Vísir - 01.03.1968, Síða 10
--^Síaiíj
10
VI S IR . Föstudagur 1. marz 19(fc.
Enn einn þfófnr
stnðinn oð verki
Kona nokkur varð vör grun-
samlegra athafna unglinga við
verzlunina Fáfni við Klappar-
stíg í nótt og gerði lögreglunni
aðvart. Þegar lögreglan kom
á vettvang um kl. 4, hafði hún
hendur í hári eins þeirra, sem
var staddur uppi á þaki verzl-
unarinnar, en hinir höfðu forð-
að sér. Var sá yfirheyrður og
fengust hjá honum nöfn hinna,
en síðan var hann fluttur heim
til sín og foreldrum hans sögð
sólarsagan. Ekki höfðu þessir
þokkapiltar náð að stela ne?nu.
Kestomenn —
»-»• 1 síðu
Reykjavíkur, og hestamannafélagið
Fákur fullnægir ekki þörfum allra.
Blaðið ræddi í morgun stuttlega
við formann félagsins, Sveinbjörn
''agfinnsson.
Hann sagði að Fákshúsin stæðu
i Selásslandi þarna skammt frá og
væru byggð samkvæmt skipulagi
Reykjavíkur. Þarna er aðstaða til
eð hafa um 450 hesta á vegum
Fáks, en auk þess standa á félags-
svæðinu sjö hesthús i eigu ein-
staklinga, sem falla undir sömu á-
kvæði og félagshúsin.
Farið var meö marga af hest-
unum, sem bjargað var úr Kardi-
mommubænum í Fákshúsin, og
fengu hestamenn þar skjól fyrir
um 50 hesta, en aðrir komu hestum
sínum fyrir á ýmsum stöðum og
hjálpa hver öðrum.
Sveinbjörn sagöi, aö það væri
ekki fullnægjandi lausn fyrir hesta-
menn, að koma hrossum sínum fyr-
ir hjá Fák, en þar er hugsaö um
þá að öilu leyti. Sumum hesta-
mönnum finnst hálf ánægjan fólg-
in í því að nostra við hesta sína
og sinna þeim sjálfir. Ennfremur
koma fjármálin þarna við sögu.
Fákshúsin eru reist til að full-
nægja ströngustu kröfum um eid-
varnaeftirlit og þess vegna mjög
dýr. Byggingarkostnaður um 25
*• 'sund krónur fyrir hvern hest, en
menn vilja geta komið upp ódýrari
húsum, sem ekki uppfylla skipu-
'-.asskiiyrðin.
Blaðið ræddi einnig við Harald
Teitsson, en hann var einn þeirra,
sem átti hesta uppi í Kardimommu-
bæ, þegar flóðin komu.
Haraldur sagöi, að húsið, þar
sem hestar hans og annarra félaga
hans voru geymdir, hefði nokkra
sérstöðu. Það var fyrsta húsið, sem
reist var í Kardimommubæ. Þeir
vissu, að á þessu svæöi er flóða-
hætta og völdu því hæsta staðinn
til byggingarinnar. Steyptur var
metershár sökkull undir braggann,
og þröskuldurinn hafður mjög hár,
bannig að eiginlega ekkert vatn
komst þar inn.
Þeir félagar fluttu burt hesta
sína, þegar þeir heyrðu, að komið
hefði skarð í stífluna.
Haraldur sagði, að ýmsar ástæö-
ur væru fyrir því, aö menn hefðu
ekki flutt brott hesta sína strax
fyrsta morguninn, þegar vitað var.
að hleypa þyrfti vatni af stíflunni.
Margir eiga ekki heimangengt á
morgnana, heldur koma uppeftir
á kvöldin til að sinna hestum sín-
um, og eins bárust fréttimar seint
út.
Hann sagöi, að það væri fjarri
| lagi, að menn létu sér í léttu rúmi
I liggja, hvaö yrði um hesta þeirra,
því að menn stunduðu ekki hesta-
mennsku af því að þeir nenntu ekki
að sinna hestum sínum, heldur
vegna þess aö þeir hefðu hina
mestu ánægju af því.
