Vísir - 04.09.1968, Side 2
V í SIR . Miðvikudagur 4. september 1968.
HVERSU LANGT GETUR
DÓMARINN GENGIÐ?
Er mat dómara á atvikum ekki stundum um of
bundið við þá sjálfa persónulega?
Dómarinn í knattspyrnukapp-
leik, er maður sem hefur mikii
völd. Slíkur maður verður að
fara vel með vald sitt og láta
enga tilfinningasemi koma til
greina, þegar hann kveður upp
úrskurð. Hann verður einnig að
geta sett sig í spor leikmanna,
sem getur hent sitt af hverju í
hita leiksins, sem strax er roklð
úr þeim. Dómarinn verður hins
vegar að vera hinn ískaldi og
'iruggi stjórnandi leiksins og^
þeirra reglna, sem um leikinn
hafa verið samdar.
Mér finnst það í seinni tíð
að dómarar hafi talsvert
byrjað að sýna mönnum „hver
hafi valdið“. Hvað eftir annað
í sumar hefur mönnum verið
vísað af leikvelli, og stundum
finnst manni að ekki hafi verið
ástæða, til þess ama. Dómarar
fyrtast' fæstir við þó leikmaöur
kalli eitthvað á þessa leið:
„Ætlarðu ekki að dæma, mað-
ur!“ eða eitthvað í þá áttina.
Dómara ætti að nægja að sussa
á leikmann, en að visa honum
af velli, jafnvel þótt tvær svip-
aðar setningar hafi hrotið af
vörum sama leikmanns, — slíkt
nær auðvitað engri átt.
Það er mjög mikilvægt að
far til Kaliforníu í
verðlaun fyrir golfsigur
Daniel Pétursson, flugmaður og
Sigurjón Jónsson, siglingafræöing-
ur báðir hjá Loftleiðum, unnu lík-
Iega beztu verðlaun, sem um getur
í golfíþróttinni á íslandi. Fyrir sig-
ur i Loftleiðakeppni i golfi fá þeir
frítt far og uppihald á Palm Springs
i Kalifomíu, en þar verður háð
golfmót flugfélaga 24.—26. sept.
n.k.
Það mun vera bandariska flug-
félagið American Airlines, sem
sér um keppnina að þessu sinni,
en Douglas-verksmiðjurnar munu
sjá um að greiða hluta af kostnað-
inum við keppnlna. Siðast fór
þessi flugfélagakeppni fram á ir-
landi, en næsti kcppnisstaður er
Melboume í Ástralíu.
10 ÞÚSUND RÚM
I OL-ÞORPINU
Þær fréttir bárust í gærkvöldi
frá Olympíuþorpinu £ Mexíkó-
borg að þar stæðu menn hreint
á haus í undirbúningnum að
komu íþróttafólksins, sem flest
mun verða mánuð eða iengur,
allt upp í 6 vikur í þorpinu.
Alls eru húsin 29, sem munu
hýsa fólkið og í skeytinu sem
okkur barst í gærkvöld segir að
um helgina hafi 10.145 rúmum i
verið komiö fyrir, og auk þess
verða þama 10 þús. stólar og
3730 skápar.
Takmarkið er að hafa allt klapp-
að og klárt 14. september, en 12.
okt. hefjast leikamir. Iþróttafólk-
inu er frjálst að koma hálfum
mánuði fyrr til að venjast lofts-
laginu og mpnu langflestir vænt-
anlega þiggja það boð.
Flugfélag 1:1
Flugfélag íslands og SAS, Kaup-
mannahöfn, léku „landsleik" í
knattspymu i Kaupmannahöfn á
laugardaginn var.
Þau ánægjulegu úrslit urðu að
Í3fntefli varð, 1:1, og voru bæði
niörkin skoruð í fyrri há c.
Lið Flugfélagsmanna er harö-
snúið, enda æfa liösmenn dyggi-
lega. Liðið tapaði fyrir Loftleiðum
nýlega, en Flugfélagsmenn voru
þó taldir mun betri aðilinn. Þetta
hefur hins vegar greinilega örvað
áhuga Loftleiðamanna, sem hafa
hafið æfingar af kappi og hyggjast
keppa í þessum mánuði við Braa-
, then í Oslo.
dómari þekki hugsanagang leik-
manna, hafi sjálfur háð stríð
við boltann og hafi þannig
kynnzt þvi hvemig knatt-
spymumaður „kemst i ham“.
Þegar iHa gengur þarf oft að
kenna öðrum um. Oft lendir
þetta á dómaranum. Engu aö
síður getur leikmaður virt dóm-
arann og setningar sem þessar
eru ekki meintar sem persónu-
leg gagnrýni. Aðalatriðið finnst
mér, aö dómarar skemmi ekki
leiki að óþörfu fyrir áhorfend-
um með þvi að vísa leikmönn-
um af velli. Slik hegning er
mjög ströng og virðist mér að
hún eigi aðeins að koma ef um
mjög gróft og ljótt brot er að
ræða. — Jbp —
Islenzkir Olympiufarar:
Valbjörn
Þorláksson
VALBJÖRN ÞORLÁKSSON,
KR, tekur þátt i sinum þriðju
Olympíuleikum I Mexíkó í haust.
Hann var fyrst meö í Róm 1960
í stangarstökki og tugþraut, þá í
Tokyo í tugþraut og nú í þriðja
sinn í tugþraut leikanna, —
og líklega verða ekki margir tug-
þrautarmenn i keppninni, sem taka
þátt í þriðja sinn.
Valbjöm er 34 ára gamall og
keppir fyrir KR. Hann hóf sinn
feril sem stangarstökkvari og hef-
ur í meira/ en áratug verið okkar
bezti stangarstökkvari og á g3d-
andi íslandsmet, sem er fLSO m.
Valbjöm hefur ömgglega sett
sterkastan svip allra frjálsfþrótfca-
manna á mótin hér undanfarin ár,
enda hefur hann verið sigurvegari
í fjöldamörgum greinum og oftast
verið í sérflokki. Geta má þess tll
dæmis að á dögunum, þegar KR
vann Reykjavíkurmótið í frjálsum
íþróttum meö 294 stigum gegn
267 stigum IR, — þá hlaut Val-
bjöm 59 af stigum félagsins.
Myndirnar þrjár af Valbirni tók Hjörtur Aðalsteinsson. Sú efsta sýnir Valbjörn hátt yfir
4.30, en önnur og þriðja sýna hann fella met tilraunarhæðina 4.51. Takið eftir vinstri hend-
inni, — með henni fellir Valbjöm, en er annars vel yfir hæðinní.