Vísir


Vísir - 04.09.1968, Qupperneq 16

Vísir - 04.09.1968, Qupperneq 16
BRÁÐABIRGÐALÖO í GÆR: 20% iimfíutningsgjald lagt á allar vörur Mlðvikudagur 4. sept. 1968. r Islendingar fá aðgang en Norð- ntönnum vísað frá • Tveir íslenzkir námsmenn fengu inngöngu f dýrakoknaháskól- ann norska í ár eins og venja er. Féll annar frá þeirri ákvöröun sinni að stunda nám við skólann en hinn — Eggert Gunnarsson — innrltaöist ásamt öðrum stúdent- um s.l. laugardag. Segir frá þessu í frétt frá NTB þar sem þess er elnnig getið að norskum stúdentum sé takmörkuð aðganga að skólan- um. Sagði einnig í fréttinni, að tveir íslenzkir stúdentar og 23 Norðmenn hafl útskrifazt með embættisprófi sem dýralæknar frá dýralæknahá- skólanum f Osló í ár. ■ I gær voru sett bráðabirgðalög um 20% innflutningsgjald á allar innfluttar vörur og út- gjöld ferðamanna erlend is. Tilgangur laganna er að komast hjá öngþveiti í efnahagsmálum, á með an fulltrúar stjórnmála- flokkanna ræða mögu- leika á samstarfi um varanlegri lausn vand- ans. Meginorsakir lagasetningar- innar eru þessar: Gjaldeyris- sjóður okkar hefur farið mjög rýmandi að undanförnu. I-íann nemur nú um 500 milljónum, þrátt fyrir eriendar lántökur, og mundi að öðru óbreyttu naumast endast í þrjá mánuði enn. Útflutningstekjur hafa minnkað geigvænlega að undan- fömu. Munu þær taldar veröa um 40% minni í ár en var fyrir tveimur árum. Slík lækkun er mikið áfall fyrir þjóð, sem svo mjög byggir afkomu sína á ut- anríkisverziun. Það er skoðun ríkisstjórnarinnar, að ekki hefði mátt draga aðgeröir í efnahags- málum lengur. Hins vegar er hér aðeins um tímabundin úr- ræði að ræöa. Lögin gilda til 30. nóvember. Fyrir þann tíma verður að gera róttækar að- geröir. Helzt er rætt um tvær leiðir. Annars vegar gengis- lækkun og hins vegar uppbóta- kerfi. Helztu áhrif bráöabirgða- laganna munu verða þau, aö verð hækkar á innfluttum vör- «m. Er talið, að vísitalan ætti að hækka um 4—5% sem afleið- ing ráðstafananna. Þar sem 30% af kostnaöi verzlunarinnar er erlendur kostnaöur, mun heim- ilt að leggja auka álagninguna í krónutölu á sem nemur 30% þeirrar hækkunar, sem aðgerð- irnar orsaka. Heimild er í lög- unum um stuðning við útflutn- ingsatvinnuvegina og landbúnað af þeim auknu tekjum rikissjóðs (um 200 milljónum), sem skap- ast við lögin. Hagur ríkissjóðs hefur verið slæmur að undan- fömu, • en við hið nýja gjald myndast nokkur tekjuaukning. »->- 10. síða. Lélegasta síldarsumarið á Siglufirði Siglfirðingum hefur reynzt þetta sumar Iélegasta síidar- sumar, sem þeir muna eftir. Hef ur lítið borizt til þeirra af bræðslusfld, það sem af er sumr- .v.v, v.v .w: inu, en þeir hafa haldið flutn- ingaskipinu Nordgaard í ferðum milli flotans á síldarmiðunum og Siglufjarðar. Síðast kom skipið með 1200 tonn af bræðslusíld, sem þá var orðin gömul og geymd, en það er nú statt á miðunum og á að sækja eina fylli tjl. Síðan er gert ráð fyrir, að skipið hætti flutningunum í ár, að minnsta kosti ef veiðin glæðist ekkert. Nú er runnið út það tímabil sumarsins, sem síldarverksmiðj- an á Siglufirði tryggir starfs- fólki sínu lágmarkstekjur, og við það misstu 60 manns á Siglufirði fastar tekjur sínar. jj Lenti ofan jj / skurði I; '* Svo kyrfilega festist þessi/ þbifreið í skurði við Klifveginn,\ •'skammt frá Borgarsjúkrahúsinu,"; i gærkvöldi, að ekki dugði til '• hinn létti kranabíll Vöku til [ ■; þess að draga hann upp úr.