Haraldur var óánægður með, að
Fákur heföi ekki gert meira en
raun ber vitni tii að útvega félög-
um lóðir, þar sem þeir geta byggt
ódýr hús yfir hesta sína og haft
aðstöðu til að hugsa um þá sjáifir
„Það er eins og Fákur líti ekki á
hestamennina sem góða eða slæma
félaga.“ sagöi Haraldur, „heldur
eins og góða eða slæma kúnna.“
Að lokum hafði blaðið samband
viö Ásgeir Einarsson dýralækni og
spurði hann hvort nokkuð hefði
verið til hans leitaö af hestamönn-
um, vegna hesta. sem lentu j volki
í flóðunum.
Hann sagði að svo væri ekki og
taldi litla hættu á, að hestum yrði
meint af vosbúðinni, nema þá helzt
gömlum hestum. Gott ráð sagði
hann vera að gefa hestunum pensí-
lín eða þá kaff: og spíritus.
FSód’
.»-> 1. . -u
vatnið skemmt gólf og veggi.
Sagði Jón, að eftir þeim upplýs-
ingum, sem hann hefði aflaö sér
næði hvorki innbústrygging né
heimilistrygging til slíkra skaða,
sem veröa af völdum nátt.úruham-
í fara. Bæri fólkiö því skaðann sjálft.
Tjóniö af völdum Eiliðaárflóö-
anna er einnig óskaplegt og nemur
milljónum, þegar allt er tínt til.
Einnig hefur orðið tjón á mörgum
sveitabýlum, héyskaöar óg skemmd
ir á girðingurh og útihúsum.
Er af þessu ljóst að tjónið af
völdum flóðanna nemur tugum
milljóna og vérður seint metið til
fulls.
H-dagur —
1. Siðu.
allir aðrar leiðir yrðu reyndar, áð-
ur en gripið yrði til þess að fresta
H-deginum. Verkföll myndu skapa
mikil vandamál, sem myndu fyrst
og fremst bitna á breytingu stræt-
isvagnanna. Öllum öðrum tækniund
irbúningi vegna H-dagsins er að
mestu lokið og myndu verkföll því
ekki að öðru leyti bitna mjög á
undirbúningi H-dagsins nema ó-
beint.
Fulltrúar atvinnurekenda og ASl
sátu tvo fundi með sáttasemjara
ríkisins í gær, en enginn árangur
varð af fundinum. — Fulltrúar at-
vinnurekenda komu með tiliögu
um, að verötryggingu launa yrði
frestað til haustsins, en fulltrúar
ASÍ höfnuðu þeirri tiilögu. — Aö
því er Snorri Jónsson, skrifstofu-
stjóri ASl sagði Vísi, voru tillögur
fulltrúa atvinnurekenda ekki nægj-
anlega ijósar og of margar óþekkt-
ar stærðir í þeim.
Nýr sáttafundur hefur verið boð-
aður kl. 21.30 í kvöld. - Einnig
héldu fulitrúar atvinnurekenda og
launþega á fund ríkisstjórnarinnar
í morgun til þess að fá nánari upp-
'vsingar um ýmis atriði. Sérstak-
'ega varðandi skattamál.
Stúdenfafundur —
í. siðu.
samne'fndur með. Það fannst á ræðu
hans, að hann teldi ekki verkföll
úreltari en önnur þjóðfélagsfyrir-
brigöi okkar, flokksræði, flokka-
skipulag, skólamál og fleira, sem
hann taldi upp.
Lítið 4 herbergja
skrifstofuhúsnæði er til leigu í rishæð Banka-
strætis 10. Lysthafendur sendi nöfn sín til
augld. Vísis merkt 1381. Uppl. ekki gefnar í
síma.
Hann taldi flest það, sem áunnizt
hefði í mannréttindamálum, væri
að þakka baráttu verkalýðshreyfing
arinnar, sem óspart hefði þurft að
beita verkfallsréttinum tii þess og
óvíða meir e.. í Bandaríkjunum,
sem hann taldi bezt á vegi stödd
í þeim efnum. , Þar hefði líka sú
barátta neytt atvinnurekendur til
þess að gæta meiri hagræðingar í
rekstri sínum, sem leiddi af sér
þá tækniþróun, sem þar hefði orðið.
Jón eyddi löngum tíma ræðu
sinnar í tal um ríkisstjórnir, sem
ekki réðu við verðbólgur og kvað
heizt mætti ráöa af úrslitum síöustu
kosninga, að kjósendur teldu ekki
stjórnina ábyrga gerða sinna í þeim
efnum. Einnig mætti ráða af þeim,
að „þeir treystu ekki stjórnarand-
stöðunni til nokkurs skapaðs hlut-
ar, sem væri kannski ekki að á-
stæðulausu."
