Vísir - 14.08.1968, Síða 5

Vísir - 14.08.1968, Síða 5
VÍSIR . Miðvikudagur 14. ágúst 1968, Þær Hjördís Stefánsdóttir og Helga Teitsdóttir kynntu grænmeti á Landbúnaðarsýningunni. Grænmetisréttir af landbúnaðarsýningunni I/ynnmg á grænmetisréttum er ein þeirra kynninga, sem fram fara á Landbúnaðarsýning unni. Aidrei er góð visa of oft kveðin, segir málshátturinn og eftir honum förum við í dag meö því að koma með upp- skriftir af sumu því, sem kynnt var í Laugardalshöllinni á dög- unum í meöferð grænmetis. — Kvennasíðan hefur oftsinnis bent á hollustu grænmetis í sumar og birt ýmsar uppskrift- ir þar að lútandi. Viö eigum við vandamál að etja sem er að stuðla aö. vaxandi neyzlu græn- metis. Bæði er að grænmeti er fremur sjaldgæft í verzlunum og eins er það ekki beint í ódýr- asta verðflokki. Nauösyn græn- metis hefur heldur enn ekki festst fyllilega f vitund þeirra sem við matargerð fást það sjá- um við á þeim réttum t. d. sem eru á matseðlum veitingastaða. Viö ítrekum það að konur hugsi til þess að koma niður ofurlitlu af grænmeti næsta vor, ef þær hafa ekki gert það í ár. Þiö finniö kannski rúm fyrir garðholu í einu horni lóðarinn- ar og munuö ekki sjá eftir að rækta hai.a. Eins má nú strax benda á graslaukinn, sem hægt er að rækta allt sumarið. Einn- ig er graslaukurinn um leið og að vera góður til neyzlu ágæt skrautplanta í potti. Hann ber falleg bláfjólurauð blóm og hann verður að klippa vandlega til. Það sem þið klippið af honum berið þiö síðan á matarborðið. Gulrófnasalat og gulrótasalat. Rifnar gulrófur má nota eins og þær koma fyrir, bæði með kjöt og fiskréttum. Með því að blanda sítrónusafa eða súrúm á vöxtum saman viö fæst Ijúf- fengt salat. Fallegt er að hafa græn salatblöð undir skálinni og strá kryddgrænmeti yfir svo sem steinselju, karsa eða sól- selju. Gulrætur má nota á sama hátt. Ef söxuðum döölum, rús- ínum eða gráffkjum er bland- að í fæst sætt salat, sem mörg- um þykir gott. Amerískt salat. Stundum er gott að fá íburö armikið saðsamt salat, sem er hollt og orkuauðugt f senn. Hellið tveim matskeiðum af salatolfu yfir V2 hvítlauksgeira eða kryddiö olíuna með Vi — V2 tesk. af hvítlaukssalti, látið bíöa. Glóöarbakið tvo fulla bolla af hveitibrauðsteningum. Fyllið stóra salatskál með niðurrifnum kældum, stökkum salatblöð- um. Hellið þar yfir 1 dl af salat- olíu, 1 dl af rifnum sterkum mjóíkurosti, 1 dl af gráðosti. Brjótið 1 hrátt egg útí, bætið safa úr tveimur sítrónum í með egginu. Blandið öílu varlega saman með tveimur göfflum, bætið salti og pipar í eftir þörf. Takið hvítlaukinn upp úr olí- unni, hellið henni á brauðten- ingana og stráið þeim yfir um leið og þér framreiöið salatið. Sólseljuedik (diliedik). 1 1. vínedik. 2 matsk. sykur 1 matsk. salt 1 tesk. piparber 200 — 300 g sólselja. Þvoið sólseljuna, látið vatnið sígá af, leggiö í hrein glös eða , flöskur. Sjóðið saman edik, syk- ur, salt og pipar, kælið og hellið yfir sólseljuna. Lokið glösun- um. Nothæft eftir mánaðartíma. Sólseljuedik er gott að nota í salatsósur, síldarrétti og ýms- an mat, sem kryddaður er með ediki. Salatsósa á hrá júrtasalöt. 1 dl. sólseljuedik 3 dl salatolía 1 dl tómatsósa salt, piparrót. Hristið saman í flösku, krydd- ið eftir smekk. Salatsósa á grænt salat. 1 matsk. edik 3 matsk. salatolfa Vi tesk. salt Vé tesk. paprika 2—3 matsk. gráðostur 1 tesk. rifinn laukur. Þeytið þetta saman og hellið yfir salatið um leið og það er framreitt. Sæt sósa á grænmetis- eða ávaxtasalat. 2 egg 2 matsk. sykur 2 matsk. sítrónusafi eða vin- edik 2 matsk. ananassafi 1 matsk. smjör, salt á hnífs- oddi 2 dl rjómi. Þeytið saman allt annað en rjómann, hitið að suðu við mjög vægan hita, hrærið stöðugt í á meðan. Kælið. Þeytið rjómann og blandið saman við. Fylltur spánskur pipar. (4) 4 piparhulstur (paprikur) 200 g hakkað nautakjöt 1 matsk. brauðmylsna 2 Vt matsk. rjómi Vi tesk. tvítlaukssalt Vz tesk. salt, pipar 1 egg 14 pk. spaghetti, salt, vatn V2 dl. tðmatkraftur 2 matsk. smjör 4 matsk. rifinn sterkur ostur. Skerið lok af piparhulstrunum við stilkinn hreinsið fræin inn- an úr og skoliö úr köldu vatni. Blandið saman brauðmylsnu og rjóma, hrærið því út I kjötið og kryddið með salti, pipar og hvít lauk, bætið egginu í og meiri vökva ef þarf. Fyllið hulstrin með deiginu, leggið lokin yfir og látið þau í smurt eldfast mót. Bakið í vel heitum ofni í 35 mín. Sjóðið spaghetti í söltuðu vatni. Látið sfga vel af því, blandið smjöri og tómatkrafti f. Setjið spaghetti í kring um piparhulstrin og rifinn ost yfir. Bakið áfram í 5—10 mfn. TRABANT Viðhald, áfskriftir, vaxtatap og benzínkostnaður er minnstur á TRABANT. Það er ódýrara að aka f TRABANT en að fara með almenningsvögnum, jafnvel þó að reiknað sé bara með ökumanni, en ekki farþegum. Egill Thorlacius, Kópavogi, segir um TRABANT: „Ég hef átt TRABANT f tvö ár, við fórum fjögur á honum síðastliðið vor í 5 vikna ferðaiag til Hollands, Belgíu, Frakklands, Spánar, Ítalíu, Austurríki, Þýzka- lands og Danmerkur. 1 TRABANTINUM höfðum við allan viðleguútbúnaö svo að bfllinn var mjög þungur, en þrátt fyrir það stóð TRABANTINN sig mjög vel, hann er ótrúlega kraft- mikiH, eyðslugrannur, liggur vel á vegi, og alla þessa leið bilaði hann aldrei! Vöruflutningar um allt land TRABANT bifreiðar eru fyrirliggjandi TRABANT er alls staðar TRABANT-umboðið INGVAR HELGASON Tryggvagötu 8, sími 19655 - 18510 - Pósthólf 27. LfíNDFLUTM/MGfíH £ Ármúla 5 . Sími 84-C f@A®J SvefnbekKlr 1 úr ali á «-erkstæðisverðl.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.