Vísir - 03.08.1968, Side 10

Vísir - 03.08.1968, Side 10
10 VISIR . Laugardagur 3. ágúst 1968. Það hefur aldrei orðið önnur eins ös við Bifreiðaeftirlitið og í gær. Allir hinir síðbúnu bif- reiðaeigendur komu með farartækin á síðustu stundu til að fá skoðun, en eins og allir eiga að vita, urðu öll ljós að vera stiilt fyrir hægri umferð fyrir 1. ágúst og lögreglan hefur lýst því yfir að viðbúnaður verði til að stöðva ólöglegar bifreiðir um leið og þær fara úr borginni. Ójafn leikur að keppa við erlenda aðila í sjónvarpsauglýsingum Framhaldsrannsókn á bókhaldi Páls iónassonar á Lamhastöðum • Skýrsla um framhaldsendur- skoðun í máli Páls Jónassonar frá Lambastöðum hefur nú borizt Saka dómi Reykjavíkur, að því er Þórður Björnsson yfirsakadómari sagði Vísi í gær. Sagði Þórður, að Ragnar Ólafsson, lögfræðingur hefði unnið að rannsókn á bókhaldi fyrirtækis Páls og hefði Ragnar samið um- rædda skýrslu. Þóröur Björnsson sagði Vísi enn- fremur, að stööugt væri unnið að rannsókn málsins. Þó væri það ekki enn komið á það stig, að það heföi verið sertt til saksóknara. • segir Gunnar J. Friðriksson um auglýsingasöfnun sjónvarpsins O Auglýsingadeild sjónvarpsins hefur reynt að afla sér auglýsinga erlendis. Hefur hún samið bréf til erlendra aðila, þar sem segir að framboð á iðnaðarvörum hafi hing að til ekki verið svo nokkru nemi hérlendis og flytja verði flestar fullunnar vörur til landsins. Blaðið sneri sér til formanns Félags ísl. iðnrekenda, Gunnars Friðrikssonar, og spurði, hvernig iðnrekendur tækju þessari stefnu sjónvarpsins. Gunnar kvað óvíst, viö hvað væri átt með iðnaðarvörum í bréf inu. Væri um almennar nauðsynja vörur að ræöa, þá væri meginhluti þeirra framleiddur hér. Hins vegar væri flutt inn verulegt magn til dæmis heimilistækja og' slíks. Aug- lýsingar í sjónvarpi væru helzt um hinar fyrrnefndu. Færu erlend ir aðilar að auglýsa í sjónvarpi hér svo að nokkru næmi, væri leikur- inn ójafn. :"..ir erlendu ættu sjónvarpsefni tilbúiö, sem kostaði þá lítið, og þeir hefðu meira fé til að verja í slíkt en innlendir iðn rekendur. Hann taldi, að ríkisút- varpið ætti að stuðla að aukinni at- vinnu og iðnvæðingu innan lands, en ekki að ójafnri samkeppni. Þótt íslenzku vörurnar væru betri í mörgum tilfellum, gætu útlending- ar f krafti'fjármagns með sjónvarps auglýsingum fengið yfirburði. ...............................: ................................ Rituð í léttum dúr svo allir skildu1 Morðið á Robert Kennedy: Sirhan yfirheyrður / gær Lýsti sig „ekki sekan" Sirhan Sirhan, sem handtekinn var og sakaður um morðið á Robert Kennedy 5. júní sl. og um aö hafa sært fimm menn aöra, var leiddur fyrir dómara í fyrradag til yfir- heyrslu , réttarsalnum á 14. hæö I þinghúsinu í Los Angeles. Nánustu ástvinir hans voru viðstaddir. Sirhan, sem er fæddur í Jórdan- íu og er 24 ára svaraði spurning- um dómarans um það hvort hann væri sekur um morðið, með því að segja: Ekki sekur. Ákvörðun var tekin um, að form leg réttarhöld skyldu byrja 6. nóv- ember. ?5 i C6 Ekki ailir á eitt sáttir með Hans Sif — Bókin „Bættir eru bændahættir" kemur út vegna landbúnaðarsýningarinnar ® „Bættir eru bændahættir" nefn ist ný bók, sem gefin er út til heiðurs íslenzkri bændastétt og kemur út á Landbúnaðarsýningunni 1968 sem hefst 9. ágúst. Undirtit- ill bókarinnar er Landbúnaðurinn, saga hans og þróun, og gefur vis- bendingu um efni bókarinnar. 