I hinum frjálsu umræðum bar
mjög á því, að menn ættu erfitt
meö að halda sig við efnið. Leiðtog-
ar verkalýöshreyfingarinnar létu sig
vanta á fundinn, en þeirra hafði
verið vænzt.
Bjargaðist —
»->- 1. Siðu.
hálfa ævina, Miöeyjarhólmi var
umluktur vatni og ég var van-
ur vatni, þegar ég var yngri. —
Nú er ég oröin tæplega 55 ára
og ekki lengur jafn fær í slíkt
slark.
Sveinn virtist vera búinn að
ná sér að fullu, þó að ætlunin
væri að hann dveldi enn um
hríð á spítalanum. Hann hefur
verið leiguþílstjóri á Hreyfli síð
an 1944.
Ég ætla að biðja þig að lok-
um, að skila þakklæti mínu til
Eyvindar Hreggviðssonar, sem
bjargaði mér og öllum öðrum
sem nálægt því komu, sagði
Sveinn. Þetta mátti víst ekki
tæpara' standa. Þú skalt skila
sérstöku þakklæti til hennar
Helgu Odds. Hún rak víst á eft-
ir því að menn færu á hesti út
í árnar til að sækja mig og mér
skilst aö hún hafi sjálf ætlað
út í.
HljómsveSt —
m-> i6. síöu.
legast eða skemmtilegast á tón-
leikunum. Auk þess baö hann
þau aö teikna mynd af hljóm-
sveitinni eða því, sem tónieik-
arnir komu í hug þeirra. Á
næstu skóiatónleikum, sem
haldnir verða 27. marz kl. 10:30
og kl. 14 og 28. marz ki. 14,
verða svo verðlaun veitt fyrir
mynd og eða bréf og fær verð-
launahafinn aö stjórna hljóm-
sveitinni.
Þegar þetta var tilkynnt á
tónleikunum, urðu mikil fagnað
arlæti meðal hinna ungu áheyr-
enda — og vonandi láta þeir nú
sitt ekki eftir liggja, og gleyma
ekki heldur að senda nafn og
heimilisfang með.
Gylffí Þ. —
16. síöu.
tekjurnar lækkað um 9%. Enn
sem komið er bendir ekkert til
i þess, að árið 1968 muni verða hag-
j stæðara en árið í fyrra. Ég benti
; á, að nú á þessu ári höfum við ekki
sömu skilyrði til þess að draga úr
áhrifum áfallanna utan að með
því að eyða gjaldeyrisvarasjóði og
taka erlend, lán. Undir þessum
kringumstæöum getur því almenn
kauphækkun allra launþega og
bænda með engu móti oröið raun-
hæf. Islenzka þjóðarbúið var í fyrra
rekið með miklu tapi. Það verður
í ár enr rekiö með miklu tapi. Nú
er engum Ukjuauka aö skipta milli
þegnanna, engum gróöa að deila.
Útflutningsatvinnuvegirnir tapa,
iðnaðurinn tapar og ekki telur land-
búnaöurinn sig ofsælan af sínum
hag. Launþegar geta því með engu
móti búizt við batnandi kjörum á
árinu 1968. Hækkað kaup í krónum
væri ekki aðeins sjálfsblekking,
heldur skaðleg sjálfsblekking, því
að hún myndi auka á þá erfiðleika,
sem eru þó sannarlega nógir fyrir.
