Vísir - 01.03.1968, Síða 1
58. árg. - Föstudagur 1. marz 1968. - 52. tbl.
/ ____________________________/___________________
„EG TALDI MIG ORUGG-
LEGA DAUÐADÆMDAN
— sagði Sveinn Kristjánsson, sem var bjargað
naumlega við Kardimommubæinn
• Ég taldi mig örugglega
dauðadæmdan, þegar ég
gafst upp á sundinu og
straumurinn tók mig, sagði
Sveinn Kristjánsson, leigu-
bílstjóri á Hreyfli, hestaeig-
andinn, sem bjargaðist naum
Iéga við Kardimommubæ í
flóðunum, í viðtali við Vísi
i gær, þar sem hann lá á
Landakotsspítalanum. — Ég
vissi síðan ekkert af mér,
\ fyrr en ég tók að ranka við
mér á Slysavarðstofunni. Þá
var mér svo afskaplega kalt
að ég hélt að mér myndi
aldrei geta hitnað aftur.
Sveinn sagði tíðindamönnum
Vísis, að hann hefði ætlað að
synda yfir strauminn, „en ég er
liklega orðinn of gamall til að
þola slíkt", sagöi hann. „Einn-
ig var ég of mikið klæddur og
þungur á mér, en samt hefði ég
nú átt að geta synt þetta."
Ég er alinn upp á miili vatna
við Markarfljót. Bærinn þar sem
sem ég ólst upp, og dvaldi
10. síða
Starfsmenn Vatnsveitunnar báru sandpoka að vatnsleiðslunum
til styrktar.
Vantar lóðir í nágrenni
Rvíkur handa hestamönnum?
— Fákur getur ekki séð fyrir allra þ'órfum,
segir formaður félagsins
Fréttin um Kardimommubæinn, landinu. Spurningin er aðeins
sem stendur á einskismannslandi hvort byggingar þar heyri undir
uppi við Elliðavatn hefur vakið skipuiag Reykjavíkurborgar eða
athygli. Þeir sem hafa reist hest- Köpavogskaupstaðar.
hús sín á staðnum munu flestir
hafa samið um Ióðaréttinn við
Vratnsenda, og fáir munu draga í
efa ráöstöfunarrétt jaröarinnar yfir
Það eru ýmiss vandkvæði á því,
að hestamenn geti komið sér upp
ódýrum hesthúsum í nágrenni
)))»—> 10. síða
TJONIÐ AF VOLDUM FLOÐANNA
NEMUR TUGUM MILLJÓNA
• Tjónið af völdum flóðanna hefur orðið gífurlegt, næði á
vegum, húsum og öðrum mannvirkjum. — Þegar er ljóst að
tjónið nemur tugum milljóna, en skemmdir eru víða órannsak-
aðar enn og erfitt að meta tjónið.
• Vísir hafði í morgun tal af Snæbirni Jónssyni yfirverkfræð-
ingi hjá Vegagerð ríkisins, en hann var þá að safna gögnum um
skemmdir á vegum á flóðasvæðunum.
Sagði Snæbjörn að tjóniö næmi
vísast milljónum króna, en öll
kurl væru ekki komin til grafar
ennþá. Sagði Snæbjörn að vega-
skemmdirnar væru ákaflega víða,
í Borgarfirði, hér í sveitunum fyrir
ofan Reykjavík og í uppsveitum
Árnessýslu. Ótal ræsi hafa fallið
niður og skörð komið i vegi. Hins
vegar hefðu aðeins tvær smábrýr
farið í flóðunum, önnur hjá Háfs-
ósi við Þykkvabæ, ein á Mýrum
í Skaftafellssýslu.
Á Selfossi hefur orðið mest tjón
á húsum og sagði Jón Bjarnason,
hjá hreppsskrifstofunni þar að tjón-
ið næmi áreiöanlega nokkrum
milljónum. — Vatnið hefði flotiö
inn í yfir þrjátíu hús, en verulegt
tjón hefði þó ekki orðið nema í
sjö, eða átta ibúðarhúsum. Hins
vegar hefði orðið mikið tjón í
Tryggvaskála og eins á verkstæð-
um Kaupfélags Árnesinga, en þar
hefðu margar vélar skemmrt af
vatni. — Væri þar um að ræða
mikið tjón, sem ekki væri enn hægt
•að meta.
