Vísir - 04.09.1968, Qupperneq 6
f
Rányrkja á myndlistarmarkaðij
4ð, undanfömu hefur sannar-
lega ekki verið hægt aö
kvarta undan því, aö of sjaldan
gæfust tækifæri til að skoða
málverkasýningar, þvf að þær
hafa eins og flóðbylgja duniö
yfir Reykjavík og nágrenni.
Ekki hef ég undir höndum ná-
kvæman lista yfir þær sýning-
ar, sem opnar hafa verið upp á
síðkastið, en í fljótu bragði man
ég þó eftir einum tiu eða tólf,
en þær eru: Sólveig Eggerz í
Hafnarfirði. Bjami Guðjónsson í
Kópavogi Baldvin Ámason í
Málaraglugganum, Guðbjartur
Gunnarsson í Morgunblaðsglugg
anum, Platero i Persíu, Sveinn
Bjömsson f Hliðskjálf, Stein-
grímur Sigurðsson í Casa Nova,
Jón Jónsson í Bogasal, Hafsteinn
Austmann f Unuhúsi, Hildrud
Gudrun Braren á Mokka, og til
að fullkomna hringinn er hún
Sólveig Eggerz nú að byrja á
Mokka. Ennfremur er Freymóð-
ur Jóhannsson (12. september)
að undirbúa sýningu f Bogasaln-
um, og f jölmargir málarar hyggj
ast sýna verk sfn á næstunni.
Þetta er allsæmilegur fjöldi,
sem upp hefur verið talinn, og
þar fyrir utan hafa verið haldn-
ar ýmsár aðrar sýningar — á
húsgögnum, keramik og listiðn-
aði.
Ekki hefur mér gefizt kostur
á að sjá allar þessar sýningar,
og satt að segja hef ég ekki haft
áhuga á þvf, og ekki hefur hel(3-'
ur birzt gagnrýni um þær allar
f blöðunum, hvort sem það nú
stafar af þvi, að listdómendur
telja það ekki f sínum verka-
hring, að skoða sýningar allra
þessara „listamanna".
Ekki veit ég hvort það er
æskileg þróun fyrir íslenzka
myndlist, sem sést f þessari sýn-
ingagleði svona margra, sem
fást við liti. Ekki veit ég heldur,
hvað það er, sem knýr margt af
þessu fólki til að sýna — nema
ef vera kynni hagnaðarvonin,
eða löngunin til að vekja athygli
á sér. Ekki er lfklegt, að fólk
sýrti fyrst og fremst til að fá
gagnrýni á myndir sínar. Það
væri auðvelt að gera með þvf
einfaldlega að bera verkin undir
einhvem starfandi myndlistar-
gagnrýnanda. Með þessu er þó
ekki átt við alla þá, sem taldir
eru hér að framan.
Það hljóta allir að sjá, sem
íhuga málið, að eitthvað er bog-
ið við allan þennan fjölda sýn-
inga, þar sem ekkert sérstakt
kemur fram — ekkert nýtt og
sláandi. Hvers vegna er verið að
þessu?
Það er heldur ekki að ástæöu-
lausu, sem það er aö veröa út-
breiddur brandari meðal almenn
ings, aö einfaldast sé núna f
peningaleysinu að kaupa sér liti
og léreft og fara að hengja upp.
Svona setningar eru heldur ekki
út f bláinn, þvf aö hvenær ber
það við, aö listdómarar ráðleggi
einhverjum hreinskilnislega að
hætta að mála? Viðkvæðið hjá
þeim er að margt sé athyglis-
vert og fróðlegt veröi að fylgjast
með næstu sýningu. Við þessi
orð vex byrjandanum í kúnst-
inni auðvitað ásmegin, og hann
hraðar sér allt hvað af tekur við
að mála upp f næstu sýningu.
Af þeim málurum, sem óneit-
anlega verða að teljast alvöru-
málarar, og ég hef rabbað viö,
Skilst mér, að þeir telii þama
vera á ferðinni hálfgerða rán-
yrkju á myndlistarmarkaönum.
Það er lítið gaman fyrir þá
menn, sem hafa algerlega helg-
að sig þvf, að gerast listmálarar
óg leitað sér menntunar sam-
kvæmt því, og síðan reynt að
byggja upp smekk almennings,
að sjá aðra menn, hafa takmark-
aða hæfileika, kunnáttu eða jafn
vel alvöru til að bera, mála.
myndir eingöngu fyrir smekk al-
mennings.
Og auðvitað vill almenningur
helzt það bezta f myndlist. Hver
vill ekki heldur hafa á vegg hjá
sér mynd, sem stenzt þær kröf-
ur, sem gerðar eru til góðs mál-
verks, en eitthvert litasamsull,
sem búið er til af manni, sem
blindandi fálmar sig áfram á
sviði, sem hann þekkir ekki til.
