Vísir - 14.08.1968, Blaðsíða 1

Vísir - 14.08.1968, Blaðsíða 1
 f§n i §§M&gpp vv p 58. árg. - MiOvikudagur 14. ágúst 1968. - 179. tbl. Sir Alec Guinness kemur til landsins í dag Þau hjónin munu dveljast hér i hálfan mánuð í DAG klukkan 14:10 kemur hinn frægi brezki leikari Sir Alec Guinness ásamt konu sinni til Keflavíkur með þotu Flugfélags íslands. Þau hjón- in hafa í hyggju að dveíjast hérlendis næsta hálfan mán- uð sér til hvíldar og afslöpp- unar. Sir Alec Guinness er löngu heimskunnur fyrir leik sinn í kvikmyndum. Hann er fæddur árið 1914 og hóf leiklistarferil sinn árið 1934, þá á leiksviöi. Fyrsta kvikmyndahlutverk hans var í mynþinni „Glæstar vonir“, sem gerð var eftir samnefndri sögu Dickens. Næst Iék hann i „Oliver Twist“, sem einnig var gerð eftir sögu sama höfundar, og var þá í hlutverki Gyöings- ins Fagin. Síðan þá hefur frægð- arferill hans verið óslitinn og hann hefur hlotið margvíslega viðurkenningu fyrir framlag sitt til leiklistar, meðal annars var honum fyrir nokkrum árum veitt aðalstign. Óskarsverðlaun- in bandarísku hlaut hann fyrir 10. síða. Slr Alec Guinness ásamt George Segal í kvikmyndinni „Qulll- erskýrslan“, sem sýnd var í Háskólabíói ekki alls fyrir löngu. ólöglega hratt. Stanzlausar hraðamælingar lögreglunnar í umferðinni 71 skrHabur upp i gær — Varbar allt oð 2000 kr. spktum M Það hefur verið komið við pyngjuna hjá allmörg- um mönnum að undanförnu, sem ekki hafa sinnt hraðatak- mörkunum. Lögreglan hefur haldið uppi stanzlausum hraðamælingum í umferðinni og margir verið stöðvaðir og skrifaðir upp — allt frá 20 og upp í 80 ökumenn á sól- arhring. ■ Síðast í gær stöðvaði lög- reglan 71 bíl, sem ekið var á ólöglegum hraða, en sá, sem ók hraðast mældist vera á 74 km/klst. Flestir þeirra sem stöðvaðir voru reyndust vera á um 60 km/klst. Viðurlög v! ' broti á hraðatak- mörkunum geta varðað allt að 2000 kr. fjársektum, ef málum, sem rísa af þeim, er lokið utan réttar eða hjá fulltrúa lögreglu- stjóra. „Algengastar eru þetta 300, 400 og 500 króna sektir.“ tjáði Kristinn Ólafsson, fulltrúi lög- reglustjóra, okkur. „Þetta fer þó eftir þvi, hvernig aðstæður hafa verið, þegar brotið var framiö og hversu vítavert þaö var.‘ Endurtekin hraðabrot hafa stundum leitt til ökuleyfissvipt- ingar, svo það getur vsrið mönn um dýrkey-:tur flýtir að auka hraðann fram úr því leyfilega, þótt framundan birtist beinn og greiðfarinn vegarkafli. Jafnvel þótt ekki sé tekið tillit til þeirr- ar hættu, sem þeir skapa sjálf- um sér og óðrum með því. Enn eru til ökumenn, sem líta til rangrar hliðar, þegar þeir koma að gatnamótum, eins og árekstr- arnir á Snorrabrautinni sýna. „Það verður ekki slakað á. 10. sföa. Þrír menn hnndteknir fyr- ir innbrotið í Sælnknffi — Mikill hluti þýfisins kominn fram Rannsóknarlögreglan hefur nú haft hendur í hári þjófanna, sem brutust inn í Sælakaffi aðfaranótt laugardags s.l. oz stálu þaðan tóbaki og sælgæti að verðmæti um 70 þúsund krónur. Athygli lögreglunnar beindist aö mönnunum bremur, sem nú sitia i gæzluvarðhaldi, þegar þess varö vart, að þeir höfðu óveniu mikiö fé handa í milli dagana eftir inn- brotið. Við yfirheyrslur hafa þeir allir viðui .ennt á sig innbrotið, en þeir höfðu farið um nóttina með station bifreið að innbrotsstaðnum og hlað- ið hana vörum. ^ Að því er Gísli Guðmundsson, j lögreglumaður, 'sem hefur unnið I að rannsókn málsins, tjáði blaðinu, | hefur enn ekki allt þýfið komið : fram, enda höfðu þjófarnir selt j megnið af því. Mest seldu þeir á einum stað 