Vatnið hefur veriö að fjara smátt
og smátt úr húsum á Selfossi og
er fyrst hægt að fara að kanna
skemmdimar úr því líður á dag-
inn. Sumar fjölskyldur hafa misst
allt innbú sitt, en auk þess hefur
10. síða.
t
Sveinn Kristjánsson.
Verður H-degi frestaö vegna
yfirvofandi verkfalla?
— Strætisvagnarnir verða ekki tilbúnir í tima, ef til langvarandi verk-
falla kemur — Tveir árangurslausir sáttafundir haldnir i gær
anna fyrir hægri umferð og
breytingum á þeim gömlu verð-
ur ekki lokið fyrir H-daginn,
■ Fyrirsjáanlegt er ef til lang-
varandi verkfalla kemur, að
yfirbyggingu nýju strætisvagn-
Fjörugur fundur Stúdentufél. Reykjuvíkur
„Ekki að ástæðulausu að menn van-
treysta stjórnarandstöðunni
— ummæli löns B. Hunnibulssonur komu ú óvurt
■ Margir urðu til pess að nveða sér hljóðs á fundi Stúdenta-
félags Reykjavíkur í gær, sem haldinn var í Sigtúni, en þar var
lagt út af þeirri spurningu, hvort verkföll væru úrelt.
■ Fundarsókn vai sæmileg og meðal fundargesta voru ekki
aðeins stúdentar, heldur einn'g verulegur fjöldi verkamanna,
sem tóku drjúgan þátt í hinum frjálsu umræðum, sem fram fóru
að loknum ræðum frummælenda.
Formaður Stúdentafélagsins, i bauö fundarmenn velkomna, en
Ólafur Egilsson, setti fundinn og setti síðan fundarstjóra Braga
Hannesson, bankastjöra. Frummæl-
endur voru þeir Sv.inn Björnsson,
verkfræðingur. Sveinn Valfells, for-
s'.jóri, og Jón B. Hannibalsson, hag-
f’-eðingur.
Báðir þeir nafnar lýstu sig þeirrar
skoðunar að verkföll væru úrelt,
en í ræðu sinni vék Sveinn Björns-
son að því, hve fátið verkföll væru
orðin hjá nágrönnum okkar, Norð-
mönnum og Dönum, sem hann
taldi mikið að þakka samstarfs-
nefndum stjórna fyrirtækja at-
vinnurekenda þar og trúnaðar-
manna launþega. Taldi hann það
vera það, sem koma skyldi og innan
dlðar myndu verkföll hverfa úr sög-
unni með aukinni fræðslu í þeim
málum.
Ræðu Jóns Hannibalssonar var
klappað gott lof í lófa, enda þótti
hún skörulega flutt, þótt í lengra
lagi væri. Hann kom fundarmönn-
um oft á óvart í ræðu sinni með
ummælum í garð þeirra afla þjóð-
fí'.agsins, sem hann hefur oft verið
-> 10 síða
26. maí í vor. — Eiríkur Ás-
geirsson, forstjóri Strætisvagna
Reykjavíkur, sagði í viðtali við
Vísi í gær, að hinir 38 strætis-
vagnar, sem eiga að vera til-»
búnir fyrir hægri umferð fyrir
H-daginn séu algjört lágmark
sem hægt sé að komast af með
og hann geti ekki séð hvernig
hægt verði að halda uppi eðli-
legum strætisvagnaferðum, ef
þeir verða ekki tilbúnir.
30 nýir strætisvagnar eiga að
vera tilbúnir fyrir H-daginn og
breytingum á 8 gömlum vögnum að
vera lokið. Sameinaða bílasmiðjan,
sem sér um vfirbyggingu nýju
vagnanna hefur lokið um helmingi
verksins og 4 gömlu strætisvagn-
anna hefur verið breytt. Tíminn
til að ljúka framkvæmdum er þeg-
ar orði’nn knappur og er ekki fyrir-
sjáanlegt annað að breytingunum
verði ekki lokið, ef til langvarandi
verkfalla kemur.
Benedikt Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri hægri umferðar,
sagði f viðtali við Vísi í gær, að
*->- 10. síða.
i