Vísir - 19.08.1968, Blaðsíða 3
, V1SIR . Mánudagur 19. ágúst 1968.
SJÖ STIG SKILDU KR OG SKARPHEÐIN!
— og KR vann þvi bikar Samvinnutrygginga til eignar
■ KR vann til eignar fyrsta bikarinn í Bikarkeppni
FRÍ, en keppninni lauk í gær á Laugardalsvellinum.
Það er orðið langt síðan að svo spennandi keppni hefur
farið fram sem þessi. Skarphéðinsmenn höfðu yfir á
st'^atöflunni þrívegis í gær, síðan jafnar KR og enn
komust Skarphéðinsmenn yfir. Tvær síðustu greinarn-
ar gerðu út um slaginn, stangarstökkið færði KR 7,
stig, Skarphéðni aðeins eitt fyrir síðasta sætið, og 1000
m boðhlaupið vann KR örugglega, Skarphéðinsmenn
aðrir. KR hlaut 126 stig, Skarphéðinn 119, UMSK 112,
ÍR 103, Þingeyingar 80 og Ármann, sem kom í staðinn
fyrir lið Snæfellinga fékk 40 stig.
Engin efi er aö hér hefur verið
farið út á rétta braut, bikarkeppnin
ætti í framtíðinni að laða að sér
áhorfendur, keppnin sannaði það
um helgina enn betur en f fyrri
tvö skiptin hversu skemmtileg hún
getur orðið.
■ Tvö Islandsmet voru sett á mót
inu, Kristín Jónsdóttir UMSK kom-
ung Kópavogsstúlka hljóp 100 m
á 12,6 sek, Þetta met á hún ugg-
laust eftir að bæta stórlega síðar,
svo og metið í 200 metrunum. —
Stúlkur úr Skarphéðni settu og met
í 4x100 metra boðhlaupi á 52.5 sek
en sveitina skipuðu Sigríður Þor-
steinsdóttir, Unnur Stefánsdóttir,
Margrét Jónsdóttir og Þuríður Jóns
dóttir.
Af óvæntum atburðum f keppn-
inni má nefna það, að nær óþekkt-
|ur iR-ingur, Sigmundur Hermunds
Oskar bætti „met" sitt:
Hvað gerir
Olympiunefnd ?
son vann spjótkastið á 56.80 en Val
björn varð að lúta í lægra haldi
með 6 sm lakara kast. Stefán Jó-
hannsson úr Ármanni náði þarna
sfnu bezta 53.35. Þá kom það e.t.v.
ekki hvað minnst á óvart að Jón
Sigurðsson úr Skarphéðni vann ör-
uggan sigur yfir Halldóri Guð-
björnssyni úr KR í 5000 metra
hlaupinu. Jón fékk tímann 16.06.0,
Halldór 16.22.6 Gunnar Snorrason
UMSK fékk 16.26.8.
Af mörgum skemtilegum efnum
má nefna Karl Stefánsson UMSK f
þrfstökki. Hann stökk 14.85 (of
mikill meðvindur) og 14,75 þegar
löglega var um allt búið, og ætti
hann að verða okkur næsti 15 — 16
metra maður. Karl keppir með
Kópavogi en er raunar Skarphéðins
maður, Hefði sannarlega komið sér
vel fyrir Skarphéðin að hafa hann
með, f þrístökkinu hefðu þeir
grætt 4 stig. Stangarstökkvari frá
Snæfellsnesi, Guðmundur Jóhanns-
i son keppir sem gestur og stökk
1 3.80. Hann byrjaði að æfa s.l. vet-
ur og ætti að geta náð mun lengra.
Jón Sigurðsson HSK, sem vann
bæði 3000 og 5000 metrana er mjög
efnilegur hlaupari. Og má nefna af
rek Ólafs Þorsteinssonar, hins unga
hlaupara úr KR f 3000 metrunum
þar sem hann var þriðji á eftir Jóni
ÓSKAR SIGURPÁLSSON, Ármanni
setti nýtt Islandsmet í lyftingum
á laugardaginn, — þ.e. ef hægt er
að tala um íslandsmet þvf enn
hefur „sérsamband" lyftingamanna
ÍSl ekki séð fyrir lögl. dómurum
fyrir þessa keppnisgrein, þannig
að ekki verður enn unnt að tala um
met í greininni.
