Vísir - 08.04.1968, Qupperneq 8
8
V1SIR . Mánudagur 8. apríl 1968.
90 milljón króna inn-
lánsaukning hjá Verzl-
unarbankanum
□ Aðalfundur Verzlunarbanka
íslands h.f. var haldinn s.l.
Iaugardag í veitingahúsinu Sig-
túni. Fundurinn hófst kl. 14.30
og var Geir Hallgrímsson kjör-
inn fundarstjóri, en þeir Gunn-
Iaugur J. Briem verzlunarmaður
og Sigurður Magnússon frkvstj.
voru kjömir fundarritarar.
Egill Guttormsson stórkaupm.
form. bankaráðs flutti skýrslu um
starfsemi bankans á sl. starfsári.
Kom fram í henni að starfsemi
bankans hafði farið vaxandi á ár-
inu. Innlánsaukning bankans í
sparisjóðsreikningum narri 89,7
millj. kr. eða tæpum 17% en
hlaupareikningsinnlán minnkuðu á
árinn um 5,3 millj. kr. Heildarinni-
stæður við bankann námu í lok
síðasta árs 689,5 millj. kr. Útlána-
aukning bankans nam 60,7 mill-
jónum kr. en auk þess voru veitt
lán úr Stofnlánadeild bankans að
upphæð 11,5 millj. kr. Heildarút-
lán bankans námu í árslok 561,2
millj. kr.
Á sl. ári var ákveðin hlutafjár-
aukning bankans og var hlutafé
hans aukið úr 12 millj. kr. i 30
millj. kr. Var mjög almenn þátt-
BirUenstock's
FUSSBETT
Skóinnleggsstofan
Kaplaskjóli 5
Sími 20158
taka í hlutafjáraukningunni. Þá
tók Stofnlánadeild verzlunarfyrir-
tækja til starfa á árinu og voru
veitt úr henni lán að upphæð 21,2
millj. kr.
Höskuldur Ólafsson bankastjóri
lagði fram endurskoðaða reikn-
inga bankans fyrir árið 1967 og
skýrði þá. Innborgað hlutafé á-
samt varasjóði námu f árslok 34,5
millj. kr. Inneign bankans hjá
Seðlabankanum var í árslok 125,5
millj. kr. og hafði staða bankans
gagnvart Seðlabankanum batnað
um 28,5 millj. kr. á árinu. Vara-
sjóður bankans nam í árslok 18.0
millj. kr. og hafði hann hækkað
á árinu um eina millj. kr.
Aðalfundurinn ákvað að greiöa
hluthöfum 7% arð af hlutafé sínu.
1 bankaráði voru kjömir fyrir
næsta starfsár Þorvaldur Guð-
mundsson forstj., Egill Guttorms-
son, stórkaupm. og Magnús J.
Byrnjólfsson kaupm. Varamenn eru
Sveinn Bjömsson, skókaupmaður,
Vilhjálmur H. Viíhjálmsson stór-
kaupm., og Halldór Sveinsson
forstjóri. Endurskoðendur bankans
voru kjörnir Jón Helgason kaup-
maður og Sveinn Bjömsson stór-
kaupmaður.
Fundinn sátu 250 hluthafar og
kom fram á fundínum einhugur
fyrir eflingu bankans og þá eink-
um fyrir því, aö bankinn fengi
heimild til þess að hafa með hönd-
um erlend viðskipti.
Unga kynslóðin —
-> af 12. síðu.
dæma, vera fyrirfram búnir aö
sætta sig viö þriðja sætlö.
Úrslitin urðu þau, að Hljóm-
ar hrepptu titilinn Vinsælasta
hljómsveitin 1968. Samtals
hlutu þeir 658 atkvæði, f ððru
sæti urðu Flowers meö 335 at-
kvæði og 253 ungmenni tryggðu
Óðmönnum þriðja sætiö. <$>
Loksins kom að því, sem
allir höfðu beðið eftir —
krýning einhverrar af þeim sex
stúlkum, sem höfðu gengið um
salinn þá fyrr um kvöldið,
stuttklæddar, samkvæmt upp-
skriift frá Kamabæ.
Formaður dómnefndar, Sig-
urður Hreiðar, ritstjóri Vikunn-
ar, skýrði frá störfum nefndar-
innar og gat þess. m. a. að
það hefði verið allt annað en
auðvelt að gera upp á milli
stúlknanna, hver þeirra væri
þess verð að kallast fyrir-
myndar unglingur. Hér væri
ekki fyrst og fremst um
keppni að ræða um fegurð, þó
það atriöi væri vitaskuld þungt
á metunum. Dómnefndin tók
sérstaklega tillit til persónutöfra
stúlknanna og á hvern hátt
þær svöruðu þeim spurningum,
sem fyrir þær voru lagöar.
