Vísir - 04.06.1968, Side 2
V1SIR . Þfiðjudagur 4. júní 1968.
i' ■
-V 'i ■ -~\
■í « ^
Þegar fór að rigna færðust gest-
irnir i aukana og unnu 4:1
— en frnm að þeim timu mátti varla á milli sjá hvor
aðilinn var hinn ,,svart-hvíti##
Ökunnugur hefði get- Keflavíkur og þýzka at-
að haldið í upphafi leiks
vinnuliðsins
Schwarz-
Weiss að keflvíska liðið
væri hið þýzka og öfugt.
•V/ :•
Upp úr þessu atviki skoruðu Keflvíkingar sitt eina mark. Sig. Albertsson álitu margir rangstæðan.
Það gerðu búningalitir fé-
laganna, Keflvíkingar voru
klæddir svörtum og hvít-
um búningum, en Þjóðverj-
arnir frá svart-hvíta félag-
inu voru alhvítir. Að auki
virtust Keflvíkingarnir svo
léttir og liprir að sjá miðað
við hina þungu og klunna-
legu Þjóðverja.
En styrkleikinn átti eftir að koma
í ljós. Þjóðverjarnir gáfu Keflvík-
ingum aldrei flóarfrið í leiknum og
enda þótt fyrstu 30 mínútumar eða
svo væru nokkuð jafnar, fór að
halla á Keflavík eftir það, ekki
sízt eftir að tók að rigna í seinni
hálfleik, þá var eins og þýzka
liðið léttist, en það keflvíska varð
þyngra og þyngra.
Eina mark fyrri hálfleiks kom
frá Þjóðverjunum. Það var á 32.
mín. að Wolfmar innherji hljóp
Ástráð v. bakvörð af sér, fékk
sendingu inn fyrir og var ekki
seinn á sér að notfæra þetta. Skor-
aði hann örugglega 1:0.
Snemma í seinni hálfleik skoraði
Bahnenkampfer fyrir Þjóðverja 2:0.
Þetta var mjög fallegt skot af víta
teigi, gjörsamlega óverjandi skot i
bláhorn marksins.
Þriðja mark Þjóðverjanna var
einnig óverjandi, en öllu slysalegra,
því skot frá þýzkum sóknarmanni,
gott skot, sem ekki er að vitað hvað
hefði gert, lenti í varnarmanni hjá
Keflavik, Iiklega Guðna, snarbreytti
stefnu, þaut með snúningi eftir
hálu grasinu í boga i gagnstætt
,hom og þar fór boltinn undir net-
ið og út úr markinu. Héldu menn
jafnvel að hér hefði ekki orðið
mark, svo snöggt gerðust hlutim-
ir.
Þegar 11 mín. vom eftir af leikn
um sendi Diter Wiershing, hinn
skemmtilegi v. úthverji Þjóðverj-
anna boltann fyrir markið. Þar tók
Bahnenkampfer á móti og skoraði
af 12—13 metra færi með skoti
neðst í homið.
Hinir 1200 áhorfendur í Keflavík
í gær fengu þó loks að sjá íslenzkt
mark þegar 2 mín. voru eftir. Það
var Grétar Magnússon sem tók við
boltanum eftir að markvörður þjóð
verja lenti í erfiðleikum með háan
bolta, sem kom að markinu, missti
hann frá sér til Grétars sem skor-
aði.
Orslitin voru ekki ósanngjörn.
Þjóðverjarnir voru mun sterkari að
ilinn, þótt þeir reyndar væm ekki
eins góðir í þesum leik eins og bú-
ast mátti við af atvinnumönnum í
iþróttinni. Langbeztur Þjóðverj-
anna var útherjinn Wirsching, en
mjög sterkir leikmenn vom þeir
Húlsmann og Kracht. Liðið leikur
allt of harða og grófa knattspymu
til að geta orðið skemmtilegt í þess
orðs fyllstu merkingu. Einn leik-
manna sparkaði f Einar Magnússon
að öllum ásjáandi. Hefði hann átt
skiiið að fá „frí*‘ það sem eftir var
leiksins, en Magnús Pétursson,
hinn snjalli dómari f þessum leik,
þyrmdi Þjóðverjanum 1 þetta sinn.
Af Keflvíkingum bar Kjartan af
f markinu, varði oft snilldarvel og
verður ekki séð hvaða markvörður
hérlendis stendur honum á sporði
um þessar mundir. Sigurður Al-
bertsson átti nú sinn bezta leik í
sumar og var mjög góður, Jón
Ólafur var sprækur, en Magnús
Torfason einlék of mikið, hreinlega
bauð Þjóðverjunum upp á að
„takkla“ gróflega.
Gavrilov
NÚ MÆTAST REYKJAVÍKURFÉ-
LÖGIN í 1. DEILDINNI
Fram og KR leika i kvöld — sjaldan hefur spennan veriö eins mikil i 1. deild
í kvöld veröur Reykjavík vett-
vangur 1. deildarinnar f fyrsta sinn
Keppa um heims-
meisfaratign
í haust
• Evrópumeistararnir í knatt-
spymu, Manchester United og
S.-Ameríkumeistararnir Estudi-
antes frá Argentínu munu mætast
í haust og keppa um heimsmeist-
aratitil knattspyrnufélaga. Var
þetta ákveðið f Manchester um
helgina, og leikur Manchester gegn
argentínska liðinu 4. sept. n. k. í
Buenos Aires, en 25. sept. mætast
liðin í Manchester. Þurfi aukaleik
til að útkljá hvort liðanna verður
heimsmeistari, verður aukaleikur-
inn annaö hvort í Hamborg eða
Amsterdam 3 dögum sfðar.
