Vísir - 27.12.1967, Qupperneq 8
1 M 1 XÍ
ucácxúuicr X«ýv« •
I ÞAÐ MINNSTA
KERTI OG SPIL'
Vonandl hafa allir fengið eitt-
hvað fallegt í jólagjöf, „f það
minnsta kerti og spil“, eins og
'segir í vísunni, og enginn farið
í bannsettan jólaköttinn. Jólagjafa-
flóðið virðist ekki sjatna með ár-
unum og munu fá flóð veraldar-
innar langdrægari, að undanskildu
hinu eina sanna Syndaflóði og stóð
það þó eigi lengur en fjörutíu næt-
ur og fjörutíu daga, að sögn hinn-
ar heilögu bókar.
„Ég veit um stúlku, sem fékk 13
brúður í jólagjöf," sagði maður
nokkur við blaðið í morgun, „Ég
veit um fimm börn, sem fengu sam
tals tæplega fimmtíu jólaböggla,“
sagði annar, og sá hafði reiknað
lauslega út hve mikils virði þessar
gjafir hafi verið að meðaltali og
fer reikningur hans hér á eftir og
mun vera í meðallagi hár:
Bíll frá frænku kr. 150.00
Bfll frá frænda — 150.00
Bfll frá systur — 200.00
Þríhjól frá foreldrum — 500.00
Peysa frá ömmu og afa — 250.00
Péysa frá ömmu og afa — 200.00
Vettlmgar og húfa frá lang-
ömmu — 200.00
Bók frá frænda — 75.00
Bók frá frænku — 100.00
Kubbakassi frá bróður — 100.00
Samtals kr. 1925.00
18873
er vinningsnúmeriö i Happdrætti
Krabbameinsfélagsins. Vinnandinn
mun vera í Vestmannaeyjum.
Ef þessi fimm börn, sem fengu
um fimmtíu jólapakka samtals hafa
fengið gjafir sem voru álfka mik-
ils viröi, er verðmæti þeirra sam-
tals kr. níu þúsund sex hundruö
tuttugu og fimm , eða kr. 9.625.00
í tölustöfum.
Að sjálfsögðu er það efamál,
hvort gleði barnanna, sem fá svo
margar og verðmætar jólagjafir,
endist lengur en þeirra bama, sem
áður fengu „aðeins kerti og spil“,
en vlst er erfitt að breyta jóla-
gjafavenjum sem öðrum.
Bókaflóð í augum
erlends blaðamanns
Komið er út 4. hefti þessa árs af
tímaritinu Iceland Review. Er það
fjölbreytt og vandað að efni og út-
liti, flytur fjölbreýttan fróðleik um
land og þjóð.
Biskupinn yfir íslandi, herra Sig-
urbjöm Einarsson, skrifar grein um
kirkjuna á Islandi og birtar eru fjöl-
margar myndir af kirkjum, göml-
um og nýjum. Þá er fróðleg grein
um Fiske-bókasafnið í íþöku, við-
tal viö bókavörðinn, Vilhjálm Bjam
ar, sem bandarískur blaðamaður
átti við hann fyrir ritið.
Pétur Karlsson skrifar ferðalýs-
ingu frá Borgarfiröi og Snæfells-
nesi og birtar em f jölmargar mynd-
ir, bæði svart-hvítar og i litum, úr
þessum landshluta.
Bandarlskur blaðamaður, Tom
Bross, skrifar grein um heimsókn
til Islands að vetrarlagi og nefnir
hana — Undir norðurljósunum. —
Fjölmargar myndir fylgja greininni,
bæði svart-hvítar og í litum — dg
sýna Island í vetrarham.
Myndir em af fyrstu Islenzku
þotunni og myndskreytt frásögn er
einnig í ritinu af komu bandarísku
geimfaraefnanna hingað sl. sumar.
Erlendur blaðamaður í heimsókn
skrifar grein um bókaflóðið á ís-
landi, eins og þag kemur útlendingi
fyrir sjónir. Hann kom hingaö í
desember-mánuöi og ræddi við bóka
útgefendur og bóksala og niður-
stöður hans em athyglisverðar.
Eiður Guönason skrifar I þetta
hefti Iceland Review um Trygginga-
Þérarinn Björnsson
skipherrn létinn
Þórarinn Bjömsson, skipherra,
andaðist á aðfangadag, 64 ára að
aldrL Þórarinn var fæddur á Þverá
f Hallárdal í Húnavatnssýslu, son-
ur Bjöms Ámasonar. hreppstjóra
og Bryndísar Þórarinsdóttur konu
hans.
Þórarinn lauk farmannaprófi frá
Stýrimannaskólanum í Reykjavík
1924. Skipherra á varðskipum rlk-
isins varð hann 1937 og gegndi því
starfi æ| síðan, seinustu árin á
varðskipinu Óðni.