28 bjóðkunnir menn rita sína greinina hver í bókina. Meðal þeirra eru t.d. ''erra Kristján Eldjárn forseti, sem á greinina „Upphaf byggðar og bú- skapar“, i bókinni, Ingólfur Jónsson ráðherra, sem skrifar um „Land búnaðarsýninguna 1968 og stöðu landbúnaöarins i þjóðfélaginu“, Sig ÁRNAÐ HEILLA Sextugur er í dag Sigfús Þ. Kröyer, verzlunarmaður Stigahlíð 14. urður Þórarinsson jarðfræðingur, | sem ritar „Berggrunnur íslands“ og ; ýmsir fleiri sérfræðingar á sviðum, j er lúta að landbúnaöi beint og ó- ] beint. ] Auk þess, sem bókin verður til i sölu 'á landbúnaðarsýningunni, | hafa fórráðamenn Þorra h.f., sern gefur bókina út, þeir Örn Johnson og Óskar Lárusson, haft samband við búnaðarfélög úti um landið. og verður bókin seld í gegnum þau. Kostar bókin á þennan hátt 470 kr. en rúmar 500 út úr bókaverzlunum. Söigðu útgefendurnir, að þeir hefðu lagt á það áherzlu viö höf- undana, að ritaö yrði um hvert efni í léttum dúr, svo að allir skildu. Bókin er 176 bls. að stærð, prent- uð tvöfaldri prentun hjá Grafík hjf. Halidór Pétursson gerði teikningar í bókina, en Ástmar Ólafsson teikn aði kápu og setti hana upp. • Ekki virðast allir vera á eitt sáttir um réttmæti sölu danska skipsins Hans Sif. Blaðið hefur snú- ið sér til tveggja aðila, þeirra Ein- ars M. Jóhannessonar, eiganda mjölfarmsíns sem í skipinu var og Sigurgeirs Sigurjónssonar hæsta- réttarlögmanns, en hann aöstoðaði björgunarmennina viö samninga- borðið ásamt Hauki Jónssyni hæsta ] réttarlögmanni. j | Einar M. Jóhannesson sagði: Upp , hæð sú sem okkur var boðið skip- ið á og björgunarlaun hefðu sam- tals gert hærri upphæð, en endan- legt söluverð skipsins varð. Það er ákveðinn grunur, sem við höfum um að um samspil hafi verið aö ræða hjá danska útgerðarfélaeinu og tryggingafélaginu, og það er KFUM Samkoma fellur niður annað kvöld. Næsta samkoma verður sunnudaginn 18. þ.m. fleira en eitt sem styður þann grun okkar. Björgunarmennirnir hafa senni- lega ekki kynnt sér nægilega samn ingana en þeir túlkuðu aö gefnu til efni þennan alþjóðasamning, að björgunarlaun, samkvæmt þessum samningi væru 50% af matsveröi skipsins. Sigurgeir Sigurjónssön hafði þetta til málanna að leggja. Varðandi þessi 50% var enginn slíkur samn- ingur gerður. Ef björgun hefði ekki tekizt, áttu björgunarmenn ekkert að bera úr býtum og bera allan kostnað sjálfir. Ef hins vegar tek- izt hefði að bjarga skipinu eiga bjöirgunarmenn rétt til björgunar- launa, sem eru ákveðin með sam- komulagi eða eftir úrskurði dóm- stóla. í þessu tilfelli náðist fullt samkomulag milli beggja aöila og fóru samningarnir mjög vinsamlega fram. /■ ( Svo segjum við það algjöra fjar- itæðu, að um eitthver-t samspil hafi verið aö ræöa hjá dönsku fé- lögunum. BELLA — Ekki taka símann, — ef. hann hringir 9 sinnum er það merki vin ar míns um, að hann vilji tala eins lega við mig. MESSUR Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Jón Auðuns. Neskirkja. Messa kl. 11. Séra Jón Thorarensen. Hallgrímskirkja. Messa kl. 11. Dr. Ja’ :b Jónsson. TILKYNNINGAR Langholtssöfnuður. Bæjarleiðir bjóða eldra fólki safnaðarins i skemmtiferð miðvikudaginn 7. ág- úst kl. 1 Safnaðarfél. sjá um veit ingar. Þátttaka tilkvnnist fyrir þriðjudagskvöld i síma 35750, 36207, 33580 og 36972. Samstarfsnefndin. Turn Hallgrímskirkju. Otsýnis- palluri n er opinn laugardögum og sunnudögum kl. 14 — 16 og á góðviðrisdögum þegar flaggaö er á turninum. MótmælS — 7’tr'-) "síftU mestu allt samstarf“ við KOMSOMOL, en svo nefnast samtök ungkomma í Sovét- ríkjunum. Miðnefnd Samtaka hernáms- andstæðinga segir í sinni til- kynningu m.a.: „Miðnefnd Samtaka hemáms andstæðinga lýsir yfir megnri andúð á þeim hótunum, sem felast í yfirlýsingu Varsjárfund arins og síðari ummælum opin- berra málgagna í Sovétríkjun- um í garö Tékkóslóvakíu. Jáfn- framt fordæmir miðnefndin dvöl sovézks herliös í Tékkósló- vakíu í trássi við vilja þjóöar- innar og væntir þess, að Tékkó- slóvakar fái framvegis aö ráða innanlandsmálum sínum sjálfir án- afskipta annarra ríkja i austri eöa 'estri." í tilkynningu Æskulýðsfylk- ingarinnar segir m.a.: „Sérhver tilraun eins flokks til að reyna með þvingunum og vopnavaldi að knésetja annan flokk er óviðunandi. Gagnkvæm áhrif flokka á stefnu -hvors annars hljóta að byggja á fortölum og málefna legri röksemdafærslu.“ maæmXFsrz saénsM vsgwwar

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.