé að gera rangt með því að nota pill- una. í draumi finnst henni, að hún sé elt af kennurum sínum, fyrrverandi, í gröfu. Það vom ekki aðeins brot gegn innflutningslögunum og lyfjalög- h gjöfinni, heldur einnig örgustu helgispjöll. Einhver ætlaði sér að leika á tollayfirvöldin í Dan- mörku og lauma inn í landið eiturlyfjum. Meðal pinkla, sem fóru f gegn um tollskoðunina hjá Dönum um daginn, var böggull, sem átti að innihalda bækur. Það skorti ekk- ert á það. Víst voru það bækur. Tvö bindi af hinni heilögu bók þeirra Múhameðstrúarmanna — Kóraninum — en innihald bók- anna var ekki eins saklaust og titill þeirra gaf til kynna. Það hafði verið skorið úr blöð- um bókanna og myndað þannig í þeim holrúm, þar sem í var geymt eitt og hálft kíló af ,,Hashish“. KÓRANINN LEYNDI Á SÉR Stráksskapur á þingi Þaö er ekki oft, sem störf Alþingis vekja svo athygli frá degl til dags, aö almenningur hafi þar orðið á sérstaklega. Þó kemur það fyrir, að einstaka mál, pg einstaka viöbrögö þing- manna veröa til þess að vekja umtal utan þingsala. Svo varö þegar 3. umræða um fjárlög stóð yfir á þingi, að þá fundu tveir þlngmenn hjá sér hvöt til 38 leggja til niöurfellingu á fjár- lögum til Hallgrimskirkju. Fjár- málin eru aivarleg mál og efna- hagsmálin eru vissulega erfið viöfangs, þannig aö úrræði til úrlausnar fjárlögum ríkisins er þung ábyrgð á herðúm þing- manna. Þegar ætla má að tekj- ur ríkisins veröi takmörkunum * háöar venju fremur, þá er auö vitaö nauðsyn að skera niður f járveitingar í samræmi viö það. En hvort heppilegra er að skera niður fjárveitingar til hálf- byggðrar fjárfestingar eða til einhverra framkvæmda sem ekki eru hafnar, ætti ekki að vera vafamál. Hallgrímskirkja sem og aðrar fjárfestingar geta orkað tvímælis, en ákvarðanir um slíkar fjárfestingar á aö taka áður en byggingafram- kvæmdir heflast, en ekki eftir að milljónum hefur verið varið til byggingaframkvæmdanna og húsið er aö verða komiö undir þak. S.íka framkvæmd á að hespa af og taka til notkunar og á þaö jafnt við, hvort um er að ræða kirkju, skóla eða sjúkrahús. Þaö er alltof algengt, aö framkvæmdir séu látnar taka of langan tíma, sem oftast er vegna ónógs framkvæmdafjár. Ég minnist þess, aö tvær nýleg- ar fjárfestingar kostuðu minna fé en áætlað var vegna þess að fé til allrar framkvæmdarinnar var fyrir hendi, en þessar fram- kvæmdir voru Loftleiðahótelið og KísUgúrverksmiðjan við Mý- vatn. Það má bvi ætla að heild arframkvæmdir þjóðarbúsins séu talsvert dýrari en þörf er á vegna þess að verið er að framkvæma of mörg verk sam- tímis í stað þess aö Ieggja drög aö þvi aö fullgera þær fram- kvæmdir, sem þegar eru hafnar. Þessum þingmönnum hefði • verið nær að leggja til að fresta * einhverjum fjárfestingum sem • ekki em þegar hafnar, f staðinn • fyrir að leggjast á hálfnaö verk. J Þeir sem eru á móti Hallgríms- • kirkju áttu aö leggja rök sín • fyrir almenning áður en bygg- J ingaframkvæmdir hófust, og ef • þau rök ekki finna hljómgrunn J hjá fjöldanum, bannig aö fram- J kvæmdir hefjast eigi aö siður • þá er þaö lögmál lýðræöis að J minnihlutinn beygi sig. Þegar miklir erfiðleikar steðja • að, eins og allir eru sammála J um að geri nú og hafi gert • aö undanfömu, þá eru slíkar s handahófstillögur ekki til þess J fallnar að auka veg og virðingu • Alþingis gagnvart almenningi. J Þrándur í Götu. J •••••••••••••••••••••••••

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.