Vísir - 03.08.1968, Síða 3

Vísir - 03.08.1968, Síða 3
VISIR • Laugardagur 3. ágúst 196». 3 • .. .1921.1923.1924.1926, 1929,1961 OG ? TVTenn velta því nú fyrir sér i alvöru hvort Askja sé komin fast að því að gjósa, en slíkt kæmi ekki á óvart, þar sem Askja er lifandi eldfjall og öðrum eldfjöllum fjörmeiri hér á landi. Hún hefur gosið hverju smágosinu á eftir öðru og nú er beðið eftir sjöunda gosinu á þessari öld. Öskjugos vekur öllu fremur spenning fremur en hræðslu, þar sem ráða má af gosferði hennar að hún mundi ekki gera mikinn usla með tiltæki sínu. Gos úr Öskju hafa jafna verið smá og sakleysisieg — öll þau seinni að minnsta kosti, svipaö og vikurhraungosið 1961. Sterkar líkur eru til þess aö Askja fari nú að ræskja sig enn einu sinni. Leiðangur Ey- steins Tryggvasonar, jarðfræð- ings og félaga hans inn að Öskju á dögunum leiddi í ljós að mik ið misgengi hefur oröið þar á landinu kringum Öskjuvatnið. Vikurröstin NA verðu vatns- ins er um 7 metra yfir vatns- boröinu og þykir líklegt að þar hafi landið risið um meira en 4 metra. Vatnsmælingar í Öskjuvatni hafa sýnt að vatniö hefur sigið stöðugt seinustu árin og er vatnsborðið komið langt niður fyrir það sem það var fyrir gos- ið 1961. Þar sem jarðrisiö hefur orðið viö NA-vert vatnið er mæl ingastaður, þar sem ferðamenn eru beðnir um aö mæla yfir- borð vatnsins með tommustokk, sem þar er geymdur ásamt gestabók, sem geymir nöfn ferðalanganna og niöurstöður þeirra. Þessi staöur er nú langt frá vatninu og er komin um 20 metra löng fjara út að vatn inu. Jarðrisið er talið hafa veriö á um 2ja km kafla. Þykir þetta vera táknrænn fyrirboöi eld- goss og er aðeins tímaspurning hvenær hraunspýjan brýzt upp á yfirboröiö. Mikill ferðamannastraumur hefur verið í Öskju í sumar og sögðu þeir leiðangursmenn, er fóru til mælinga í eldstöðvun- um um síðustu helgi að þeim hefði þótt þjónustan við ferða- mennina heldur bágborin. Það væri engu líkara en ekkert væri að skoða í Öskju. Langferða- bílarnir ækju fólkinu að fyrstu snjósköflunum. þar stigju ferða langarnir, sem margir eru út- lendingar, út í snjóinn og fikr uðu sig upp á hæðir Öskju, en leiðsögumennirnir sætu niðri í bílunum og hvíldu sig á meðan. Væntanlega myndu þeir taka viö sér ef gos kæmi upp þarna og ferðamannastraumurinn myndi að sjálfsögðu aukast um allan helming. Vikurhraunið breiddi úr sér yfir fannbreiðuna. (Ljósm. Sig. Þórarinsson.) Öskjugosið 1961 vakti að sjálfsögðu mikla forvitni og menn lögðu á sig erfitt fcrðalag upp að Öskju til þess að skoða nýja hraunið. — Leiðangurinn, sem myndin sýnir var farinn í október og hann hefur þarna staðnæmzt við rjúkandi hraunröndina. (Ljósm. Vísir Þorsteinn Jósepsson). Ljósmyndari Vísis flaug yfir gosstöðvarnar í Hraunhólum í Öskju 26. október 1961, þegar gosið var hvað mest og eldsúl- urnar stóðu hátt í loft upp. (Ljósm. Ingim. Magnússon).

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.