Þórarinn fékk aökenningu af
hjartasjúkdómi 1 vor og varð að
stíga á land af skipi sfnu og leggj-
ast irm á spítala. — Hafði hann
síðan náð bata og var að jafna sig
tíl þess aö taka við starfa sínum
aftur.
Kvæntur var Þórarinn Ruth
Trop döttur Magnúsar Jensens tré-
smíðameistara í Kaupmannahöfn.
HESTUR ÓSKAST
Taumléttur, veltaminn og viljugur hestur
óskast til kaups, með eða án reiðtygja. Hring-
ið í síma 50884.
Lokoð vegno vörutalníngnr
27. des. — 2. jan. næstkomandi
Verzlanir véladeildar SÍS
Armúla 3
stofnun ríkisins og hlutverk al-
mannatrygginga I íslenzku þjóðfé-
lagi. Magnús Finnsson skrifar um
Innkaupastofnun rlkisins og hið
fjölþætta starfsvið hennar. Þá er
sagt frá nokkrum iðnaðarfyrirtækj-
um á Akureyri.
Af mörgu öðru efni I blaöinu má
nefna almennar fréttir og fréttir
frá sjávarútvegi I samþjöppuðu
formi, bókaþátt, fróðleiksmola fyrir
ferðamenn og fleira.
Biksteinn
Framhald af bls. 1.
sent álit sitt áleiöis hingað til lands,
en það er ekki komið ennþá.
Ef álitsgerðin verður jákvæö,
verður væntanlega könnuð stæi;ð
námunnar, en talið er að hún þurfi
að afkasta um 50.000 tonnum ár-
lega til aö vinnsla borgi sig.
, „Perlít“ eöa perlusteinn er eðlis-
þungur, en hefur ekki mikið rúm-
tak, svo að vel færi á því að flytja i
hann út með þeim skipum, sem
lesta kísilgúr, en hann er tiltölu-
lega léttur en fyrirferðarmikill.
Johns-Manville-fyrirtækiö rekur
perlusteinsverksmiðju I Evrópu, en
hráefnið kemur eingöngu frá Milos
I Grikklandi, svo aö góöur mark-
aður er fyrir perlustein frá öðrum
stöðum.
Veröi nægilegt magn af perlu-
steini aö fá I Loðmundarfirði er þar
um aö ræða góða búbót, og þýöir
einnig mun betri nýtingu á þeim
:s'kiputh, sem verða I förum vegna
kísilgúrsins, þar eð efnið yrði flutt
sém ballest.
Róðizt á konu —
Framhald af bls. 1.
hraöaði sér niður til hjálpar.
Kom hún að henni, þar sem
hún stóö úti á gólfi meö andlitið
alblóðugt og sængin úti á gólfi,
en útidymar stóðu galopnar.
En engan sáu þær annan nær-
staddan.
Við eftirgrennslan komu í ljós
spor í snjónum eftir karlmann,
sem lágu frá útidyrunum og
yfir í næsta húsagarð, bak viö
næsta hús og út á götu, þar sem
slóðin hvarf. Við dymar hafði
maðurinn skilið eftir spýtuna,
sem hann hafði bariö konuna
með.
Hann hafði komizt inn I kjall
arann um opnanlegan glugga og
hafði auðsjáanlega staðið á
gægjum við gluggann áður. Sást
einnig á slóðinni, að hann hafði
áður gægzt á glugga næsta húss.
Ekki hefur enn tekizt að hafa
hendur f hári mannsins.
Næsta námskeið í tauga- og
vöðvaslökun, öndunaræfingum
og léttum bjálfunaræfingum
fyrir konur og karla hefjast
miðvikudaginn 7. janúar.
Uppl. í síma 12240.
Vignir Andrésson.
FLUG-
Eldflaugar
Rakeítur —
fjölbreytt
úrval
Handblys
i margar
gerðir og
litir.
Jokerblys
Stjöraublys
Bengal-blys
Gulí- og
silfurregn
| Vax-útiblys
loga Vz og 2
klukku-
stundir —
hentug fyrir
unglinga.
Sólir
Stjörnuljós
Stjörnugos
Bengal-eldspýtur
rauðar og grænar.
£ ,
Vetzlun
O. Ellingsen
Faðir okkar og tengdafaðir
KRISTJÁN GUÐJÓNSSON
fyrrverandi kyndari
lézt á Landspítalanum 24. þessa mánaðar.
Börn og tengdabörn.
Faðir okkar, tengdafaðir og afi
KRISTJÁN JÓHANNESSON
« skósmíðameistari
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 28.
desember kl. 1.30 e. h.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
n