Óskar hafði áður en keppnin fór
fram náð samanlagt 437.5 kg í þrí-
þrautinni, pressu, snörun og jafn-
höttun, en ekki f einni og sömu
keppni. Met hans var 432.5 kg en
nú náði hann þessum árangri f
keppninni og bætti si, í pressun
157.5 kg, í snörun 122,5 kg og jafn-
hattaði 157,5 kg. Samtals er þetta
437.5 kg„ En það lágmark setti
OL-nefnd Mexíkó þeim löndum,
sem hugðust senda tvo menn í lyft
ingakeppnina. Þær þjóðir, sem að-
eins senda einn mann í keppnina
þurfa ekki að taka tillit til þessa
lágmarks. Er afrek Óskars mjög
gott, og væri ekki úr vegi fyrir OL
nefndina hér að taka fullt tillit til
lyftingamanna hér, sem hafa sýnt
ódrepandi áhuga og eru nú að
komast f hóp beztu lyftingamanna
á Norðurlöndum.
✓WVWNAAAA/WWWWWWWVWWNAAA/NAA^AA/'
Á Valur mögu-
leika eftir allt?
• VALUR eygir möguleika í 1. deild, — þrátt fyrir allt.
Vinni Valur KR í kvöld og Fram eftir viku, verða Valsmenn
með 12 stig. Sá möguleiki er fyrir hendi að Reykjavíkurfélög-
in þrjú fái öll 12 stig, hvað getur ekki gerzt’r
• Leikurinn í kvöld hefur mikil áhrif á gang mótsins. Vinni
KR má segja að sigur þelrra í mótinu sé bókaður, tapi þeir
hins vegar, fer hagur Vals að vænkast. Til að svona megi
fara verða Framar&r líka að tapa fyrir Val í síðasta leik móts-
ins og KR fyrir Keflvíkingum.
• Leikurinn í kvöld hefst kl. 19.30. Oft hefur verið spenn-
andi milli þessara tveggja „erfðafjenda“ knattspyrnunnar í
höfuðborginni, en sjaldan eins og nú. KR-ingar með hinn
dýra og góða þjálfara, Walter Pfeiffer frá Austurríki, vilja
endilega fá bikarinn í Kaplaskjól, finnst hann hafa verið ó-
eðlllega lengi „að heiman“, en Valsmenn vilja gjarnan að
bikarinn góði gisti Hlíðarenda enn íití árið, eða þriðja árið
í röð.
AAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAAA/
og Gunnari Snorrasyni úr Kópavogi
Ólafur hljóp nærri unglingametinu
hljóp á 9,33,4, sem íun vera 1,4
sek lakara en metið ,en slæmt veð-
ur var til að hlaupa. Sigurvegar-
inn hljóp á 9.16.0 Þá \ _kti það
verðskuldaða athygli að Þorsteinn
Þorsteinsson vann yfirburðasigur i
200 metra hlaupi á 22.1 sek, að visu
var dálítill meðvindur hluta úr
leiðinni, en tíminn er sé bezti sem
lengi hefur náðzt hér, meira að
segja með hörku með vindi.
Langstökkið vann Guðmundur
Jónsson HSK á 6.91 i meövindi, en
stökk unJir löglegum kringumstæð
um 6.83, Valbjöm 6.85. Kúluvarp-
ið vann Guðmundur Hermannsson
fyrir KR, eins og vænta mátti, varp
aði 17.94, Erlendur varpaði 15.50,
en Jón Pétursson, HSH, sem var
gestur varpaði 15.77. Jón Þ. ólafs-
son stökk 2 metra í hástökki, Val-
bjöm stökk 4.20 í stangarstökkinu
og átti tvær tilraunir við Islands-
metið en tókst ekki að slá það.
1 1500 metrunum vann Þórður
Guðmundson, UMSK á 4.13.7. Þá
vann Jón H. Magnússon gott afrek
f sleggjukasti, enda þótt kasthring
ur væri hráblautur, hann kastaði
53.08. Hann hefur nýlega sett Is-
landsmet f greininni, „brotið múr-
inn“ og nú ætti hann að ná lengra
og stórbæta metið, sem hefur dreg-
izt fskyggilega aftur úr þróuninni
á alþjóðavettvangi. Ekki síður var
það athyglisvert hjá Þorsteini Þor-
s' inssyn1 að hlaupa 400 metrana
f gær á 48,6 sek. Hvað getur hann
ekki við betri skilyrði?
- jbp —
16 ÁRA
SUND-
STJARNA
Sextán ára sundstúlka, Ea-
die Wetzel frá Bandarikjun-
um, setti um daginn heims-
met i 200 metra skriðsundi á
2.08,8, en gamla metið var
2.09.5.
Þá var um sama leyti sett
nýtt Evrópumet i þessari
vegalengd. Það setti Claude
Mandonnaud frá Frakklandi
á 2.12.4. Tékknesk stúlka,
Oiga Kozikova, átti fyrra met
ið og var það 2.14.4 mín.
R0ME/BEIRUT
RI0DEJANEIR0
L0ND0N
BERLIN
Hin nýja Chestetfield filter
fer sigurför um allan heim
Nýtt Chesterfield Filters
I