Vísir - 04.09.1968, Side 1
Dráttarbrautin á
Akureyri reynd í gaer
□ 1 gærkvöldi var fyrsta skipið tekið upp í hinni nýju dráttar-
braut á Akureyri. Það var togarinn Kaldbakur, sem einnig mun
hafa verið fyrsta skipið, cem tekið var upp í dráttarbrautinni í
Rejdcjavik.
Nýja vöruverBiB tilbúiB
/ vikulokin
Hækkunin mun nema 5-10°/o á innfluttum vörum
Búast má við að það taki nokk
urn tíma að reikna út nýtt vöru-
verð, samkvæmt hinum nýju
lögum um innflutningsgjöld og
álagningu. Samkvæmt þeim upp
Iýsingum, sem Vísir fékk í morg
un hjá verðlagsstjóra verður
nýja verðið ekki væntanlegt fyrr
en í vikulokin, en eftir er að
umreikna álagningu og því um
líkt.
Samkvæmt hinum nýju lögum
mun kostnaðarverð tollfrjálsrar
vöru hækka um 20%, en hins veg-
ar verður álagningin á hækkunina
aöeins 30% af heildarálagningu
vörunnar. — Vara sem er með
100% toll hækkar hins vegar I
kostnaðarveröi ekki nema um
10%. — Þannig verður hækkunin
mest á vörum sem eru í lágum
tollaflokkum og er þar á meðal
ýmsar matvörur og nauðsynjar.
Hins vegar veröur hækkunin til-
tölulega minni á vörum f háum
tollaflokkum, eins og svo sem fatn-
aður sem er tollaður þetta frá 60—
80%. Sjónvarpstæki og annað slíkt
er tollað 75% svo dæmi séu tekin.
m-* 10. síða.
Nýr fundur
í Prag eða
Moskvu
Nýr fundur sovézkra og tékkn-
eskra leiötoga veröur haldinn í
Prag í þessari viku, að því er full-
yrt er samkvæmt góöum heimild-
um.
Kosygin forsætisdáðherra Sov-
étríkjanna mun taka þátt í fund-
inum, sennilega aörir helztu leiö-
togar Sovétríkjanna, og af hálfu
Tékkóslóvakíu Svoboda ríkisfor-
seti og Dubcek, flokksleiðtoginn,
Cemik forsætisráðherra og Smir-
kovsky þjóöþingforseti.
Pétur Bjamason, verkfræðingur
á Akureyri sagði blaðinu, að þetta
hefðí heppnazt mjög vel og nú væri
litið svo á, að samsetningu dráttar
sleðans sé lokið.
Það var um kl. sjö í gærkvöldi,'
sem togarinn sigldi inn innsigling-
arrénnuna sem enn er unnið við að
dýpka, en áður hafði sleðanum ver
ið rennt niður. Það tók um hálfa
klukkustund.
Fyrstu fimmtíu metrana var skip
ið dregið upp hægt, en þegar það
var komið úr sjó var hraðinn auk-
inn og Kaldbakur var kominn á
þurrt land um níu leytið I gær-
kvöldi.
Dráttarbrautin er nú 180 metrar
á lengd, en ennþá eiga eftir að
fbætast við hana 36 metrar, sem
verða byggðir næsta sumar. Mesta
dýpi í sjó, sem hún nær niður á
eins og stendur, eru 10 metrar.
Pétur lagði áherzlu á að verkið
hefði gengið sérlega vel, og nú
væri aðeins eftir að bæta starfsað-
stöðu í landi og þjálfa starfsliðið
við notkun dráttarbrautarinnar.
Síldin hefur tekiB „rétta stefnu"
Stefnir enn i átt til Noregs en fiskifræðingar
telja oð hún muni stefna til 'lslands næstu
daga — Góð ve/ð/ / Norðursjo / fyrradag
Síldin heldur stöðugt azt nær 300 mílum sunn-
áfram göngu sinni suður
á bóginn af miðunum við
Svalbarða. — Síldin hef-
ur nú farið 50—60 mílur
suð-suðvestur síðustu
dagana, en hún hefur
undangengnar vikur þok
ar en hún var í byrjun
veiðitímabilsins.
Veiöisvæðiö var í gær um 10
gráður A 1. og 73° 40’ N br.B
og fengu þar 11 skip afla 4301
lestir. — Fiskifræðingarnir ls-1
lenzku eru vongóðir um að síld-l
in komi upp aö landinu á næst-j
unni, j)ó að stefna hennar sé
núna í átt til Noregs. — Von-
ast menn til að síldin taki á-
kveðna stefnu á göngu sinni
næstu daga og gæti hún þess
vegna verið komin á miðin und-
an Austfjörðum innan tveggja
til þriggja vikna.