• Framkvæmdastjóri argentínska
liðsins undirstrikaði á blaða-
mannafundi að lið hans væri frægt
fyrir aö leika fallega knattspyrnu
án grófheita. „en viö leikum auð-
vitað enga kvennaknattspyrnu",
bætti hann við. Hann var ekki á
því að hér yrði um neina endur-
tekningu á hneykslisleiknum milli
Celtic og Racing f þessari keppni
að ræða, en þá var 6 leikmönnum
vísað af velli eins og menn muna.
í ár. Það eru Fram og KR, sem I þjálfara hefur tckizt að sameina
mætast í deildinni að þessu sinni j þessa krafta.
og eflaust er miklll spenningur | Fram er með sterkt lið, sem lék
fyrir þessum leik. Oft hefur 1 deild |
verið eitt spurningarmerki eftir'
í fyrstu leiki félaganna, en aldrei j
; hefur þetta spurningarmerki verið |
j eins stórt og það er í ár.
■ Ástæðan fyrir þessu er fyrst og
: fremst sú, að Vestmannaeyingar
sigra íslandsmeistara Vals með
' tal.sverðu öryggi og koma ekki
: fram eins og lið hafa gert til þessa
; f þeirra sporum. full af vanmáttar-
: kennd gagnvart ,.þeim gömlu" í
deildinni. Þá hafa Akureyringar
; komið hingað suður og unnið
í Keflavfk í fyrsta sinn, sem einnig
j er nýmæli. Akureyringar eru vanir
j aö tapa fyrstu 3—4 leikjunum, en
j vinna síöan þáð sem eftir er, eða
j svo gott sem.
í 1. deild i fyrsta sinn f fyrra og
vakti athygli með því að ná öðru
sæti í keppninni. Einnig þetta tið
er stórt spurningarmerki.
í leik Fram og KR á dögunum f
Reykjavíkurmótinu vann Fram með
2:1 í fjörugum Ieik, eins og menn
muna e.t.v.
stökk 2,20
• Tveir Rússar virðast ætla að
verða keppinautar um gullið í
hástökki í Mexíkó í haust, þegar
Ölympíuleikamir fara fram. Það
eru þeir Valentin Gavrilov, sem um
helgina stökk 2.20 metra f Moskvu,
og Valerij Skvortsov, en sá fyrr-
nefndi hefur alltaf nema einu sinni
sigrað þennan landa sinn, það var
á EM innanhúss i Madrid, þegar
báðir stukku 2.17 metra. Gavrilov
er 22 ára gamali stúdent og á bezt
innanhúss 2.18, en 2.20 er hans
persónulega met.
Norðurlandametið / kúlu-
varpi bætt um 26 cm.
— en Guðmundur Hermannsson bætir Islandsmetiö stórlega á hverju
móti — nú siöast á EÓP-mótinu i 18,45 — Noröurlandamet Svians
Bruch er nú 19,30 metrar
KR mætir til leiks að þessu sinni
meö liö, sem sannarlega lítur vel
út, alla vega á pappírnum, og nú
er það spurningin hvort KR verður
eitthvað annað og meir en ,,lið á
nappírnnm". Með menn eins og
Þórólf %eck, Eyleif Hafsteinsson,
Gunnar Felixson, Baldvin Baldvins-
son(?) og fleiri af harðskeyttustu
sóknarmönnum. okkar ætti KR að
geta orðið sterkt lið. Þar er að
finna sterka einstaklinga en spurn-
ingin er bara sú, hvort Pfeiffer
$ Menn gera sér e.t.v. ekki
grein fyrir því að Guðmund
ur Hermannsson, hinn 43 ára
gamli lögreglumaður, sem á
tvcim undanförnum mótum
Vormóti ÍR og EÓP-mótinu,
befur bætt íslandsmetið um
rúma G0 sentimetra, er kominn
framarlega á afrekaskrá Norð-
urlardanna í kúluvarpi, en nýj-
asta met hans i greininni er
18.45 og enginn er kominn til
með að segja fyrir um hversu
langt hann varpar kúlunni i
sumar. Þetta virðist aðeins
byrjunin.
• Um helgina var nýtt Norð-
urlandamet sett i kúluvarpi
í Stokkhólmi. Það var OL-von
Svía, Ricky Bruch, sem kom nú
fram eftir meiðsl. sem hann hef-
ur átt við að striða og varpaði
kúlunni 19.30 métra og bætti
Norðurlandametið um 26 senti-
metra. Sjálfur átti hann metið
áður, Serían var þannig: 18.42
— 18.82 — 18.38 - 19.30 —
18.73 og ógilt kast.
9 Sannarlega væri gaman að
sjá Guðmund i keppni við
3—4 af beztu kúluvörpurum
Norðurlanda. E.t.v. er möguleiki
á að hann hitti þá í keppni í
sumar og ætti það að vérða
gagnlegt fyrir Guðmund.