Með þessu er þó engan veginn
sagt, aö ekki sé erfitt fyrir laun-
þega að bera þá kjaraskeröingu
sem óumflýjanleg er. Það eykur á
vandann, að minnkun þjóðartekn-
anna hefur ekki og getur ekki
snert alla hlutfallslega jafnt heldur
með mjög ólíkum hætti. Til eru
stórir hópar launþega, sem ekki
hafa að neinu leyti orðið fyrir
tekjuminnkun vegna minnkandi at-
vinnu, og er hér fyrst og fremst
um að ræða opinbera starfsmenn
og aðra fastlaunamenn. Sjómenn
og þá fyrst og fremst síldarsjómenn
hafa hins vegar hlotiö mesta skell-
inn, enda höfðu þeir að vísu hagn-
azt mest á undanförnu góðæri. Þá
hafa verkamenn og verkakonur og
sumir hópar iönaðarmanna orðið
alvarlega fyrir barðinu á sam-
drættinum í atvinnulífinu. Tekjur
manna f þessum stéttum hafa
minnkað verulega, vegna minnk-
andi yfirvinnu, afnáms yfirborgana
og jafnvel bems atvinnuleysis. Hjá
þessum stéttum, þessum hluta
launþeganna, er því án efa um al-
varlegt vandamál að ræöa. En
hvemig getur lausnin á því vanda-
máli verið fólgin í því að hækka
kaup allra launþega um 50%, þar
á meðal opinberra starfsmanna og
sjómanna og auk þess bænda, sem
lögum samkvæmt mundu fá hækk-
un á afurðaverði sínu? Samkvæmt
margstaðfestri reynslu hefur al-
menn kauphækkun svo að segja
þegar í stað í för með sér hækkun
á vöruverði, sem svarar til um það
bil 60% af kauphækkuninni, og
þegar frá líður hefur hún í för meö
sér vöruverðshækkun, sem nemur
svo að segja allri kauphækkuninni,
ef ekki á sér staö framleiðniaukn-
ing í þjóðfélaginu, sem leitt gæti
til vöruverðslækkunar, ef engin
kauphækkun hefur átt sér stað
Enginn hefur því í raun og veru
gagh af almennum kauphækkunum*
hjá öllum launþegum og bændum,
allra sízt þeir, sem orðið hafa fyrir
tekjuskerðingu vegna minnkaðrar
atvinnu, því aö fyrstu áhrif al-
mennrar kauphækkunar eru þau
að draga úr atvinnunni. I rauninni
er það algerlega órökrétt stefna að
berjast fyrir kjarabótum til handa
verkamönnum, verkakonum og iön-
aðarmönnum með þvt að krefjast
um leið jafnmikilla kauphækkana
fyrir t.d. opinbera starfsmenn og
bændum. því að kauphækkun opin-
1 berra starfsmanna og bænda, svo.
! aö dæmi séu tekin, rýrir auðvitað
! skilyrðin til raunverulegra kaup-
| hækkana fyrir verkamenn, verka-
| konur og iðnaðarmenn.
j En ef það er viöurkennt, að um
! sé að ræða raunverulegt vandamál
hjá t. d. verkamönnum, verkakon-
um og iðnaðarmönnum, hvað er þá
hægt aö gera til þess að ráða bót
á þessu vandamáli? Vandi þessara
stétta hefur fyrst og fremst skap-
azt veena minnkandi atvinnu. enda
þótt ekki hafi verið mikið um beint
atvinnulevsi, nema áður en vetrar-
vertíð hófst. Þess vegna hlýtur
lausnin á vandanum að vera fólgin
í því að auka atvinnuna og bar.
með raunverulegar tekjur þeirra,
en ekki að hækka kaupiö og stuðla
með því, aö atvinnan geti ekki vax-
ið, heldur minnki jafnvel. Ég er
þess vegna þeirrar skoðunar. að
raunverulegum hagsmunum laun-
bega, og þá sérstaklega þeirra sem
hölíustum fæti standa, þ.e. verka-
manna, verkakvenna og iðnaðar-
manna. sé bezt borgið með því
aö gerðar séu öflugar ráðstafanir
til þess að tryggja öllum vinnufær-
um mönnum stöðuga atvinnu, þrátt
fyrir erfiðleikana, sem að hafa
steðjað, eins og þeir hafa átt kost
á á undanförnum árum. Það væru
þær ráðstafanir, sem þessum laun-
þegum sérstaklega og raunar laun-
þegum í heild, yrðu að mestu og
beztu gagni.“
EE03EI
B5LLA
Allt í lagi Hjálmar, við hitt-
umst eftir tíu mínútur. Ég á bara
eftir að hreinskrifa sjö bréf, póst-
leggja tíu, taka til í skjalaskápn-
um og ....
Veðr/ð
dag
Suðvestan átt,
allhvasst með
köflum í dag, en
heldur hægari i
nótt. Hiti um
frostmark.
lítsala á
karlmanna-
frökkum
Stórkostleg
verðlækkun
P. Eyfeld
Laugavegi 65