Vísir - 03.08.1968, Blaðsíða 2
•''ytfss//7//////*? s's? ^r/y/wv v >,7-//'//^ -*y.-o ^ **/■*,'*?**
#/'■///•/
VI S I R . Laugardagur 3. ágúst 1968.
Hvert fara menn um verzlunar-
mannahelgina ?
— Þúsundir fólks flýja göturykið
■ Eins og undanfarin ár flykkist fólk í stórhópum
úr bæjunum til sveitanna um verzlunarmanna-
helgina. Liggur við, að bæimir leggist í auðn þessa
daga, slíkur er flóttinn úr göturykinu. Oft hitta menn
þó fyrir nágranna sína í sveitasælunni, og enginn flýr
sjálfan sig. Hvert fer allt fólkið? Hér verða nefndir
nokkrir staðir.
■ Vestmannaeyjar
íþróttafélagið Þór sér nú um þjóð
hátíðina í Eyjum. Alexander
Guðmundsson, fréttaritari Vísis á
staðnum, kvað um fjögur þúsund
in hófst klukkan tvö í gær.
■ Þórsmörk
Hjáiparsveit skáta gengst fyrir
skemmtidagskrá í Þórsmörk. Hæst
skemmtir Rio-tríóið með þjóðlaga
söng. Fallhlífarstökk fer fram, á-
samt bjargsigi. „Jamsession" mun
vekja athygli. Léttklæddar „go go“
stúlkur sýna, og er þá sjón sögu
ríkari. Eldra fólk á þess kost að
stíga dans við tónlist við sitt hæfi.
Engar ræður eða ávöirp verða flutt.
Hreinn Halldórsson, einn forráða-
manna skemmtunarinnar, sagði 3-4
þúsundir manna væntanlegar, en i
fyrra voru gestir Þórsmerkur um
2 þúsund. Framkvæmdastjóri er
Tryggvi Friðriksson.
■ Húsafellssskógur
Fjölmennasta skemmtunin verð-
Unga fólkið hefur aldrei áður haft um jafn margar góðar útiskemmtanir að velja um verzlunar-
mannahelgina áður.
manns hafa notið hátíðarinnar f
fyrra, og væri nú búizt við sízt
minni fjölda. Flogiö var til Eyja
16 sinnum í gær. Veður var dumb-
ungslegt en ekki slæmt. Þjóðhátíð-
ber þar hina svonefndu „pop-hátíð“
Sjö hljómsveitir leika í átta klukku
stundir. Þær eru: Flowers, Óðmenn,
Sálin, Bendix, Pops og Opus 4, og
á sunnudaginn Mods. Einnig
ur væntanlega f Húsafellsskógi.
Vilhjálmur Einarsson, framkvæmda
stjóri hennar, kvað forráðamenn
hafa búið sig undir að taka á móti
allt að 15 þúsundum manna, og
yrðu þeir óánægðir, kæmu ekki 7-
8 þúsund. í fyrra voru gestir um
10 þúsund. Æskulýðssamtök Borg-
arfjaröar standa að skemmtuninni.
Bjargsig, „þjóðaríþrótt“ Vestmannaeyinga, verður meðal
skemmtiatriða á þjóðhátíðinni.
Vilhjálmur sagði forráðamenn
stefna að þvf að hafa eitthvaö fyrir
alla fjöiskylduna, eldri sem yngri.
Skipulagðar hafa verið fjölskyidu-
og unglingatjaldbúðir við skóginn.
■ Vaglaskógur
Fjölmörg æskulýðsfélög á Norð-
urlandi halda skemmtun í Vagla-
skógi. Þau eru: HSÞ, ÍBA, UMSE,
Æskulýðsfélag Akureyrarkirkju,
IOGT Akureyri, Skátafélagið, Æsku
lýðsráð Akureyrar, Félag áfengis-
varnar við Eyjafjörð og.Ungtempl-
arafélagið Fram. Einn aðstandandi
mótsins, Hermann Sigtryggsson á
Akureyri, kvað búizt við um 4 þús-
und gestum. I fyrra voru þar á
fjórða þúsund manns. Veðurútlit
væri gott, og veitingar og tjald-
stæði biöu gestanna.
■ Galtalækjarskógur
Umdæmisstúka númer eitt og ís-
lenzkir ungtemplarar halda mót í
Galtalækjarskógi. Gissur Pálsson,
framkvæmdastjóri mótsins sagð-
ist eiga von á um þremur þúsund-
um manna, en í fyrra voru þr um
þrjú þúsund gestir. Skemmtunin
veröur sett klukkan níu á laugar-
dag.
Hér hefur aðeins veriö getiö um
nokkra hinna fjöimörgu staða, þar
sem fólk mun safnast saman um
verzlunarmannaheigina. Um allt
land eru haldin mót og skemmtanir.
Stjórnmálafélög hafa skemmtanir
á nokkrum stöðum úti á landi. Nú
verða allir að biðja um gott veður,
svo að fólk geti notið náttúrunnar
og skemmt sér án þess þó að hrasa
á braut velsæmisins.
Lundinn, eða prófasturinn, setur svip á þjóðhátíðina.
Reistur pallur í Húsafellsskógi. Þar verður væntanlega fjölmennast.