Mikill hörgull hefur verið á
vatni og ýmsum nauðsynjum hjá
sfldarflotanum úti 1 hafinu, en
úr því rættist í bili þegar flutn-
ingaskipiö Síldin kom á miðin
í gær með vatn og vistir. Enn-
frfmur er lejguskip Síldarútvegs-
nefndar, Katharina nú komið á
miðin með á fimmta þúsund
tunnur um borð. — Mestöll sfld
sem veiðzt hefur að undanfömu
er söltuð um borð í skipun-
um.
Gðð veiði var í fyrradag í
Norðursjó og héldu flest ís-
lenzku skipin til Þýzkalands
með af-lann og selja þar fsaða
sfld í dag og á morgun.
Viðræðum stjórnmálaflokk-
anna verður haldið áfram
Búið að salta í 22
þúsund tunnur
Heildarsildaraflinn um 42 þúsund lestir
— fjórum sinnum minni en i fyrra
Næsti fundur klukkan tvö á morgun
FuIItrúar stjórnmálaflokk-
anna fjögurra hófu fund kl.
tvö i gær í Stjórnarráðshús-
inu við Lækjargötu. Fulltrúar
stjórnarflokkanna gerðu
greln fyrir hinum nýju aðgerð
um í efnahagsmálum. Lýstu
fulltrúar Framsóknarflokks-
ins og Alþýðubandalagsins
yfir því, að aðgerðimar væru
á ábyrgS ríkisstjórnarinnar,
en æskilegt væri, að viðræð-
um um varanlegri lausn yrði
haldið áfram. Búizt er við, að
fundir standi vikum saman.
Næsti fundur hefur verið boð
aður klukkan tvö á morgun.
Að fundi Ioknum var birt
sameiginleg fréttatilkynning
frá fundarmönnum. Fer hún
hér á eftir:
„Fulltrúar stjómmálaflokk-
anna kpmu saman á fund í
Stjómarráðinu kl. 2 eftir há-
degi í dag til aö ræða efnahags-
mál þjóðarinnar og nauðsynleg
úrræði í þeim.
Menn urðu sammála um að
halda þessum viðræðum áfram -
en gerðu sér ljóst, að taka
mundi nokkrar vikur þangað ti!
synt verður hvort samkomulag
næst m. a. vegna þess tíma, sem
nauðsynleg gagnasöfnun krefst.
Fulltrúar stjórnarflokkanna
skýrðu frá þeim bráðabirgða-
ráðstöfunum, sem þeir telja ó-
hjákvæmilegar og ákveöið hefur
verið að lögfesta nú í dag, bæði
vegna ríkjandi ástands og til að
skapa svigrúm til þeirra samn-
ingaumleitana, sem nú eru hafn-
ar. Fulltrúar stjórnarandstöðu-
flokkanna tóku fram, að þessar
ráöstafanir væru að sjálfsögðu
á ábyrgð rikisstjórnarinnar einn-
ar og stuðningsflokka hennar, en
breyttu engu um vilja þeirra
til að halda áfram viðræðum
þessum. Þá var nánar rætt um,
hvernig viðraeöunum skyldi hátt
að og hverra helztu gagna þyrfti
að afla.“
Heildarsíldaraflinn á miðunum
norður við Svalbarða í sumar er nú
orðinn nær 42 þúsund lestir, en
var á sama tfma í fyrra 170.750
lestir.
Samkvæmt skýrslu Fiskifélagsins
er búið að salta í 20.938 tunnur á
miðunum og 1103 tunnur í landi. i afla:
ina ísaða í kössum í Þýzkalandi og
Bretlandi.
1 bræðslu hafa farið 33.118 lestir.
Lítil veiði hefur verið síðustu.
vikumar og í nótt fengust aðeins
43 tonn á miðunum suöur af Sval-
barða. Þessi skip tilkynntu
um
33.118 lestum hefur verið landaö
erlendis í sumar og er þar um að
ræða afla íslenzku skipanna, sem
veitt hafa í Norðursjó og selt síld-
Arnfirðingur 20 lestir, Héðinn
35, Víkingur 45, Óskar Magnússon
30, Náttfari 30, Eldborg 60, Brett-
ingur 10, Guðbjörg Is 130, Vöröur
35, Óskar Halldórsson 25.
Teklzt í hendur á viðræðufundi. Björn Jónsson, alþingismaður, og Gylfi Þ. Gíslason, ráðherra, heilsast. Aðrir á myndinni eru Ey-
steinn Jónsson, fyrrum ráðherra, Jóhann Hafstein, ráðherra, Bjarni Benediktsson, ráðherra og Eggert G. Þorsteinsson, ráðherra.