*» {•Þurfti að kveðja til stærri krana;; m-S- 10 •; l v'{\ 1 Veitingasala í flug- vél við Sandskeið Bandarísk flugvél steyptist í sjó fram og eyðilagðist, er hún lenti á Reykjavíkurflugvelli í vor. Vélin .«I var talin ónýt. Tveir veitlngaþjón- ar föluðust eftir vélinni í því ástandi sem hún var og fengu þeir hana keypta. Fluttu þeir hana upp að Hafravatni og ætluðu að innrétta hana fyrir klúbbstarfsemi og veit- ingasölu. En eitt smáatriði gleymdu piltarnir að taka með í reikninginn, þeir höfðu ekki fengið leyfi til að staðsetja vélina á þessu svæði. Eftir að þeim hafði verið bent á, að leyfi yrði ekki fengið fyrir vélina á þessu landsvæði lögðu þeir árar i bát. Nú hefur Kópavogskaupstaður hlaupið undir bagga með plltunum og lánaö þeim landsvæði upp við Sandskeið og geta þeir þvi væntan iega haldiö áætlunum sínum áfram og opnað flugvélina almenningi. Stóll úr alíslenzku efni • Þessi stóll hlaut sérstök verölaun tímaritsins Iceland Review á sýningu húsgagnaarkitekta, en hún stendur enn, var framlengd tii næsta sunnudagskvölds og er opin daglega frá 14—22. • Ungur húsgagnaarkitekt, Gunnar Magnússon, teiknaði stólinn á myndinni, en hann er úr ljósri furu og er einn af sýningar- gripunum i Iönskólahúsinu nýjc á Skóiavörðuholti, þar sem arki- tektamir sýna. • Gunnar kveðst leggja kapp á að smiða stól þennan úr íslenzku efni, og ætlar hann að nota Islenzkt greni og klæða hann mefi sútaðri sauðargæru. Eigandaibúðum stórfjölgar og fleiri herbergi í íbúð Á tuttugu ára tímabili, frá 1940 til 1960, hefur það orðið æ algengara, að íbúðij- séu í eign íbú- anna sjálfra, en ekki leiguíbúðir. Þetta kemur fram í nýútkomnum hús næðisskýrslum, er Hag- stofan gefur út. Árið 1940 voru 56,2 af hundr- aði íbúða eigandaíbúðir, 1950 63,9% og 1960 70,3 af hundraði. Þessar tölur gilda um allt land- ið. í Reykjavík varð þróunin hin sama. Árið 1940 voru 38,8% eig- andaíbúðir, 1950 52,9% og 1960 63,9 af hundraði. Þetta þýðir að sjálfsögðu, að hinum aimenna borgara hefur í - ríkara mæli tekizt að eignast eigið liúsnæði og ætti að bera vitni bættum efnahag á þessu timabili. Skýrsl- urnar ná aðeins til 1960, en þró- unin mun hafa verið svipuö síðan. Þá hcl'ur meðalibúð stækkað. Meðaltal herbergja á íbúð var 1940 4,17 herbergi, 1950 4,42, og 1960 var þessi tala komin upp i 4,84 herbergi í hverri íbúð að meðaltali. Hér er eldhús að vísu talið herbergi. Einnig þetta ætti að sýna batnandi afkomu fólks á þessu tuttugu ára tíma- bili.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.