Vísir - 04.05.1968, Page 3
V1SIR . Laugardagur 4. maí 1968.
3
Nokkrir ræðumannanna. Frá vinstri: Baldvin Tryggvason - Davíð Sch. Thorsteinsson - Jóhann Hafstein — Arni Arnason
það getur enginn verið í vafa
um það, sem les blöð þessa
dagana eða fylgist með þjóð-
málum á annan hátt, að íslend-
ingar eru betur en nokkru sinni
fyrr að gera sér grein fyrir hinni
miklu þýðingu, sem íslenzkur
iðriaður mun hafa á framtíðar-
þróun iandsins. — Flestir virð-
ast gera sér grein fyrir að án
öfiugs iðnaðar verða áframhald-
andi framfarir vart hugsanlegar
hér á landi.
Það eru því ekki litlar kröfur
gerðar til hins unga íslenzka iðn
aðar í dag. Honum er ætlað að
verða samkeppnisfær við er-
lenda stóriðju nú þegar eða á
næstunni, eftir aðeins nokkurra
áratuga þróun og honum er ætl-
að að vera vaxtarbroddur lands-
ins.
Kröfur til íslenzks iönaðar eru
ekki gerðar í óþökk iðnaðarins,
heldur hafa íslenzkir iðnrekend-
ur blátt áfram beðið um kröf-
urnar, beðiö fólk að gera hlut-
lægan samanburð á íslenzkum
og erlendum iðnvarningi og
kaupa því aðeins innlent að verö
og gæði séu sambærileg.
Þeir hafa höfðað til fólksins
að kaupa íslenzkt, frekar en er-
lent ef vörurnar eru sambærileg-
ar, því á þann hátt er bezt hægt
að styðja íslenzkan iðnað og um
leið fslenzkt efnahagslíf.
Fulltrúaráð Sjálfstæðisfélag-
anna í Reykjavfk hefur síðan á
fimmtudag staðið að iðnþróun-
arráðstefnu, þar sem fjöldi
manna úr ýmsum iðngreinum,
embættismanna og stjórnmála-
manna hafa lagt orð í belg, hvað
helzt gæti orðið til að örva ís-
lenzkan iðnað. — Um 100 vald-
ir menn hafa sótt ráðstefnuna
og hafa lagt hausinn í bleyti um
alla hugsaniega möguleika til
framdráttar íslenzkum iðnaði.
Rætt hefur verið um kosti og
galla þes að ganga f Fríverzlun-
arbandalagið og á hvern hátt
megi nýta bezt þá möguleika,
sem opnast íslenzkum iðnfyr-
irtækjum með hinum stóra mark
aði Friverzlunarbandalagsins, ef
af því yrði að ísland gengi
í EFTA.
Það verður ekkert um þaö full
yrt á þessu stigi, hvaða gagn er
*áf slíkum ráðstefnum sem þess-
um. Það getur þó varla hjá þvf
farið aö einhverjar hugmyndir
vakni, þegar 100 reyndir hausar
stinga saman nefjum. Vel má
gera ráð fyrir að hver fundar-
maður hafi að meðaltali um 2Q
ára reynslu á ýmsum sviðum.
Reynsla þeirra allra ætti þvf að
jafnast á viö 2000 ára reynslu,
eins og einn fundarmaður komst
að orði, þegar hann ávarpaði
ráðstefnuna.
---------------------------->
Efri mynd: Fundarmönnum var skipt niður í umræðuhópa
og hverjum hóp voru fengnar sérstakar umræðuspurningar.
— Á myndinni sjást m. a. Ásbjörn Sigurjónsson, Hjalti
Geirsson cg Jón Sveinsson.
Neðri mynd: Nokkrir fundarmenn á ráðstefnunni. Á mynd-
inni sjást, dr. Bjarni Benediktsson, Jóhann Hafstein, Grímur
Bjarnason, Árni Brynjólfsson, Garðar Halldórsson, Bragi
Hannesson, Bragi Ólafsson, Böðvar Jónsson, Haukur Eggerts-
son, Kristján Jóh. '^ristjánsson, Hjörtur Jónsson, Bjöm Hall-
grimsson, Þórður Gröndal, Benedikt Gröndal, Jón Guðlaugs-
son, Guðmundur Ágústsson og Höskuldur Ólafsson.
100 hausar í bleyti
QGREIDDIR
REIKNINGAR
LATIÐ OKKUR INNHEIMTA...
Það sparar yður t'ima og óþægindi
INNHEIMT USKRIFST OFAN
Tjarnargötu 70 — /// Ziæð — Vonarstrætismegin — S'imi 13175 (3linur)