En hverjir eiga að leiðbeina
almenningi? Auðuitað málararn-
ir sjálfir og mjmdlistargagnrýn-
á þessum atvinnutækjum listmálarans. (Þessi mynd var tekin
í Málaranum með góðfúslegu Ieyfi verzlunarstjórans, en þar
selst mikið af slíkum vörum).
endur. Þeir eiga að sjá til þess,
aö fólk geri sér ljóst hvað er á
ferðum, þegar málverkasýning
hefst. Þeir eiga að skilja sauö-
ina frá höifrunum.
Nú er ekki verið að ætlast til
þess, að tómstundamálurum sé
bannað að viðjagöri refsingu að
sýna myndir sínar á almanna-
færi, en þeir, sem láta sér annt
um þessi mál, eiga að sjá til
þess, aö það vefjist ekki fyrir
fólki að greina heimilisiðnað og
tómstundagaman frá sannri list.
Þráinn.
(„Boy, Did I get a wrong
Number")
íslenzkur texti.
Víðfræg og framúrskarandi vel
gerð, ný, amerisk gamanmynd
f algerum sérflokki enda hefur
Bob Hope. sjaldan verið betri.
Myndin f litum.
Bob Hope
Elke Sommer
Phillis Diller
Sýnd kl. 5 og 9.
(Elsk din næste)
Mjög vel gerð, ný dönsk gam-
anmynd * litum. Myndin er
gerð eftir sögu Willy Brein-
holts. í myndinni leika flestir
snjöllustu leikarar Dana.
Dirch Passer
Christina Chollin ,
TÓNABÍÓ
V1SIR . Miðvikudagur 4. september 1968.
|—Listir -Bækur -Menningarmál-
Walter Giller MRr'
Sýnd kl. 5.15 og 9.
, 82120 a
rafvélaverkstædi
s.melsteds
skeifan 5
Tökum að okkur:
■ Mótormælingar
Mótorstillingar
■ Viðgerðir á rafkerfi
dýnamóum og
störturum.
■ Rakaþéttum raf-
kerfið
Varahiutir á staðnum
H ÁSKÓIABIÓ
Hetjurnar sjö
(Gladiators 7)
Geysispennandi amerísk mynd
tekin á Spáni i Eastman-litum
og Thecniscope.
AOalhlutverk:
Richard Harrison
Loredana Nusciak
Islenzkur texti.
Bönnuð bömum innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
I UCARflSBÍÓ
Járntjaldib rofib
Islenzkur texti
Julie 4norews
Paul Newman.
Endursýnd kl 9
Bönnuð börnnm innan 12 ára
S autján
Hin umtalaða fanska litkvik-
mynd. — Sýnd kl. 5 og 7. —
Bönnuð bömum.
GAMLA BÍÓ
ROBIN KRÚSÓ
liðsforingi
Bráðskemmtileg ný Walt Disn-
ey kvikm., -» f litum með:
Dick Van Dyke
Nancy Kwan
tslenzkur texti.
Sýnd kl. 5 og 9.
HAFNARBÍÓ
Sumuru
Spennandi ný ensk-þýzk Cin
emascope-litmvnd með
Georye Nader
Frankle 4vaIon
Shi-ley Eaton
tslenzkur texti
Bönnuö mnar 16 ára
Sýnd kl 5, 7 og 9.
STJÖRNUBÍÓ
Franska aðferðin
íslenzkur texti.
Sýnd kl. 9.
Vigahrappar
Endursýnd kl. 5 og 7.
Bönnuð börnum innan 14 ára.
BÆJARBÍÓ
Skuggi fortiðarinnar
(Baby the rain must fall)
Spennandi sérstæð amerísk
kvikmynd.
Aðalhlutverk:
Lee Remick
Stewe McQueen
Don Mu'ray
Sýnd kl. 9
Bönnuö börnum innan 14 ára.
iHÝJA BÍÓ
Barnfóstran
(The Nanny)
Islenzkur texti
Stórfengleg, spennandi og af-
burðavel leikin mynd með:
Bette Davis
sem lék f Þei, þei kæra Kar-
lotta.
Bönnuö börnum vngri en 14
ára.. — Sýnd kl. 5. 7 og 9.
AUSTURBÆJARBÍÓ
Pulver sjóliðsforingi
Bráðskemmtileg. amerisk gam-
anmynd f litum og Cinema-
scope. — tslenzkur texti.
Robert Walker
Buri Ives
Sýnd kl 5 og 9
Sláturhúsið
hraðar hendur
Önnur sýning kl 11.30.