45 lengjur af vindl- ingum — einstaklingi, sem hefur skilað lögreglunni þvf öllu. Lögreglunni er kunnugt um, hvað orðið hefur af sumum hlutum þýf- ins, en öðru eiga þiófarnir I eftir að gera lögreglunni grein ; fyrir. Þess verður þó varla langt j að bíða, að það komi fram við frekari yfirheyrslur. m-y 10. síða. Heyfengur meiri en í fyrra — verði tíðarfar gott héðan af — segir búnaðarmálastjóri M Fyrri hluta sumars var mjög slæmt útlit um heyfeng þetta ár- ið. Kalskemmdir voru víða í tún- um og tregur heyskapur um land allt. 1 júlímánuði var hins vegar sprettutíð og spratt á túnum, nema þeim skemmdu. Jafnvel hluti hinna skemmdu hefur nú tekið við sér. Þar sem svokall- að dauðkal er, verður alveg að endurnýja, en hafi verið um topp kal að ræða, hafa túnin nokku'ð tekið sig á, þó er þar mikið um arfa. Samkvæmt upplýsingum Halldórs Pálssonar búnaðarmálastjóra, í morgun, er heyskapartfð u.a þrem- ur vikum sfðar en venjulega. Hefur hún verið góð á Austurlandi og allt vestur að Skagafirði. Gagnstætt er á'vestanverðu Suðurlandi, Snæ- fellsnesi og vestanverðum Ve.:- fjörðum. Þar hafa yfirleitt verið ó- eru miklu Veröi tíðarfar gott héðan í frá má bú- ast við, að h.yíengur verði nokkru meiri en í fyrra, en þá var hann að vfsu ekki mikill. Auðveldar er en í fyrra að kaupa hey fyrir þá, sem þess þurk.. sem er einkum á Norð- austurlandi. Bændur hafa nú þegar keypt heymagn. sem er meira en allt það, sem keypt var síðasta ár þurrkar, Heildarhorfur betri en á horfðist í-upphafi. Náhegt þúsund lóðir hreinsaðar á kastnað eigenda Hreinsunarflokkar borgarinnar hafa far'l inn á nálægt þúsund lóð- Ir f borgarlandinu og tekið þar til í sumar. M. a. hafa verið hrein^að- ir þaðan um 200 skúrar, 400 bíl- ræksni, lausatimbur og allir aðrir hiutir, sem ekki eru taldir riýti- legir. Er þetta gert i samræmi við auglýsingu frá yfirvöldunum i vor, að ef lóðaeigendur hafi ekki hreinsað til hjá sér fyrir tiltekinn tíma, verði það gert á kostnað þeirra. Blaðið talaði í morgun við Guð jón Þorsteinsson deildarstjóra hreinsunardeildar borgarinnar, sem skýrði frá þessu og því að nú væru wiglingaflokkarnir, sem hreinsunar deildin hefur í vinnu aö sumarlagi, búnir að fara yfir opin svæöi í borginni. Hafa vinnuflokkarnir nú nær farið yfir allt borgarlandið f hreinsuninni í ár. Guðjón sagði ennfremur að mest hefði orðið að hreinsa til i iðnaðar- hverfunum, en verksiiúöjueigendur væru slæmir með þaö að hreinsa ekki til f kringum iðnaðarfyrirtæki { sín. Einnig var töluvert tekið til í gamla bænum en i nýrri hverf- unum kvað Guðjón ástandið yfir- leitt vera gof*- Taldi Guðjón borgina hafa fríkk- að við þessar aðgeröir og reyndar hefði mikið áunnizt á síðustu 10 árum en hreinsun borgarlandsins er nú orðinri árlegur viðburður. Búið nð salta 3500 tunaur í I. Hentzer . Síldarsöltunin um borð i Elisa- betu Hentzer ú miöunum við Sval- barða virðist ganga mjög vel. Búið að salta í um 3500 tunnur í morgun og var saltað 231 tunn’ i nótt er leið. Engin veiði var hins vegar á mið unum í nótt, enda bræla, fjögur til sex vindstig á veiðisvæðinu Hefur vistin verið heldur daufleg þar norður frá sföustu sólarhring ana, en aðeins fjögur eða fimm skip hafa fengið veiði síðan fyrir helgi. Megnið af flotanum hefur enga síld fengið undangengna viku Eitt og eitt skip er að tinast heim af miðunum öðru hverju til lagfæringa og von var á Jrettingi í morgun til Vopnafjarðar, var hann meö einhvern síldarslatta með ferðis.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.