Síðan afhenti Sigurður Svavari
þrjú umslög, sem höfðu að
geyma hið mikla leyndarmál,
hvaða þrjár stúlkur heföu kom-
izt í úrslit.
Þá lá mikil spenna í loftinu
er Svavar tilkynnti úrslitin.
1 þriðja sæti var Ragnheiður
Pétursdóttir, Guðrún Birgis-
dóttir önnur og titilinn fulltrúi
ungu kynslóðarinnar 1968
hlaut Soiffía Wedholm.
Þessum úrslitum var ákaft
fagnað og það fór ekki milli
mála, að viðstaddir voru sam-
mála dómnefndinni. Fulltrúi
ungu kynslóðarinnar 1967,
Kristín Waage, krýndi stöllu
sína.
Er sjónvarpsmenn og blaöa-
ljósmyndarar höfðu „filmað"
nægju sína, ræddi tíðindamaður
blaðsins stuttlega við Soffíu
Wedholm.
Hún er fædd á Eskifirði 13.
október 1950, og stundar þar
verzlunarstörf. Hljómar eru
hennar eftirlætishljómsveit.
Hún sagði, að það væri með
öllu ólýsanleg tilfinning aö
heyra sig útnefnda sem full-
trúa ungu kynslóðarinnar, en
augu hennar og yfirbragð op-
inberuðu þær tilfinningar, sem
hún átti engin orð yfir.
Hnfís —
1- síöu.
Siglingaleiðir, milli Sléttu og Bakka
flóa, virðast algjörlega lokaðar,
eins og er. Frá Glettinganesi að
Gerpi er ísinn um 4-6/10, en djúpt
af Gerpi er hann þó um 7-9/10,
og víða á siglingaleiðum á þess-
um slóðum. Þó virðist mega brjót-
ast þar áfram á öflugum skipum.
Um það bil 40 sjm. í austur frá
Kambanesi byrjar ísinn að ganga
saman og endar ísinn 4-6/10 um
18 sjm. s. af Hvalbak. ísevjar og
ísrastir liggja þó langt í SV. og
íseyjur liggja allt að Stokknesi.
Smá jakar og íshrafl hefur bor-
izt vestur fyrir Stokksnes, og mun
það sjást mjög illa í ratsjám, og
því hættulegt skipum.
Blaðið hafði samband við Ragn-
ar Sigurösson hafnarvörð á Norð-
firði í morgun og sagði hann að
ástand íssins væri svipað hjá þeim
og f gær, en þó 'hefði ísinn borizt
heldur frá höfninni I nótt, eins og
gjarnan með útfallinu. Hins vegar
sagði hann að mjög mikill ís væri
úti fyrir höfninni og teldist sigl-
ingaleiðin ófær, þótt Esjunni hefði
tekizt að brjótast í gegn meðan
lygnt var og bjart. Sagði Ragnar
að kalt væri í veðri og hefði greini
lega kólnað eftir að ísinn rak fyrir
fjörðinn.
Veður er nú lygnt og frostlaust
víðast hvar á landinu, nema á Norð
austurlandi, þar er frostið 5-6 stig.
BORGIN
Pdskahrota —
W-H 1. sfðu.
Mikil vinna er nú í verstöðvum
hér suðvestanlands. Sums staðar
er unnið dag og nótt í frystihús-
unum. — Mest mun þó um að
vera á Akranesi, en þangað kom
togarinn Kaldbakur og landaði þar
f dag fullfermi og bætist það við
vertíðarfiskinn, svo að það er stanz-
laus vinna framundan hjá fiskverk-
unarstöðvunum á Skaga.
BELLA
Forstjórinn segist ætla á vél-
ritunarnámskeiö ef ég verð hérna
áfram. Finnst þér hann ekki sæt
ur í sér?
Veðrið
i dag
Hægviðri og úr-
komulaust fram
eftir degi, sfðan
suðaustan kaldi
og dálítil rign-
ing.
Takið eftir
Nú er tækifærið
til að eignast glæsilegt svefnherbergis-
sett á ótrúlega lágu verði og með okkar
viðurkenndu greiðsluskilmálum.
Rúnt með springdýnum á
aðeins kr. 12.500.00
Einnig getum við boðið yður fyrsta
flokks íslenzkar springdýnur á aðeins
kr. 4.600.00 settið
og hollenzkar springdýnur á kr. 3.600.00.
Þetta hagstæða verð stendur aðeins út
aprílmánuð.
Hvar gerið þér betri kaup?
TRÉSMIÐJAN
LÁUGAVEGI 166 SÍMÁR: 2 22 22 OG 2 22 29